Morgunblaðið - 09.10.2020, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2020
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti.
Nánar á dyrabaer.is
HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Spenna og ringulreið heima fyrir
knýr þig til að ræða opinskátt við ættingja
og vini. Viðurkenndu takmörk þín.
20. apríl - 20. maí
Naut Njóttu litlu hlutanna í dag. Nýttu þér
auka frítíma til að koma miklu í verk. Farðu
varlega í allri áhættu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einbeittu þér að þeim verkefnum
sem fyrir liggja áður en þú tekur að þér
önnur og ný. Tilhneiging til ofgnóttar og
öfga liggur í loftinu um þessar mundir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur vanrækt sjálfa/n þig
bæði til líkama og sálar og þarft nú að
taka þér tak og færa til betri vegar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það liggur í loftinu að þú öðlist nú þá
viðurkenningu sem þú svo lengi hefur átt
skilið. Hverjar sem undirtektirnar verða,
máttu vita að þú hefur lagt þitt af mörkum
og mátt vel við una.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Mögulegt er að þú finnir glænýja
leið til þess að sjá þér farborða í dag. Börn
og unglingar þurfa sérstaklega á upp-
örvun þinni að halda eins og stendur.
23. sept. - 22. okt.
VogMeð réttum félaga getur þú myndað
sterkt bandalag til að hrinda áhugamálum
þínum í framkvæmd. Hamingjusamt heim-
ilislíf hjálpar þér að einbeita þér betur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er áríðandi að sinna
starfsframanum, en ekki þannig að mann-
orðið líði fyrir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu ekki of alvarleg/ur og
láttu það bara eftir þér að njóta augna-
bliksins. Eftir að vinnu er lokið skaltu
reyna að vera í einrúmi og hugsa þinn
gang.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þótt allt hljómi vel skaltu kynna
þér smáa letrið til hins ýtrasta svo ekkert
komi í bakið á þér. Gættu þess að tala ekki
stanslaust um vandræði þín við þann sem
ekki getur sett sig í þín spor.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú mátt ekki láta aðfinnslur
samstarfsmanna þinna draga úr þér kjark-
inn. Ekki stimpla þig misheppnaða/n –
heppnin snýr aftur eftir nokkra daga.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er alltaf ánægjulegt þegar
góðir vinir reka inn nefið. Ekki eyða mikl-
um tíma í smáatriði.
okkur í maí 1968 og fluttum til Stokk-
hólms 1970 með fyrsta barnið okkar
Láru, þar sem ég stundaði nám og út-
skrifaðist sem sænskur heilbrigð-
iseftirlitsmaður.“ Næstu sjö ár starf-
aði Jóhannes sem heilbrigðisfulltrúi
við embætti borgarlæknis en var þeg-
ar kominn með mikinn áhuga á ljós-
myndun. „Ég þurfti að taka ákvörðun
um hvort ég vildi verða atvinnumaður
í ljósmyndun, þannig að ég sagði upp
hjá borgarlækni og fór í ljósmynd-
arana á kvöldin á göngum skólans.“
Nemendurnir náðu vel saman og út-
skriftarhópurinn hittist enn á fimm
ára fresti. Eftir landsprófið fór hann í
máladeild MR og þar bættist í vina-
hópinn en skólafélagarnir þaðan hitt-
ast enn og spila bridds reglulega á
veturna. „Á síldarárunum frá 1962 til
64 vann ég við að selja kost í síld-
arbáta á Seyðisfirði og safnaði fyrir
skólaárin og eitt sumar vann ég í
Hvalstöðinni í Hvalfirði.“
Jóhannes prófaði ýmislegt áður en
hann fann sína köllun í ljósmynd-
uninni. „Ég skráði mig í lögfræði í
HÍ, en fann mig ekki þar og tók að
mér að vera framkvæmdastjóri
Heimdallar í tæpt ár. Ætlaði síðan í
dýralækningar og fékk vinnu sem
fjósamaður á stórbúinu Laug-
ardælum í Flóa og sótti um þrjá skóla
í Skotlandi en fékk ekki inngöngu.“
Hann fór að vinna hjá Sjónvarpinu í
leikmyndadeild og þar kynntist hann
eiginkonu sinni Ásu Finnsdóttur. „Ég
var þegar orðinn ástfanginn af henni
eftir að sjá hana á skjánum,“ en Ása
var fyrsta þula Sjónvarpsins og vann
líka sem filmuklippari. „Við giftum
J
óhannes Long fæddist 9.10.
1945 og var fyrsta barn for-
eldra sinna. Hann ólst upp
á Vesturgötu 18 og bjó þar
uns hann kvæntist árið
1968. Æskuheimilið var síðar flutt og
stendur nú á horni Bókhlöðustígs og
Miðstrætis.
„Á Vesturgötunni var mikill sægur
barna og mikið líf og þar kynntist ég
æskuvini mínum Jörundi Hilm-
arssyni, sem féll frá á besta aldri.“
Jóhannes bar út Morgunblaðið frá tíu
ára aldri, en á sumrin var hann í sveit.
