Morgunblaðið - 09.10.2020, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2020
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við erum að komast inn í nútímann.
Verðum með nýja bíla á stöðvum
okkar,“ segir Sigurður A. Jónsson,
slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Ísa-
fjarðarbæjar. Liðið er að taka í
notkun nýja slökkvibíla sem eru sér-
staklega útbúnir til að sinna björg-
unarstörfum í jarðgöngum. Styrkir
Vegagerðin búnaðarkaupin.
Dýrafjarðargöng eru á starfs-
svæði Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar.
Þau verða tekin formlega í notkun á
næstunni, væntanlega síðar í mán-
uðinum. Vegagerðin og slökkviliðið
hafa að undanföru farið yfir öryggis-
mál í göngunum og drög að við-
bragðsáætlun. Samstaða er um að til
að ná ásættanlegu öryggi vegna
bruna og slysa þurfi að bæta búnað
slökkviliðsins.
Geta vaðið reyk
Samið hefur verið um að Vega-
gerðin veiti slökkviliðinu 85 milljóna
króna framlag upp í kaup á nauðsyn-
legum tækjabúnaði. Slökkviliðið hef-
ur pantað sérútbúinn slökkvibíl til
að sinna störfum í jarðgöngum, auk
almennra verkefna, og verður hann
staðsettur á slökkvistöðinni á Ísa-
firði. Er þetta samskonar bíll og
slökkviliðin á Akureyri og í Þingeyj-
arsýslum keyptu til að þjóna Vaðla-
heiðargöngum. Til þess að bíllinn
nýtist sem best í jarðgöngum er
hann með myndavélabúnað og hita-
myndavél þannig að hægt er að aka
inn í göng þótt þar sé reykur, til
dæmis frá brennandi bíl, hann er bú-
inn One-seven-slökkvikerfi og
slökkvibyssu að framan og þarf því
ekki eins mikið vatn og ella og er
með loftbanka fyrir fimm reykköf-
unartæki, svo nokkuð sé nefnt. Sig-
urður segir að bíllinn sé væntanleg-
ur í næsta mánuði.
Slökkviliðið hefur þegar fengið
nýjan bíl fyrir stöðina á Þingeyri en
hún er næst Dýrafjarðargöngum og
verður hann væntanlega tekinn í
notkun í næstu viku. Hann er minni
en Ísafjarðarbíllinn en með hlið-
stæðan búnað nema ekki loftbanka
heldur hefðbundna loftkúta fyrir
reykköfunartæki. Þá hefur verið
ákveðið að endurnýja tankbílinn á
Þingeyrarstöðinni ekki síðar en eftir
tvö ár. Sigurður segir að núverandi
bíll sé of stór og þungur og ekkert
vatn að hafa í göngunum þannig að
keyptur verður minni og hrað-
skreiðari bíll með one-seven-slökkvi-
kerfi.
Minna má á að fern jarðgöng eru
á starfssvæði Slökkviliðs Ísafjarðar-
bæjar. Auk Dýrafjarðarganga eru
það Vestfjarðagöng, Bolungarvíkur-
göng og göngin í Arnardalshamri.
Endurnýjun á öllum stöðum
Sigurður getur þess að búið er að
endurnýja slökkvibíl sem staðsettur
er á Flateyri og til stendur að end-
urnýja slökkvibílinn á Suðureyri
með notuðum bíl frá Ísafjarðarstöð-
inni. Segir Sigurður að með þessu
verði búið að endurnýja búnaðinn á
öllum stöðunum og verði það mikil
lyftistöng fyrir þá auk þess sem ör-
yggi í jarðgöngum muni aukast.
Ísafjarðarbær auglýsti gamlan
slökkvibíl til sölu, Bedford árg. 1962.
Þrjú kauptilboð bárust auk þess sem
Samgöngusafnið í Stóragerði í
Skagafirði buðst til að taka bílinn án
endurgjalds. Bæjarráð ákvað að
taka tilboði hæstbjóðanda sem bauð
101 þúsund kr. í bílinn.
Nýr sjúkrabíll kominn
Slökkviliðið er ávallt kallað út
þegar eitthvað kemur upp á í jarð-
göngunum, hvort sem það eru um-
ferðaróhöpp, eldur eða sprungið
dekk. Slökkviliðið stjórnar aðgerð-
um ef eldur kemur upp eða eitur-
efnaslys verður en aðstoðar annars
lögreglu. Mikið og gott samstarf er
einnig við stjórnstöð Vegagerðar-
innar sem fylgist stöðugt með að-
stæðum og umferð í öllum jarðgöng-
um og lokar þeim ef þurfa þykir.
Fjórir menn eru í fullu starfi hjá
Slökkviliði Ísafjarðarbæjar, auk
slökkviliðsmanna í hlutastörfum.
Liðið annast sjúkraflutninga og hef-
ur endurnýjað samning við Heil-
brigðisstofnun Vestfjarða. Það hefur
nýlega fengið nýjan sjúkrabíl þannig
að búið er að endurnýja stóran hluta
þess tækjabúnaðar sem slökkviliðið
hefur til afnota.
