Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2020, Blaðsíða 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.9. 2020 „Mér tókst að loka á það og tók það ekki nærri mér. En ég man að þegar ég var að vinna í garðyrkju á sumrin sem unglingur voru þarna karlar, barnaskólakennarar í sumarvinnu, sem þurftu einlægt að gera lítið úr kirkjunni, trúnni og biskupnum. Auðvitað væri þetta kallað einelti í dag. Ég svaraði þeim ekki, dró mig bara inn í skel.“ Ætlaði að verða arkitekt Karl fékk að sjálfsögðu mjög trúarlegt upp- eldi. „Ég var mjög trúhneigt barn. Ég tók það inn með móðurmjólkinni. Ég fór í KFUM hálftvö á sunnudögum og svo í þrjúbíó, og auð- vitað í messu um morguninn. Það var alltaf bara sjálfsagt og aldrei nein kvöð. Auðvitað leiddist mér stundum í messu. Ég vissi ná- kvæmlega hvað voru margar ljósaperur í litla messusalnum í Hallgrímskirkju. Ég var búinn að telja það oft og mörgum sinnum. Þær voru ansi margar,“ segir Karl og hlær. Karl segist hafa verið afar stilltur ungling- ur. „Ég fór aldrei í neina uppreisn.“ Efaðist þú aldrei um trú þína? „Jú, ég efaðist oft um trú mína, en ég efaðist aldrei um guð.“ Karl fór í Menntaskólann í Reykjavík og segist hafa verið ákveðinn í því að verða arki- tekt. „Ég sat löngum stundum á Ameríska bóka- safninu og las bækur um arkitektúr og var að teikna. En ég var voðalega lélegur í stærðfræði! Ég bara þoldi hana ekki,“ segir hann og hlær. Hann segist hafa gert sér grein fyrir að arkitekt þyrfti að kunna stærðfræði og því hentaði arkitektúr líklega ekki. „Svo togaði kirkjan í mig.“ Karl fór sem skiptinemi sautján ára gamall til Bandaríkjanna og átti sú dvöl eftir að hafa mikil áhrif á líf hans. Þar var hann fenginn til að flytja fyrirlestra um Ísland í kirkjum og fé- lagasamtökum víða. Litli feimni drengurinn frá Íslandi þurfti nú að standa upp og tala fyrir framan fjölda manns. „Ég var stressaður fyrst en fann svo fljótt að þetta átti bara vel við mig, ég hafði gaman af þessu. Áð- ur hefði mér þótt þetta óhugsandi,“ segir Karl og segist hafa komið heim reynslunni ríkari. Í Banda- ríkjunum kynntist hann tveimur vesturíslenskum prestum sem höfðu mikil áhrif á unga manninn. „Þarna í Ameríku gerði ég það upp við mig að fara í guðfræði.“ Eldskírn í Eyjum Eftir menntaskóla fór Karl í guðfræði í Há- skólanum og fann þar fljótt að hann væri á réttri hillu. „Ég skal þó viðurkenna að fyrsta veturinn hugsaði ég: „Hvað í ósköpunum er ég að gera hér?““ segir hann og hlær. Árið 1970 kvæntist hann konu sinni til fimm- tíu ára, Kristínu Þórdísi Guðjónsdóttur. Kynntist þú konu þinni í Háskólanum? „Nei, við sáumst nú fyrst sem krakkar á Stokkseyri, en hún er fædd og uppalin þar, í Móhúsum. Ég var snemma svolítið veikur fyr- ir henni,“ segir Karl og brosir. „Og svo vorum við að rekast hvort á annað í Reykjavík, en hún flutti í bæinn um fermingu. Svo var það nú ekki fyrr en löngu seinna að við fórum að vera saman, en við vorum að fagna fimmtíu ára brúðkaupsafmæli í vetur. Þetta er langur tími en ótrúlega stuttur þegar maður lítur um öxl. Tíminn er svo dæmalaut skrítið fyrirbæri,“ segir Karl en þau hjón eiga þrjú börn og átta barnabörn. „Það er lífsgæfan mesta.“ Eftir háskólann, í febrúar 1973, var Karl ráð- inn sem prestur Vestmannaeyinga sem hrakist höfðu að heiman vegna eldanna í Heimaey. Fyrst um sinn sinnti hann „flóttafólkinu“ í Reykjavík og nágrenni en flutti svo til Vest- mannaeyja um leið og hægt var eftir gos. „Ég flutti þangað í öskuna, síðsumars 1973. Það var allt á kafi í ösku og fólkið var að flytja heim, fiskvinnsla og önnur atvinnustarfsemi að hefjast á ný. Þetta var magnað en líka skelfi- legt. Við vorum þarna undir rjúkandi eldfjall- inu og brennisteinsfnykinn lagði yfir byggðina. Ef Skólavörðuholtið var háskólinn þá var þetta doktorsprófið, mikil eldskírn. Þetta var eins og að vera á vígstöðvum. Það var allt meira og minna í rúst og allt kolsvart af ösku, en gríðar- legur kraftur og hugur í fólkinu. Þarna