Morgunblaðið - 02.11.2020, Síða 16
Það var gott framtak hjá Lyfja-
stofnun og heilbrigðisráðuneyti að
koma á umboðsskyldu við af-
greiðslu lyfja og skilríkjaskyldu
þess sem tekur út. Fyrst var beðið
um umboðið á pappír, en nú skal
það rafrænt og er auðvitað miklu
betra og hýgenískara en að stúss-
ast með þvælda merarseðla milli
staða.
En öðru mætti líka breyta og
gera tvennt í einu, minnka hættu á
misnotkun og spara ríkinu stórfé, –
og kannski bæta lýðheilsuna, því að
enginn er bættari að gleypa of mik-
ið af lyfjum og allar pillur hafa ein-
hverjar aukaverkanir.
Ég er að tala um skammtastærð-
irnar á lyfseðlunum. Þær eru oft og
tíðum fullríflegar og hafa verið
lengi. Auðvitað er tími læknanna
dýrmætur og ekki tekur lengri
tíma að skrifa út 100 töflur en 30,
en samt, það má ímynda sér þær
ógnarbirgðir sem hlaðast upp af
ónýttum og ónýtum lyfjum.
Mætti ekki byrja að spara þarna
og finna svo eitthvað annað gat til
að stoppa í? Ekki veitir víst af.
Sunnlendingur
Velvakandi Svarað í síma 569-
1100 frá kl. 10-12.
Ofskömmtun
í boði ríkisins
Ávinningur af fisk-
eldi er mikill fyrir ís-
lenskt samfélag og sér-
staklega eru áhrifin
jákvæð á þau byggð-
arlög þar sem eldið er
starfrækt. Alvarlegar
efnahagsþrengingar
vegna kórónuveir-
unnar draga enn betur
fram mikilvægi slíkrar
nýsköpunar og auð-
lindanýtingar fyrir landsmenn. Yf-
irlýst stefna stjórnvalda er að byggja
áfram upp fiskeldi í samræmi við
ráðgjöf vísindamanna og tryggja
rannsóknir og vöktun áhrifa á líf-
ríkið.
Í því ljósi er frumkvæði sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra um
að kanna hvort rétt sé að lýsa yfir
banni við eldi í sjókvíum í Eyjafirði,
Jökulfjörðum og hluta Norðfjarðar-
flóa merkilegt fyrir margra hluta
sakir.
Ráðherra hefur ekki heimild sam-
kvæmt fiskeldislögum til að loka haf-
svæðum ef ekki liggja fyrir lög-
bundnar vistfræðilegar rannsóknir,
þ.e. burðarþolsmat og áhættumat
erfðablöndunar, til að ákvarða hvort
fiskeldi hafi neikvæð áhrif á um-
hverfið. Fyrir liggur að ráðherra
hefur ekki óskað eftir burðarþols-
mati fyrir firðina þrjá sem um ræðir
og ekkert áhættumat erfðablönd-
unar er til um þau svæði.
Þá eru réttaráhrif auglýsingar
landbúnaðarráðherra frá 2004, þar
sem laxeldi í sjókvíum var bannað á
stórum hluta við strendur landsins, í
raun engin. Auglýsingin er heldur
ekki lengur grundvöllur pólitískrar
sáttar um starfsemi
fiskeldis, þar sem firð-
irnir þrír sem ráðherra
athugar nú hvort loka
skuli eru utan bann-
svæðis auglýsing-
arinnar. Eina raunhæfa
sáttin um uppbyggingu
fiskeldis verður að vera
byggð á vísindalegri
ráðgjöf.
Hvar á að vera
fiskeldi?
Markmið fiskeld-
islaga er að skapa skilyrði til upp-
byggingar fiskeldis ásamt því að
stuðla að ábyrgu fiskeldi og tryggja
verndun villtra nytjastofna. Eina
leiðin til að samþætta þessi tvö
markmið er að byggja allar ákvarð-
anir um hvar óhætt er að starfrækja
eldi á bestu fáanlegri vísindalegri
ráðgjöf.
Allar breytingar Alþingis á fisk-
eldislögum síðustu ár hafa verið þess
eðlis að leggja auknar kröfur á
stjórnsýslustofnanir og fiskeldisfyr-
irtæki með það að markmiði að
stuðla enn frekar að verndun lífríkis
og draga úr neikvæðum umhverfis-
áhrifum. Niðurstaða löggjafans er
því sú að fiskeldi er leyft þar sem því
verður við komið án neikvæðra vist-
fræðilegra áhrifa.
