Morgunblaðið - 02.11.2020, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2020
ENGLAND
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Arsenal vann 1:0-sigur á Manchest-
er United á Old Trafford í 7. umferð
ensku úrvalsdeildarinnar í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Sigurmarkið
skoraði fyrirliðinn Pierre-Emerick
Aubameyang af vítapunktinum eftir
að Paul Pogba braut klaufalega á
Hector Bellerín inni í eigin vítateig.
Mark Aubameyang á 69. mínútu
leiksins, hans fyrsta í fimm leikjum,
dugði Arsenal til að vinna sinn fyrsta
deildarsigur á Old Trafford síðan
2006. Heimamenn reyndu að blása
til sóknar á lokamínútunum en tókst
ekki að kreista fram jöfnunarmark
en leik þessara tveggja stórliða svip-
aði lítið til orrusta þeirra á árum áð-
ur.
Eitt sinn spiluðu Manchester
United og Arsenal yfirleitt um topp-
sætið en í gær byrjuðu bæði lið í
neðri hluta deildarinnar eftir slitr-
ótta og ómerkilega byrjun beggja
liða á keppnistímabilinu. Manchest-
er United hefur sýnt gamalkunna
takta undanfarið, liðið var frábært
gegn Newcastle í deildinni, vann
frækinn sigur gegn PSG í París í
Meistaradeildinni og skellti svo
toppliði þýsku deildarinnar, Leipzig,
í síðustu viku. Enn og aftur virðast
lærisveinar Ole Gunnar Solskjær
taka tvö skref fram á við og svo eitt
aftur á bak. Efasemdaraddirnar um
hvort Norðmaðurinn sé rétti mað-
urinn í starfið hverfa ekki eftir þenn-
an leik, hans hundraðasta sem stjóri
United, enda liðið ekki enn búið að
vinna heimaleik í deildinni.
Hvað Arsenal varðar var þetta
langþráður sigur og rós í hnappagat
Mikels Arteta sem hefur mátt þola
erfiða byrjun í stjóratíð sinni hjá
Lundúnaliðinu. Arsenal-menn vilja
snúa aftur í Meistaradeildina og til
þess þurfa þeir einmitt svona sigra
en liðinu hefur gengið illa á útivelli
gegn stórliðunum undanfarin ár.
Bale hetja Tottenham
Gareth Bale skoraði sigurmark
Tottenham sem marði Brighton á
heimavelli, 2:1, í lokaleik gærdags-
ins. Walesverjinn sneri aftur til
Tottenham að láni frá Real Madríd í
haust en hann gekk til liðs við
spænska stórliðið fyrir metfé sum-
arið 2013. Hann skoraði 55 mörk í
203 leikjum fyrir Tottenham þar áð-
ur en þetta var hans fyrsta mark á
þessu tímabili.
Englandsmeistarar Liverpool
þurftu að hafa fyrir hlutunum þegar
West Ham kom í heimsókn á Anfield
á laugardaginn. Gestirnir tóku for-
ystuna snemma leiks en heimamenn
sneru taflinu við og að lokum reynd-
ist varamaðurinn Diogo Jota hetjan
er hann skoraði sigurmarkið seint í
leiknum.
Gylfi Þór Sigurðsson bar fyrir-
liðabandið hjá Everton sem laut í
lægra haldi gegn Newcastle á St.
James Park í gær. Íslenski lands-
liðsmaðurinn lék allan leikinn en gat
þó ekki komið í veg fyrir að Everton
tapaði sínum öðrum leik í röð, loka-
tölur 2:1 fyrir Newcastle.
Þá var Jóhann Berg Guðmunds-
son ekki með botnliði Burnley sem
tapaði 3:0 á Turf Moor gegn
Chelsea. Jóhann á við smávægileg
vandamál í kálfa að stríða.
Fyrsti sigur Arsenal í 14 ár
Manchester United hefur enn ekki
unnið leik á Old Trafford í deildinni
AFP
Sigurmarkið Fyrirliðinn Pierre-Emerick Aubameyang fagnar marki sínu
fyrir Arsenal gegn Manchester United á Old Trafford í gærkvöldi.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir og
Sara Björk Gunnarsdóttir skoruðu
báðar í frönsku knattspyrnunni um
helgina. Sara skoraði fjórða mark
Lyon í sannfærandi útisigri á Mont-
pellier en lokatölur urðu 5:0. Skor-
aði Sara þar með í öðrum leiknum í
röð.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir og
Anna Björk Kristjánsdóttir máttu
þola ósigur með Le Havre gegn
Guingamp á útivelli, 2:1. Berglind
skoraði markið og skoraði einnig í
öðrum leiknum í röð. Hefur hún
skorað þrjú í sex leikjum.
