Morgunblaðið - 02.11.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.11.2020, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2020 Ýmsar rannsóknir og kannanir hafa sýnt okkur að of mörgum nemendum líður ekki vel í skóla og of margir nemendur telja skóla- námið gagnslítið. Skólahald í breyttri mynd getur skapað óöryggi og aukið álag hjá nemendum. Við getum verið sammála um að það skiptir miklu máli að öllum nem- endum líði vel í skóla. Það er algjör forsenda þess að námsárangur verði góður. Hvað er þá til ráða? Hugmyndavinna Margar góðar hugmyndir er að finna innan skólanna. Látum skólana í sjálfstæði sínu ákveða hvaða breytingar þeir gera til að bæta líðan nemenda og árangur. Föllum ekki í þá gryfju að láta ein- hvern „stóra bróður“ ákveða hvað gert er. Venjulega fylgja slíkum vinnubrögðum skýrslu- og grein- argerðir sem lenda iðulega í möpp- um uppi í hillum og eru aldrei lesn- ar. Ein leið er að skólarnir efni til víðtækrar hugmyndasamkeppni meðal nemenda, forráðamanna og skólamanna. Nám þarf að vera fjöl- breytt til að höfða til breiðs hóps nemenda. Samvinna skólastiga Til að auka fjölbreytileika í námi kemur til greina að skipuleggja margs konar samstarf á milli grunn- og framhaldsskóla sem bjóða upp á verk- og listnám. Tvær til þrjár kennsluvikur í framhalds- skólunum gætu verið hluti af nám- inu t.d. í 10. bekk. Kennslan yrði í höndum kennara framhaldsskól- anna og nemendur framhaldsskól- anna gætu verið til aðstoðar í kennslustundum. Þá mætti hugsa sér að í efstu bekkjum grunnskól- ans færi fram tónlistarkennsla þar sem þekktir hljóðfæraleikarar yrðu fengnir til að kenna nemendum á hljóðfæri sem njóta vinsælda meðal ungs fólks. Fjölmargar aðrar gagn- legar hugmyndir eru þegar til- tækar til að bæta líðan ungs fólks, þátttöku þess í list- og verkgreinum og fjölbreytt námsframboð. Náms- og starfsráðgjafar Við flesta skóla eru starfandi náms- og starfsráðgjafar sem vinna frábært starf við að leiðbeina nem- endum og styðja þá. Stjórnendur skóla, kennarar og annað starfsfólk nýtur einnig fagmennsku náms- og starfsráðgjafa í vinnu sinni með nemendum. Skólastjóri á Stór- Reykjavíkursvæðinu sagði fyrir mörgum árum að aldrei hefði einn starfsmaður hjálpað jafn mörgum nemendum og nýráðinn náms- ráðgjafi. Nú þegar skólahald er með breyttu sniði hefur vanlíðan margra nemenda aukist. Skólar hafa eflaust gert ýmislegt til að hjálpa nemendum sínum. Á næstu vikum og misserum er sérstaklega mikil þörf á að sinna vel þeim hluta nemendahópsins sem hefur staðið höllum fæti. Með markvissum að- gerðum má ef til vill draga úr brott- hvarfi nemenda í framhaldsskólum sem hefur verið of mikið undan- farin ár. Sóknarfæri í skólamálum Eftir Þorstein Þorsteinsson og Gunnlaug Sigurðsson » Á næstu vikum og misserum er sér- staklega mikil þörf á að sinna vel þeim hluta nemendahópsins sem hefur staðið höllum fæti. Þorsteinn Þorsteinsson Höfundar eru fyrrverandi skóla- meistarar. thorsteinn2212@gmail.com Gunnlaugur Sigurðsson Herferðin í kring- um hina „nýju stjórn- arskrá“ hefur varla farið fram hjá