Morgunblaðið - 22.10.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020
GÆÐADEKKIN ÞÍN
FÁST ÓDÝRARI
HJÁ OKKUR!
E N D U M H V E R T Á L A N D S E M E R
M I K I Ð Ú R V A L A F V E T R A R D E K K J U M
S
F u n a h ö f ð a 6 , 1 1 0 R e y k j a v í k • N j a r ð a r b r a u t 1 1 , 2 6 0 R e y k j a n e s b æ r
S í m i : 5 1 9 - 1 5 1 6
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Jarðskjálftavirkni hélt áfram á
Reykjanesi í gær þótt úr henni
drægi. Nokkrir skjálftar stærri en
þrjú stig mældust í gær. Að sögn
Veðurstofunnar var ekki hægt að úti-
loka annan stóran skjálfta. Því er enn
hætta á grjóthruni í bröttum hlíðum
á svæðinu og á suðvesturhorninu.
Grjóthrun varð við Djúpavatns-
leið, Keili, Trölladyngju og Vatns-
skarð í stóra skjálftanum í fyrradag.
Þá eru vísbendingar um að sprungur
við Krýsuvíkurbjarg hafi gliðnað.
Áætlun um rýmingu er til
Til eru áætlanir um hvernig rýma
eigi hverfi á höfuðborgarsvæðinu og
víðar ef þörf á því skapast t.d. vegna
náttúruhamfara eða eldsvoða. Rým-
ingaráætlun almannavarna fyrir höf-
uðborgarsvæðið var gefin út 6. des-
ember 2019. Tilgangurinn með gerð
hennar var að forða fólki á höf-
uðborgarsvæðinu úr varhugaverðum
aðstæðum og flytja það annað.
Jón Viðar Matthíasson, fram-
kvæmdastjóri almannavarnanefndar
höfuðborgar-
svæðisins, segir
að þótt gerðar séu
sjálfstæðar rým-
ingaráætlanir
fyrir mismunandi
svæði þá sé sam-
vinna á milli
svæðanna.
„Segjum sem
svo að það sé sett
upp fjöldahjálp-
arstöð fyrir okkar svæði og eitthvað
gerist á Suðurnesjum, þá er hægt að
opna þá fjöldahjálparstöð fyrir
þeim,“ segir Jón Viðar. Hann segir
að á þetta hafi reynt fyrr á þessu ári
þegar mikil jarðskjálftahrina og
landris var við Grindavík. „Aðgerða-
stjórn höfuðborgarsvæðisins var bú-
in að ákveða að opna fjöldahjálp-
arstöð ef flytja þyrfti íbúa
Grindavíkur brott. Þá var Covid-
faraldurinn byrjaður og því ekki
mjög sniðugt að senda alla á einn
stað. Því var búið að ákveða að opna
íþróttahúsið Kórinn og hólfa hann
niður þannig að öllum hópnum yrði
ekki blandað saman. Það kom til
greina að dreifa fólkinu á fleiri staði
til að draga úr líkum á hópsmiti. Sem
betur fer reyndi aldrei á þetta,“ segir
Jón Viðar.
Mestar líkur eru taldar á því að
grípa þurfi til rýmingar á höfuðborg-
arsvæðinu vegna stórs eldsvoða en
einnig gæti komið til þess vegna
náttúruhamfara og fleiri ástæðna.
Eldvirk svæði eru í nágrenni höf-
uðborgarsvæðisins og má benda á
Reykjanesskagann í því sambandi.
Jón Viðar segir að við hönnun
gatna og vega sé miðað við að það
séu minnst tvær flóttaleiðir út úr
hverju hverfi og kveðið á um það í
skipulagsskilmálum. Gerðar hafa
verið áætlanir um hvernig eigi að
rýma hvert hverfi svo fólk eigi greið-
an aðgang að fjöldahjálparstöð.
Sérstakt tillit er tekið til ferða-
manna í rýmingaráætluninni enda
gátu þeir tvöfaldað íbúafjöldann á
höfuðborgarsvæðinu yfir sumartím-
ann þegar ferðaþjónustan stóð sem
hæst. Jón Viðar segir að þeirra
vegna hafi verið skilgreindir þekktir
söfnunarstaðir eins og Harpa og
verslunarkjarnar þar sem ferða-
menn áttu að safnast saman. Þaðan
er svo hægt að flytja þá annað.
