Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020
✝ Jóhannes Stef-ánsson fæddist
á Grund í Svarf-
aðardal 27. janúar
1940. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Vesturlands á
Akranesi þann 12.
október 2020.
Foreldrar hans
voru Stefán
Björnsson, f. 9. júlí
1908, d. 7. júní
1991, frá Atlastöðum í Svarf-
aðardal, og Dagbjört Ásgríms-
dóttir, f. 8. mars 1906, d. 31. maí
1995, frá Dæli í Fljótum.
Systkini Jóhannesar eru: Þor-
steinn Svörfuður, f. 22. ágúst
1937, Anna Sigurlaug, f. 8. ágúst
1947, Björn Runólfur, f. 8. júlí
1948, maki Guðrún Guðjóns-
dóttir, f. 27. júlí 1958, Sigurlaug,
f. 7. maí 1952, maki Símon Páll
Steinsson, f. 14. janúar 1949.
Jóhannes giftist 9. desember
1962 Hugrúnu Marinósdóttur, f.
2. apríl 1943. Þau skildu. Sonur
þeirra er Stefán.
Jóhannes hóf sambúð árið
2004 með Erlu Björk Karlsdótt-
ur, f. 11. maí 1941. Þau bjuggu á
Helena Ólafsdóttir, f. 16. mars
1991. Börn þeirra eru: Elmar Óli
og Kolbrún Sara. Börn Stefáns
og Júlíu eru:
Jóhannes f. 27. júlí 1988, sam-
býliskona Jóna Kristín Birg-
isdóttir f. 15. apríl 1992. Dóttir
þeirra er Irena Fold.
Alexander, f. 5. desember
1990, sambýliskona Kristina
Apostolova, f. 3. febrúar 1994.
Hugrún Hanna, f. 27. október
1992, sambýlismaður Daniel
Fontane, f. 1. mars 1994.
Stefán Örn f. 27. apríl 1998.
Jóhannes var fæddur og uppal-
inn á Grund í Svarfaðardal. Um
tvítugt flytur hann til Dalvíkur
og býr þar í um 40 ár. Síðustu 16
árin bjó hann á Akranesi.
Starfsævi hans var að mesta
helguð fiskvinnslu. Hann starfaði
á frystihúsi KEA á Dalvík, hjá
Stefáni Rögnvaldssyni, fiskverk-
un Jóhannesar og Helga og að
lokum hjá Norðanfiski á Akra-
nesi.
Helstu áhugamál Jóhannesar
voru golf og silungsveiði.
Útför Jóhannesar fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 22. október
2020, kl. 13. í ljósi aðstæðna
verða aðeins nánustu aðstand-
endur viðstaddir en útförinni
verður streymt frá
https://www.akraneskirkja.is
Virkan hlekk á slóð má nálgast
á:
https://www.mbl.is/andlat
Þjóðbraut 1 Akranesi.
Synir Erlu eru Karl
Sigurgeirsson, f. 21.
apríl 1959, Jónas
Theódór Sigurgeirs-
son, f. 30. júní 1960, og
Viktor Sigurgeirsson,
f. 20. júlí 1966.
Barnabörn Erlu eru
11 og langömmu-
börnin eru 7.
Maki Stefáns er Júl-
ía Linda Ómarsdóttir,
f. 11. júlí 1960. Dætur Júlíu eru 1)
Helga Þórey, f. 9. júní 1978, sam-
býlismaður hennar er Þorsteinn
Guðmundsson, f. 6. október 1971.
Synir þeirra eru Gunnar Áki, Álf-
ar Smári og Róbert Ómar.
2) Sara María, f. 27. maí 1980,
sambýlismaður hennar er Fannar
Már Sveinsson, f. 26. apríl 1986.
Börn Söru eru Natan Birnir Jó-
hannsson, f. 23. mars 1998, sam-
býliskona hans er Dagný Rós Sig-
urðardóttir.
Dórótea María Jóhannsdóttir,
f. 23. febrúar 2000. Sambýlis-
maður hennar er Gauti Gautason.
Dóttir þeirra er Gabríella Myrk.