Til að starfrækja fiskeldi, t.d. í
Steingrímsfirði á Ströndum, þarf að
uppfylla veigamikil skilyrði fiskeld-
islaga. Í fyrsta lagi þarf að liggja fyr-
ir burðarþolsmat. Í öðru lagi þarf að
liggja fyrir svæðaskipting byggð á
burðarþoli, að teknu tillit til laga um
skipulag haf- og strandsvæða. Í
þriðja lagi þarf áhættumat erfða-
blöndunar að ná yfir Steingríms-
fjörð. Í fjórða lagi þarf að liggja fyrir
úthlutun eldissvæða af hálfu ráð-
herra og í fimmta lagi þarf að liggja
fyrir rekstrar- og starfsleyfi, sem
fæst einungis ef fyrir liggur staðfest
mat á umhverfisáhrifum um starf-
semi fiskeldis í Steingrímsfirði.
Auglýsing um bann við fiskeldi í
Steingrímsfirði einfaldlega víkur
fyrir rétthærri fiskeldislögum og
hefur enga þýðingu samkvæmt
þeim.
„Hægt að endurskoða friðun
svæða síðar í ljósi reynslunnar“
Forsaga friðunar á stórum svæð-
um fyrir sjókvíaeldi er sú að Veiði-
málastofnun, sem þá var og hét, lagði
til í greinargerð árið 2001 friðun
svæða fyrir eldi laxfiska í sjókvíum.
Markmiðið var að friða mörg helstu
laxveiðisvæði landsins og beina fisk-
eldi á ákveðin svæði þar sem reynsla
fengist af eldinu. Svo var sérstaklega
tiltekið í greinargerðinni að hægt
yrði að endurskoða friðun svæða síð-
ar í ljósi reynslunnar.
Augljóslega hefur mikið vatn
runnið til sjávar síðan Veiðimála-
stofnun lagði fram sínar tillögur að
friðun svæða og tímabært að endur-
skoða fyrirkomulagið, bæði í ljósi
reynslunnar og nýrrar löggjafar sem
kveður sérstaklega á um aðferða-
fræði til að meta vistfræðileg áhrif.
Þegar ákveðið var að loka Stein-
grímsfirði, Skagafirði og Þistilfirði
fyrir fiskeldi var um að ræða al-
menna aðgerð án sérstakra rann-
sókna fyrir hvert svæði og fyrir setn-
ingu laga um fiskeldi. Hér er ekki
verið að leggja til fiskeldi í öllum
þessum fjörðum heldur að fram fari
rannsókn á burðarþoli og gert verði
áhættumat erfðablöndunar á þeim
svæðum sem hafa verið lokuð og
helst gætu hentað undir sjálfbært
fiskeldi.
Vísindin ráði för
Mikið er undir fyrir íslenskt efna-
hagslíf að stjórnvöld fylgi áfram
þeirri stefnu að byggja ákvarðanir
um framþróun fiskeldis á ráðgjöf vís-
indamanna.
Það er því rökrétt að ætla að ráð-
herra taki ekki ákvörðun um friðun
Eyjafjarðar, Jökulfjarða og Norð-
fjarðarflóa nema lögbundnar vist-
fræðilegar rannsóknir kveði á um
nauðsyn slíkrar friðunar. Þá er ekk-
ert í vegi fyrir ráðherra að fara eftir
vilja Alþingis og óska eftir burðar-
þolsmati á öllum þeim svæðum sem
heppileg kunna að vera fyrir starf-
semi fiskeldis í umhverfis- og sam-
félagslegu tilliti.
Vísindaleg ráðgjöf verður að ráða
för til að tryggja að auðlindir lands-
ins séu nýttar með skynsamlegum
og ábyrgum hætti í þágu allra lands-
manna. Íbúar við sjávarsíðuna þar
sem tækifæri eru í fiskeldi eiga það
enn fremur skilið. Gera má ráð fyrir
að meiri sátt verði þannig náð um
uppbyggingu fiskeldis ef stjórnvöld
fylgja þeirri stefnu fastar eftir.
Vísindaleg sáttargjörð um fiskeldi
Eftir Teit Björn
Einarsson »Ráðherra hefur ekki
heimild samkvæmt
fiskeldislögum til að
loka hafsvæðum ef ekki
liggja fyrir lögbundnar
vistfræðilegar rann-
sóknir.
Teitur Björn Einarsson
Höfundur er lögmaður og
1. varaþingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins í Norðvesturkjördæmi.
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2020
Missið ekki af áhugaverðum þætti um
lífeyrissjóðakerfið og viðtali við nokkra
sérfræðinga á því sviði.
Hringbraut næst á rásum
7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar
í kvöld kl. 20.00
• Heimildir lífeyrissjóða til fjárfestinga erlendis sem og í vísisjóðum
• Tekur lífeyrissjóðakerfið of mikið til sín af tekjum almennings?
• Kjör fulltrúa í stjórnir lífeyrissjóða
• Hvaða áhrif hefur séreignasparnaður til lengri tíma litið?
í þættinum Atvinnulífið sem
er á dagskrá Hringbrautar
kl. 20.00 í kvöld
Lífeyrissjóðakerfið
á íslandi Seinni hluti