Morgunblaðið - 02.11.2020, Side 6

Morgunblaðið - 02.11.2020, Side 6
Upplýsingar í síma 853 1627 og 692 7909 protak@protak • virusvarnir@protak.is • virusvarnir.is Langtíma          Hægt að panta vikulega heimsókn        Gerum tilboð ef óskað er.                                    • Stimpilklukkur • Tölvur           !  Andrés Magnússon andres@mbl.is Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gerir athugasemdir við breytingu á aðal- skipulagi Reykjavíkur vegna áforma um Nýja Skerjafjörð, íbúðahverfi á landfyllingu í Skerjafirði á útjaðri flugvallarsvæð- isins. Bent er á að við flutning stað- setningar grunn- skóla og með- fylgjandi lóð, sé farið nær því svæði sem stað- fest er að hafi ol- íumengaðan jarð- veg. Heilbrigðis- eftirlitið ítrekar að huga verði að því að strangari kröfur þurfi að gera til hreinsunar og jarðvegsskipta, þar sem um starfsemi fyrir börn er að ræða en ella, og því verði að gera ráð fyrir slíkum strangari skilyrðum í skipulagsskilmálum. Auk þess minnir Heilbrigðiseftir- litið á að til standi að friðlýsa Skerjafjörð í heild sinni, en fyrir- huguð landfylling liggi jafnframt að verndarsvæðum. Fyrirhuguð land- fylling fer að hluta til yfir leiru- svæði sem nýtur sérstakrar vernd- ar samkvæmt náttúruverndar- lögum. Öll viðvörunarljós blikka Fulltrúar minnihlutans í umhverf- is- og heilbrigðisráði Reykjavíkur gerðu bókun vegna þessa, þar sem þeir minntu á fyrri ábendingar sínar um þetta. Það sé sérstaklega alvar- legt þegar um er að ræða svæði sem ætlað er undir starfsemi fyrir börn, líkt og nýr skóli. Þeir telja því óá- byrgt að leggja í uppbyggingu á svæðinu áður en jarðvegurinn er hreinsaður og honum fargað á viðeig- andi hátt. „Það sem Heilbrigðiseftirlitið staðfesti er að þarna er olíu- mengaður jarðvegur, eins og lengi hefur verið vitað, en að það þurfi að fara að með sérstakri varúð vegna hans í nágrenni viðkvæmrar starf- semi eins og grunnskóla,“ segir Egill Þór Jónsson, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, sem situr í umhverf- is- og heilbrigðisráði. Þar verði eðli máls samkvæmt börn á ferð og að leik og því einkar varhugavert ef jarðvegurinn er mengaður. „Þar blikka öll viðvörunarljós.“ Hins vegar gætu jarðvegsskipti reynst erfið, þar sem engin móttöku- stöð sé fyrir olíumengaðan jarðveg í landinu. „Það er svo skrýtið, að Reykjavík- urborg virðist vera á einhverri undanþágu varðandi þennan olíu- mengaða jarðveg, án þess þó að ég haldi að það séu einhver leyfi fyrir því,“ segir Egill Þór. „En hvernig sem því er háttað blasir við að öll jarðvegsskipti þarna og hreinsun verða bæði flókin og kostnaðarsöm.“ Í bókun minnihlutans kemur m.a. fram gagnrýni á að verið sé að „keyra í gegn“ þessa uppbyggingu. Egill segir blasa við að borgarstjóri og meirihlutinn í borgarstjórn leggi allt kapp á þetta mál og fleiri raunar, beinlínis í þeim tilgangi að þrengja að flugvellinum. „Við hittum for- svarsmenn Isavia fyrr á þessu ári, þar sem þessi mál voru meðal annars rædd. Þeir sögðu við okkur að ef Reykjavíkurborg ætlaði að loka flug- vellinum, þá væri það bara þannig, en verst væri ef verið væri að þrengja að flugrekstrinum smám saman, skrúfa hægt fyrir súrefnið, eins og þeir orðuðu það. En það er nákvæmlega það sem borgin er að gera.“ Nýi Skerjafjörður á aðal- skipulag Reykjavíkurborg áformar að gera 4,3 hektara landfyllingu í Skerjafirði og mögulega sjóvarnargarð einnig. Svæðið er rétt austan við núverandi byggð í Skerjafirði og sunnan af- lagðrar NA-SV-flugbrautar á Reykjavíkurflugvelli. Landfyllingin og uppbygging nýs hverfis þar er hugsuð sem liður í þéttingu byggðar og í þágu aukins íbúðarhúsnæðis í sunnanverðum vesturhluta borg- arinnar, líkt og aðalskipulag Reykja- víkur 2010-2030 mælir fyrir um. Svæðið undir nýja hverfið er í lítilli vík suðvestan við Reykjavíkur- flugvöll, en þar er gert ráð fyrir um 1.300-1.400 íbúða hverfi, auk smá- bátahafnar. Innan þessa svæðis er gert ráð fyrir landfyllingu þar sem hluti byggðarinnar mun rísa í 2. áfanga hins nýja deiliskipulags. Svæðið sem fer undir landfyllingu er u.þ.b. 4,3 hektarar og er gert ráð fyrir að í hana þurfi um 224.000 m3 af jarðvegi. Miðað er við að í landfyllinguna verði notað efni sem fellur til við framkvæmdir við Landspítala - Há- skólasjúkrahús, auk efnis frá öðrum þéttingarreitum vestan Elliðaáa. Við það minnki umferð vegna efnisflutn- inga, þar sem efnið er notað skammt frá í stað þess að það sé flutt á urð- unarsvæði í útjaðri borgarinnar. Olíumengun í Nýja Skerjafirði  Heilbrigðisráð Reykjavíkur varar við að nýr skóli í Skerjafirði sé nærri olíumenguðum jarðvegi  Strangari kröfur þurfi til jarðvegsskipta  Engin móttökustöð fyrir olíumengaðan jarðveg í landinu Heimild: Borgarvefsjá, Efla Nauthólsvík Háskólinn í Reykjavík Sjóskýli Skeljungur Flugskýli Landhelgis- gæslan N au th ó ls ve gu r S ke lja ne s Fyrirhuguð landfylling vegna íbúðahverfis og smábátahafnar Fyrirhuguð landfylling vegna Fossvogsbrúar Nýi Skerjafjörður 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2020 Bókun minnihlutans í umhverf- is- og heilbrigðisráði: Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins taka undir al- varlegar athugasemdir umsagn- ar Heilbrigðiseftirlitsins varð- andi Nýja Skerjafjörðinn en samkvæmt HER er jarðvegurinn á þessu svæði olíumengaður eins og fulltrúar minnihlutans hafa ítrekað bent á, einnig að fyrirhuguð landfylling liggur að verndarsvæðum. Það er óábyrgt að keyra í gegn uppbyggingu á svæðinu áður en jarðvegurinn er hreinsaður og honum fargað á réttan hátt. Tekið er fram að stangari kröfur eru til hreins- unar og jarðvegsskipta þar sem olíumengun er í jarðvegi þegar um er að ræða starfsemi fyrir börn. Vel að merkja er engin móttökustöð fyrir olíu- mengaðan jarðveg í landinu. Minnihlutinn mótmælir HEILBRIGÐISRÁÐ Egill Þór Jónsson Framkvæmdir Hér má sjá svæðið sem til stendur að fylla upp í í Skerjafirði undir nýja hverfið og uppfyllingaráform vegna brúargerðar yfir Fossvog. ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.