nein- um. Það sem virðist hins vegar gleymast í umræðunni, og er í raun kjarni málsins, er: hvað er stjórn- arskrá? Hvaða hlut- verki er henni ætlað að gegna? Hvaða málefni eiga heima í stjórn- arskránni og hvað er betra að út- færa með almennri löggjöf? Stjórnarskrá er meðal annars ætlað að geyma helstu megin- reglur um stjórnskipulag ríkis og ákvæði um ýmis grundvallarrétt- indi borgaranna. Hún ætti að vera fáorð og hnitmiðuð, enda ætlað að standa af sér stefnur og strauma og veita réttaröryggi. Almennri löggjöf frá Alþingi er hins vegar ætlað að útfæra nánar það sem segir í stjórnarskránni, án þess að fara gegn henni, og breytast í takt við tíðarandann. Einmitt af þeirri ástæðu er auðveldara að breyta almennum lögum. Í frumvarpi til stjórnskip- unarlaga um breytingu á stjórn- arskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/ 1994 eru lagðar til hinar ýmsu breytingar. Nánar tiltekið er þar að finna hvorki meira né minna en 114 ákvæði. Þess má geta að nú- gildandi stjórnarskrá inniheldur 81 ákvæði og er fimm síður að lengd. Í frumvarpinu er til að mynda kveðið á um að tryggja skuli rétt manna til viðeigandi og fullnægjandi heilbrigðisþjónustu, og rétt manna á heil- næmu umhverfi, fersku vatni, ómeng- uðu andrúmslofti og óspilltri náttúru. Allt er þetta gott og gilt en hvað telst viðeig- andi og fullnægjandi heilbrigðisþjónusta? Hvenær telst and- rúmsloft mengað eða náttúran spillt? Að minnsta kosti það mengað eða spillt að brotið sé gegn stjórn- arskrárvörðum réttindum? Er yf- irhöfuð hægt að framfylgja þess- um ákvæðum, hvort sem þau eru í stjórnarskrá eða almennri löggjöf? Þá hefur efnislegt inntak ákvæða stjórnarskrárinnar verið túlkað af dómstólum síðan hún tók gildi 17. júní 1944, fyrir 76 árum. Það er því ekki nóg að lesa texta stjórnarskrárinnar þegar efnislegt inntak hennar er kannað heldur þarf að líta til dómaframkvæmdar síðastliðin 76 ár. Þá verður einnig að hafa til hliðsjónar dóma Mann- réttindadómstóls Evrópu. En hverjar eru afleiðingar þess að kollvarpa núgildandi stjórnarskrá? Munum við enn geta litið til þess- ara dómafordæma þegar kemur að því að túlka efnislegt inntak ákvæða „nýju“ stjórnarskrár- innar? Eða þurfum við hreinlega að byrja upp á nýtt? Líkt og áður var vikið að hafa ákvæði stjórnarskrárinnar verið túlkuð af dómstólum í langan tíma. Efnislegt inntak margra þeirra, einkum mannréttinda- ákvæðanna í VII. kafla, er því annað og meira en beint orðalag þeirra gefur til kynna. Hefur til að mynda hugtakið „friðhelgi einka- lífs“ verið túlkað rúmt og talið ná yfir friðhelgi heimilis og fjöl- skyldu, þá fellur þar undir réttur einstaklings til að ráða yfir lífi sínu, líkama og tilfinningalífi. Lög- festing á „nýju“ ákvæði sem bein- línis nefnir öll þessi atriði er ekki nauðsynlegt en kann vissulega að auðvelda lesturinn. Ég er ekki mótfallin stjórnar- skrárbreytingum. Þvert á móti. Ég tel hins vegar ekki ástæðu til að kollvarpa núgildandi stjórn- arskrá. Slíkt er til þess fallið að skapa réttaróvissu, sem fer ein- mitt gegn hlutverki stjórnarskrár- innar. Þá