Morgunblaðið - 22.10.2020, Page 21

Morgunblaðið - 22.10.2020, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 ✝ Ingibjörg Ás-geirsdóttir fæddist 1. maí 1938 í Framnesi í Mýr- dal. Hún lést 5. október 2020 á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi. Foreldrar Ingi- bjargar voru Ás- geir Pálsson, f. 2.7. 1895, d. 28.7. 1973, bóndi og Kristín Hólmfríður Tómasdóttir, f. 10.3. 1893, d. 15.4. 1975, húsfreyja. Systkini Ingibjargar: Ása Pálína, Stefán, Margrét, Sigurður, Guðgeir, Unnur Aðalbjörg og Siggeir sem einn lifir systkini sín. Árið 1959 giftist Ingibjörg Jóni Einarssyni, f. 7.9. 1932, d. 14.6. 1992, kennara í Skóga- skóla. Börn Ingibjargar og Jóns eru: 1) Einar, f. 1959. Börn hans: Ketill, maki Mila Varela; og Ásbjörg, maki Ari Birgir. 2) Guðbjörg Andrea, f. 1960, gift Jóhanni Friðriki Klausen. Börn þeirra: Andri, maki Breanna Gary; Herdís, maki Hilmar Birgir. Sonur þeirra: Friðrik Úlfur; og Jón. 3) Unnur Ása, f. 1962, gift Skúla Kristinssyni. Sonur Unnar: Ásgeir Már. Dótt- ir hans: Ingibjörg. Börn Skúla: Vík nokkur haust. Loks vann hún í mötuneyti Skógaskóla sem ung kona. Eftir að Ingibjörg og Jón gengu í hjónaband áttu þau heimili sitt í Skógum. Hún sinnti húsmóðurstörfum eins og þá var títt með fatasaumum á börn og ýmislegri þjóðlegri matargerð. Þegar börn hennar voru öll komin vel á legg hóf hún að nýju störf í mötuneyti Skógaskóla og í Reykjavík starfaði hún samfellt 16 vetur í Foldaskóla og Laugarnesskóla, mest við umönnun nemenda. Á sumrum vann hún lengi á Eddu- hótelum og í annarri ferðaþjón- ustu. Vorið 1993 flutti Ingibjörg heimili sitt í Laugarneshverfi. Síðustu ár átti hún gott athvarf á heimaslóðum í Mýrdal, og hafði í raun tvöfalda búsetu, kom þangað með farfuglum á vorin og fór á haustin. Frá ungum aldri tók Ingi- björg þátt í kórstarfi í heima- sveit, lengst í kirkjukór Eyvind- arhólakirkju. Hún tók þátt í kvenfélagi sveitarinnar, var bridge-spilari og vann til verð- launa á þeim vettvangi með fé- lögum sínum. Blómarækt veitti henni ánægju. Hún hafði unun af útivist og gönguferðum. Útför Ingibjargar verður gerð í Víkurkirkju í Mýrdal í dag, 22. október, klukkan 14. Vegna sóttvarnaráðstafana verða aðeins nánustu aðstand- endur og gestir þeirra við- staddir athöfnina. Aðalbjörg. Börn hennar: Þórunn Lilja og Vignir Freyr; Halldóra Þórdís, maki Krist- ján Pálmi. Börn þeirra: Rósmarý Þórdís og Loki Ís- ólfur; og Árni Kristinn, maki Andrea Valgerður. 4) Kristín Rós, f. 1964, gift Óskari Baldurssyni. Börn þeirra: Bald- ur Freyr, maki Sóley Ósk. Dæt- ur þeirra: Gabríella Líf og Ísa- bella Ósk; Hólmfríður Jóna, maki Andri Már. Sonur þeirra: Óskar Már; og Ástrós, maki Kristján Már. Haustið 1936 fluttu foreldrar Ingibjargar í Framnes úr bæj- arþorpinu á Sólheimum. Þar ólst hún upp með systkinum sín- um, gekk í skóla sveitarinnar og átti heimili þar til hún stofn- aði sitt eigið. Hún byrjaði ung að vinna algeng sveitastörf og rétt upp úr fermingu fór hún að heiman á vetrum til vinnu; í vistir út í Flóa, síðar á vertíð til Eyja. Hún sá um matseld hjá brúarvinnuflokki eftir að sum- arönnum var lokið í Framnesi en þar vann hún öll sumur á þessum árum, og í sláturtíð í Sjá, nú er liðin sumartíð. Hennar ljómi, blíður blómi, hruman áður hressti lýð. Að leiðarlokum vil ég þakka Ingibjörgu Ásgeirsdóttur, móður minni, samfylgdina með þessu versi Jóns Þorlákssonar á Bæg- isá. Margt er að þakka sem ekki verður talið. Hún var bæði mann- vinur og dýravinur. Þótt mamma bæri tilfinningar sínar sjaldan ut- an á sér vissu þeir sem þekktu hana að hún hafði djúpstæða rétt- lætiskennd, fastar skoðanir sem hún tjáði af einurð ef máli skipti og heitt hjarta. Síðasta sumar móður minnar var henni allgott framan af en upp úr miðju sumri tók heilsu hennar að