Morgunblaðið - 22.10.2020, Síða 25

Morgunblaðið - 22.10.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2020 www.danco.is Heildsöludreifing Fyrirtæki og verslanir Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is Einnota andlitsgrímur 3ja laga 10 stk. pakkningar Type IIR „VEISTU, DAG NOKKURN MUNU ÞEIR BÍÐA EFTIR AÐ ÞÉR MISTAKIST HRAPALEGA.” „HANN VIRÐIST ÆTLA AÐ ÆFA HAFNABOLTA.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að leita að páskaeggjunum saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann SKYTTAN OKKAR ER OF SLÖPP TIL AÐ SKJÓTA ÓVININA! HANN GETUR HÓSTAÐ FRAMAN Í ÞÁ! MIG DREYMDI AÐ ÞÚ VÆRIR VÉLMENNI. SKRÍTIÐ? HVAÐ EF ÉG ER ÞAÐ? JÓN? MIG DREYMDI AÐ ÞÚ VÆRIR KAFFIBARÞJÓNN! HÓST HÓST HÓST HÓST HÓST HÓST skipti yfir í Viðreisn 2016 og tók þriðja sæti á lista Norðvestur- kjördæmis í alþingiskosningunum það árið. Hef verið félagi í Frímúr- arareglunni á Íslandi frá 2000.“ Íslendingasögurnar eru mikið áhugamál Sturlu ásamt óperutónlist og golfi en þó er fjölskyldan alltaf í fyrsta sæti. Fjölskylda Eiginkona Sturlu er Eyrún Ísfold Gísladóttir, f. 11.10. 1950, talmeina- fræðingur. Foreldrar hennar eru Guðrún Jóhanna Vigfúsdóttir, vefn- aðarkennari og listvefari á Ísafirði og í Kópavogi, f. 3.11. 1921, d. 9.2. 2015, og Gísli Sveinn Kristjánsson, forstjóri sundhallarinnar á Ísafirði og sundkennari, f. 25.11. 1906, d. 22.10. 1978. Börn Eyrúnar og Sturlu eru: 1) Gísli Örn, f. 2.3. 1974, flug- maður og tölvunarfræðingur. Sam- býliskona hans er Marie Persson, f. 5.10.1973, kennari við Laugalækj- arskóla. Dætur þeirra eru: Eyrún Linnea, f. 4.3. 2008, Hanna Ísabella, f. 17.12. 2009, og Lisa Marie Karin, f. 1.8. 2014. 2) Snorri Björn Sturluson f. 6.11.,1980, lögmaður og fast- eignasali; 3) Guðrún Jóhanna Sturludóttir, f. 18.2. 1986, fatahönn- uður, flugfreyja og nemi við Tækni- skólann. Systkini Sturlu eru: Ingi- björg, f. 26.01. 1952, matráður í Reykjavík; Elín f. 6.4. 1955, hús- móðir í Hafnarfirði; Hafsteinn, f. 15.8. 1957, verkfræðingur hjá Ístaki í Reykjavík og Jón Bjarni, f. 12.3. 1962, framleiðandi hjá Truenorth í Reykjavík. Foreldrar Sturlu eru hjónin Brynhildur J. Bjarnarson, fv. starfsm. hjá Pósti og síma, f. 28.3. 1928, og Guðmundur Bjarnason raf- virkjameistari, f. 27.3. 1927, d. 11.5. 2017, búsett í Reykjavík. Sturla Rafn Guðmundsson Ingibjörg Gunnlaugsdóttir húsfreyja á Búlandshöfða, Nýlendu og Kötluholti, Fróðárhreppi, Snæfellsnesi Bjarni Sigurðson bóndi í Kötluholti, Fróðárhreppi, Snæfellsnesi Ingibjörg Blómlaug Bjarnadóttir frá Kötluholti, Fróðárhreppi á Snæfellsnesi, verkakona í Rvk. Jón Bjarnarson b. á Sauðafelli í Miðdölum og Svínhóli, síðar verslunarmaður í Reykjavík Brynhildur Jónsdóttir Bjarnarson húsmóðir og starfsmaður Pósts og síma í Reykjavík Guðný Jónsdóttir húsfr. á Sauðafelli í Miðdölum Björn Bjarnarson bóndi á Sauðafelli, sýslumaður og þingmaður Dalamanna Málfríður Árnadóttir frá Eyvindarhólum Rangárvallas., húsfreyja í Reykjavík Guðmundur Árnason bóndi og hreppstj. á Meiðastöðum og Ívarshúsum í Garði, síðar Rvk. Elín Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík Bjarni Bjarnason fæddur á Þingeyri í Haukadal, vélstjóri í Rvk. Þóra Bergsdóttir húsfreyja á Þingeyri Bjarni Guðbrandur Jónsson fæddur á Lokinhömrum, járnsmiður á Þingeyri Úr frændgarði Sturlu Rafns Guðmundssonar Guðmundur Bjarnason rafvirkjameistari í Reykjavík Ólafur Stefánsson skrifar: „Þegarborgarstjóri Kaupmanna- hafnar varð að segja af sér kom í ljós að kratar hefðu ráðið borginni óslit- ið í 80 ár. Mér varð hugsað til meiri- hlutans í Reykjavík og hvað hann verður þaulsætinn. Í Kaupmannahöfn eru kratar við stýri, og kræfur þar margur snáðinn. Ég segi bara: „Drottinn minn dýri“, ef Dagur er æviráðinn. Á Boðnarmiði segir Magnús Hall- dórsson frétt af fyrrverandi forseta: „Ólafur Ragnar 24 ár í sömu jakka- fötum“: Gæðastimpill góðra flíka gildistíminn margfaldur ef nota má sem náttföt líka, nánast hálfan starfsaldur. Sigurlín Hermannsdóttir heyrði um daginn „að falla milli skips og báru“: Á bryggjunni stendur hún Bára í bátana gerir sig klára. Af lunningu stekkur hann Lúlli, en sekkur. Við bryggjuna gjálfrar nú bára. Jón Atli Játvarðarson skrifar: „Veiran sem Þórólfur má ekki nefna, þrátt fyrir að þetta sé nánast eini stofninn sem angrar okkur í dag“: Óx loks í sporti, var bitur og bæld, á börum þá hart var í ári. Veiran sú „franska“ í kóki er kæld og kyngt með brennivínstári. Maðurinn með hattinn veit sitt af hverju: Það er rétt, ég segi satt, svona er lífsins skóli; margur hefur farið flatt á fjandans alkóhóli. Ingólfur Ómar Ármannsson segir frá sinni reynslu: Lengi vel ég þoldi þjór þekkti slark og fleira. Nú ég varla bragða bjór en borða talsvert meira. Edda Magnúsdóttir rifjar upp gamla stöku: Maðurinn með hattinn hann er ekki hýr. Borgar ekki skattinn rekur bara kýr. Ásta Sigurðardóttir segist hafa lært þetta í gamla daga: Maðurinn með hattinn, stendur upp’ í staur, borgar ekki skattinn, því hann á ekki aur. Hallmundur Guðmundsson kallar þessa limru „Vafamál“: Það kátt var hjá Kötu og Herði er krakka hann með ’enni gerði. Er barnið var fætt var býsn um það rætt; að króinn sé klipptur úr Merði. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kratar við stýri og æviráðning

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.