tel ég sum ákvæðanna í frumvarpinu óframkvæmanleg og í mörgum tilvikum væri fullnægj- andi að breyta almennri löggjöf. Er ekki skynsamlegra, og þá eink- um í ljósi þess að það er nokkuð ljóst að frumvarpið fær ekki brautargengi í heild sinni, að taka fyrir einstaka ákvæði stjórn- arskrárinnar, laga þau að breytt- um aðstæðum og eftir atvikum að bæta við ákvæðum gerist þess þörf? Vangaveltur um gagnsemi nýrrar stjórnarskrár Eftir Eydísi Ýri Jónsdóttur Eydís Ýr Jónsdóttir »Er ekki skynsam- legra að taka fyrir einstaka ákvæði stjórn- arskrárinnar, laga þau að breyttum aðstæðum og eftir atvikum að bæta við ákvæðum gerist þess þörf? Lögfræðingur (fulltrúi) hjá LEX Lögmannsstofu. Efnahagskreppan nú er ekki sú fyrsta sem Ís- lendingar kljást við. Gagnlegt getur þá verið að rýna í fyrri hallæri og læra af þeim. Árin 1881-82 var afspyrnu- erfitt veður á landinu sem skemmdi beitar- land og drap fjöldann allan af fé og kúm í flestum landshlutum. Ræktun þeirra og nýt- ing skipti þá sköpum í atvinnulífinu, sem fór illa úr skorðum í þessu óveðri. Ekki bætti úr skák að alvarlegir misl- ingar herjuðu líka í landinu. Erlendis hjá nokkrum vinaþjóðum var safnað fyrir velferð þjakaðra Ís- lendinga. Í Öldinni okkar segir frá slíkum framlögum. Þau voru mest frá Dönum en einnig mikil frá Englandi. Þaðan kom stórt skip með fóður, hey og matvæli. Þessa sendingu má eink- um rekja til athafnasemi Eiríks nokk- urs Magnússonar (1833-1913), þá bókavarðar í Cambridge, eins og fram kemur í ævisögu sem ber nafn hans (1933) eftir Stefán Einarsson. Sambönd og álit Eiríks voru þá góð í Englandi. Hann kynnti líka ástandið í blaðagreinum þar og söfnunin gekk vel. Síðan sigldi hann með afraksturinn til Ís- lands. Áður en það verð- ur rakið nánar er við hæfi að ræða aðeins um þennan mann. Hann var prestssonur frá Stöðv- arfirði og lauk námi frá Prestaskólanum áður en hann flutti alfarið frá Íslandi með Sigríði konu sinni. Þau settust síðar að í Englandi. Eiríkur þýddi mörg íslensk rit yfir á ensku og öfugt, bæði sjálfur og í samvinnu við aðra. Með öðrum þýddi hann þjóðsögur Jóns Árnasonar og margar Íslendingasögur. Einn þýddi hann Lilju (Kristin kvæði eftir Ey- stein Ásgrímsson frá 14. öld). Sú þýð- ing fékk mjög góða dóma en leikritið Stormurinn eftir William Shakespere fékk slæma dóma. Á íslensku þýddi hann líka forna sögu Tómasar Bec- ketts; Tómasar sögu erkibiskups. Gjöf frekar en gróði Nóg um það. Í um 40 ár vann hann sem bókavörður í Cambridge, en hafði svigrúm til að skrifa oft í íslensk blöð, til reglulegra bréfaskrifta við Jón Sigurðsson forseta og ferðalaga til Íslands af og til. Haustið 1882 sigldi Eiríkur með hlaðið skip til Íslands með söfnunarafrakstur sem hann sá um úthlutun á, til stuðnings kreppu- þjökuðum löndum sínum. Sumarið hér hafði þá verið slæmt og kalt. Siglt var umhverfis landið og víða komið við og úthlutað vörum við góðar und- irtektir fólks. Biblíufróður maður þarna hefði e.t.v. munað eftir þessu versi úr Postulasögunni: Þannig ber okkur að annast óstyrka og minnast orða Drottins Jesú sjálfs: „Sælla er að gefa en þiggja.