hraka alvarlega. Fram til þess tíma fór hún allra sinna ferða á eigin bíl, sinnti vinum sín- um og áhugamálum. Veikindin urðu móður minni, fjölskyldu hennar og vinum erfið. Og engu varð um þokað. Síðasta orusta hennar stóð í rétta tvo mánuði. Sár eru haustin, sárt lauffallið uns nakið lauftréð bíður vors. Einar Jónsson úr Skógum. Það er erfitt að trúa því að elsku amma sé farin frá okkur. Sorgin er mikil en eftir sitja margar góðar minningar sem okkur þykir óendanlega vænt um. Það var alltaf jafn yndislegt að kíkja í heimsókn til ömmu, bæði í Framnesi og á Hrísó. Í þessum heimsóknum gátum við átt góðar samræður þar sem einstakur húmor hennar fékk að njóta sín. Við munum sakna heimsóknanna, rjómapönnukakanna og alls góð- gætisins sem amma var þekkt fyrir. Við erum sérstaklega þakklát fyrir síðustu ár þar sem góðum minningum fjölgaði. Við vorum heppin að hafa get- að farið með ömmu til Skotlands í tilefni af 80 ára afmæli hennar og eru samverustundirnar þar okk- ur mjög dýrmætar. Fjallgangan sem átti að vera svo stutt gleymist seint en enginn af okkur var með vatn eða nesti meðferðis. Úr varð löng ferð og amma 80 ára fór alla leið með okkur og sýndi hversu öflug hún var. Við kveðjum þig með sorg í hjarta og munum sakna þín sárt. Hvíldu í friði elsku amma. Baldur, Hólmfríður og Ástrós. Elsku amma mín Ingibjörg Ás- geirsdóttir, konan sem ég heiti í höfuðið á, er haldin á vit nýrra ævintýra. Í dag, þegar ég skrifa þetta, eru tvær vikur frá því að hún kvaddi okkur sem elskuðum hana svo mikið. Þegar ég hugsa um tilfinningar mínar eftir and- látið get ég ekki neitað því að fyrstu dagana var orðið ósann- gjarnt efst á blaði, því þó að mörgum finnist 82 ára vera hár aldur þá var amma mín ekki tilbú- in. Hún keyrði enn sjálf um allt land, gekk um á skvísuskóm með hæl, málaði pallinn sinn, bakaði og eldaði besta mat í heimi og skipulagði bústaðarferðir með vinkonum sínum. Mér fannst það ósanngjarnt að fótunum hefði verið kippt undan þessari ungu konu. En tíminn er skondið fyr- irbæri. Á ekki nema tveimur vik- um hefur þessi yfirgnæfandi til- finning um ósanngirni breyst í þakklæti fyrir það að amma fékk að lifa sínu skemmtilega lífi svona lengi. Hún lifði lífinu til fulls næstum fram á síðasta dag og fyrir það verð ég að eilífu þakklát. Amma var hörkutól og ég held að ég hafi aldrei kynnst mann- eskju sem er jafn samkvæm sjálfri sér og hún. Sumir myndu kalla þetta þrjósku en ég er viss um að það er ekki rétt. Hún hafði ákveðnar skoðanir og lífsgildi og fylgdi þeim, óhrædd um hvað öðr- um fannst. Hún var laumu-húm- oristi og þegar maður átti síst von ullu kaldhæðnir brandarar upp úr gömlu konunni sem fengu mig til að emja af hlátri. Ég hef alla tíð verið mikið hjá ömmu og hef lært mikið af henni og hennar lífsháttum. Persónu- leiki hennar var ólíkur mínum og ég held að henni hafi alltaf þótt ég vera ansi mikil skellibjalla. En það hvað við vorum ólíkar varð til þess að við höfðum þeim mun meira til að læra hvor af annarri. Amma kenndi mér að lífið þarf ekki alltaf að vera á þúsund snún- ingum á sekúndu, að stundum er allt í lagi að slaka á. Hún kenndi mér að baka appelsínuköku sem ég ætla að baka fyrir barnabörnin mín. Hún kenndi mér að hætta aldrei að setja mér ný markmið – fyrst amma gat hætt að reykja sjötug og keypt sér snjallsíma og stofnað facebook áttræð, þá skal ég aldrei veigra mér við nýjum áskorunum! Hún kenndi mér svo ótal margt sem ekki verður upp talið hér og ég ætla að gera mitt allra besta til að heiðra minningu hennar um ókomna tíð með því að lifa eftir þessum lærdómi. Amma mín var hlý og góð og ég sakna hennar svo. Ég sakna þess að heyra röddina hennar, ég sakna þess að hlæja með henni, ég sakna þess að sjá hneykslun- arsvipinn á henni þegar ég fer í