Morgunblaðið - 09.10.2020, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 09.10.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Samkomulag náðist um aukinn sveigjanleika í starfi grunnskóla- kennara í nýjum kjarasamningi við sveitarfélögin, sem undirritaður var í fyrrakvöld. Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveit- arfélaga, bindur vonir við að þetta ákvæði eigi eftir að verða gagnlegt. Samningurinn kveður á um hækkanir í samræmi við lífskjarasamningana og segir hún aðspurð að vegna erf- iðrar fjárhagsstöðu sveitarfélaga hefðu þau ekki ráðið við aukinn kostnað ef samið hefði verið um meiri hækkanir en lífskjarasamningarnir kveða á um. Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakenn- ara, sagði við mbl.is í gær að nýr samningur kristallaðist í tveimur þáttum. „Annars vegar er það lífs- kjarasamningshækkun í krónutölu, þannig að kennarar verða ekki af þeirri kjarabót, og hins vegar var tryggt í samningnum að farið verði í að skoða það sérstaklega hvernig auka má sveigjanleika í starfi kenn- ara,“ sagði hún. Kennarar fá aukið svigrúm til að vinna óstaðbundið ýmis verkefni utan kennslu, s.s. fundi við foreldra eða aðra starfsmenn. „Þetta er samningur til skamms tíma en hann gildir til áramóta 2021/ 22 og er það í samræmi við aðra samninga sem við höfum gert við að- ildarfélög Kennarasambands Ís- lands,“ segir Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. „Þetta er mjög stór pakki en launahækkanirnar eru þær sömu og aðrir hafa fengið, krónutöluhækkanir í samræmi við lífskjarasamninginn.“ Sveitarfélögin eiga núna eingöngu ósamið við tónlistarkennara og hjúkr- unarfræðinga. Niðurstaða atkvæða- greiðslu meðal kennara um samning- inn á að liggja fyrir 23. október. Kennarar fái aukið svigrúm  Hækkanir í takt við lífskjarasamninga Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Í skólastofu Grunnskólakennarar voru án samninga í 16 mánuði. HVER restaurant á Hótel Örk er fyrsta flokks veitingastaður, fullkominn fyrir notalegar gæðastundir með vinum, fjölskyldu eða vinnufélögum. GIRNILEGUR OG SPENNANDI MATSEÐILL Pantaðu borð í síma 483 4700 | www.hverrestaurant.is Alexander Gunnar Kristjánsson Stefán Gunnar Sveinsson Bergþór Ólason, þingmaður Mið- flokksins, viðraði þær hugmyndir í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að fólk fengi að ráð- stafa hluta útvarpsgjaldsins til einkarekinna fjölmiðla eftir eigin hentisemi. Útvarpsgjald næsta árs er 18.300 krónur, sem rennur til Ríkis- útvarpsins og er áætlað að það muni skila RÚV fjórum og hálfum milljarði króna á næsta ári, fyrir ut- an þær tekjur sem stofnunin hefur af auglýsingum og kostun. Bergþór spurði Bjarna Bene- diktsson fjármálaráðherra hvernig honum hugnaðist að fólk fengi til dæmis að ráðstafa tíu prósentum þess fjár til annarra fjölmiðla, en slík ráðstöfun gæti skilað þeim miðlum um 450 milljónum króna, eða álíka miklu og ríkið veitir einkareknum miðlum í nýsam- þykkta fjölmiðlastyrki. „Þarna væri hægt að hugsa sem svo að t.d. gætu menn valið þrjá miðla og þá gæti einhver valið að styðja Fréttablaðið, einhver Morg- unblaðið, einhver DV, einhver Stundina, einhver Kjarnann, ein- hver Fótbolta.net og svo framveg- is,“ sagði Bergþór. Áhugavert en ekki á dagskrá Bjarni sagði hugmyndina áhuga- verða en hún væri þó ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar. „Hún myndi vekja margar grundvallarspurning- ar. Eigum við að reka almanna- útvarp og hvernig eigum við að fjár- magna það,“ sagði hann. „Það er ágætt að fá þá umræðu. Sitt sýnist hverjum um umfang þeirrar starf- semi, þótt mér þyki sem breið sam- staða sé um að almannaútvarp þurfi að gegna ákveðnu lykilhlutverki. Þetta snýst sömuleiðis ekki bara um grundvallarspurninguna hvort við eigum að reka slíkt útvarp heldur líka hvernig við eigum að gera það og fjármagna það.