Morgunblaðið - 22.10.2020, Síða 1
F I M M T U D A G U R 2 2. O K T Ó B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 249. tölublað 108. árgangur
VINSÆL Á
NÝ ÞÖKK
SÉ TIKTOK
FRAMÚR-
SKARANDI
FYRIRTÆKI
GLÁPIÐ Á VARSJÁNA
TEKUR OF
LANGAN TÍMA
96 SÍÐUR GUNNAR JARL 26RUMOURS 28
Svíar banna Huawei
» Sænskum fjarskiptafyrir-
tækjum hefur verið gert að
fjarlægja búnað frá fyrir-
tækinu.
» Kínverjar hóta viðskipta-
þvingunum en Svíar virðast
ekki kippa sér upp við það.
» Talið er að hið þjóðhagslega
mikilvæga Ericsson vegi þungt
í ákvörðuninni, en fyrirtækið er
í beinni samkeppni við Huawei.
Tvö íslensk fjarskiptafyrirtæki nota
tækni frá Huawei í sínum fjarskipta-
kerfum, einkum í tengslum við upp-
byggingu 5G-kerfis hér á landi. Tals-
menn þeirra segja málefni Huawei
óþægileg fyrir fjarskiptageirann.
Fyrirtækið standi mjög framarlega í
tækninni en pólitíkin flæki málið.
Sænsk yfirvöld hafa alfarið sett
Huawei stólinn fyrir dyrnar og
sænskum fyrirtækjum hefur verið
gert að fjarlægja tækjabúnað frá
fyrirtækinu fyrir árið 2025.
Kjartan Briem, framkvæmda-
stjóri tækni og innviða hjá Sýn, segir
það nýtt að Svíar taki svo róttækar
ákvarðanir. Sýn hefur staðið í próf-
unum á 5G-tækni og þar hefur verið
notast við búnað frá Huawei, en
óljóst er hvort svo verði áfram þegar
prófanir eru lengra komnar.
Stefna á hraða uppbyggingu
Nova hefur þegar tekið 5G-senda í
notkun, með tækni frá Huawei. For-
stjórinn Margrét Tryggvadóttir seg-
ir að fyrirtækið stefni á hraða upp-
byggingu kerfisins. „Ennþá hefur
ekkert komið fram um óeðlilega eða
óviðunandi veikleika og því miður
virðist umræðan ákaflega pólitísk.
Öryggið er ávallt í fyrirrúmi hjá
Nova. Það er sjálfsagt að það eigi sér
stað umræða um þessi mál en hún
ætti að fara fram á faglegum grunni
frekar en eingöngu pólitískum.“
Síminn notar sænska tækni
Síminn notar tækni frá sænska
tæknirisanum Ericsson, eitt ís-
lenskra fjarskiptafélaga. Þar á bæ
þarf ekki að hafa áhyggjur af Hua-
wei-málum nema farið verði í sam-
starf með fjarskiptafélögum um end-
anlega 5G-innviði í landinu.
Erfitt og kostnaðarsamt geti verið
fyrir fyrirtæki að þurfa að fara úr
viðskiptasambandi við mikilvægan
birgi. Stíga þurfi varlega til jarðar.
Óþægilegt fyrir geirann
Tveir af þremur fjarskiptarisum á Íslandi nota búnað frá Kínverjum Sænsk
stjórnvöld banna fjarskiptabúnað frá Huawei Pólitíkin sögð flækja málið
MSvíarnir skella símanum »4 & 12
Danska varðskipið Hvítabjörninn var á leið inn Hvalfjörð þeg-
ar ljósmyndari Morgunblaðsins smellti af því mynd, en það er
ekki óalgengt að danskir varðskipsmenn komi við á Íslandi á
leið sinni til Grænlands. Veðrið var ekki til vandræða, ekki
frekar en það hefur verið það sem af er októbermánuði.
Mánuðurinn hefur til þessa verið óvenjuhægviðrasamur og
hitastig er víðast hvar enn nokkuð yfir frostmarki að degi til.
Á sama hátt hefur rignt sérstaklega lítið, úrkoma í Reykjavík
hefur mælst innan við þriðjungur meðalúrkomu.
Í umfjöllun um veðrið fram undan sem lesa má innar í
blaðinu kemur þó fram að breytinga á þessu ágæta ástandi er
að vænta. Spár gefa í skyn að lægðir séu að verða ágengari og
dýpri á næstunni.
Í dag gengur í austan 13-18 m/s og enn bætir í í kvöld. Þá er
ekki eins gaman að kíkja upp á dekk á varðskipi. »6
Morgunblaðið/Eggert
Hvítabjörninn siglir
inn Hvalfjörðinn
Málum hjá
ákæruvaldinu
fjölgaði um 40%
á síðasta ári. Sig-
ríður Friðjóns-
dóttir ríkis-
saksóknari
óskaði í byrjun
árs eftir auknum
fjárveitingum til
að mæta auknum
verkefnum. Taldi
hún þörf á að bæta við þremur og
hálfu stöðugildi saksóknara og einu
stöðugildi skrifstofumanns. Ekki er
útlit fyrir að fjárveiting verði aukin
vegna áhrifa kórónuveirufarald-
ursins á ríkissjóð.
Fram kemur í skýrslu ríkis-
saksóknara fyrir árið 2019 að 9.626
mál komu til ákæruvaldsins. Ákært
var í 85% þeirra. Ákærðir brota-
menn voru 2.784. Flestir voru karl-
ar á þrítugsaldri. »14
Þarf að bæta við
saksóknurum
Sigríður J.
Friðjónsdóttir