Ljósmynd/Óskar Sævarsson
Hrunhætta Grjót hrundi víða niður brattar hlíðar í skjálftanum. Varað er við áframhaldandi hættu á grjóthruni.
Jarðskjálftavirkni hélt
áfram á Reykjanesi í gær
Rýmingaráætlun fyrir höfuðborgarsvæðið liggur fyrir
Jón Viðar
Matthíasson
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Svíþjóð varð á þriðjudag enn eitt
landið til þess að setja Kínverjum
stólinn fyrir dyrnar að fjarskipta-
kerfum sínum. Þá kvað fjarskipta-
stofnunin í Svíþjóð upp úr um að kín-
versku fyrirtækin Huawei og ZTE
mættu ekki leggja til tæki í hið nýja
5G-fjarskiptanet landsins, en upp-
boð á tíðnisviðum þess fer fram í
næsta mánuði. Þá hefur sænskum
fjarskiptafyrirtækum verið gert að
fjarlægja tækjabúnað frá þessum
fyrirtækjum, sem fyrir er í fjar-
skiptainnviðum, fyrir árið 2025.
Fjarskiptaeftirlitið ráðfærði sig
bæði við herinn og öryggislögreglu
Svíþjóðar (Säpo), en Klas Friberg,
yfirmaður hennar, var ómyrkur í
máli: „Kína er ein mesta ógn, sem
vofir yfir Svíþjóð,“ og bætti við að
Kínverjar styrktu efnahagslega og
hernaðarlega stöðu sína með „víð-
tækri njósnastarfsemi og þjófnaði á
tækni, rannsóknum og þróun. Það
þyrftu Svíar að hafa hugfast við upp-
byggingu 5G. Við megum ekki tefla
öryggi Svíþjóðar í tvísýnu“.
Áður hafa vestræn lönd á borð við
Bandaríkin, Ástralíu, Bretland,
Frakkland, Ítalíu og fleiri sett skorð-
ur við því að Huawei og ZTE komi að
uppbyggingu og rekstri hinna nýju
5G-fjarskiptakerfa. Þar hefur verið
vísað til ríkra öryggishagsmuna,
vegna ótta við njósnir og að svo mik-
ilvægir innviðir séu á valdi alræðis-
ríkis.
Hagsmunir í húfi
Ólíkt öðrum löndum, sem lagt hafa
bann á Huawei og ZTE, eiga Svíar
beinna hagsmuna að gæta. Sænski
tæknirisinn Ericsson er einn helsti
keppinautur þeirra í 5G-kerfum og
hinum megin finnsku landamæranna
er Nokia, sem einnig stendur fram-
arlega á þessu sviði.Nú þegar hefur
Ericsson náð fimm stórum sölu-
samningum, beinlínis vegna banns-
ins í öðrum ríkjum, en á móti kemur
auðvitað að sennilega er útibú þess í
Kína búið spil.
Kínverjar hafa í hótunum
Kínverjar hafa brugðist mjög hart
við og hafna öllum ásökunum og
segja áhyggjur af öryggi fjarskipta-
kerfis yfirvarp til að grafa undan
árangri kínverskra fyrirtækja á því
sviði og gagnstæðar eðlilegum við-
skiptahagsmunum. Þar að baki búi
ekkert annað en ósvífin tilraun til
þess að hygla vestrænum fyrirtækj-
um á kostnað hinna kínversku.
Utanríkisráðuneyti Kína sagði að
það væri afar óánægt með ákvörðun
Svía og sakaði ríkisstjórn Svíþjóðar
um „blygðunarlausa bælingu á kín-
verskum fjarskiptafyrirtækjum“ og
að með því yrði „eðlileg viðskipta-
samvinna“ fyrir barðinu á óeðlileg-
um stjórnmálaafskiptum.