ríkti ógleymanlegur endurreisnarkraftur. Við fór- um strax að boða til messu og ég held það hafi verið afar mikilvægt því á þessum tíma var ekkert til sem heitir áfallahjálp,“ segir hann og segir bænina og samkenndina hafa hjálpað fólki að vinna úr sorginni. „Það var mikil sorg, fólk hafði misst heimili sín og vinnu, umhverfi og samfélag var allt í rúst. Það flutti svo til baka en var að sjálfsögðu kvíðið og með þessa skelfingu við hjartaræt- urnar. Þegar hetjusögurnar eru sagðar gleym- ist oft þessi hlið. Þetta var kynslóð sem var al- in upp í miklu návígi við náttúruöflin og alvarleg sjóslys og margir höfðu misst ein- hvern nákominn í sjó,“ segir hann. „Það hefur vafalaust átt þátt í því æðruleysi og þrautseigju sem maður undraðist,“ segir hann. „Þetta voru fordæmalausir tímar, eins og talað er um í dag, það er áreiðanlegt. Ég var prestur þarna í tvö ár, en mér finnst það hafa verið hálf ævin. Og þarna eignuðumst við hjón- in dýrmæta vini til lífstíðar.“ Illska og reiði verst Eftir dvölina í Vestmannaeyjum lá leiðin á gamlar slóðir, Skólavörðuholtið, en Karl var þá skipaður í embætti prests í Hallgrímskirkju. „Kirkjan var í smíðum og þarna var annars konar uppbygging í gangi en í Eyjum, en kirkjan hafði þá verið í smíðum í þrjátíu ár,“ segir hann. „Ég eignaðist þarna góða vini og samverka- fólk,“ segir Karl og segist hafa kynnst ógleym- anlegum kirkjusmiðum og duglegum kven- félagskonum sem söfnuðu fé sem varð til þess að kirkjubyggingin var kláruð. „Þarna fannst mér ég komast í tengsl við einhvern sterkan og djúpan þráð í þjóðar- sálinni. Ég kynntist fólki sem kunni Pass- íusálmana utanbókar og fólki sem hafði mikla hugsjón fyrir því að reisa þessa kirkju. Kirkju sem átti að vera táknmynd Reykja- víkur og táknmynd hins sjálfstæða Íslands. Ég er afskaplega þakklátur fyrir að hafa kynnst þessu; þarna var mikil fórnfýsi og mikill kærleikur.“ Karl segist alltaf hafa fundið sig vel í starfi prests þótt oft væri það erfitt og krefjandi. „Haustin voru spennandi þegar fermingar- börnin komu að skrá sig í fermingarstarfið og barnastarfið var mikið og gott. Börnin stopp- uðu mann gjarnan úti á götu síðsumars og spurðu: „Hvenær byrjar sunnudagaskólinn?“ Ég var mjög ákveðinn í því að mitt hlutverk væri að byggja upp samfélagið; það var ann- arra að byggja húsið,“ segir hann og segir að vinnan hafi verið mikil og dagurinn oft og tíð- um langur. „Ég var alltaf á vaktinni. Landspítalinn fylgdi með og ég var á útkallsvakt. Ég var oft kallaður út um miðjar nætur að skíra börn sem voru í lífshættu eða koma að dánarbeði. Maður var ungur þá og þoldi þetta vel. Ég var líka svo lánsamur í starfi að njóta stuðnings konu minnar og barnanna í öllu. Ég man varla eftir einni einustu guðsþjónustu sem þau voru ekki viðstödd.“ Hvað er það erfiðasta við starfið? „Ég kom oft inn í skelfilegar aðstæður og þá er maður ótrúlega lítill og vanmáttugur. En ég hef alltaf undrast þann styrk sem fólk sýnir í hræðilegustu aðstæðum. Oft var samt erfiðast að takast á við aðstæður þar sem voru deilur og illindi í fjölskyldum. Illska og reiði fólks er miklu erfiðari viðfangs en sorgin. Og að sjá börn í ömurlegum aðstæðum. Það tók líka mik- ið á að þurfa að fara á vökudeild og skíra lítil veik börn, sem síðan dóu. Þá kom maður heim örmagna og tók utan um börnin sín.“ Boðberi hörmulegra tíðinda Karl segir að þegar fólk stendur frammi fyrir sorginni sé trúin styrkur og mikið haldreipi. Hann hefur einnig upplifað að fólk efist um Guð og reiðist við slíkar aðstæður. Samt er honum stilling og trúarstyrkur fólks eftir- minnilegastur. „Presturinn mætir fólki í mestu gleði og dýpstu sorg. Hvoru tveggja þarf að mæta með virðingu, auðmýkt og varfærni,“ segir hann. „Það á eins við í gleðinni svo sem í skírnum og hjónavígslum; ég þarf að muna að þessir at- burðir eru atburðurinn í lífi þessa fólks þó að það sé kannski rútína hjá mér. Maður kemur kannski beint úr sorgarhúsi í það að skíra barn sem eru algjörlega