Sex ára fór hann í tímakennslu hjá
Kristínu Ólafsdóttur á Bárugötu.
„Hún hafði engin vettlingatök við
nemendur sem henni þótti ekki
standa sig. Hún dýfði mér í eldhús-
vaskinn einu sinni og lét renna
hraustlega á höfuðið á mér ískalt vatn
því ég hafði ekki lært dýrafræðina
nógu vel.“
Jóhannes fór í Miðbæjarskólann og
þaðan í Gaggó Vest en vann líka sem
sendill hjá SÍS og síðar hjá Vegagerð
ríkisins. Þá lá leiðin í heimavist í
Skógaskóla. „Þar var allt mjög per-
sónulegt og ég gat rætt við kenn-
anám hjá Mats Wibe Lund, tók
sveinspróf og tveimur árum síðar
fékk ég meistararéttindi og við Ása
stofnuðum Ljósmyndarann árið 1982,
sem var fyrst til húsa í bílskúrnum
okkar í Seljahverfi en síðar í Mjódd-
inni.“
Jóhannes hefur tekið mikið af
tækifærismyndum, auk mynda fyrir
auglýsingar og tímarit og fyrir fjöl-
mörg fyrirtæki. „Í 25 ár tók ég mynd-
ir fyrir fimm borgarstjóra og svo
unnum við mikið með Birni G.
Björnssyni hönnuði að mjög
skemmtilegum stórum verkefnum.“
Fyrirtækið óx og dafnaði, en að sama
skapi var þetta mikil vinna og unnið
flestar helgar öll árin. „Árið 1994
skiptum við fyrirtækinu upp og Lára
dóttir okkar tók við „portrett“-
hlutanum, en við héldum áfram í aug-
lýsingamyndatökum og með þjónustu
við fyrirtæki og stofnanir.“ Jóhannes
og Ása létu ekki þar við sitja heldur
ákváðu að flytja í íbúð fyrir ofan ljós-
myndastofuna og seldu húsið. Þau
vildu einfalda lífið og minnka akstur
og svo voru þau mikið í sumarhúsi
sínu í Grímsnesi sem þau seldu 2015.
Jóhannes Long atvinnuljósmyndari – 75 ára
Fjölskyldan Hér var öll fjölskyldan samankomin í tilefni gullbrúðkaups Jóhannesar og Ásu. F.v.: Bethany, Chris, Ása Diljá, Guðlaug Sif, Sóley Ásta, Gestur
Rúnar, Olga María, Sandra Líf, Lára Bergþóra, Martin, Sigurður, Jóhannes Gauti, Halla Rakel, Guðný Fanney, Lilja Sif, Fannar Freyr, Ása og Jóhannes.
Ástfanginn af fyrstu þulunni
Gullbrúðkaup Jóhannes og Ása
sjást hér stíga dans í tilefni 50 ára
hjónabands þeirra árið 2018.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Ásthildur
Tryggvadóttir Berg-
mann fæddist á Land-
spítalanum í Reykja-
vík 3. febrúar 2019.
Hún vó 3.514 grömm
og var 49 cm löng.
Foreldrar Ásthildar
eru Sara Margrét
Bergmann og Tryggvi
Þór Einarsson.
Nýr borgari
30 ára Ari Viðar ólst
upp í Reykjavík í
Laugardalnum og býr
núna í miðbænum.
Ari Viðar er starfs-
maður Áss Vinnu-
stofu. Helstu áhuga-
mál Ara Viðars eru
bílar, en þann áhuga fékk hann í arf
frá föður sínum. Uppáhaldsbíllinn er
Volvo, því þeir eru bæði traustir og
góðir. Ari Viðar hefur líka mikinn
áhuga á fótbolta og er harður Liver-
pool-aðdáandi og missir helst aldrei af
leik.
Foreldrar: Sigríður Oddsdóttir, f. 1961,
móttökuritari Sálfræðinga, Höfðabakka
og Hróbjartur Ágústsson, f. 1958, bif-
vélavirki. Þau eru búsett í Reykjavík.
Ari Viðar
Hróbjartsson
30 ára Tryggvi fædd-
ist í Reykjavík en ólst
upp í Noregi og í
Garðabæ. Núna býr
hann á Seltjarnarnesi.
Hann starfar sem
rekstrarstjóri versl-
unarsviðs hjá
66°Norður. Helstu áhugamálin eru skíði
og golf.
Maki: Sara Margrét Bergmann, f. 1990,
hjúkrunarfræðinemi við HÍ.
Barn: Ásthildur Tryggvadóttir Bergmann,
f. 2019.
Foreldrar: Iðunn Lára Ólafsdóttir, f.
1963, röntgenlæknir og Einar Þór Bjarna-
son, f. 1962, rekstrarráðgjafi hjá Intel-
lecta. Þau eru búsett í Garðabæ.
Tryggvi Þór
Einarsson