Morgunblaðið - 02.11.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.11.2020, Blaðsíða 16
Það var gott framtak hjá Lyfja- stofnun og heilbrigðisráðuneyti að koma á umboðsskyldu við af- greiðslu lyfja og skilríkjaskyldu þess sem tekur út. Fyrst var beðið um umboðið á pappír, en nú skal það rafrænt og er auðvitað miklu betra og hýgenískara en að stúss- ast með þvælda merarseðla milli staða. En öðru mætti líka breyta og gera tvennt í einu, minnka hættu á misnotkun og spara ríkinu stórfé, – og kannski bæta lýðheilsuna, því að enginn er bættari að gleypa of mik- ið af lyfjum og allar pillur hafa ein- hverjar aukaverkanir. Ég er að tala um skammtastærð- irnar á lyfseðlunum. Þær eru oft og tíðum fullríflegar og hafa verið lengi. Auðvitað er tími læknanna dýrmætur og ekki tekur lengri tíma að skrifa út 100 töflur en 30, en samt, það má ímynda sér þær ógnarbirgðir sem hlaðast upp af ónýttum og ónýtum lyfjum. Mætti ekki byrja að spara þarna og finna svo eitthvað annað gat til að stoppa í? Ekki veitir víst af. Sunnlendingur Velvakandi Svarað í síma 569- 1100 frá kl. 10-12. Ofskömmtun í boði ríkisins Ávinningur af fisk- eldi er mikill fyrir ís- lenskt samfélag og sér- staklega eru áhrifin jákvæð á þau byggð- arlög þar sem eldið er starfrækt. Alvarlegar efnahagsþrengingar vegna kórónuveir- unnar draga enn betur fram mikilvægi slíkrar nýsköpunar og auð- lindanýtingar fyrir landsmenn. Yf- irlýst stefna stjórnvalda er að byggja áfram upp fiskeldi í samræmi við ráðgjöf vísindamanna og tryggja rannsóknir og vöktun áhrifa á líf- ríkið. Í því ljósi er frumkvæði sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra um að kanna hvort rétt sé að lýsa yfir banni við eldi í sjókvíum í Eyjafirði, Jökulfjörðum og hluta Norðfjarðar- flóa merkilegt fyrir margra hluta sakir. Ráðherra hefur ekki heimild sam- kvæmt fiskeldislögum til að loka haf- svæðum ef ekki liggja fyrir lög- bundnar vistfræðilegar rannsóknir, þ.e. burðarþolsmat og áhættumat erfðablöndunar, til að ákvarða hvort fiskeldi hafi neikvæð áhrif á um- hverfið. Fyrir liggur að ráðherra hefur ekki óskað eftir burðarþols- mati fyrir firðina þrjá sem um ræðir og ekkert áhættumat erfðablönd- unar er til um þau svæði. Þá eru réttaráhrif auglýsingar landbúnaðarráðherra frá 2004, þar sem laxeldi í sjókvíum var bannað á stórum hluta við strendur landsins, í raun engin. Auglýsingin er heldur ekki lengur grundvöllur pólitískrar sáttar um starfsemi fiskeldis, þar sem firð- irnir þrír sem ráðherra athugar nú hvort loka skuli eru utan bann- svæðis auglýsing- arinnar. Eina raunhæfa sáttin um uppbyggingu fiskeldis verður að vera byggð á vísindalegri ráðgjöf. Hvar á að vera fiskeldi? Markmið fiskeld- islaga er að skapa skilyrði til upp- byggingar fiskeldis ásamt því að stuðla að ábyrgu fiskeldi og tryggja verndun villtra nytjastofna. Eina leiðin til að samþætta þessi tvö markmið er að byggja allar ákvarð- anir um hvar óhætt er að starfrækja eldi á bestu fáanlegri vísindalegri ráðgjöf. Allar breytingar Alþingis á fisk- eldislögum síðustu ár hafa verið þess eðlis að leggja auknar kröfur á stjórnsýslustofnanir og fiskeldisfyr- irtæki með það að markmiði að stuðla enn frekar að verndun lífríkis og draga úr neikvæðum umhverfis- áhrifum. Niðurstaða löggjafans er því sú að fiskeldi er leyft þar sem því verður við komið án neikvæðra vist- fræðilegra áhrifa. Til að starfrækja fiskeldi, t.d. í Steingrímsfirði á Ströndum, þarf að uppfylla veigamikil skilyrði fiskeld- islaga. Í fyrsta lagi þarf að liggja fyr- ir burðarþolsmat. Í öðru lagi þarf að liggja fyrir svæðaskipting byggð á burðarþoli, að teknu tillit til laga um skipulag