Morgunblaðið - 10.11.2020, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.11.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 2020 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Bíljöfur – Varahlutir Smiðjuvegi 72 Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir 544 5151 tímapantanir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 Þjónustuaðilar IB Selfossi Getum sótt og skilað bílum á höfuðborgarsvæðinu Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Umhverfisstofnun hefur heimilað Hafnarfjarðarbæ að grafa allt að tíu rannsóknarholur við Krýsuvík- urbjarg í því skyni að kanna þar jarðveg fyrir undirstöður útsýnis- palla sem setja á upp við bjarg- brún. Deiliskipulag fyrir svæðið, sem gerir ráð fyrir mannvirki, hef- ur verið samþykkt og eins hafa lauslegar skissur að pallinum verið gerðar. Á vettvangi landsáætlunar um uppbyggingu ferðamannastaða hef- ur verið samþykkt að styðja fram- kvæmd þessa, en hvenær hafist verður handa liggur enn ekki fyrir, að sögn Helgu Stefánsdóttur, for- stöðumanns á umhverfis- og skipu- lagssviði Hafnarfjarðarbæjar. Með tilliti til landamæra sveitar- félaga er Krýsuvíkursvæðið sem eyja innan marka Hafnarfjarðar- bæjar. Nærliggjandi svæði tilheyra Grindavíkurbæ – og víðfeðmar slóðir þarna í kring mynda Reykja- nesfólkvang. Til stendur að reisa útsýnispall við Hælisvík, vestarlega á Krýsu- víkurbergi, sem er 30-50 m hátt og 6,5 km langt. Annar pallur yrði nokkru austar, þar sem heita Rauðuskriður. Alls verpa 34 teg- undir fugla í berginu og þar eru svartfugl og rita mest áberandi. Margt er því að sjá og skoða á svæðinu og þangað koma þúsundir manna á ári hverju. Gera má svo ráð fyrir að með betri aðstöðu, eins og gert er ráð fyrir í deiliskipulagi, fjölgi gestum á svæðinu. Þannig stendur til að útbúa stæði fyrir alls 35 bíla og fimm rútur nærri Heiðnabergi. Slóðar eru fyrir á svæðinu og verða þeir endurbættir og einnig vegurinn sem liggur frá Suðurstrandarvegi fram að Krýsu- víkurbjargi, en við það verða sett upp skilti og skýrar merkingar. sbs@mbl.is Vilja útsýnispalla á bjargið  Undirbúa nú framkvæmdir á háu Krýsuvíkurbjargi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sjávarhamrar Krýsuvíkurbjarg er langt og hér er horft til vesturs. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- GRÓ, er enn útkallshæf að sögn Ás- geirs Erlendssonar, upplýsingafull- trúa Landhelgisgæslunnar, en flug- virkjar gæslunnar hófu ótíma- bundið verkfall í síðustu viku. Fulltrúar flugvirkja og Landhelgis- gæslunnar ræddust óformlega við í gær en engin tíðindi bárust af þeim fundi í gærkvöldi. Ásgeir sagðist í samtali við mbl.is í gær ekki hafa fréttir að færa um stöðu samningaviðræðna. Þá sagði hann erfitt að segja til um hversu langt væri í næstu yfirferð á TF- GRÓ og í rauninni ófyrirséð hversu lengi hægt yrði að halda henni í þjónustu. „En það er ljóst að drag- ist verkfallið á langinn mun það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir björgunargetuna,“ sagði Ásgeir og bætti við að allir kostir yrðu skoð- aðir ef til þess kæmi. Verkfall gæti haft áhrif á björgunargetu Heimsfaraldur kórónuveirunnar hefur haft í för með sér mikinn kostnaðarauka og tekjutap í rekstri Ríkisútvarpsins. Áætlað tap á rekstri RÚV á þessu ári er 250 milljónir króna, sem má ein- göngu rekja til áhrifa af faraldr- inum. Þetta kemur fram í umsögn Stefáns Eiríkssonar útvarpsstjóra, sem hann hefur sent fjárlaganefnd við fjárlagafrumvarp næsta árs. Fram kemur að þegar farald- urinn skall á fyrr á þessu ári féllu tekjur Ríkisútvarpsins vegna aug- lýsinga umtalsvert. „Er áætlað að tekjufallið á þessu ári verði um 300 [milljónir kr.]. Þá hefur RÚV orðið fyrir umtalsverðum beinum kostnaði vegna Covid-19, m.a. vegna þess hlutverks sem RÚV gegnir samkvæmt landsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu og lögum. Beinn aukinn kostnaður verður hátt í 80 milljónir kr. á þessu ári. Áhrif Covid-19 á rekstur RÚV eru víðtækari vegna þess að fjármagnsliðir hafa hækkað um 90 [milljónir kr.] vegna gengislækk- unar krónunnar auk fleiri atriða. Niðurstaðan er því sú að þessir þættir hafa mikil áhrif á rekstur RÚV á árinu, eða um 470 [millj- ónir kr.] til hins verra,“ segir Stef- án. Lægri tekjur af útvarpsgjaldi Minnir Stefán á að í vor hafi verið ráðist í umfangsmiklar hag- ræðingaraðgerðir sem beindust einkum að yfirstjórn og stjórnend- um RÚV og starfsemi stoðdeilda, dregið hafi verið úr starfsemi með uppsögnum og breytingum á störf- um til að verja eins og kostur er dagskrá og fréttir. Þrátt fyrir það liggi ljóst fyrir að mikið vanti enn á að jafnvægi náist í rekstrinum. „Staðan á næsta ári er svo enn alvarlegri. Áfram er gert ráð fyrir verulegum samdrætti í auglýsinga- tekjum,“ segir í umsögn hans. Í frumvarpinu sé gert ráð fyrir að tekjur af útvarpsgjaldi muni lækka umtalsvert eða um 310 milljónir kr. Árið 2021 muni því í heild vanta yfir 600 milljónir kr. í fjármögnun Ríkisútvarpsins. 10% lækkun tekna á næsta ári verði ekki mætt einungis með enn frek- ari hagræðingu og niðurskurði. „Fyrirsjáanlegt er að mæta þurfi þessu með breytingum og sam- drætti í dagskrárgerð og frétta- þjónustu RÚV.“ omfr@mbl.is Dregur upp dökka mynd  Tekjufall og kostnaðarauki hjá RÚV vegna faraldursins  250 milljóna kr. áætl- að tap í ár  Á næsta ári vantar yfir 600 milljónir  Samdráttur fyrirsjáanlegur Ólöf Helga Hilmarsdóttir, knapi frá unga aldri, kembir hér hestana Ísak og Kötlu í nóvemberveðrinu í Víðidal. „Ég var þarna að hlusta á fyrirlestur í háskólanum og bara að dunda mér við að kemba á meðan. Ég vildi aðeins skipta um umhverfi, ef svo má segja,“ segir Ólöf í samtali við Morgun- blaðið. Þó að veðrið hafi ekki leikið við íbúa höfuðborgar- svæðisins í gær, mánudag, segist Ólöf ekki hafa látið veðrið stöðva sig. „Ég fer á hverjum degi; þegar ég er ekki að læra er ég á hestbaki,“ segir Ólöf. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sinnti Ísak og Kötlu og hlýddi á fyrirlestur um leið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.