Morgunblaðið - 02.11.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2020
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Meiri frítími með fleiri gæða-
stundum, jafnari fjölskyldu-
ábyrgð, sveigjanleika á vinnustað
og aukinni starfsánægju. Þetta
er meðal þess sem vænst er að fé-
lagsmenn BSRB njóti með stytt-
ingu vinnutímans frá næstu ára-
mótum. Styttingin nær til þorra
félagsmanna BSRB, sem eru um
22.000, auk margra annarra sem
starfa á vinnustöðum ríkis, sveit-
arfélaga og í tengdri starfsemi.
„Í samtölum stjórnenda og
starfsfólks er leiðarljósið hvernig
má endurskipuleggja störf, en
halda sömu afköstum,“ segir
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formað-
ur BSRB. „Við byrjum hjá dag-
vinnufólkinu þar sem heimilt er
að stytta í 36 stundir á viku en
fyrirkomulag styttingar ræðst af
eðli starfsemi á hverjum stað. Á
vaktavinnustöðum, þar sem um
4.000 félagar okkar starfa, þarf
lengri undirbúning og þar tekur
stytting vinnuvikunnar gildi 1.
maí á næsta ári.“
Fjarvinna stökk
inn í framtíðina
Á Íslandi hefur vinnuvikan
verið 40 stundir í nær hálfa öld
og á þeim tíma hefur vinnumark-
aðurinn breyst mikið. Konur hafa
flykkst út á vinnumarkaðinn og
tæknibreytingar umbylt flestu. Á
sama tíma hefur dregið úr vægi
einsleitra líkamlegra starfa.
„Við erum því venjuföst um
fyrirkomulag vinnutímans. Fyrr
á árinu var tekið stórt stökk inn í
framtíðina með því að tileinka
okkur fjarvinnu á örfáum dögum
og þannig þurfti að hugsa hlutina
upp á nýtt. Stór hluti félags-
manna BSRB er í framlínu og
getur ekki unnið að heiman.
Taka þarf tillit til fjarvinnu í
kjarasamningum framtíðar og að
skiptar skoðanir eru um ágæti
hennar,“ segir Sonja og heldur
áfram:
„Nýleg könnun Gallup sýnir
að um helmingur þeirra sem eru
í fjarvinnu vill halda því áfram,
en aðrir ekki Að loknu kófi verð-
ur fjarvinnan væntanlega áfram í
boði sem hluti af sveigjanlegu
vinnufyrirkomulagi. Um slíkt
þarf auðvitað að setja reglur og
viðmið. Einnig að fræða fólk og
aðstoða við að skipuleggja vinnu-
daginn sem best. Hjá BSRB verð-
ur þetta hluti af þeirri vinnu sem
er í gangi hjá bandalaginu í
tengslum við vinnumarkað fram-
tíðar og fjórðu iðnbyltinguna.“
Með þeim samningsbundnu
breytingum sem nú eru fram-
Samtök launafólks, ríki og
sveitarfélög eiga í góðu sam-
starfi við að fylgja styttingu
vinnutímans úr hlaði með stuðn-
ingi og fræðsluefni. Nýlega opn-
aði BSRB vefinn styttri.is þar
sem er farið yfir þetta ferli í smá-
atriðum og ýmsar upplýsingar
eru sömuleiðis á betrivinnutimi-
.is.
Karlar sinna heimilinu
„Við vonumst til þess að dag-
leg rútína fólks taki jákvæðum
breytingum með skemmri vinnu-
tíma og umhverfið sömuleiðis.
Þetta gæti leitt til minni umferð-
arþunga ef það verður meiri fjöl-
breytileiki í því hvenær fólk fer í
og úr vinnunni. Þau sem hafa
reynt styttingu á eigin skinni
nefna gjarnan að þau séu síður
þreytt og hafi aukna orku til að
gera eitthvað með fjölskyldunni
og fyrir sig sjálf,“ segir Sonja Ýr
og bætir við að lokum:
„Væntingar okkar eru hvað
mestar varðandi þennan þátt, að
stytting vinnuvikunnar stuðli að
aukinni hamingju fólks. Annað
sem við sjáum út úr niðurstöðum
tilraunaverkefnanna eru jákvæð
áhrif á jafnrétti á heimilunum.
Karlar sem tóku þátt í stytting-
unni notuðu aukinn frítíma til að
sinna heimilinu, þrífa, kaupa í
matinn og sækja börnin fyrr í
leikskólann til dæmis. Við vitum
að konur bera almennt þyngri
byrðar á heimilunum svo vonandi
mun þetta hafa jákvæð áhrif
þar.“
undan getur vinnuvika þeirra fé-
laga í BSRB sem eru með
þyngstu vaktabyrðina farið úr 40
stundum á viku í 32, það er átta
tíma vinnudagur eða heil vinnu-
vika á mánuði. Sonja segir þetta
viðurkenningu á því að erfitt sé
að vera aðeins í vaktavinnu og
styttingin sé leið til að draga úr
álagi á starfsfólk.
Álag fylgir vöktum
„Fólki sem nú er í til dæmis
60-80% vinnu býðst að hækka
starfshlutfallið. Við þekkjum að
fjölmargar stéttir í velferðar-
þjónustunni eru yfirleitt í hluta-
starfi, vegna þess álags sem
fylgir því vera á sólarhrings-
vöktum. Að vera ekki í 100%
starfi leiðir af sér lægri laun og
lífeyri hjá þessum kvennastéttum
sem vonandi geta hækkað starfs-
hlutfallið og tekjur með.“
Vinnutími félaga í BSRB styttist um áramótin samkvæmt kjarsamningum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mannlíf Væntingar okkar eru hvað mestar varðandi að stytting vinnu-
vikunnar stuðli að aukinni hamingju, segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir.
Hafi jákvæð áhrif á jafnrétti á heimilum
Sonja Ýr Þorbergsdóttir er
fædd 1982 og er með B.Sc.-
gráðu í viðskiptalögfræði og
ML-gráðu í lögfræði frá Háskól-
anum á Bifröst. Ráðin lögfræð-
ingur BSRB 2008 og formaður
frá 2018.
Sonja hefur setið í ýmsum
opinberum stjórnsýslu-
nefndum fyrir hönd BSRB í
tengslum við vinnumarkaðinn,
auk þess að sinna stunda-
kennslu í háskólum.
Hver er hún?
Efri og neðri sérhæðir
með sérinngang
Stærðir frá
133,4-138,5 fm
Allar íbúðir eru
fjögurra herbergja
Húsið verður
klætt að utan
Stórar svalir
Sérafnotareitur
Golfbílageymsla
Nánari
upplýsingar
veita
Bæjarlind 4. Sími: 510 7900. lind@fastlind.is
OPIÐ HÚS
Þriðjuda
ginn 3. n
óv.
Kl. 17:30
- 18:00
Kristján
Þórir Hauksson
Lögg. fasteignasali
696 1122
kristjan@fastlind.is
KINNARGATA 82-90
Magnús Már
Lúðvíksson
Lögg. fasteignasali
699 2010
magnus@fastlind.is
ERUM FLUTT
BÆJARLIND 4