Sonur Stefáns er Andri, f. 18.
október 1985, sambýliskona Olga
Elsku pabbi. Þá höfum við farið
okkar síðustu ferð saman. Við
vonuðumst báðir innst inni eftir
að þær yrðu fleiri. Alveg fram á
síðustu stundu. Þær vonir brustu
og nú hefur þú fengið hvíld. Hvíld
frá stanslausum verkjum sem
hafa markað líf þitt undanfarna
mánuði. Það var erfitt að fylgja
þér eftir síðustu sporin og sjá
hvernig þér leið og hvernig
ástandið versnaði viku eftir viku,
dag frá degi. Hvernig vonin um
viðsnúning til betri heilsu varð
minni og minni. Síðustu ferðirnar
okkar saman voru því ýmist á
spítalann eða af honum. Ég vona
að þér líði nú vel á nýjum stað,
farinn inn í eilífðina.
Senn að líður síðasta nótt
svefninn hvílir lúna.
það er gott að fara fljótt
feigðin kallar núna.
(Páll Ásgrímsson, móðurbróðir
þinn á banabeðinum)
Góðar minningar munu ylja
okkur áfram. Minningar um
hlýju, góða samveru, þátttöku í
leik og starfi. Þú lagðir mikið á
þig til að ég fengi sem best notið
æskunnar. Sama hvað ég tók mér
fyrir hendur, alltaf varst þú tilbú-
inn að leggja mér lið. Þær voru
ófáar ferðirnar sem þú keyrðir
mig til Ólafsfjarðar á golfvöllinn.
Bæði á æfingar og í keppni. Þá
voru engin Múlagöng komin til
sögunnar. Sömuleiðis fórum við
til Akureyrar, Húsavíkur og
Siglufjarðar í sömu erindagjörð-
um. Allt saman áður en ég fékk
bílpróf sjálfur. Golfíþróttin átti
svo eftir að sameina okkur löngu
seinna eftir að þú fékkst „bakt-
eríuna“ sjálfur. Í fersku minni eru
vorferðir okkar til Spánar undan-
farin ár meðan þú hafðir heilsu til.
Það voru góðar stundir. Ég veit
þú naust þeirra vel.
Upp í hugann koma líka ótal-
margar veiðiferðir sem við fórum
saman. Flestar áður en ég fór að
heiman. Mýrarkvísl, Svarfaðar-
dalsá og fleiri ár. Auk þess fjöld-
inn allur af vötnum sem við veidd-
um í. Silungsveiðin var þitt
uppáhald. Sjaldnast komum við
tómhentir heim og aflanum yfir-
leitt gerð góð skil við matarborð-
ið.
Þrátt fyrir mjög stutta skóla-
göngu hafðir þú gaman af því að
skrifa og yrkja. Það lá vel fyrir
þér segja frá, sérstaklega í riti.
Skrif þín um forfeður þína og þig
sjálfan veita okkur ógleymanlega
sýn inn í veröld sem var. Ná-
kvæmni í frásögn bera vott um
gott minni og alúð við smáatriði.
Síðustu æviárin á Akranesi
voru þér góð eins og þú nefndir
oft við mig. Þar fannstu hamingj-
una á nýjan leik og naust þín vel.
Þín verður sárt saknað.
Hvíl í friði elsku pabbi.
Þinn
Stefán.
Það er okkur ótrúlega sárt að
þurfa að kveðja hann Jóa afa okk-
ar.
Jói afi var fiskvinnslumaður
sem þótti fátt betra en að hlusta á
útvarpið, lesa blaðið og horfa á
sjónvarpsfréttirnar, helst allt á
sama tíma.
Við systkinin eigum góðar
minningar um afa. Við munum vel
eftir föstudagspizzu og Spaug-
stofunni með ömmu og afa í fal-
legu Dalvíkinni þegar sum okkar
voru enn þá litlir krakkar. Það
kom meira að segja fyrir að mað-
ur fékk að fara með á golfvöllinn
eða í silungsveiði og borða svo af-
urðina í kvöldmat.
Afi var maður athafna en fárra
orða og hallmælti ekki nokkrum
manni. Hann var hógvær og lít-
illátur og sýndi væntumþykju
sína með þéttu faðmlagi, sem
fylgdi vanalega suð í heyrnar-
tæki, og brosi. Á afmælisdaginn
mátti alltaf búast við símtali frá
afa.
Öll fengum við tækifæri til að
kveðja afa, hvert á sinn hátt, og
fyrir það erum við þakklát.
Nú varðveitum við góðu minn-
ingarnar og óskum þess að afi
hvíli í friði og ró.
Elsku fjölskylda, við sendum
ykkur ósk um styrk og huggun í
sorginni.
