Morgunblaðið - 25.09.2020, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 25.09.2020, Qupperneq 45
Erla Dögg og Tryggvi segja að vaskurinn sé fyrir alla sem nota salerni. Erla Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi Þorsteinsson hönnuðir og eigendur Minarc-arkitektastofunnar í Santa Monica í Kaliforníu unnu á dögunum til verðlaunanna The European Product Design Award, fyrir hönnun sína á vaski sem sparar vatn. Hann nefnist ReFlow. Marta María | mm@mbl.is Fyrir hverja er þessi vaskur? „Fyrir alla sem fara á klósettið og þvo sér um hendurnar,“ segir hún og hlær og bætir við: „Og fyrir alla sem vilja breyta heiminum.“ Nú þarf hönnun og útlit að fara saman, var ekkert erfitt að sameina það? „Það er ekkert erfitt og má líta út hvernig sem þú vilt svo sem. Við erum að vinna með nýjungar og hugmyndafræði og tækni. Hún getur verið alls konar.“ Hvernig er hönnunarheimurinn að breytast? „Við berum meiri ábyrgð en áður að vera frjó og finna nýjar lausnir. Það er nú næstum öruggt að heimurinn mun aldrei verða aftur eins og hann var og við vonum að það sé til góða. Hönnuðir bera ábyrgð á að kynna sér nýjungar og nota þær. Einnig er áríðandi að hönnuðir og arkitektar átti sig á þeirri ábyrgð að oft er verið að byggja á óbyggðum slóðum og þá ríður á að eyðilegg- ingin sé gerð til að setja eitthvað fallegt í staðinn,“ segir hún. Eru Íslendingar komnir nægilega langt að hugsa á þessum nótum? „Ég bara veit það ekki. Við búum að þeim náttúruauðlindum eins og með vatnið sem við, eins og staðan er í dag, eigum nóg af. En það þarf ekki að vera endalaust. Ég fann áþreifanlega fyrir því þegar ég flutti frá Íslandi til Los Angeles, að vatn eru lífs- gæði. Hvað varðar Íslendinga og hönnun þá eigum við margt sem við getum verið stolt af,“ segir Tryggvi. R eFlow snýst um að nota vatnið sem notað er í vask- inum til að sturta niður í klósettinu en með því er hægt að spara allt að sjö gallon af vatni. The European Product Design Award verðlauna hönnuði sem eru góðir í því að hanna hluti sem nýtast samferðafólkinu vel í daglegu lífi og koma með splunkunýja sýn á hlutina. Það er því ekki að undra að Erla Dögg og Tryggvi hafi hlotið þessi verðlaun. Þegar Erla er spurð að því hver sé hugmyndin á bak við hönn- unina segir hún að fólk þurfi að hugsa betur um lífsgæði sín og fara betur með auðlindir náttúrunnar. „Það er engin ástæða til þess að henda vatninu sem við þvoum okkur um hendurnar með og hella nýju vatni í klósettkassann. Þetta eins og annað sem við gerum í okkar hönnunarviku, að benda fólki á hvað það gæti gert betur og þannig vonumst við alltaf til að það hvetji aðra með frjóan huga til að gera betur,“ segir Tryggvi. Hún segir að hver niðursturtun geti innihaldið sjö gallon af vatni. Með því að nota ReFlow sparast mikið af vatni sem skiptir máli þegar vatn er af skornum skammti. Hvers vegna skiptir máli að geta nýtt vatnið eins og þið gerið? „Það er svo áríðandi, ekki síst nú á tímum kórónuveirunnar, að vera opin fyrir nýjum leiðum. Dagurinn í dag býður upp á marg- ar nýjar dyr því það er nú alveg á hreinu að margar gamlar eru lokaðar. Því fyrr sem við finnum nýjar dyr og opnum tækifærin bak við þær því betur erum við sett,“ segir hann. Verðlaunahönnun fyrir þá sem þvo hendur og fara á salerni Hér má sjá hvað vaskurinn er sniðugur. Erla Dögg Ingjalds- dóttir og Tryggvi Þorsteinsson reka hönnunarfyrir- tækið Minarc. FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020 MORGUNBLAÐIÐ 45 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Klassísk gæða húsgögn á góðu verði Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Komið og skoðið úrvalið GLOBL VIKTOR Hvíldarstóll KRAGELUND Aya K 129 KRAGELUND K371 Casö 701 langborð Stólar Sófasett Borðstofuborð Skenkar/skápar Hvíldarstólar o.m.fl. Borstofuhúsgön frá Casö Mikið úrval af hvíldarstólum með og án rafmagns. KRAGELUND Handrup Rimme frá Casö, raðau saman þinni samstæðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.