Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Breska rík-isstjórninlýsti því yfir fyrir helgi að fríverslunarvið- ræður Breta við Evrópusam- bandið væru í raun komnar á endastöð, og að tilgangs- laust væri að halda þeim áfram nema sambandið gerði grundvallarbreytingu á nálgun sinni til viðræðn- anna. Kom yfirlýsingin í kjölfar þess, að tímafrestur sá sem Boris Johnson, for- sætisráðherra Breta, gaf sambandinu fyrr í sumar til 15. október leið án nokkurra viðbragða. Þrátt fyrir að yfirlýsing Breta hafi verið nokkuð af- dráttarlaus vildu þó hvorki þeir né Evrópusambandið ganga svo langt að lýsa því yfir að viðræðunum væri al- farið slitið. Þess í stað hafa fulltrúar hvorra tveggja ræðst við símleiðis í þeirri von að einhver flötur finnist sem hægt verði að nýta til þess að höggva á þennan hnút. Michael Gove, ráð- herra og forvígismaður í breska Íhaldsflokknum, orð- aði það svo að dyrunum hefði ekki verið lokað, heldur ein- ungis hallað aftur. Það sem helst leiddi til þessarar pattstöðu var þver- móðska Evrópusambands- ins, sem gerði það að ófrá- víkjanlegri kröfu, að samið yrði fyrst um fiskveiðirétt- indi og svo um þátttöku Breta í samkeppnisreglum sambandsins um ríkisaðstoð, en hvort tveggja var boðið fram á þann hátt, að í raun yrði sem Bretar hefðu aldrei yfirgefið sambandið. Bresk stjórnvöld gátu skiljanlega engan veginn fallist á það, og því var við- ræðunum í raun sjálfhætt, þar til Michel Barnier, aðal- samningamaður Evrópu- sambandsins, ákvað loks í gær að bjóða Bretum það að hægt yrði að ræða aðra hluti væntanlegs samkomulags. Og hann tók sérstaklega fram að viðræðurnar færu fram á milli tveggja full- valda aðila, sem kann að hafa orðið til þess að frá Downingstræti bárust þau skilaboð að ræðan hefði ver- ið mikilvæg. Þeir sem utan Brussel standa hljóta þó að furða sig á að taka þurfi fram að Bretland sé full- valda ríki og segir það sitt um Evrópusam- bandið og afstöðu þess til aðildar- ríkjanna. Það er svo áleitin spurning hver staða við- ræðnanna væri nú, ef þetta hefði verið viðurkennt frá upphafi, en ljóst hefur verið í marga mánuði að tíminn til samninga væri ekki óþrjót- andi. Augljóst er að án hótunar Breta um að slíta viðræðun- um alfarið hefði Evrópusam- bandið aldrei opnað á það að viðræðurnar gætu mögulega farið fram eins og á milli fullvalda aðila. Það þýðir þó ekki að menn standi neinu nær en áður hvað varðar lausn á þeim tveimur ásteyt- ingarsteinum sem nú hafa tafið þetta mikilvæga ferli um allt að tíu mánuði. Hitt er svo ljóst að lítið má út af bregða næstu tvær vikurnar eða svo, ef samkomulag á að nást í tæka tíð til þess að Evrópusambandsríkin geti staðfest það samkomulag sem næst áður en áramótin renna upp og undanþágur Breta renna út. Þar á bæ virðist það hins vegar vera reglan frekar en undantekn- ing að allt er skilið eftir til síðustu stundar. Næturfund- irnir hljóta að vera notalegir í Brussel. Þessi staða getur einnig haft áhrif hér á landi. Í Morgunblaðinu á mánudag- inn var rætt við Guðlaug Þór Þórðarson utanríkisráð- herra, en hann benti á að viðræður Íslands, Noregs og Lichtensteins við Bretland héldu áfram og tengdust í raun viðræðum sambandsins og Breta lítið. Á vissum svið- um væri þó betra að Bretar og ESB semdu fyrst, og svo myndu EFTA-ríkin þrjú fylgja á eftir. Engu að síður hefði nálgun Íslendinga og