Íslensk mörk í
Frakklandi
Morgunblaðið/Eggert
Marksækin Berglind Björg Þor-
valdsdóttir hefur skorað 3 mörk.
Orri Freyr Þorkelsson hefur verið
kallaður inn í íslenska karlalands-
liðið í handknattleik en frá því var
greint í fréttatilkynningu sem HSÍ
sendi frá sér í gær.
Orri Freyr, sem leikur með
Haukum, kemur inn í hópinn í stað
Bjarka Más Elíssonar, leikmanns
Lemgo í Þýskalandi, sem er forfall-
aður að því er segir í tilkynningu
HSÍ. Margar breytingar hafa verið
gerðar á hópnum síðustu daga.
Ísland mætir Litháen í Laugar-
dalshöll í undankeppni EM 2022 á
miðvikudaginn.
Bjarki ekki með
gegn Litháum
Ljósmynd/IHF
Landsliðið Orri Freyr Þorkelsson
fær óvænt tækifæri með landsliðinu.
Spánn
Valencia – Real Madrid ...................... 78:86
Martin Hermannsson skoraði 2 stig og
tók 1 frákast hjá Valencia.
Andorra – Zaragoza ....................... Frestað
Haukur Helgi Pálsson leikur með An-
dorra.
Tryggvi Snær Hlinason leikur með
Zaragoza.
Litháen
Siaulai – Juventus ........................... Frestað
Elvar Már Friðriksson leikur með Si-
aulai.
Þýskaland
RN Löwen – Balingen......................... 36:27
Ýmir Örn Gíslason skoraði 1 mark fyrir
Löwen en Alexander Petersson er meidd-
ur.
Oddur Gretarsson skoraði 5 mörk fyrir
Balingen.
Coburg – Magdeburg.......................... 26:28
Ómar Ingi Magnússon skoraði 5 mörk
fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist-
jánsson 1.
Melsungen – Nordhorn....................... 33:28
Arnar Freyr Arnarsson skoraði 2 mörk
fyrir Melsungen. Guðmundur Þ. Guð-
mundsson er þjálfari liðsins.
Bergischer – Flensburg...................... 25:30
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 5 mörk
fyrir Bergischer en Ragnar Jóhannsson
skoraði ekki.
Leverkusen Blomberg-Lippe ............ 26:27
Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 1
mark fyrir Leverkusen.
B-deild:
Bietigheim – Konstanz ................... Frestað
Aron Rafn Eðvarðsson er markvörður
hjá Bietigheim. Hannes Jón Jónsson þjálf-
ar liðið.
Sachsen Zwickau – Kirshhof ............. 34:25
Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 8 mörk
fyrir Sachsen Zwickau.
Spánn
Cisne – Barcelona................................ 27:43
Aron Pálmarsson skoraði 1 mark fyrir
Barcelona.
Danmörk
Skjern – Aalborg ................................. 28:30
Elvar Örn Jónsson skoraði 7 mörk fyrir
Skjern.
GOG – SönderjyskE ............................ 35:27
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 11 skot í
marki GOG.
Sveinn Jóhannsson skoraði 8 mörk fyrir
SönderjyskE.
Viborg – Vendsyssel ........................... 37:19
Steinunn Hansdóttir skoraði 1 mark fyr-
ir Vendsyssel. Elín Jóna Þorsteinsdóttir
varði 2 skot í marki liðsins.
Noregur
Drammen – Elverum .......................... 22:33
Óskar Ólafsson skoraði ekki fyrir Dram-
men.
Oppsal – Aker .................................... 23:x24
Birta Rún Grétarsdóttir lék ekki með
Oppsal.
Svíþjóð
Varberg – Kristianstad ...................... 29:39
Teitur Örn Einarsson skoraði 3 mörk
fyrir Kristianstad en Ólafur Andrés Guð-
mundsson er meiddur.
Lugi – Skövde ...................................... 27:26
Hafdís Renötudóttir kom lítið við sögu
hjá Lugi.
Sviss
Bikarkeppni, 8-liða úrslit:
St.Gallen – Kadetten............................25:28
Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten.