skellibjölluham og ég sakna þess að stelast í faðmlag hjá henni. Því þó að hún hafi stundum verið sparsöm á faðmlögin þá voru þau svo góð. Ég fann hlýjuna streyma frá henni og án þess að hún segði eitt orð vissi ég hvað henni þótti vænt um mig. Ég sakna ömmu, en það er gott að sakna því þá veit maður að maður hefur elskað. Ásbjörg. Ég syrgi Ingibjörgu frænku mína. Hún var af mörgum nefnd Imba. Við frænka mín fæddumst og ólumst upp á Sólheimum í Mýrdal, mæður okkar voru syst- ur og stutt ganga milli bæja. Samskipti heimilanna voru náin. Mannlýsingar eru vandgerðar og verða aldrei til hlítar. Imba frænka mín var falleg og góð kona. Í návist hennar fann ég ætíð hennar hugarró og nær- gætni, en stutt var í glettni í við- móti og tilsvörum. Allar mínar minningar um Imbu eru ljúfar. Fjögurra ára var ég í ferming- arveislu Imbu á sólbjörtum degi. Ég man ljúffengar veitingar og myndatökur. Ég skynjaði glöggt að frænka mín var glæsileg stúlka. Ári seinna man ég æskufólk Sólheimabæja æfa frjálsar íþrótt- ir á fletinum vestan við Sólheima- kirkjugarð, undir leiðsögn þjálf- ara. Tvennt er þar fast í minni: Teygjan í buxunum hjá Stebba slitnaði, en hann hélt hlaupinu og hysjaði upp um sig, kankvís á svip. Imba horfði á stóra bróður og hrópaði: „Hann Stebbi, hann Stebbi!“ Ég man 100 m sprettinn hjá þeim frænkum Imbu og Höllu systur, Imba naut sinna löngu leggja til sigurs. Enn ári síðar og þá 1954. Sáu þau Siggeir og Imba til þess að við börnin, heima, upplifðum sæludag á berjamó. Siggeir ók John Deere, með vel til hafðri heimasmíðaðri kerru. Í kerrunni vorum við, krakkarnir fjögur eða fleiri. Á beisli vélarinnar stóð Imba, teinrétt, og ekið var út Sól- heimasand. Sumarið 1958 man ég þau Imbu og Jón, nýtrúlofuð, í heim- sókn. Árum síðar var ég nemandi Jóns og við vorum samkennarar í áratug. Börnum þeirra kenndi ég, nema Guðbjörgu. Oft naut ég ná- innar vináttu þeirra hjóna, þar með að veitingar Imbu voru ljúf- ar í munni, líkt og heima í Fram- nesi forðum, hjá foreldrum henn- ar. Minningar mínar um Imbu, Jón, börn þeirra og fólkið í Fram- nesi eru fullar af hlýju. Tómas Ísleifsson. Það var snöggt um Ingibjörgu Ásgeirsdóttur frá Skógum undir Eyjafjöllum og erfitt að átta sig á að hún er ekki lengur hér á meðal okkar; á göngu um Laugarnes- hverfið eða á öðru heimili sínu á æskuslóðunum í Framnesi í Mýr- dal. Ingibjörg er fjórða „Skóga- konan“ sem kveður okkur á þessu ári en samfélagið í Skógum var eins og ein stór fjölskylda og ríkti mikil samheldni og samhjálp á milli heimilanna. Það hefur því fækkað í hópnum og þau hverfa eitt af öðru sem stóðu vaktina á skólasetrinu, kennarar og aðrir starfsmenn við störf í skólanum eða á vakt og konurnar að ala upp barnahópinn. Konurnar í Skóg- um voru starfsamar og héldu lengi úti saumaklúbbi enda allar myndarlegar bæði í bakstri og handavinnu og þær voru að sjálf- sögðu einnig í kvenfélaginu í hreppnum. Ingibjörg var gift frænda okk- ar, Jóni Einarssyni, kennara við skólann, en hann og móðir okkar voru systkinabörn. Heimili þeirra Jóns og Ingibjargar stóð ávallt opið fyrir okkur krökkunum enda samgangurinn við börn þeirra mikill. Alltaf tók hún okkur vel og það var stutt í brosið hjá Ingi- björgu og þá brosti hún út í annað því hún hafði góðan húmor. Á þessum árum þótti ótrúlega smart að reykja og þar stóð Ingi- björg framar flestum hinum mæðrunum; dökkhærð, grönn og alltaf fín með kaffibolla og sígar- ettu. Samgangi móður okkar við Ingibjörgu lauk ekki þarna á Skógaárunum því undanfarna áratugi hafa þær báðar verið bú- settar í Laugarnesinu og héldu þær áfram að kíkja hvor til ann- arrar eins og hér áður fyrr í Skógum. Við vottum börnum hennar, Einari, Guggu, Unni og Stínu og fjölskyldum þeirra okkar innileg- ustu samúð. Dóra, Hjálmar, Hjörleifur, Oddný