hinna þjóðanna frá upphafi verið sú, að viðræður Breta við ESB gætu siglt í strand. Þetta er brýnt hagsmuna- mál fyrir Ísland, enda eru Bretar næststærsta við- skiptaþjóð okkar, og mikill samgangur á milli þjóðanna tveggja. Það þarf því áfram að fylgja því eftir að áhrifin af handarbaksvinnubrögðum og þvingunaraðgerðum Evr- ópusambandsins í Brexit- viðræðunum verði sem allra minnst á viðskiptahagsmuni okkar. Þráðurinn hefur verið tekinn upp að nýju í viðræðum um Brexit} Dyrnar opnaðar á nýjan leik, en dugar það? H inn 6. nóvember boða ég til heil- brigðisþings 2020. Umfjöll- unarefni þingsins í ár er mönn- un og menntun í heilbrigðisþjónustunni með áherslu á nýsköpun. Þetta er þriðja heilbrigð- isþingið sem ég efni til og í ljósi aðstæðna verð- ur þingið rafrænt. Það fer fram 6. nóvember kl. 8.30-12.30 og hægt er að skrá sig á þingið á heimasíðu Heilbrigðisþings, þar sem einnig er að finna dagskrá þingsins og nánari upplýs- ingar. Á fyrsta heilbrigðisþinginu sem haldið var árið 2018 var lagður grunnur að þingsályktun um heilbrigðisstefnu til ársins 2030 sem sam- þykkt var á Alþingi í júní 2019. Á grundvelli heilbrigðisstefnunnar var heilbrigðisþingið 2019 helgað siðferðilegum gildum og forgangs- röðun í heilbrigðisþjónustu og var liður í gerð þingsálykt- unartillögu um þessi mál sem var samþykkt sem ályktun Alþingis 9. júní síðastliðinn. Í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 er sérstaklega fjallað um mönnun heilbrigðisþjónustunnar. Mönnunin er al- þjóðleg áskorun þar sem samkeppni um mannauð er vax- andi og eftirspurn eftir íslensku heilbrigðisstarfsfólki til starfa erlendis mikil. Nauðsynlegt er að fjárfesta stöðugt í menntun og þjálfun heilbrigðisstarfsfólks. Einnig er bent á að áskoranir framtíðarinnar muni krefjast nýsköpunar, jafnt í þróun tækni og vinnubrögðum starfsfólks í heil- brigðisþjónustunni. Því skipti m.a. miklu máli að stjórn- sýsla og lagaumgjörð heilbrigðismála veiti nægilegt svigrúm til þróunar og nýsköpunar. Heilbrigðisþingið í ár verður haldið við óvenjulegar aðstæður á tímum Covid-19- farsóttarinnar. Farsóttin hefur þegar leitt í ljós að öflugt opinbert heilbrigðiskerfi er ein af grundvallarforsendum þess að þjóðir geti tek- ist á við slíkar fordæmalausar aðstæður. Hér á landi höfum við vel menntað heilbrigðisstarfs- fólk sem staðið hefur í framlínunni, mikil þekk- ing og nýjar lausnir hafa orðið til og sá lær- dómur sem af þessu ástandi hefur hlotist mun vafalaust nýtast heilbrigðiskerfinu til fram- tíðar. En við verðum að tryggja meðvitað að lærdómarnir gleymist ekki þegar baráttunni við faraldurinn er lokið, og íhuga vel hvernig við getum nýtt reynsluna til að efla bæði mönnun og menntun innan heilbrigðiskerfisins til framtíðar. Við þurfum að styrkja og efla menntun heilbrigðis- starfsfólks, bæta starfsumhverfi þess, vinna að tryggri mönnun heilbrigðiskerfisins til framtíðar og efla vísindi og nýsköpun, og í ljósi heimsfaraldurs og áhrifa faraldurs- ins þurfum við mögulega að nálgast það markmið með nýjum leiðum. Um þetta fjallar heilbrigðisþingið 2020 og ég stefni að því að afrakstur þingsins verði grunnur að þingsályktunartillögu til Alþingis um þessi mikilvægu mál. Svandís Svavarsdóttir Pistill Heilbrigðisþing 6. nóvember Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Heildarfjöldi mála semkomu til