haf- og strandsvæða. Í þriðja lagi þarf áhættumat erfða- blöndunar að ná yfir Steingríms- fjörð. Í fjórða lagi þarf að liggja fyrir úthlutun eldissvæða af hálfu ráð- herra og í fimmta lagi þarf að liggja fyrir rekstrar- og starfsleyfi, sem fæst einungis ef fyrir liggur staðfest mat á umhverfisáhrifum um starf- semi fiskeldis í Steingrímsfirði. Auglýsing um bann við fiskeldi í Steingrímsfirði einfaldlega víkur fyrir rétthærri fiskeldislögum og hefur enga þýðingu samkvæmt þeim. „Hægt að endurskoða friðun svæða síðar í ljósi reynslunnar“ Forsaga friðunar á stórum svæð- um fyrir sjókvíaeldi er sú að Veiði- málastofnun, sem þá var og hét, lagði til í greinargerð árið 2001 friðun svæða fyrir eldi laxfiska í sjókvíum. Markmiðið var að friða mörg helstu laxveiðisvæði landsins og beina fisk- eldi á ákveðin svæði þar sem reynsla fengist af eldinu. Svo var sérstaklega tiltekið í greinargerðinni að hægt yrði að endurskoða friðun svæða síð- ar í ljósi reynslunnar. Augljóslega hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan Veiðimála- stofnun lagði fram sínar tillögur að friðun svæða og tímabært að endur- skoða fyrirkomulagið, bæði í ljósi reynslunnar og nýrrar löggjafar sem kveður sérstaklega á um aðferða- fræði til að meta vistfræðileg áhrif. Þegar ákveðið var að loka Stein- grímsfirði, Skagafirði og Þistilfirði fyrir fiskeldi var um að ræða al- menna aðgerð án sérstakra rann- sókna fyrir hvert svæði og fyrir setn- ingu laga um fiskeldi. Hér er ekki verið að leggja til fiskeldi í öllum þessum fjörðum heldur að fram fari rannsókn á burðarþoli og gert verði áhættumat erfðablöndunar á þeim svæðum sem hafa verið lokuð og helst gætu hentað undir sjálfbært fiskeldi. Vísindin ráði för Mikið er undir fyrir íslenskt efna- hagslíf að stjórnvöld fylgi áfram þeirri stefnu að byggja ákvarðanir um framþróun fiskeldis á ráðgjöf vís- indamanna. Það er því rökrétt að ætla að ráð- herra taki ekki ákvörðun um friðun Eyjafjarðar, Jökulfjarða og Norð- fjarðarflóa nema lögbundnar vist- fræðilegar rannsóknir kveði á um nauðsyn slíkrar friðunar. Þá er ekk- ert í vegi fyrir ráðherra að fara eftir vilja Alþingis og óska eftir burðar- þolsmati á öllum þeim svæðum sem heppileg kunna að vera fyrir starf- semi fiskeldis í umhverfis- og sam- félagslegu tilliti. Vísindaleg ráðgjöf verður að ráða för til að tryggja að auðlindir lands- ins séu nýttar með skynsamlegum og ábyrgum hætti í þágu allra lands- manna. Íbúar við sjávarsíðuna þar sem tækifæri eru í fiskeldi eiga það enn fremur skilið. Gera má ráð fyrir að meiri sátt verði þannig náð um uppbyggingu fiskeldis ef stjórnvöld fylgja þeirri stefnu fastar eftir. Vísindaleg sáttargjörð um fiskeldi Eftir Teit Björn Einarsson »Ráðherra hefur ekki heimild samkvæmt fiskeldislögum til að loka hafsvæðum ef ekki liggja fyrir lögbundnar vistfræðilegar rann- sóknir. Teitur Björn Einarsson Höfundur er lögmaður og 1. varaþingmaður Sjálfstæðisflokks- ins í Norðvesturkjördæmi. 16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2020 Missið ekki af áhugaverðum þætti um lífeyrissjóðakerfið og viðtali við nokkra sérfræðinga á því sviði. Hringbraut næst á rásum 7 (Síminn) og 25 (Vodafone) ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar í kvöld kl. 20.00 • Heimildir lífeyrissjóða til fjárfestinga erlendis sem og í vísisjóðum • Tekur lífeyrissjóðakerfið of mikið til sín af tekjum almennings? • Kjör fulltrúa í stjórnir lífeyrissjóða • Hvaða áhrif hefur séreignasparnaður til lengri tíma litið? í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld Lífeyrissjóðakerfið á íslandi Seinni hluti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.