“ Bjarni beindi umræðunni því næst að auglýsingatekjum RÚV, sem skila stofnuninni um 1.700 milljónum króna á ári. Sagði fjármálaráðherra að það þyrfti að halda áfram að ræða þá stöðu sem Ríkisútvarpið væri í gagnvart fjölmiðlamarkaðnum, og að þar væru auglýsingarnar stór þáttur sem þyrfti að ræða frekar. Aðrir fjölmiðlar í skugganum Bergþór sté þá í pontu að nýju og spurði Bjarna hvort hann teldi ekki hægt að minnka umfang RÚV að einhverju marki frá því sem það væri í dag. Sagði Bjarni að stofnunin væri ekki hafin yfir gagnrýni hvað varð- aði umfang starfseminnar. „Það má segja að Ríkisútvarpið sé einstofna stórt tré sem er með ræturnar í rík- issjóði og lögum um innheimtu gjaldsins en allir aðrir fjölmiðlar séu eins og litlar plöntur sem fá ekki á sig sólina af því að Ríkis- útvarpið er með svo langar greinar. Þær plöntur eru aðeins að fölna og margar hverjar að visna algerlega í skugga Ríkisútvarpsins,“ sagði fjár- málaráðherra í svari sínu. Sagðist Bjarni telja að mikið rúm væri fyrir umræðu um auglýsinga- markaðinn, sem væri meginupp- spretta tekjulindar fyrir einka- rekna fjölmiðla. „Maður stígur varla inn á frjálsan fjölmiðil án þess að menn hefji við mann umræðu, áður en útvarpsþátturinn byrjar, eða hvað það nú er, um það hvort ekki sé hægt að auka andrými frjálsu fjölmiðlanna til að bjarga sér sjálfum. Það er nú mjög í anda sjálfstæðisstefnunnar að hjálpa mönnum til sjálfshjálpar,“ sagði Bjarni. Geti ráðstafað nefskattinum annað  Fjármálaráðherra spurður um ráðstöfun hluta útvarpsgjaldsins til einkarekinna miðla í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi í gær  Ríkisútvarpið sem „einstofna tré“ sem skyggi á alla aðra fjölmiðla Morgunblaðið/Eggert Ríkisútvarpið Staða RÚV gagnvart öðrum miðlum var rædd á Alþingi. Bergþór Ólason Bjarni Benediktsson Alls voru brottfarir erlendra far- þega frá landinu um Keflavíkurflug- völl um tíu þúsund í september skv. talningu Ferðamálastofu og Isavia. Þeir voru 94,5% færri en í septem- ber á síðasta ári þegar brottfarir voru tæplega 184 þúsund talsins. Mikil fækkun átti sér einnig stað á milli mánaðanna ágúst og septem- ber, eftir að ferðatakmarkanir voru hertar, en í ágúst sl. voru brottfarir í Keflavík tæplega 64 þúsund talsins. Í umfjöllun á vef Ferðamálastofu er bent á að ástæður fyrir fækkun erlendra gesta til landsins það sem af er ári ættu að vera öllum ljósar, því allt frá því að áhrifa kórónu- veirufaraldursins fór að gæta fyrir alvöru í mars hefur orðið hrun í fjölda. „Þannig var fækkunin milli ára um 53% í mars, um 99% í apríl og maí, 97% í júní, 80% í júlí, 75% í ágúst og 95% í september […],“ seg- ir þar. Um 4.900 Íslendingar fóru utan í september eða 90,1% færri en í sept- ember 2019. 121 þúsund Íslendingar hafa farið utan frá áramótum Frá áramótum (janúar-septem- ber) hafa um 121 þúsund Íslending- ar farið utan en um er að ræða 345 þúsund færri brottfarir en á sama tímabili í fyrra. Þjóðverjar voru fjölmennastir meðal erlendu farþeganna í septem- ber eða um fimmtungur brottfara. omfr@mbl.is 54.000 færri frá landinu í sept.  4.900 Íslendingar flugu í mánuðinum Brottfarir erlendra farþega frá landinu Þúsundir farþega, um Kefl avíkurfl ugvöll í jan.-sept. 250 200 150 100 50 0 2019 2020 jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. Heimild: Ferðamálastofa 121 133 80 139 149 170 252 64 46 610,9 120 126 195 231 184 -95% -99% 10

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.