Morgunblaðið - 02.11.2020, Síða 24

Morgunblaðið - 02.11.2020, Síða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2020 FERSKT OG GOTT PASTA TILBÚIÐ Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM! 30 ára Erla Sóley er Reykvíkingur en býr núna í Hafnarfirði. Hún er lögfræðingur og vinnur hjá sendinefnd Evrópusambandsins. Helsta áhugamál Erlu Sóleyjar er barnaupp- eldi, enda með barn á öðru árinu, og hún hefur mikinn áhuga á innanhússhönnun og hefur gaman af því að smíða. Maki: Kristinn Páll Teitsson, f. 1988, íþróttafréttamaður á Fréttablaðinu. Dóttir: Marey Ólafía, f. 2019. Foreldrar: Sólveig Haraldsdóttir, f. 1963, hjúkrunarfræðingur á taugalækn- ingadeild Landspítalans, og Frosti Berg- mann Eiðsson, f. 1963, sérhæfður starfs- maður. Þau búa í Reykjavík. Erla Sóley Frostadóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Í dag er hægt er að umfaðma hluti sem yfirleitt eru ósnertanlegir. Samræður geta orðið glaðlegar og borið góðan ár- angur. 20. apríl - 20. maí  Naut Taktu þér tíma í dag til að íhuga eig- in stöðu, farðu í naflaskoðun. Komdu eins fram við alla. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú kannt að njóta lífsins og menn treysta á þig til skemmtilegra hluta. Reyndar ganga heimilið og fjölskyldan fyr- ir. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Nauðsynlegar breytingar standa fyrir dyrum og þú þarft að vera sáttur við þær áður en þú hefst handa. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Vertu opin/n fyrir þeim tækifærum sem þér bjóðast í dag. Ef einhver kærkom- inn bregst þér, hugsaðu þá um það fólk sem þú dáir mest og reyndu að hugsa eins og það. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert fær í flestan sjó svo þér er óhætt að vera stórtækur. Allt sem þarf er að vera opinn. Gakktu þó ekki of langt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Félagi eða náinn vinur kemur þér virkilega á óvart í dag. Yfirhöfuð hefðirðu gott af meira stuði og minni ígrundun. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Einhver telur sig vita hvað þér er fyrir bestu. Ef þú upplifir erfiðleika á hinu huglæga sviði, skaltu gera eitthvað í því. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er ágætt að setja traust sitt á aðra, en umfram allt átt þú að treysta á sjálfan þig. Einbeittu þér að því og það mun veita þér mikla ánægju. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er eitt og annað sem þú þarft að velta fyrir þér og hugsa til enda. Partur af því að vera dugnaðarforkur er að mistakast stundum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það skiptir ekki máli hvernig eða hvers vegna þér tekst að ljúka verki. Farðu mjög varlega með upplýsingar sem þú veitir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þarft ekki að hafa áhyggjur ef þú kemur til dyranna eins og þú ert klæddur. Líttu á björtu hliðar lífsins. Kraftaverk eru ekki bara möguleg, þau eru alltaf að gerast. frekar þegin vegna þroskandi sam- neytis við klárt fólk.“ Árið 2000 stofn- aði Bryndís Bóksalaverðlaunin með vinkonu sinni, Þorgerði E. Sigurð- ardóttur. Á svipuðum tíma gerðist hún líka talsmaður samtakanna 102 Reykjavík, sem börðust fyrir flutn- ingi flugvallar úr Vatnsmýri. Á árunum 2002-2008 gekk Bryndís í hjónaband, eignaðist þrjú börn og flutti á Sæbraut á Seltjarnarnesi. Þar var hún í menningarmálanefnd bæj- arins og einnig formaður foreldra- félags leikskólans í þrjú ár. Þá sat hún í allsherjar- og menntamála- nefnd Sjálfstæðisflokksins, var vara- þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir SV-kjördæmi og skrifaði leikhús- leikfélögum, vann við heimilisþrif hjá félagsþjónustunni, sem hvíslari í Þjóðleikhúsinu, las inn skáldsögur fyrir hljóðbókasafnið og svo var hún alltaf í einhverjum hlutastörfum í bókabúðum. Fyrst í Bókabúð Máls og menningar en síðar í Eymundsson, Austurstræti. „Þar kom að því einn daginn að verslunarstjórinn lét sig hverfa. Ég tilkynnti næstráðandi yf- irmönnum að þeir myndu aldrei finna neinn sem væri nógu vitlaus til að taka starfið að sér. Þeir buðu mér stöðuna á staðnum, ég bölvaði í hljóði, át ofan í mig brandarann og þáði starfið. Þar með var ekki lengur pláss fyrir öll fjölbreyttu aukastörfin og mér tókst einhvern veginn að verða, það sem vinir mínir kalla, verslunar- stjóri Íslands og fól í sér einhverja áð- ur óþekkta fjölmiðlaframkomugleði ásamt auðvitað einlægri trú á mikil- vægi íslenskra bóka.