Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2020, Blaðsíða 15
27.9. 2020 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 óvelkominn gestur. Hann er staðreynd sem ég veit að er þarna en ég hef engan áhuga á hon- um. Ég vona bara að ég fái að fara í friði þegar tíminn er kominn,“ segir hann. „Lífslöngunin er sterk í mannssálinni. Til- vera okkar er tilvera til dauða en við erum sköpuð til að lifa eilíft líf. Það er von trúarinnar á hinn krossfesta og upprisna Krist, eilíft líf. En hvernig það er, það veit ég ekki.“ Orðið er á Facebook Við vendum kvæði okkar í kross og snúum aft- ur til lífs og líðandi stundar, en Karl situr ekki auðum höndum á eftirlaunaárunum. „Ég er alltaf að skrifa. Núna er verið að brjóta um nýja útgáfu af Bænabókinni sem kom út fyrir um fjórtán árum. Þessi bók er löngu uppseld og ég er búinn að endurskoða hana. Svo kom þessi bók út í fyrra, með hug- leiðingum fyrir hvern dag ársins,“ segir Karl og sýnir blaðamanni bókina Dag í senn. „Mér finnst mikilvægt að það sé alltaf til- tækur stuðningur við fólk sem vill lifa sínu trúarlífi og það þarf að læra og rækta eins og hvað annað. Mér er umhugað um þessi mál og ég hef verið að dunda við þetta,“ segir Karl en eftir hann liggja fleiri bækur, eins og Trú, von og kærleikur, Rúmhelgir dagar, Lítið kver um kristna trú, Huggun í sorg og fleiri bækur. Karl hefur einnig lagt stund á þýðingar og hefur þýtt fjórar skáldsögur eftir Marilynne Robinsson, en þrjár eru komnar út og von er á fjórðu. „Sögurnar gerast í miðvesturríkjum Banda- ríkjanna á árunum milli 1950 og 1960 og eru að öðrum þræði fjölskyldusaga. Þetta er um gott og grandvart fólk en það leynist ýmislegt und- ir yfirborðinu,“ segir hann. „Svo þýddi ég bók um fyrirgefninguna eftir Desmond Tutu sem hann skrifaði með dóttur sinni. Fyrirgefningin er eitt af því sem fólk þarf að temja sér í skóla lífsins og er grund- vallaratriði í kristinni trú. Svo kom líka nýlega út barnabiblía, Litla Biblían, sem ég þýddi.“ Karl er virkur á Facebook og á þar fjölda vina. „Mér finnst þetta góður vettvangur til að koma á framfæri orðinu, trúnni. Ég hef fundið að það er þörf fyrir það og það er kallað eftir þessu. Það voru svo börnin mín sem ýttu mér út í það að taka upp myndbönd þar sem ég er með hugleiðingar. Þessi hugmynd kviknaði í kófinu í vor og ég fékk ótrúleg viðbrögð. Það er töluvert áhorf og ég er þakklátur fyrir það. Mér finnst þegar ég er að fikta við þennan vettvang að ég eigi að skilja eftir eitthvað já- kvætt þar. Nóg er af neikvæðni og háði.“ Smekklaus skopmynd Ég get ekki sleppt þér án þess að spyrja hvað þér fannst um teikninguna af trans-Jesú? „Mér fannst þetta vægast sagt óþarfi og ég held að þetta hafi verið mistök, sem hefur nú reyndar verið viðurkennt og beðist velvirðingar á. Ég var sleginn, ég neita því ekki. Í mínum huga er þetta skopmynd. Skopmyndir eiga al- veg rétt á sér og sýna oft óvænt og skemmtilegt sjónarhorn. Það hefur verið bent á að í gegnum tíðina hafi mynd Jesú verið sýnd á alla mögu- lega vegu og stundum í pólitísku skyni. En allt á það sinn stað og sína stund. Þegar um er ræða boðun og fræðslu fyrir börn á þetta alls ekki við. Þarna er dansað á mörkum hins leyfilega og smekklega. Það er nefnilega það – þetta er smekklaust,“ segir Karl og segir eitt það allra mikilvægasta í starfi kirkjunnar vera að fræða börn um Jesú og sögu hans. „Hann er áhrifamesta persóna í sögu mann- kyns. Og hann er afl og máttur í samtímanum. Við megum fylgja leiðsögn hans og biðja í nafni hans. Börnin okkar verða að fá veganesti trúar og bænar, vonar og kærleika. Þessu fræðslu- og uppeldisstarfi er vel sinnt í söfn- uðum vítt og breitt um landið en það má gera miklu meira og miklu betur. En það er óþarfi að poppa það upp með svona tilburðum.“ Trúin styrkur í hörmungum Talið berst að máli málanna; kórónuveirunni skæðu. „Við lifum á háskatímum. Við erum að horfa upp á svo margt bresta sem maður hefur sett sitt traust á. Við höfum lifað við það býsna lengi að finnast við hafa tök á þessu öllu sam- an. Að okkur séu allir vegir færir og að við get- um skroppið þvert yfir heiminn ef okkur sýnist og að mannkynið sé að færast yfirleitt í rétta átt. Svo kemur þessi skellur; þetta er eins og heimsstyrjöld. Svo eru það afleiðingarnar, þær eru ófyrirsjáanlegar. Það er býsna svart fram undan og hvað höfum við þá að styðjast við? Við erum núna minnt á hversu ótrúlega varn- arlaus við erum sem manneskjur, þrátt fyrir læknavísindin og það góða fólk sem vinnur vel og stendur í framlínunni hér hjá okkur. Þegar við stöndum andspænis óvissu, ótta, kvíða og öryggisleysi þá er mesti styrkurinn mannleg samlíðan, samstaða og samfélag. Við Íslend- ingar höfum stært okkur af því að eiga gott samfélag. Gott samfélag kemst í gegnum alla erfiðleika. En hvar er styrkur hins góða sam- félags? Ég er alveg sannfærður um að það er trúin, vonin og kærleikurinn,“ segir Karl. „Ég var að skíra lítið barn á sunnudaginn og það orkaði svo sterkt á mig hvernig hefðirnar eru farvegir trúarinnar, traustsins á guð. Þarna var fólk á öllum aldri að fagna þessu litla barni og um leið að fela það góðum guði og vilja hans, því góða, fagra og sanna. Barnið er vonartákn. Hvert barn sem fæðist í heiminn er yfirlýsing um að Guð hafi ekki gefist upp á mannkyninu sagði einhver góður maður, og þetta leitaði á mig þegar ég var að skíra þetta litla barn. Og þegar vatnsdroparnir falla á höf- uð skírnarbarnsins, þá er barnið merkt voninni sem trúin á Jesú gefur og kærleikurinn tjáir.“Morgunblaðið/Eggert Við óskum eftir tillögum að nýju fram- boði á veitingaþjónustu, verslun og upplifunum á neðri hæðum Hörpu. Sláum nýjan tón í Hörpu Nánari upplýsingar á harpa.is/nyr-tonn Ert þú með spennandi tillögu sem rímar við kjarnastarfsemi Hörpu sem tónlistar- og ráðstefnuhúss á heimsmælikvarða? Við óskum bæði eftir áhugasömum rekstraraðilum og hugmyndum einstaklinga að spennandi nýjungum í Hörpu. 7. október Skilafrestur veitingaþjónustu. 19. október Skilafrestur verslunar, þjónustu og upplifunar. Tímarammi verkefnis er út árið 2021. B ra nd en b ur g |s ía

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.