Belgíski knattspyrnumaðurinn
Eden Hazard batt enda á 392 daga
bið á laugardag er hann skoraði
loks sitt annað mark fyrir Real
Madríd í 4:1-sigri á Huesca í
spænsku deildinni.
Hazard kom spænsku meist-
urunum í forystu í leiknum með frá-
bæru marki, þrumufleyg af 30
metra færi. Real Madríd keypti
Hazard fyrir 100 milljónir evra frá
Chelsea á síðasta ári. Hann hefur
nú skorað tvö mörk í 24 leikjum en
392 dagar liðu á milli markanna.
„Ég var ánægður með að komast
aftur á völlinn og skora fallegt
mark,“ skrifaði Hazard á Twitter-
síðu sinni en hann hefur mikið verið
frá vegna meiðsla undanfarið.
Barcelona gengur mjög illa og er
í 13. sæti með 8 stig eftir sex leiki.
Liðið er átta stigum á eftir Real
sem hefur reyndar leikið sjö leiki.
Barcelona tókst ekki að vinna De-
portivo á útivelli og gerði 1:1 jafn-
tefli. Liðið er án sigurs í fjórum síð-
ustu deildarleikjum. Fyrir tveimur
vikum tapaði liðið fyrir Getafe.
AFP
Mark Sergio Ramos fagnar Eden Hazard í leiknum á laugardaginn.
Beið í nærri 400
daga eftir marki
Anton Sveinn McKee heldur áfram
að fara á kostum í atvinnumanna-
deildinni í sundi í Búdapest í Ung-
verjalandi. Hann lét sér ekki nægja
að setja Norðurlandamet tvo daga í
röð um síðustu helgi heldur bætti
eigið Íslands- og Norðurlandamet í
200 metra bringusundi í 25 metra
laug í gær.
Anton synti 200 metrana á tím-
anum 2:01,65 mínútum, samkvæmt
frétt frá Sundsambandi Íslands.
Anton varð annar í sundinu, á eftir
Þjóðverjanum Marco Koch sem
synti á tímanum 2:00,58. Koch á
næstbesta tíma sem náðst hefur í
greininni í 25 metra laug: 2:00,44
og tími hans um helgina er líklega
sá fjórði besti frá upphafi en um
leið besti tími ársins.
Anton setti eldra Norðurlanda-
metið, 2:01,73, fyrir aðeins átta
dögum eða á fyrsta keppnisdegi
deildarinnar. Hann synti einnig 50
metra bringusund í gær, á tímanum
26,44 sekúndum en Íslandsmetið í
greininni er 26,14. þess má geta að
hann synti 50 metra sundið strax
eftir að hafa synt 200 metra sundið.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í síðustu viku eru aðeins sjö
sundmenn í heiminum sem náð hafa
betri tíma en Anton í 200 metra
bringusundi í 25 metra laug. Anton
er mjög nærri tíma þess sem er í 7.
sæti á þeim lista. Besti tími Rússans
Antons Chupkov er 2:01,57 og er
frá árinu 2018.
Anton Sveinn mun keppa nokkr-
um sinnum í deildinni í Ungverja-
landi og syndir fyrir félag frá To-
ronto í Kanada. Hann æfir hins
vegar að staðaldri í Virginíu í
Bandaríkjunum og undirbýr sig þar
fyrir Ólympíuleikana.
Mögnuð frammi-
staða Antons
Ljósmynd/Simone Castrovillari
Öflugur Anton Sveinn McKee sýnir
hvað í honum býr í Ungverjalandi.
Knattspyrnumaðurinn Albert Guð-
mundsson skoraði tvennu annan
leikinn í röð er hann gerði annað og
þriðja mark AZ Alkmaar í 3:0-sigri
á Waalwijk í hollensku úrvalsdeild-
inni í gærkvöldi.
Íslenski landsliðsmaðurinn skor-
aði tvö mörk á fimmtudaginn var í
4:1-stórsigri á Rijeka frá Króatíu í
Evrópudeildinni og hélt uppteknum
hætti í gær. Hann spilaði allan leik-
inn í liði AZ sem vann sinn fyrsta
deildarleik á tímabilinu en liðið
gerði jafntefli í fyrstu fimm viður-
eignum sínum. Albert er nú búinn
að skora þrjú deildarmörk á leiktíð-
inni en hann skoraði líka í síðasta
deildarleik, 2:2-jafntefli gegn Den
Haag, og hefur því skorað í þremur
leikjum í röð.
Albert með
tvennu annan
leikinn í röð