Slökkviliðið fær
fjóra nýja slökkvibíla
Vegagerðin styrkir búnaðarkaup vegna Dýrafjarðarganga
Ljósmynd/Slökkvilið Akureyrar
Öflugur Nýr slökkvibíll Ísafjarðarbæjar er eins og bíll Akureyringa.
„Auglýsingin var kostuð af „Konum
Íslands“. Þetta var fjöldasöfnun með-
al íslenskra kvenna sem styðja nýju
stjórnarskrána sem átti sér upphaf á
samfélagsmiðlum þar sem lítið hafði
birst í fjölmiðlum um þennan við-
burð,“ segir Guðný Guðmundsdóttir
sýningarstjóri.
Auglýsing í Morgunblaðinu í gær
vakti nokkra athygli enda mátti af
henni skilja að utanríkisráðuneytið
og fleiri aðilar styddu undirskrifta-
söfnun vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
um nýja stjórnarskrá. Í tilkynningu í
gær var áréttað að svo væri ekki og
beðist velvirðingar á misskilningi sem
þetta kynni að hafa valdið. Í raun
væri þarna listi yfir ýmsa aðila og
stofnanir sem hefðu með einum eða
öðrum hætti stutt listgjörninginn Í
leit að töfrum – tillaga að nýrri
stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ísland
eftir Libiu Castro og Ólaf Ólafsson og
Töfrateymið.
Umræddur listgjörningur fór fram
á laugardaginn síðasta, 3. október. Að
sögn Guðnýjar samanstóð hann af því
að allar 114 greinar stjórnarskrártil-
lögunnar frá árinu 2011 voru fluttar í
Hafnarhúsinu. „Þar var líka mynd-
listarinnsetning sem blandaðist þess-
um tónlistarflutningi. Síðan var farið
úr listasafninu í kröfugöngu á götum
Reykjavíkurborgar sem endaði fyrir
framan Alþingishúsið,“ segir Guðný.
„Þessi afmarkaði viðburður er studd-
ur af þessum aðilum en er sjálfur
ótengdur undirskriftasöfnuninni þótt
við styðjum hana heilshugar.“
hdm@mbl.is
„Konur Íslands“
borguðu brúsann
Misvísandi auglýsing um gjörning
List Auglýsingin olli misskilningi.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Umhverfisspjöll hafa verið unnin á
landi jarðanna Hellna og Múla í
Landsveit við lagningu mótorkross-
brautar. Brautin er lögð af eig-
endum fyrrnefndu jarðarinnar en er
hvorki á skipulagi né hefur verið
sótt um framkvæmdaleyfi fyrir
henni.
Helgi S. Gunnarsson, sem á hús í
landi Múla, vekur athygli á málinu í
færslu á fésbókarsíðu sinni. Hann
segir að umfang framkvæmda hafi
komið sér á óvart, sérstaklega í ljósi
umræðna um landvernd á undan-
förnum árum.
Helgi segir að mótorkrossbrautin
hafi verið lögð í ósnortnu landi, að-
allega Hellna, en nái einnig inn í
land Múla. „Búið er að aka á mót-
orkrosshjólum um gríðarlega stórt
svæði, meðal annars í náttúru-
perlum eins og Fjártanga við Þjórsá
sem og yfir ævaforna slóða og reið-
stíga eins og Skógargöturnar,“
skrifar Helgi. Í samtali við Morgun-
blaðið metur hann það svo að braut-
irnar nái yfir tugi hektara lands.
Eigendur Hellna lögðu brautirnar
fyrir mót á svokölluðum enduro-
mótorhjólum sem haldið var 12.
september. Segir Helgi að lítið sé
hægt að gera þegar búið er að leggja
braut, þá sæki fólk í hana. Vitaskuld
þurfi að vera til brautir fyrir áhuga-
fólk um þessar íþróttir en þær þurfi
að skipuleggja þannig að þær fari
ekki inn á ósnortið land, eins og
þarna hafi gerst.
Ekki á skipulagi
Helgi lét skrifstofu Rangárþings
ytra vita af þessum framkvæmdum.
Haraldur Birgir Haraldsson, skipu-
lags- og byggingarfulltrúi, segir að
málið sé í skoðun. Hann staðfestir að
mótókrossbrautin sé ekki á skipu-
lagi og ekki hafi verið veitt fram-
kvæmdaleyfi. Hann vill þó ekki full-
yrða um viðbrögð sveitarfélagsins
fyrr en málið hafi verið athugað bet-
ur. Hann bendir einnig á að leyfi
heilbrigðiseftirlits þurfi til reksturs
slíkrar brautar.
Landskemmdir
af vélhjólabraut
Sveitarfélagið með málið í athugun
Ljósmynd/Helgi S. Gunnarsson
Dæmi Vélhjólabrautin liggur víða um land Hellna og inn á land Múla.
Ljósmynd/Rangárþing ytra
Upphaf Keppni á enduro-hjólum
fór fram fyrir mánuði.