Morgunblaðið - 02.11.2020, Side 7

Morgunblaðið - 02.11.2020, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2020 Faxafeni 8, Sími 588 9890 STOFNA‹ 1925 Gerum tilboð - Eingöngu toppmerki - Matrix - Nordic Track - Proform Meiri hreyfing fyrir alla fjölskylduna Verð 279.990,- Öll þrektækjalínan okkar er uppstillt í sýningarsal og tilbúin til afgreiðslu strax. afsláttur af öllum MATRIX æfingatækjum Eftir snjóflóðin á Flateyri í janúar síðastliðnum þarf að endurskoða hættumat undir nokkrum varnar- görðum sem reistir hafa verið hér á landi á síðustu árum, að mati Veður- stofu Íslands. Kemur þetta fram í er- indi Veðurstofu vegna byggingar- áforma bæjarfélaga á Vesturlandi. Rebekka Hilmarsdóttir, bæjar- stjóri Vesturbyggðar, segir þetta hafa veruleg áhrif á uppbyggingu í bænum; breyta þurfi aðalskipulagi auk þess að finna nýjar lóðir, sem getur reynst erfitt vegna þess hve margar lóðir á Bíldudal eru í einka- eigu. „Þetta hefur haft heilmikil áhrif á uppbyggingarplön á Bíldudal,“ segir Rebekka, en bærinn hafði úthlutað lóðum áður en umsögn frá Veður- stofu barst. „Við urðum að reyna að velja ann- an stað og það er ekki úr mörgu að velja á Bíldudal, þar sem það liggur ekki enn þá fyrir hvenær reynt verð- ur að byrja á næstu ofanflóðavörn- um. Þetta hefur töluverð áhrif á okk- ar vinnu sem hefur staðið yfir í tæp tvö ár,“ segir Re- bekka. Vegna þessa tekur við þriggja mánaða ferli sem felur í sér breyt- ingu á aðalskipu- lagi bæjarins. „Við vorum að vonast til þess að fyrsta skóflu- stungan yrði tek- in í október en svo verður ekki,“ segir Rebekka. Að lokum nefnir hún að nóg sé af lóðum á Bíldudal en erfitt sé að finna lóð sem heimilt er að byggja á: „Á meðal þess sem sveitarfélagið hefur verið að fást við er að hluti af góðu byggingarsvæði er í einkaeigu og það hafa ekki náðst samningar um það land. Við höfum þurft að snúa við öllu kortinu. Ég vona að önnur þorp á landinu eigi ekki jafnerfitt með upp- byggingu og Bíldudalur,“ segir hún. Í umsögn Veðurstofu segir að endurskoða þurfi hættumat undir nokkrum varnargörðum sem reistir haf verið hér á landi á síðustu árum en þar á meðal eru leiðigarðar á Flat- eyri, Búðargili á Bíldudal, Selja- landshlíð á Ísafirði, Strengsgil á Siglufirði, við Hornbrekku á Ólafs- firði og í Miðstrandarskarði í Nes- kaupstað. Veðurstofan telur réttast að ekki séu að svo komnu máli reistar nýjar byggingar á svokölluðum A-hættu- svæðum undir varnargörðum á lóð- um ofan núverandi byggðar eða nær varnargörðum en nú er. veronika@mbl.is Geta ekki byggt vegna ofanflóðahættu  Endurskoða þarf hættumat undir nokkrum varnargörðum  Uppbyggingu seinkar töluvert Rebekka Hilmarsdóttir Kolbrún Baldursdóttir, borgar- fulltrúi Flokks fólksins, leggur til að 130 þúsund krónum verði að lág- marki úthlutað fyrir hvert barn sem fær rauða niðurstöðu á mál- könnunarprófi, líkt og skóla- og frí- stundaráð hefur lagt til. Á árinu 2018 til 2019 nam úthlut- unin 107.600 krónum á hvern nem- anda sem fékk rauða niðurstöðu og því lögð til 22.400 króna hækkun. Í tillögu Flokks fólksins, þar sem greint er frá þessu, er vitnað í nið- urstöður málkönnunarprófsins Milli mála og skýrslu innri endur- skoðunar frá 2019, þar sem sjá má að 2.294 nemendur hafi tekið prófið en af þeim hafi 1.997 fengið rauða niðurstöðu, 327 gula niðurstöðu og 70 græna niðurstöðu. „Í fjárhagsáætlun 2019 var um 10.544 kr. hækkun á hvert barn, sé miðað við þann fjölda nemenda sem þreyttu slík próf á árinu 2018, óháð niðurstöðu prófa. Ljóst er að út- hlutun í þennan málaflokk er vel innan við 130.000 kr. fyrir hvern nemanda sem er á rauðu,“ segir í tillögu flokksins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Grunnskólar Lagt er til að íslensku- kennsla í grunnskólum landsins verði efld. Vilja hækka framlög til íslenskukennslu SÁÁ mun hætta þátttöku sinni í rekstri spila- kassa og hyggst slíta tengsl sín við Íslandsspil, en fram- kvæmdastjórn SÁÁ samþykkti þetta nýverið. SÁÁ er eig- andi að Íslands- spilum auk Rauða krossins og Landsbjargar. Samstarf SÁÁ og Ís- landsspila hefur verið umdeilt um árabil en það hefur verið yfirlýst markmið formanns framkvæmda- stjórnar SÁÁ, Einars Hemanns- sonar, að slíta tengslin Einar sagði í samtali við mbl.is í gær að slit félagsins við Íslandsspil væru prinsippmál. Spurður hvernig tekjutapið yrði bætt svaraði hann: „Það er óvíst enn þá, ef maður á að segja alveg eins og er. En þetta snýst ekki um fjármunina heldur þann gjörning að taka á móti þessu fé. Við höfum þá trú líka að við fáum enn meiri velvild úti í samfélaginu eftir að hafa tekið þessa ákvörðun því það eru mjög margir ósáttir við að SÁÁ sé að taka við þessum pen- ingum,“ sagði Einar. SÁÁ slítur samstarfi við Íslandsspil Einar Hermannsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.