Morgunblaðið - 25.09.2020, Side 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020
Vitamix blandararnir eiga
sér engan jafningja.
Mylja nánast hvað sem
er. Búa til heita súpu
og ís.
Hraðastillir, prógrömm
og pulse rofi sjá til þess
að blandan verður ávallt
fullkomin og fersk!
Heitasta tækið
í eldhúsinu
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Ascent serían
frá Vitamix
V
algerður var á leigumarkaðnum þeg-
ar hún var í myndlistarnámi fyrir
norðan en flutti svo aftur heim til
móður sinnar þegar hún flutti aftur
suður. Hún segir að það hafi verið
orðið ágætlega tímabært fyrir sig að kaupa sér
íbúð núna en Valgerður er 27 ára gömul.
„Eins mikið og ég elska foreldra mína fannst
mér þreytandi að geta ekki bara sest við píanó-
ið og sungið eins hátt og mig langaði, eða
gengið um berrössuð eftir sturtu. Þetta var
svona mitt skref í átt að því að fullorðnast, og
það gengur bara alveg ágætlega,“ segir Val-
gerður.
„Áður en ég fann mína íbúð
hafði ég þannig séð engar
ákveðnar hugmyndir, ég trúi því
að lífið taki mann þangað sem
maður á að vera hverju sinni. Ég
var að heimsækja fjölskylduna
mína á Akureyri þegar mamma
sendi á mig hlekk af íbúðinni á
Hringbraut og spurði hvort ég
hefði áhuga á að skoða, það væri
opið hús daginn eftir og ég þyrfti þá að drífa
mig suður.
Ég ákvað að láta vaða og hugsaði: „Ef þessu
er ætlað að verða, þá verður það.“ Ég var síðan
mætt á opið hús daginn eftir og féll algjörlega
fyrir íbúðinni, gerði tilboð og það var sam-
þykkt sólarhring síðar. Íbúðin var björt og fal-
leg, á fullkomnum stað, með rúmgóðum svöl-
um og bókstaflega í næstu götu við foreldra
mína svo ég fór nú ekki of langt frá mömmu.
Ég keypti af yndislegu pari, þau voru búin að
gera íbúðina mikið upp og þetta var í rauninni
bara algjör draumur fyrir mig og ég gæti ekki
verið sáttari,“ segir Valgerður.
Leyfði hjartanu að ráða för
Valgerður hefur síðustu vikur verið að gera
íbúðina að sinni og segist algjörlega hafa leyft
hjartanu að ráða för. „Ég myndi segja að íbúð-
in endurspeglaði mig og minn karakter mikið.
Ég hef sterkar skoðanir og veit yfirleitt alveg
hvað ég vil og vil ekki. Mig langaði til dæmis
alls ekki að fá mér sjónvarp, ég horfi aldrei á
sjónvarp og frekar en að koma heim eftir lang-
an dag og kveikja á sjónvarpinu set ég plötu á
fóninn og dúlla mér.
Það að hafa ekki sjónvarp verður líka til
þess að fólk talar meira saman þegar það kem-
ur í heimsókn til mín, og spjallar við mig á
meðan ég elda og er með gesti. Þá er ekki
þetta utanaðkomandi áreiti að trufla, og stund-
in verður verðmætari fyrir vikið. Hver einasta
ákvörðun sem ég tók varðandi íbúðina kom
mjög eðlilega til mín, ég hugsa að þetta snúist
að miklu leyti um að treysta eigin innsæi,“ seg-
ir Valgerður.
„Öryggi og hlýja skipta mig miklu máli, mig
langaði að skapa heimili með karakter og sál.
Ég lít á heimili mitt sem minn griðastað og þar
á manni að líða vel. Ég er kertasjúk og er með
kerti um alla íbúð, hljóðfærin mín eiga stóran
sess í mínu lífi og mér finnst dásamlegt að vera
umvafin hljóðfærum, bókum, vínilplötum, fal-
legum húsgögnum og huggulegri birtu,“ segir
Valgerður þegar hún er spurð um hvers konar
andrúmsloft hana langaði til að skapa á heim-
ilinu.
Valgerður er í söng- og píanónámi við MÍT
og stefnir á hljóðfæratónsmíðar í Listaháskóla
Íslands á næsta ári. Þess á milli vinnur hún
sem sundlaugarvörður í Sundlaug Seltjarn-
arness. „Ég fer í sund á hverjum degi, vatnið
„Mitt skref í átt að
því að fullorðnast“
Tónlistarkonan Valgerður Þorsteinsdóttir keypti sína fyrstu
íbúð í sumar. Um er að ræða litla íbúð í Vesturbænum og hefur
hún notað síðustu misseri til að gera hana að sinni.
Sonja Sif Þórólfsdóttir | sonjasif@mbl.is
„Öryggi og hlýja
skipta mig miklu
máli, mig lang-
aði að skapa
heimili með
karakter og sál.“
Hún elskar að hafa
kertaljós logandi
heima hjá sér.
Það sést vel á heimili
Valgerðar hversu
listræn hún er.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Valgerður Þor-
steinsdóttir hefur
búið sér fallegt
heimili í vest-
urbænum.
SJÁ SÍÐU 44