Ljóð sem afi samdi árið 2017:
Fortíðin er fjandi leið
fari hún og veri
nú í dag er gatan greið
ég grín að henni geri.
Bjartsýni er besta ráð
bætir þor og andann.
Þrautseigja og þol er náð
þú getur allan fjandann.
Minning afa lifir með okkur
barnabörnunum:
Helga Þórey, Sara
María, Andri, Jóhannes,
Alexander, Hugrún
Hanna og Stefán Örn.
Jóhannes bróðir okkar, alltaf
kallaður Jói, er látinn eftir langa
baráttu við illvígan sjúkdóm.
Æskuheimili Jóa var Grund í
Svarfaðardal og þar vann hann
eins og önnur ungmenni á þeim
árum öll venjuleg sveitastörf. Jói
valdi á unga aldri atvinnulífið um-
fram langa skólagöngu, þó að
hvort tveggja lægi opið fyrir hon-
um. Hann vann alla tíð við sjávar-
útveg eða fiskvinnslu. Hann varð
ungur stjórnandi en valdi svo að
vinna fremur á gólfinu og kunni
betur við sig að hugsa um vélar og
tæki en þurfa að stjórna fólki. Svo
var hann auðvitað frábær hand-
flakari og hafði ánægju af að
kenna ungviðinu handbrögðin.
Eins og gengur í sjávarútvegi
hafa skipst á skin og skúrir. Jói
upplifði ýmislegt eins og svo
margir í þessari áhættusömu at-
vinnugrein. En hann kom alltaf
standandi niður og hélt áfram
með líf sitt. Hann hafði þann
styrk sem til þurfti. Meðfram
vinnu hafði hann ýmis áhugamál
og starfað að þeim af miklum
krafti. Í mörg ár var hann í veiði-
félagi með nokkrum félögum á
Dalvík og leigðu þeir saman sil-
ungsveiðiá. Þar átti Jói sínar
skemmtilegustu frístundir á þeim
tíma, að eigin sögn. Alltaf var Jói
með stöngina nærri þegar fjöl-
skyldan hittist og tilbúinn að leið-
beina þeim yngri við veiðar.
Stefán, sonur Jóa, fór á ung-
lingsárum til Svíþjóðar og dvaldi
þar eitt sumar og kynntist golf-
íþróttinni. Þegar heim kom vildi
hann halda áfram í golfinu og tók
það mikinn tíma hjá báðum for-
eldrunum. Jói fór síðan sjálfur að
spila golf ásamt Hugrúnu konu
sinni og hefur það verið hans að-
altómstundagaman seinni árin.
Hann starfaði ötullega í Golf-
klúbbnum Hamri á Dalvík og var
formaður hans um margra ára
skeið. Eftir að hann flutti suður
hélt hann uppteknum hætti og
seinustu ár naut hann þess að fara
með syni sínum til Spánar í golf-
ferðir.
Tímamót urðu á ævi Jóa þegar
hann og Hugrún slitu samvistir.
Stuttu seinna kynntist hann Erlu
Björk, þau kynni leiddu til þess að
hann flutti til Akraness. Samband
þeirra byggðist á einstökum kær-
leika og var mikil gæfa fyrir bæði.
Jói reyndist okkur yngri systk-
inum sínum alla tíð vel þótt hann
hafi strítt okkur þegar við vorum
lítil. Hann og Þorsteinn elsti bróð-
ir okkar hafa verið nánir vinir alla
tíð. Þegar við systkin hittumst var
hann ávallt hrókur alls fagnaðar
sagði sögur og rifjaði upp
skemmtileg atvik. Einnig skrifaði
hann fyrir nokkrum árum ýmsar
minningar sínar sem okkur systk-
inunum finnst gaman að lesa og
eiga.
Hann var alla tíð stálminnugur.
Jói var afskaplega hæglátur og
hafði þann eiginleika að það var
gott að þegja með honum. Hins
vegar hafði Jói alltaf skoðanir á
mönnum og málefnum en var ekki
endilega að flíka þeim. Þeir sem
þekktu Jóa vissu að hann var sér-
staklega heilsteyptur og traustur
vinur. Hann var ekki oft í sam-
bandi en maður vissi alltaf að
maður átti hann að. Þannig var
samband okkar systkinanna alla
tíð við hann. Við erum honum sér-
staklega þakklát fyrir samfylgd-
ina í lífinu og minnumst hans af
miklum kærleika.