andstæðar aðstæður, en ég má ekki fara þar inn með sorgina með mér. Svo var kannski allt í steik heima, börnin veik og víxillinn fallinn,“ segir hann og hlær. „En maður þarf alltaf að koma heill inn í hverjar aðstæður. Það má aldrei verða einhver rútína og það er vandi,“ segir hann og nefnir að líkindi séu með starfi prestsins og leikarans að þessu leyti. „Á svipaðan hátt og leikarinn er maður að gegna hlutverki. Ég er ekki að leika hlutverk en ég geng inn í mismunandi hlutverk, þar sem ég á að vera heilshugar til staðar annars vegar sem farvegur gleði og þakklætis í gleðinni og hins vegar farvegur vonar og trúar í sorginni.“ Yndisleg og ömurleg ár Í fjórtán ár, frá 1998 til 2012, gegndi Karl starfi biskups og fetaði þar með í spor föður síns. Var það eitthvað sem þú sást fyrir þér? „Nei,“ segir hann og hlær. „Ég sá það aldrei fyrir mér! Það er alveg áreiðanlegt að mér fannst ég ekkert hafa í það. En svo er manni beint inn á einhverja braut og fær áskorun frá fólki sem maður virðir og treystir og það kallast köllun.“ Hvernig voru þessi ár? „Þau voru yndisleg og þau voru ömurleg. Yndislegast var að kynnast ótrúlega mörgu góðu fólki um land allt, í kirkjum og söfnuðum landsins. Það stendur upp úr. Svo voru erfið mál sem dundu á og urðu að lokum til þess að mér var ófært að starfa,“ segir hann án þess að vilja fara nánar út í það. „Mér fannst einnig afskaplega sorglegt þeg- ar hrunið varð og kirkjunni var settur stóllinn fyrir dyrnar. Það var skorið niður og það þurfti að segja upp fólki; mörgu góðu fólki,“ segir hann og segir það hafa fengið mjög á sig. Þegar Karl lét af embætti biskups tók hann við starfi sem afleysingaprestur í Dómkirkj- unni. „Það voru alveg yndisleg ár með dásamlegu fólki. Þetta átti í upphafi að vera þrír mánuðir en það teygðist úr því,“ segir hann og hlær. „Þetta endaði í fjórum árum, með hléum, en þá var ég orðinn sjötugur og þurfti að fara í erfiða meðferð,“ segir hann. „Ég greindist árið 2017 með krabbamein í blöðruhálskirtli sem hafði dreift sér í beinin. Það var heilmikið áfall. Ég er búinn að horfa upp á fjóra bræður mína fara úr krabbameini. Fjórir af sex bræðrum,“ segir hann. Svo hefur dóttir mín verið að glíma við það sama þetta umliðna ár. Það er erfiðast af öllu,“ segir Karl. „Ég var í lyfjameðferð í hálft ár og svo er ég núna á þriggja mánaða fresti í lyfjagjöf. Ég var ekki skorinn því það var ekki skurðtækt, en ég er í góðum höndum frábærra lækna og umvafinn umhyggju og fyrirbænum. Þetta er ekki læknanlegt. Ég er svona á skilorði,“ segir hann og brosir út í annað. Hvernig líður þér í dag? „Mér líður ágætlega í dag, ég get ekki kvart- að. Maður á að líta á hvern dag sem gjöf og þakka fyrir það. Við vitum það með lífið, það endar bara á einn veg.“ Í trúnni á ég vonina Hræðist þú dauðann? „Nei, ég hræðist ekki dauðann.“ Hvernig á maður ekki að hræðast dauðann? „Ég ætla að orða þetta öðruvísi. Auðvitað vill maður ekki dauðann. Allt sem lifir er í stöðugri baráttu á móti dauðanum. Hver ein- asta fruma er að berjast við dauðann. Dauðinn er hið algera óþekkta og við skelfumst hið óþekkta; það er í eðli alls sem lifir. En í trúnni á ég vonina. Sú von gefur mér styrk til að segja, eins og hefur verið sungið við nánast all- ar jarðarfarir síðan Ragnheiður Brynjólfs- dóttir var jörðuð í Skálholti forðum: „Dauði, ég óttast eigi, afl þitt né valdið gilt, í Kristí krafti’ eg segi: Kom þú sæll, þá þú vilt.“ Í Kristí krafti; ekki í mínum eigin krafti. Ég get ekki boðið dauðann velkominn sí svona, hann er Karl Sigurbjörnsson segir það hafa verið sína köllun að þjóna sem bisk- up yfir Íslandi. Hann gegndi því starfi í fjórtán ár og segir þau ár hafa verið bæði yndisleg og ömurleg. ’Ég get ekki boðið dauð-ann velkominn sí svona,hann er óvelkominn gestur.Hann er staðreynd sem ég veit að er þarna en ég hef engan áhuga á honum. Ég vona bara að ég fái að fara í friði þegar tíminn er kominn.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.