Morgunblaðið - 09.10.2020, Qupperneq 32
PRÓFAÐU ÞÆGINDIN OG
SLÖKUNINA SEM ÞÚ FÆRÐ Í NÝJU
MODULAX HVÍLDARSTÓLUNUM
NÝTT
Á ÍSLANDI
SÆKTU APPIÐ MODULAX OG
SKOÐAÐU HVERNIG STÓLLINN
LÍTUR ÚT Á ÞÍNU HEIMILI.
JAMES
STÓLL MEÐ SKEMLI
verð 149.900
PANDORA
RAFSTILLANLEGUR
verð 219.900
Alla Modulax stóla er hægt að sérpanta sem lyftustóla.
IRIS
RAFSTILLANLEGUR
verð 209.900
MODULAX HVÍLDARSTÓLAR
HÖNNUN OG ÞÆGINDI Á HVERT HEIMILI
ZERO
GRAVITY
ZERO
GRAVITY MODULAX
• 3-mótora hvíldarstóll.
• Handvirk og þægileg
höfuðpúðastilling 42°.
• Innbyggð hleðslu-
rafhlaða. Endist 250
sinnum fyrir alla mótora.
NÝTT!
MODULAX
MARGAR GERÐIR
modulax.be
BALDURSNES 6 – AKUREYRI LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK
KYNNTU ÞÉR VÖRUÚRVALIÐ
OG VERSLAÐU Í RÓLEGHEITUM
Á SVEFNOGHEILSA.IS
FRÍR FLUTNINGUR
UM ALLT LAND
GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ
Hefðbundnum alþjóð-
legum myndlistar-
kaupstefnum hefur
öllum verið aflýst á
árinu vegna veiru-
faraldursins. Nokkrar
kaupstefnur hafa þó
verið færðar á netið
og þar á meðal hin
vinsæla Frieze London
sem stendur yfir í viku
frá deginum í dag og
geta áhugasamir
skoðað á netinu sýn-
ingar fjölda gallería sem starfrækt eru víða um lönd.
Tvö íslensk taka þátt með vefsýningum: i8 galleríið
sýnir og selur verk eftir marga listamenn sem það vinn-
ur með, þar á meðal Margréti H. Blöndal, Ólaf Elíasson,
Kristján Guðmundsson, Ragnar Kjartansson og Örnu
Óttarsdóttur. BERG Contemporary sýnir hins vegar úr-
val grafíkverka eftir Dieter Roth.
Íslensk gallerí taka þátt í Frieze
London-kaupstefnunni á netinu
FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 283. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Strákarnir í 21-árs landsliðinu í fótbolta taka á móti
Ítölum í undankeppni Evrópumótsins á Víkingsvellinum
klukkan 15.30 í dag. Ísland er í harðri baráttu við Ítalíu
og Írland um sæti í lokakeppni EM í þessum aldurs-
flokki. » 27
Stórleikur hjá strákunum
á Víkingsvellinum í dag
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Skáldahópurinn Svikaskáld stendur
fyrir ljóðasmiðjum í Gröndalshúsi
fyrir ungt fólk síðustu helgina í októ-
ber og þá fyrstu í nóvember. „Ljóða-
smiðja er í raun bara stutt námskeið
sem byggist líka á samtali,“ segir
Fríða Ísberg. „Við munum lesa ljóð,
skrifa ljóð, ræða ljóð og að lokum
gefa út ljóð, en í lok hvers námskeiðs
verður gefinn út ljóðabæklingur eða
-hefti til að sýna hvað það er í raun
auðvelt og til að hvetja krakka til
þess að vera ekki hræddir við sjálfs-
útgáfu.“
Svikaskáld eru Fríða Ísberg, Þóra
Hjörleifsdóttir, Sunna Dís Másdótt-
ir, Þórdís Helgadóttir, Ragnheiður
Harpa Leifsdóttir og Melkorka
Ólafsdóttir. Þær voru á sama tíma í
ritlist í Háskóla Íslands og hafa unn-
ið saman og gefið út þrjár bækur
síðastliðin þrjú ár, en samhliða því
hafa þær allar sent frá sér sín fyrstu
verk á síðustu misserum; skáldsög-
ur, smásagnasöfn, ljóðabækur og
leikrit. Skáldin fengu styrk frá
Reykjavíkurborg og Barnamenning-
arsjóði til þess að halda ljóðasmiðjur
fyrir tíu krakka í einu í mismunandi
aldursflokkum, þrjár fyrir áramót
og þrjár í byrjun næsta árs.
Lesa saman, skrifa og deila
Fríða segir að unnið verði með
svipaðar aðferðir og þegar þær
skrifi eigin bækur. Þær lesi upp ljóð
eftir önnur skáld sem veiti þeim inn-
blástur, ræði hugleikin málefni, fari
síðan afsíðis og skrifi ljóð í tíu til
fimmtán mínútur. Komi síðan aftur
saman og lesi upp það sem skrifað
hefur verið. „Við endurtökum þetta
þar til við erum komin með töluvert
efni,“ segir hún.
Fyrsta smiðjan verður fyrir 13 til
15 ára klukkan 10 til 13 sunnudag-
ana 1. og 8. nóvember. Þóra og
Sunna Dís verða leiðbeinendur.
Önnur smiðjan verður fyrir 16 til
18 ára klukkan 14 til 18 laugardag-
ana 31. október og 7. nóvember.
Leiðbeinendur verða Sunna Dís og
Melkorka.
Þriðja smiðjan verður fyrir 19 til
21 árs klukkan 10 til 13 laugardag-
ana 31. október og 7. nóvember.
Fríða og Ragnheiður Harpa verða
leiðbeinendur.
Fríða segir að vegna þess hve fáir
verði í hverri smiðju verði nándin
meiri. Áhersla verði lögð á að lesa
saman ljóð, skrifa og deila. „Hug-
myndin er líka að vekja athygli á því
að hægt er að skrifa í samræðu við
annað fólk og leyfilegt að verða fyr-
ir innblæstri af öðrum.“ Þannig
megi taka frá öðrum og halda áfram
með samræðuna. „Bækurnar okkar
eru skrifaðar í samræðu og líklegt
er að heftin, sem koma út, verði með
sama hætti.“ Jafnframt sé tilgang-
urinn að kynna möguleikann á sam-
vinnu milli rithöfunda. „Rithöfunda-
iðjan getur verið ótrúlega einmana-
leg og við viljum sýna fram á að það
sé hægt að vinna saman, stofna
hópa, stofna sjálfsútgáfur og finna
ritvini.“
Skráning í smiðjurnar stendur
yfir (svikaskald@gmail.com) þar til
námskeiðin fyllast.
Svikaskáld Í efri röð frá vinstri: Ragnheiður Harpa, Sunna Dís, Melkorka og Þórdís. Í neðri röð f.v.: Þóra og Fríða.
Svikaskáld með ljóða-
smiðjur fyrir ungt fólk
Hvetja krakka til samvinnu og að hræðast ekki sjálfsútgáfu