og Helga. Það er skrýtið að hugsa til þess að Ingibjörg skuli allt í einu vera dáin. Það er svo stutt síðan hún var jafn hress og hún hafði alltaf verið, nýbúin að endurnýja öku- skírteinið, enda ökufærni og heilsufar eins og best varð á kos- ið. Svo stutt síðan hún var heil- brigð til hugar og handa. Ég dáðist að Ingibjörgu fyrir margt. Til dæmis varð ég alltaf jafn agndofa þegar hún var að rifja upp bridgespil sem þau Jón höfðu spilað einhverjum dögum eða vikum áður – og Ingibjörg var alltaf með það á hreinu hver setti hvaða spil út hvenær og hvað hinir gáfu í. Ekki nóg með það, heldur gat hún fabúlerað endalaust um það hvernig spilið hefði farið ef ein- hver hefði sett hitt spilið út og hinir þá gefið þetta og hitt spilið í. Þvílík snilld. Mér fannst gott að leita til Ingibjargar. Kæfugerðin fer lík- lega út um þúfur þetta haustið fyrst ég get ekki hringt í Ingi- björgu eins og vanalega og rifjað upp aðferðina hennar einu sinni enn. Í trúnaðarsamtölunum okk- ar kom vel í ljós hve hún var kær- leiksrík, réttsýn og óhlutdræg. Hún var mikil smekkmanneskja og vandaði vel til allra verka. Ein- hverju sinni hafði ég orð á því við hana að ég væri þreytt á þessari ló og kuski út um allt. „Ertu ekki bara með allt of mikið af slitnu taui?“ spurði Ingibjörg þá. „Það kemur svo mikil ló og kusk af því.“ En kirkjurottan ég hélt auð- vitað áfram að nota gatslitin handklæði og annað tau, þangað til Ingibjörg lá banaleguna, – þá henti ég hellingi og keypti nýtt, eins og Ingibjörg hefði gert. Hún barst ekki mikið á, en það var sko aldrei neitt slitið eða óvandað drasl í kringum hana. En vænst þykir mér um það hve dýrmæt hún var henni Ás- björgu minni, nöfnu sinni. Þegar Ásbjörg og Herdís voru litlar nefndi Ingibjörg oft hvað hún hlakkaði til þegar Ása og Dísa yrðu nógu gamlar til að taka rút- una austur til ömmu. En Jón dó löngu áður en þær náðu þeim aldri, – og Ingibjörg flutti til borgarinnar. Hálfu til heilu ári seinna spurði ég hana hvernig henni líkaði nú í borginni. „Bara mjög vel,“ svaraði Ingibjörg, „nema hvað ég sé aldrei tunglið.“ Einhverjum árum seinna byggði hún sér bústað við æskustöðvarn- ar sínar í Framnesi, hvaðan tunglið sást betur, og keyrði á milli þessara tveggja heimila sinna þangað til hún veiktist al- varlega fyrir ótrúlega fáum vik- um. Guð blessi minningu Ingi- bjargar Ásgeirsdóttur og styrki þá sem hana syrgja. Laufey Waage. Ingibjörg Ásgeirsdóttir Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru, KRISTÍNAR H. PÁLSDÓTTUR hjúkrunarfræðings, Skipalóni 24, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á krabbameins- og líknardeildum Landspítalans sem og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fyrir hlýhug og góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Guðmundur Friðrik Sigurðsson Sigrún Sveinbjörnsdóttir Michael Ted Lawson Páll Arnar Sveinbjörnsson Henny María Frímannsdóttir Þröstur Sveinbjörnsson Valgerður Jóna Jónbjörnsd. Jónas Hagan Guðmundsson Jóhanna Sævarsdóttir Magnús Friðrik Guðmundss. Becky Guðmundsson og barnabörnin tólf Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elskulega föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS HJARTARSONAR offsetprentara. Sérstakar þakkir til starfsfólks A4 Landspítala Fossvogi fyrir einstaka umönnun og hlýju. Ásta Jónsdóttir Einar A. Símonarson Vala Hrund Jónsdóttir Sigfús Kröyer Sólveig Ásgeirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu, systur og mágkonu, SIGRÚNAR JAKOBSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks Bylgjuhrauns, Hrafnistu Hafnarfirði, fyrir umönnun og hlýju í hennar garð. Fyrir hönd aðstandenda, Elín Benediktsdóttir Björn Benediktsson Guðbjörg Benediktsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.