Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14 LEIKFÖNG úr tré og silki bambus.is Ný og endurbætt netverslun Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Færri beiðnir um innlögn í vímu- efnameðferð hafa borist SÁÁ í ár miðað fyrri ár og sömuleiðis koma fertugir og yngri síður í meðferð en verið hefur. Þetta sýna nýjustu töl- ur um þróun í starfsemi sam- takanna síðustu misseri. „Mynstr- ið í starfsemi okk- ar að undanförnu hefur um margt verið óvenjulegt og auðvitað hefur Covid-19 þar mikil áhrif,“ segir Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir SÁÁ, í samtali við Morgunblaðið. Vegna sóttvarna varð SÁÁ til dæmis að hætta við söluna á Álfinum í maí, en ágóðinn af henni hefur ver- ið stór hluti þess 250 millj. kr. sjálfs- aflafjár sem greitt er beint inn í heil- brigðisrekstur SÁÁ. Þegar sá veruleiki lá fyrir var strax ákveðið að draga saman seglin í meðferð- arstarfi og spara 125 milljónir kr. Úr 60 sjúkrarúmum í 40 „Starf okkar hefur alltaf verið að talsverðum hluta fjármagnað með sjálfsaflafé og þegar mikilvægir þættir í því detta út þarf að bregðast við,“ segir Valgerður. Þannig var að- haldsáætlun um 50 sjúklinga í með- ferð á Vogi á hverjum tíma, en sjúkrarúmin þar eru alls 60. Varnir gegn kórónuveirunni koma hér einn- ig til, og enn þá færri sjúklingar eða um 40 eru nú mögulegir í einu á mestu sóttvarnatímabilunum. Þann- ig er til dæmis auðveldara að halda fjarlægðarmörk. „Við höfum svo verið að efla göngudeildarþjónustu okkar, svo sem grunnmeðferð fyrir sjúklinga og eins námskeið fyrir foreldra og aðstandendur. Þessi þjónusta liggur hins vegar í láginni sem sakir standa vegna veirunnar, en fjarþjónustu haldið úti,“ segir Valgerður. Síðastliðin þrjú ár hafa beiðnir um innlagnir á Vog verið á bilinu 3.300- 3.400 á ári. Í ár bregður hins vegar svo við að þær eru umtalsvert færri og verða 2.735 í ár, verði takturinn í innsendingu beiðna svipaður og ver- ið hefur síðustu mánuði. Minni þörf ungs fólks eftir meðferð hugsanleg „Ég læt mér detta í hug að nú, á þessum undarlegu tímum þegar heimurinn er nánast í biðstöðu, bíði fólk hreinlega með að leita sér að- stoðar til dæmis vegna vímuefna- vanda. Einnig má velta því fyrir sér hvort aðgerðir stjórnvalda til þess að draga úr smitum með færri skemmtunum og samkomubanni dragi úr neyslu vímuefna. Hugs- anlega er minni þörf á meðferð með- al yngra fólks,“ segir Valgerður. Á hinn bóginn nefnir hún svo að fólki fertugu og eldra sem komi í meðferð á Vogi sé að fjölga – og þá umtals- vert þeim sem eru í kringum sjö- tugsaldurinn. „Við aðstæður nú, þegar margir fara ekki á sinn hefðbundna vinnu- stað, er hugsanlegt að fleiri drekki heima og geti þannig falið vanda sinn. Ýmsar vísbendingar eru um að heimadrykkja færist í vöxt um þess- ar mundir,“ segir yfirlæknir SÁÁ. Eldri og færri fara í meðferð  Breytt mynstur hjá SÁÁ  Færri beiðnir um innlögn í ár en áður  Sparn- aður og aðgerðir vegna smitvarna  Vísbendingar um meiri heimadrykkju Morgunblaðið/Eggert Vogur Hægt er að taka við 60 sjúklingum en margra aðstæðna vegna dveljast þar aðeins 40 manns nú um stundir. Valgerður Rúnarsdóttir Kolbrún Baldurs- dóttir, borgar- fulltrúi Flokks fólksins, gagn- rýndi í samtali við mbl.is í gær að skipaður hefði verið vinnuhópur hjá Reykjavíkur- borg til þess að endurskoða um- gjörð í kringum sérkennslu barna í grunn- og leik- skólum. Kolbrún telur að nauðsyn- legt hefði verið að fela innri endur- skoðun borgarinnar að gera heildar- úttekt á málaflokknum, enda væri hann slíkur að vöxtum að vinnuhóp- ur gæti ólíklega náð utan um hann. „Það eru hundruð svona hópa í borginni og ég hef sjálf ekki nógu góða reynslu af mörgum þeirra.“ Um 30% nemenda eru að jafnaði í sérkennslu, en 26% árið 2011. Ekki nóg að skipa vinnuhóp Kolbrún Baldursdóttir  Innri endurskoðun athugi sérkennslu Víkurfréttir framleiddu Sjónvarp Víkurfrétta framleiddi þáttaröðina „Suður með sjó“ í níu þáttum í fyrra en ekki Sjónvarp Símans eins og ranglega kom fram í Morgunblaðinu í gær. Beðist er vel- virðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.