“ (Post. 20:34.) Vel var þá úthlutað í Reykjavík, þar sem um helmingur íbúa var veikur af mislingum. Mörgum þótti þessi ferð árangursrík en nokkuð bar á gagn- rýni. Ýmsum þótti Eiríkur hafa farið of- fari í þessari söfnun og sendingu. Hann svaraði því til að æðstu yfirvöld landsins hefðu þá haldið því fram að forða þyrfti mörgum frá hung- urdauða. Það hefði svo verið kynnt í söfnunarátakinu ytra. Þessi kreppa fjaraði fljótlega út og við tók betri tíð hjá mönnum og málleysingjum á Ís- landi. Öflug úrræðauppspretta Þessi söfnunar- og úthlutunar- viðbrögð vegna kreppu virðast hafa gert mikið gagn í þjóðfélagsgerð og atvinnulífi þessa tíma. Væru þetta við- eigandi kreppuviðbrögð í dag? Varla. Fátækum myndi þó fækka. En hvað- an kæmi björgin? Allar tengslaþjóðir glíma við sömu Covid-vandamálin. Lausnin hér kann m.a. að finnast í innlendri nýsköpun í atvinnulífinu, sem eykur vöruvandaðan útflutning. Fiskeldi víða virðist farsælt. Framtíð- arútflutningur Landsvirkjunar gæti orðið grænt vetni, sem orkugjafi. Eitt af efnilegri fyrirtækjunum nú er Kerecis, sem nýtir þorskroð við meðferð á sárum. Þessi nýting hindr- ar m.a. aflimanir vegna sykursýki og offitu. Umsvifin eru mikil og líknandi, ágóðinn ágætur og afurðin virðist vera umhverfisvæn og sjálfbær. Með- al stjórnarmanna þar er Ólafur Ragn- ar Grímsson, sem liðsinnti mörgum ís- lenskum fyrirtækjum í forsetatíð sinni. Marga aðra ágæta íslenska starf- semi hefði mátt nefna, sem gæti stuðl- að að kreppulausnum, en ekki svig- rúm fyrir hér. Margþættar aðgerðir stjórnvalda virðast farsælar í okkar fjölþætta samfélagi. Tillögur um auk- in ríkisútgjöld á ákveðnum sviðum verða oft umdeildar, því svo margir vilja fá sinn skerf af útgjaldakökunni. Samt verður hvatt til þess hér að ríkið auki rekstrarframlög til dvalar- og hjúkrunarheimila, auk þess að lækka hátt búsetugjald íbúa þar. Þessi til- laga hefur að leiðarljósi framtíð- arhagsmuni íbúa, starfsfólks og staða víða um land. Hún myndi auka lífs- gæði og bæta aðbúnað hinna van- metnu; eldri borgara. Fyrirsjáanleg ríkisvæðing þessara heimila yrði að mestu afturför. En ef við lítum okkur nær erum við öll almannavarnir, þurfum oft að muna að spritta og nota grímu. Líka umbuna okkur sjálfum af og til, svo sem eftir heilsurækt. Það gerði ég nú í október með þremur sneiðum af rjómatertu vegna jafnmargra áttræð- isafmæla. Fyrst til að heiðra minn- ingu hins friðelskandi bítils Johns Lennons. Svo vegna afmælis hins já- kvæða og þrautseiga tónlistarmanns Cliffs Richards. Síðast en ekki síst vegna afmælis knattspyrnukappans Pelés, sem varð þrisvar sinnum heimsmeistari með Brasilíu. Ýmislegt gagnlegt má læra af gömlum sigrum. „Spyrjið um gömlu göturnar.“ (Jer. 6;16.) Kreppulausnir fyrr og nú Eftir Ævar Halldór Kolbeinsson »Forðum daga kom fulllestað skip frá Englandi með björg í bú vegna kreppu á Íslandi. Vel þegið þá, en hvað nú? Ævar Halldór Kolbeinsson Höfundur er (h)eldri öryrki og áhuga- samur um íslenska velferð. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.