Morgunblaðið - 09.10.2020, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 9. O K T Ó B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 238. tölublað 108. árgangur
SAMMANNLEG
ÍBURÐARLAUS
FEGURÐ
VILJA SETJA Á
UMHVERFISGJÖLD
ÞVERSAGNA-
KENNDUR
SNILLINGUR
LAGT TIL Í SJÖTTA SINN 10 JOHN LENNON 14GLÜCK FÆR NÓBELINN 29
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk íslenska karlalandsliðs-
ins í fótbolta þegar það lagði Rúmena að velli, 2:1, í undan-
úrslitum umspilsins um sæti í lokakeppni EM 2021 á Laugar-
dalsvellinum. Guðlaugur Victor Pálsson átti líka stórleik og
fagnar hér marki með Gylfa en Ísland mætir Ungverjalandi í
hreinum úrslitaleik um EM-sæti í Búdapest 12. nóvember. »26-27
Tvö mörk frá Gylfa og Ísland fer í úrslitaleik í Búdapest
Morgunblaðið/Eggert
Upp- og um-
framgreiðslur
sjóðfélagalána
hjá lífeyris-
sjóðunum voru
svo miklar frá
júní og fram til
loka ágústmán-
aðar að þær
reyndust ríf-
lega 10 millj-
örðum meiri en
þau nýju lán sem sjóðfélagar
tóku hjá sjóðunum yfir sama
tímabil. Aldrei fyrr hafa upp- og
umframgreiðslur af þessu tagi
sést í bókum sjóðanna. Magnús
Árni Skúlason hjá Reykjavik
Economics segir að nokkrar
ástæður liggi að baki þessari
þróun. Fyrst nefnir hann þá stað-
reynd að sjóðirnir hafi ekki fylgt
viðskiptabönkunum í skörpum
vaxtalækkunum síðustu mánuði.
Þá hafi það einnig áhrif að u.þ.b.
30% kaupenda á fasteignamark-
aðnum nú séu einstaklingar sem
séu að kaupa sína fyrstu eign.
Þeir séu gjarnan með lítið eigið
fé og að eiginfjárkröfur lífeyris-
sjóðanna séu í flestum tilvikum
mun stífari en bankanna. » 12
Sjóðirnir eltast ekki
við lánakjör bank-
anna á markaði
Magnús Árni
Skúlason
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Heildarkostnaður við nýbyggingu
meðferðarkjarnans er um 55 milljarð-
ar króna, án framtíðarverðlags-
þróunar, og er heildarkostnaður við
þær fjórar nýbyggingar sem NLSH
ohf. hefur verið að vinna að auk
gatna- og lóðagerðar um 80 milljarðar
króna á vísitölu mánaðarins.“ Þetta
segir Gunnar Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri Nýs Landspítala ohf.,
NLSH, í svari við fyrirspurn Morg-
unblaðsins um kostnað við Hring-
brautarverkefnið.
Spurður um áætlanir um kostnað
við þetta stóra verkefni segir Gunnar
að óvissa í kostnaðaráætlun sé mis-
munandi eftir framkvæmdaáföngum
og ráðist að hluta til af því hversu
langt á veg hönnun sé komin í hverj-
um áfanga. Tilboðsverk í útboðum
nýs Landspítala hafi jafnan verið
undir kostnaðaráætlun, „en rétt að
ítreka að það eru mjög sérstakir
tímar á mörkuðum og atvinnulífið
stendur frammi fyrir stórri áskorun
um framvindu verkefna á tímum mik-
ilvægra sóttvarnareglna“, segir hann.
Nýsamþykkt tilboð Eyktar í upp-
steypu á meðferðarkjarnanum er
82% undir kostnaðaráætlun. Gunnar
segir verð Eyktar vissulega til þess
fallið að gera megi ráð fyrir á annan
milljarð króna lægri kostnaði en áætl-
að var.
Heildarkostnað-
ur 80 milljarðar
Tilboð í útboðum NLSH að jafnaði undir kostnaðaráætlun
MRisaverk á tímum óvissu »6
Ljósmynd/NLSH
Landspítali Gert er ráð fyrir að uppsteypa meðferðarkjarna taki 33 mánuði.
Greint var frá því í gær að 94 ný til-
felli kórónuveirunnar hefðu greinst
hér á landi við skimun í fyrradag.
Þar af voru fimmtíu sem voru ekki í
sóttkví þegar þeir greindust. Þar
með hafa 280 ný tilfelli greinst hér á
landi á síðustu þremur sólar-
hringum. 846 eru í einangrun með
virkt smit og 4.345 eru í sóttkví.
Magnús Gottfreðsson, sérfræð-
ingur í smitsjúkdómum á Landspít-
alanum, segir í samtali við Morg-
unblaðið í dag að kórónuveiran sé
greinilega ekki á förum, en að mót-
efnasvar muni myndast með tím-
anum. »4
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skimun Löng röð var í skimun í gær.
Tilfellum
fjölgar hratt
280 smit á síðustu
þremur sólarhringum