“ Kona án titils Bryndís var verslunarstjóri í rúm fjögur ár en enn þann dag í dag er fólk að tengja hana við þessa búð og þetta starf. „Eftir verslunarstjóra- starfið varð ég svo vörustjóri ís- lenskra bóka hjá sama fyrirtæki en það tengir enginn neitt við það. Ég var líka alltaf ósátt við þennan titil, það er alveg ómögulegt að kalla bæk- ur „vörur“ og stórundarlegt að ætla sér að stjórna bókum. Ég leit alltaf frekar á þetta sem svona móttöku- og umönnunarstarf nýrra bóka og hef alltaf helst kosið að vera án titils.“ Ár- ið 2013 hóf hún svo störf hjá Félagi ís- lenskra bókaútgefenda, þar sem hún sinnir í raun líka umönnun íslenskra bóka, með mjög fjölbreyttum hætti. Virk í félagsmálum „Það er samt ekki alveg rétt að ég hafi sagt skilið við aukastörfin. Þau urðu bara minni hluti launatekna og B ryndís Loftsdóttir fædd- ist 2. nóvember 1970 í Reykjavík og ólst upp á Háaleitisbraut þar til hún varð fimm ára. Þá fluttist hún í Norðurfell í Breiðholti. Eftir grunnskólanám í Fellaskóla hóf hún nám í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. „Ég var örugglega svolítið kok- hraust og er kannski enn. Ég var í rit- nefnd, menningarmálanefnd og sá um bóksölu sem rekin var í skólanum. Ég gegndi líka starfi hagsmunafull- trúa, tók þátt í uppfærslu leikfélags- ins og rak um tíma sjoppu í nem- endaaðstöðunni, með Önnu Guðrúnu, vinkonu minni.“ Fæddi barn á afmæli mbl.is Eftir stúdentspróf af fjölmiðlabraut, í desember 1989, fannst Bryndísi liggja beint við að hefja störf hjá Morgunblaðinu. „Mér fannst ég nán- ast tengjast blaðinu fjölskyldubönd- um. Það hafði fylgt mér alla ævi, þjálf- að mig í daglegum lestri og svo deilum við sama afmælisdegi. Ég átti meira að segja síðar eftir að fæða frumburð minn á afmælisdegi mbl.is,“ segir Bryndís og bætir við að slík hafi tengsl hennar við blaðið verið. „Ég hafði það í gegn að fá viðtal við Styrmi en hann hafnaði atvinnubeiðni minni eftir stutt spjall. Þess í stað fékk ég vinnu í félagsmiðstöðinni Ár- seli, sem ég tók fram yfir starf við skráningu á innleystum ávísunum hjá Reiknistofu bankanna. Mér hefur reyndar, í seinni tíð, þótt svolítið leitt að hafa misst af þeirri reynslu.“ Bryndís fór ári síðar til London og lauk leikaraprófi frá The Academy of Life and Recorded Arts, árið 1994. Verslunarstjóri Íslands Eftir heimkomuna vann Bryndís hin ýmsu störf, hún leikstýrði áhuga- gagnrýni í nokkur ár. Í dag er Bryn- dís í stjórn Reykjavíkur Bókmennta- borgar UNESCO, Miðstöðvar íslenskra bókmennta og er formaður stjórnar úthlutunarnefndar greiðslna fyrir afnot á bókasöfnum og Launa- sjóðs listamanna. Gekk í flokkinn eftir partíið „Ég ætlaði að fagna þessum degi í góðra vina hópi. Ég var meira að segja búin að ganga frá því fyrir löngu að fá að halda afmælisveisluna hjá einstakri nágrannakonu minni á Seltjarnarnesi. En sú veisla verður að bíða betri tíma. Eins og svo margt annað á þessu ári,“ segir Bryndís og rifjar upp að eftirminnilegustu af- Bryndís Loftsdóttir – 50 ára Í Hörpu Hér er Bryndís með Katrínu dóttur sinni í Hörpu. „Át ofan í mig brandarann og þáði starfið“ Verslunarstjóri Íslands Hér er Bryndís á bókamarkaði á Laugardalsvelli. Til hamingju með daginn 40 ára Fríða er Reyk- víkingur en er nýflutt til Egilsstaða sem eru heimabær eiginmanns hennar. Fríða er lög- maður og starfar sem slíkur á Pacta Lög- mönnum á Egils- stöðum. Helstu áhugamál Fríðu eru fé- lagsstörf, útihlaup og síðan ljósmyndun. Maki: Kári Sveinbjörn Gunnarsson, f. 1978, verkfræðingur. Börn: Sigríður Magna, f. 2011; Svein- björn Búi, f. 2014 og Ásgeir Skjöldur, f. 2017. Foreldrar: Ásgeir Thoroddsen, f. 1942, lögmaður og Sigríður Halldóra Svan- björnsdóttir, f. 1944, þroskaþjálfi. Þau búa í Reykjavík. Fríða Thoroddsen Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.