Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.09.2020, Side 32
SUNNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2020
Breskur njósnari að nafni James Bond var sendur til
starfa austan járntjaldsins í Póllandi tveimur árum
eftir að fyrsta Bond-myndin, Dr. No, var frumsýnd.
Þetta kemur fram í nýbirtum gögnum frá pólsku
gagnnjósnaþjónustunni.
Bond kom til Varsjár 18. febrúar 1964 og opinber
staða hans í breska sendiráðinu var skjalavörður, að
því er segir í gögnunum.
Sá Bond, sem þar er lýst, á lítið sameiginlegt með
nafna sínum úr skáldsögum Ians Flemings, flag-
aranum James Bond, sem líður best með vodka-
martini í glasi.
Pólskir njósnarar, sem fylgdust með Bond, skráðu
að hann hefði „áhuga á konum“, en verið „mjög
varkár“ og ekkert samband haft við pólska borgara.
Sagnfræðistofnunin sem birti skjölin sagði að Bond
hefði verið lágt settur útsendari með áberandi nafn,
enda hefðu „meira að segja njósnarar kommúnista
verið kunnugir skáldsagnapersónunni“.
Í október og nóvember 1964 gerði Bond tilraun til
að skoða hernaðarmannvirki í Białystok og Olsztyn í
norðausturhluta Póllands, skammt frá landamærum
Sovétríkjanna sálugu, en virðist ekki hafa orðið
ágengt. Hann yfirgaf Pólland 21. janúar 1965.
Fleming var sjálfur njósnari. Hann sagði að nafnið
á njósnahetjunni hefði hann fengið að láni þegar hann
las bók um fugla í Karabíska hafinu eftir bandaríska
fuglafræðinginn James Bond.
Bond var skjalavörður
Sean Connery í hlutverki
James Bond í myndinni
Dr. No. Hinn raunveru-
legi Bond mun hafa haft
„áhuga á konum“ en ver-
ið „mjög varkár“.
Þegar allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna var sett 20. september
1960 var Sigurður Bjarnason,
ritstjóri Morgunblaðsins, á vett-
vangi.
„Hér ólgar hið mikla þjóða-
haf,“ skrifaði hann í litríkri frá-
sögn þar sem hann lýsti fjálglega
þátttakendum og hugrenn-
ingum sínum meðan á setning-
unni stóð.
„Öllu slær í dúnalogn,“ skrifar
Sigurður í fréttaskýringu, sem
birtist fjórum dögum síðar, 24.
september, í Morgunblaðinu.
„Forsetinn segir allsherjarþingið
sett, býður fulltrúa velkomna og
biður þá síðan að hefja þingið
með hljóðri bæn í eina mínútu.
Þingheimur rís úr sætum, hver
þjóð biður með sínum hætti.
Hér stendur veikt og villuráfandi
mannkyn frammi fyrir guði sín-
um. En um hvað biður það?
Skyldi ekki allt þetta mikla þing
biðja af grunni hjarta síns um
frið handa öllum mönnum? Við
skulum vona að svo hafi verið,
en þessi hljóða bænarstund,
þessa einu mínútu, þetta
örsmáa brotabrot af mannkyns-
ævinni er mikilfengleg stund,
einstæð og ógleymanleg.“
GAMLA FRÉTTIN
Villuráfandi
mannkyn
Risið á fætur í bænastund við setningu allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna
1991. Í grein sinni lýsti Sigurður Bjarnason slíkri stund 30 árum fyrr.
AP
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Emily Blunt
leikkona
Helga Lilja Magnúsdóttir
fatahönnuður
Kate Winslet
leikkona
... stærsti
uppskriftarvefur
landsins!