Zhao Lijian, talsmaður utanríkis-
ráðuneytisins, hvatti Svía til þess að
„leiðrétta þessa röngu ákvörðun“ til
að koma í veg fyrir „neikvæðar af-
leiðingar á efnahags- og viðskipta-
samvinnu Kína og Svíþjóðar, og á
starfsemi sænskra fyrirtækja í
Kína“.
Hótanirnar verða ekki miklu ber-
orðari en það, en Svíar eiga þar vita-
skuld verulegra hagsmuna að gæta,
sem stefnt gæti verið í voða.
Svíar hvergi bangnir
Svíar virðast þó ekki hafa miklar
áhyggjur af afleiðingunum í Peking.
Þvert á móti hefur vakið eftirtekt
hversu opinskáir, að ekki sé sagt
herskáir, þeir hafa verið í yfirlýsing-
um. Sænskum yfirvöldum hefði verið
í lófa lagið að greina frá ákvörðun-
inni með hófstilltum hætti, en þvert á
móti var tækifærið notað til þess að
fordæma njósnastarfsemi Kínverja
og skipulegan hugverkastuld. Og
síðan bætt um betur með því að setja
Kína í fremstu röð ógna við sænskt
þjóðaröryggi.
Þar inn í kunna að blandast aðrar
ástæður eins og langvinn deila Svía
við Kínverja vegna afdrifa Gui
Minhai, sænsks ríkisborgara af kín-
verskum uppruna, sem hvarf í Taí-
landi árið 2015 en skaut svo upp koll-
inum í varðhaldi í Kína.
Svíarnir skella símanum á Kínverja
Kína sagt helsta ógnin við þjóðaröryggi Svía Kínversku fyrirtækjunum Huawei og ZTE bannað að
koma að uppbyggingu 5G í Svíþjóð Kínversk stjórnvöld hóta „neikvæðum afleiðingum“ á móti
AFP
Sími Huawei mætir lokuðum dyrum vegna tengsla við kínversk stjórrnvöld.
Jóhann Ólafsson
johann@mbl.is
Alls greindust 45 ný smit kórónu-
veiru innanlands á þriðjudag og af
þeim voru 24 utan sóttkvíar við
sýnatöku. Sóttvarnalæknir telur að
hertar aðgerðir séu farnar að skila
árangri. Fólki í einangrun hefur
fækkað í flestum aldurshópum.
Jafnframt fækkar þeim sem eru á
sjúkrahúsi vegna Covid-19, í gær
voru þeir 23 en 25 á þriðjudag. Enn
eru þrír í gjörgæslu, þar af einn í
öndunarvél.
„Nú þurfa allir að halda áfram,“
sagði Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir í samtali við blaðamann þeg-
ar tölurnar höfðu verið kynntar í
gærmorgun.
Faraldrinum ekki lokið
Þórólfur sagði að þrátt fyrir að
meirihluti þeirra sem greindust á
þriðjudag hefði verið utan sóttkvíar
væri ekki ástæða til að túlka dag-
legar sveiflur.
„Undanfarna daga hafa um 70%
smitaðra verið í sóttkví við grein-
ingu,“ sagði Þórólfur og bætti við að
þetta virtist allt stefna í ágætisátt.
Hann sagði hertar aðgerðir farn-
ar að skila árangri en þó gætum við
alltaf búist við að sjá litlar hópsýk-
ingar.
„Ég þakka samstöðu allra,“ sagði
Þórólfur og hélt áfram:
„Þetta er ekki búið og það þarf út-
hald. Við getum farið að slaka á
ýmsum aðgerðum þegar þetta er
gengið niður en fólk þarf áfram að
huga að sínum einstaklingsbundnu
sóttvörnum, forðast mannmergð og
sameiginlega snertifleti.“
„Nú þurfa allir
að halda áfram“
Stefnir í ágætisátt, að sögn Þórólfs
Kórónu-
veirusmit
Heimild: covid.is
Nýgengi innanlands
20. október:
266,2 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
23 eru á sjúkrahúsi, þar af 3 á gjörgæslu
2.531 einstaklingar eru í sóttkví
1.206 eru með virkt
smit og í einangrun
Nýgengi, landamæri: 21,8
45 ný inn an lands smit greindust 20. október
11 einstaklingar eru látnir