Morgunblaðið - 25.09.2020, Page 46

Morgunblaðið - 25.09.2020, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2020 Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - hitataekni.is Sími 588 6070 - hitataekni@hitataekni.is Sjálfvirk pottastýring með snertiskjá og vefviðmóti POTTASTÝRING G uðbjörg Glóð býr ásamt Gunnari Barra syni sínum í Sjálands- hverfinu í Garðabæ. Fyrir tveim- ur árum ákvað hún að breyta um lífsstíl. „Ekki það að lífsstíllinn minn hafi verið verulega óhollur en hann var samt ekki hollur heldur. Ég fann að árin voru farin að segja til sín og að ég þyrfti að fara að gera eitthvað í málunum.“ Guðbjörg Glóð byrjaði nýja lífsstílinn á því að synda. „Ég byrjaði á nokkrum ferðum sem svo urðu fleiri. Ég fékk svo mikinn áhuga fyrir bringu- sundi að ég var farin að vafra á netinu og horfa á kennslumyndbönd á Youtube á kvöldin.“ Lífsstílsbreyting sem byrjaði með hreyfingu Í ársbyrjun 2018 byrjaði Guðbjörg Glóð í núvitundar- og hugleiðslunámi hjá Eckhart Tolle sem tók sex mánuði og er kennt á netinu. „Þar lærði ég meðal annars að hugleiða og auk núvitundar kynntist ég alls konar leiðum til þess að gera lífið betra. Vegna kórónuveir- unnar mátti ekki fara í sund og þá byrjaði ég að labba úti og nú finnst mér það svo gaman að ég má varla sleppa úr degi án þess að fara út að labba. Göngutúrar er svo einföld hreyfing. Maður þarf ekkert annað en að fara í skó, opna útidyrnar og leggja af stað. Engar tímapant- anir og engin íþróttataska. Ég sem fyrrverandi sjónvarpsáhugamann- eskja eyði nú mestum tíma heima við í hreyf- ingu, grúsk og hugleiðslu en samt langmest í samveru með syni mínum.“ Hvað geturðu sagt mér um breytingarnar sem þú gerðir í svefnherberginu? „Gunnar Barri sonur minn er níu ára en um leið og hann varð meira sjálfbjarga fór ég að finna fyrir því hvað einkalíf mitt varð sífellt minna inni á heimilinu. Hann vakir lengur, skilur meira og hlustar þegar maður er í sím- anum eða er með gesti í heimsókn. Íbúðin okk- ar er mjög opin og hvort okkar með eigið her- bergi. Hann er ekkert voða mikið inni í sínu frekar en ég í mínu herbergi. Mig var því farið að vanta stað til þess að vera meira ein þegar hann er með vini í heimsókn eða þegar ég vildi ræða mál í síma út af fyrir mig. Vinkona mín kom með þá snilldarhugmynd að nýta svefn- herbergið, sem ég og gerði. Ég setti þangað inn einn af stólunum úr stofunni og nú nota ég herbergið mitt mjög mikið. Er bara oft inni í herbergi. Þetta var ekki stór breyting en hún breytti mjög miklu fyrir mig.“ Lítið fyrir óskrifaðar almennar heimiliskröfur Heimilið er að hennar mati staður utan um áhugamál þeirra sem búa þar. „Það er svolítið merkilegt hvað við festumst í því að hlutir eigi að vera á ákveðinn hátt þrátt fyrir að það henti okkur engan veginn. Ég held að mjög margir fermetrar á heimilum nýtist í fátt annað en uppfylla einhverjar óskrifaðar al- mennar heimiliskröfur. Af hverju má svefn- herbergi fullorðinna ekki nýtast til annars en að sofa þegar barnaherbergi eiga að vera afþreyingarstaður líka? Af hverju erum við með stofu sem enginn notar og áhugamálin geymd úti í skúr? Einmitt á þessum nótum keypti ég stóran leð- urskemil sem ég sá auglýstan til sölu á netinu. Hann passaði ekki alveg inn hjá okkur en þegar ég fattaði að minnka borðstofuborðið, sem við köllum afmælisborðið því það er nánast bara not- að í afmælum og á jólum, myndaðist pláss fyrir hann. Skemillinn er í mikilli notkun því sonur minn spilar á horn og æfir sig á honum alla daga og ég hugleiði þar á kvöldin. Það voru því góð skipti að skipta út stækkuninni á afmælisborðinu og koma honum fyrir. Ég held líka að þetta sé bara byrjunin á svona breytingum hjá okkur.“ Auðvelt að hreyfa sig heima Er eitthvað sem þú gerir daglega heima sem er út fyrir kassann? „Ef hugleiðslan er út fyrir kassann þá já en svo hef ég líka gríðarlega gaman af því að dansa heima hjá mér. Það byrjaði á því að epla-úrið sem ég var nýbúin að eignast lét mig vita að ég ætti eftir að hreyfa mig í 25 mínútur ef ég ætlaði að ná takmarki dagsins. Mér fannst það mjög fyndið því úti var niðamyrkur, sonur minn sofandi inni í rúmi og ég föst heima. Ég fór þá að pæla hvað ég gæti gert og endaði á að dansa mig sveitta í 45 mínútur við alls konar tónlist. Síðan þá dansa ég oft þegar ég næ ekki að fara út að labba eða í sund og stundum bara til þess að líða betur. Það er ekki hægt að dansa án þess að komast í gott skap.“ Ertu mikið fyrir að elda sjálf? „Já, ég hef alveg svakalega gaman af því að Sælkeri sem fer sínar eigin leiðir í lífinu Guðbjörg Glóð Logadóttir stofnandi og eigandi Fylgifiska breytti lífi sínu svo um munar fyrir tveimur ár- um. Hún breytti íbúðinni í takt við breytingarnar og setur spurningarmerki við hefðir þegar kemur að heimilinu. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is List og fallegir litir leika stórt hlutverk á heimilinu. Blómin skapa róandi umhverfi á svölunum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Guðbjörg Glóð er alltaf að viða að sér nýrri þekkingu. Guðbjörg Glóð er mikill fagurkeri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.