meðferðar hjáákæruvaldinu á árinu2019 jókst um 40% frá árinu á undan. Sigríður Friðjóns- dóttir ríkissaksóknari gefur þær skýringar að allt haldist í hendur, fjölgun á kærum til lögreglu leiði til fleiri mála hjá ákæruvaldinu, sem þýði að fleiri niðurfellingar eru kærðar til ríkissaksóknara, og fleiri ákæra og þar með fleiri mála í dómi og þar fram eftir götunum. Tölur um fjölda mála og ákæra og fleiri þætti koma fram í árs- skýrslu ríkissaksóknara fyrir árið 2019 og hluti er tekinn upp í með- fylgjandi graf. Alls sættu 2.764 einstaklingar ákæru. Mikill meirihluti þeirra er karlmenn og fjölmennustu hóparnir eru á þrítugs- og fertugsaldri. Flokkað eftir ríkisfangi eru Pólverj- ar og Litháar fjölmennastir, fyrir ut- an Íslendinga. Út frá þessu má segja að hinn dæmigerði afbrotamaður sé íslenskur karlmaður á þrítugsaldri. Lásu 1.864 héraðsdóma Ríkissaksóknari hefur eftirlits-, kæru- og samræmingarhlutverk. Stærstu einstöku málaflokkar við embættið eru meðferð mála og mál- flutningur á áfrýjunarstigi fyrir Landsrétti og Hæstarétti sem og af- greiðsla kærumála vegna ákvarðana lögreglustjóra og héraðssaksóknara um að hætta rannsókn, fella mál nið- ur eða falla frá saksókn. Ríkissaksóknari hefur eftirlit með framkvæmd ákæruvalds hjá ákærendum á lægra stigi, það er að segja héraðssaksóknara og níu lög- reglustjórum. Eftirlitið felst meðal annars í yfirlestri allra uppkveðinna héraðsdóma, viðurlagaákvarðana og lögreglustjórasekta og meðferð kærumála vegna ákvarðana lög- reglustjóra og héraðssaksóknara. Á árinu 2019 bárust embættinu 1.864 héraðsdómar til yfirlestrar. Málum hjá ákæru- valdi fjölgaði um 40% Fjöldi mála 2015-2019 Af 9.626 málum árið 2019: Fjöldi eftir embættum 2019 Lögreglustjórar Höfuðborgarsvæðið Vesturland Vestfi rðir Norðurland vestra Norðurland eystra Austurland Suðurland Vestmannaeyjar Suðurnes Héraðssaksóknari Samtals Fjöldi mála 5.692 327 57 182 536 72 439 181 1.016 1.124 9.626 Fjöldi ákærðra eftir aldri 2019 Fjöldi eftir ríkisfangi (8 helstu) Fjöldi ákærðra árið 2019 Ísland 2.076 Pólland 201 Litháen 101 Albanía 56 Lettland 32 Rúmenía 28 Bretland 22 Bandaríkin 18 Mál hjá ríkissaksóknara 1.000 750 500 250 0 2015 2016 2017 2018 2019 500 400 300 200 100 0 20-24 ára 25-29 ára 30-34 ára 35-39 ára Einstaklingar 164 Dagar í gæslu 11.649 11%Ákærur í 8.164 málum af 9.626, eða 85% Ákærur Fallið frá saksókn Niðurfelld Ákærufrestun 4% 487 18% 480 18% 421 15% 362 13% 12 fyrirtæki 2.784 einstaklingar Karl, 83% Kona, 17% 2.784 Heimild: Ársskýrsla ríkissak- sóknara 2019 Gæsluvarðhald Meðaldagafjöldi 71 Lengsta gæsla 358 5.111 6.777 6.265 6.872 9.626 Fjöldi daga „Ég er ágætlega sátt við stöðu/ afgreiðslu mála hjá ríkis- saksóknara í árslok 2019 en með hliðsjón af þessari þróun er ljóst að fjölga þarf starfsfólki við embættið hið fyrsta svo hægt sé að halda í horfinu,“ segir Sigríð- ur Friðjónsdóttir ríkissaksóknari í skriflegu svari. Hún vísar í bréf til dómsmálaráðuneytisins þar sem farið er fram á fjölgun um þrjú og hálft stöðugildi saksókn- ara og eitt stöðugildi skrifstofu- manns vegna aukinna verkefna. Sigríður segir að vegna gjör- breyttrar stöðu ríkissjóðs vegna afleiðinga af kórónuveirufaraldr- inum hafi beiðni um auknar fjár- veitingar ekki fengið afgreiðslu. Fjölga þarf starfsfólki RÍKISSAKSÓKNARI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.