Við vottum Erlu og fjölskyldu
og Stefáni og fjölskyldu hans inni-
legrar samúðar. Við söknum hans
öll.
Þorsteinn, Anna, Björn
og Sigurlaug.
Jóhannes
Stefánsson
Sálm. 14.2
biblian.is
Drottinn horfir á
mennina af himnum
ofan til þess að sjá
hvort nokkur sé
hygginn, nokkur
sem leiti Guðs.
Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka,
KRISTÍN JÓNSDÓTTIR,
Blikahólum 2,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans
þriðjudaginn 13. október.
Útförin fer fram frá Lindakirkju föstudaginn
23. október klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir.
Það verður streymt frá útförinni og linkurinn er
www.promynd.is/live/
Svanborg Jónsdóttir Júlíus Skúlason
Þór Jónsson Elísabet Pétursdóttir
Óskar Jónsson Kerstin Jonsson
Örn Jónsson Kristín Jónsdóttir
Þorkell Jónsson Lilja Ólafsdóttir
Guðmundur Ingi Jónsson Guðrún Sigþórsdóttir
Ásgeir Jónsson Birna Jóhannsdóttir
og fjölskyldur þeirra
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma
og langalangamma,
INGA LÓA HALLGRÍMSDÓTTIR,
Aðalgötu 5, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
14. október.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 23. október
klukkan 13. Vegna aðstæðna geta aðeins nánustu
aðstandendur verið viðstaddir útförina og verður henni streymt
frá Akraneskirkju á slóðinni
https://www.youtube.com/watch?v=vB1WEM3agpk&feature;=y
outu.be
Hafsteinn Eyjólfsson
Sólveig Halla Þorsteinsdóttir Þorsteinn Jónsson
Alma María Jóhannsdóttir Eiríkur Jónsson
Arinbjörn Kúld Anna Einarsdóttir
Hallgrímur Kúld
Ragna Lóa Stefánsdóttir
og fjölskyldur
Elskulegi faðir okkar,
GUNNLAUGUR MARTEINN
SÍMONARSON
stýrimaður,
Kríuhólum 4,
lést á heimili sínu 6. október.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Guðrún Rut Gunnlaugsdóttir
Jóhann Gunnlaugsson
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HJALTI GEIR KRISTJÁNSSON
húsgagnaarkitekt,
sem lést 13. október, verður jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Reykjavík 27. október
klukkan 15.
Vegna aðstæðna verður aðeins nánasta fjölskylda viðstödd en
streymt verður á: https://beint.is/streymi/hjaltigeirkristjansson
Sigríður Th. Erlendsdóttir
Ragnhildur Hjaltadóttir
Kristján Hjaltason Rannveig Einarsdóttir
Erlendur Hjaltason Aðalheiður Valgeirsdóttir
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir Guðmundur Magnússon
og fjölskyldur
Sonur minn, faðir okkar, bróðir og afi,
GUNNAR ÞORSTEINN HALLDÓRSSON,
lést mánudaginn 19. október.
Anna Einarsdóttir
Bjarney Gunnarsdóttir Rakel Rán Sigurbjörnsdóttir
Þorsteinn Daði Gunnarsson
Jón Sigurður Gunnarsson
Einar Halldórsson
Fríða Halldórsdóttir Þórður Marelsson
og afabörn
Okkar ástkæra móðir og tengdamóðir,
ÁSTHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á Hlíð á Akureyri sunnudaginn 18.
október. Útförin fer fram frá Húsavíkurkirkju
26. október klukkan 14.
Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins
nánustu ættingjar viðstaddir útförina.
Útförinni verður streymt á Facebook-síðu Húsavíkurkirkju.
Bjarni Jónsson Elín Sigurðardóttir Hammer
Anna Guðný Halldórsdóttir
Torfhildur Stefánsdóttir
Kristín Sigvaldadóttir
Páll Sigvaldason Margrét Björk Björgvinsdóttir
Óskar Sigvaldason Linda Hildur Leifsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN BRYNJÓLFSDÓTTIR,
áður Kirkjuteigi 27,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi,
Hafnarfirði, laugardaginn 10. október.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fjölskyldan vill
færa starfsfólki Sólvangs bestu þakkir fyrir góða umönnun.
Kristbjörg Birna Guðjónsd.
Brynjólfur Guðjónsson Shaozhen Yan
Birgir Guðjónsson Hanna Ólafsdóttir
Gunnar Rafn Guðjónsson Ellen Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn
og fjölskyldur