Morgunblaðið - 10.11.2020, Síða 6

Morgunblaðið - 10.11.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 2020 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Eftirlitsmaður frá Vinnueftirlitinu fór í tvígang á staðinn til að skoða krana sem féll í Mosagötu í Urriða- holti sl. fimmtudag og var svo gefin út skýrsla sem bannar notkun hans, að því er segir í svari eftirlitsins. Kraninn sem féll á þak húss og að- liggjandi bílastæði var skoðaður síð- ast 8. ágúst 2019, að beiðni eiganda. Kraninn hefur síðan verið færður til innan sama byggingarsvæðis en ekki var óskað eftir skoðun eftir þá fram- kvæmd, að sögn eftirlitsins. Rann- sókn standi yfir. Var fastur í vindbremsu Þá féll byggingarkrani í Hraun- götu í Urriðaholti í janúar sl. „Niðurstaða Vinnueftirlitsins var sú að kraninn hefði að öllum líkind- um verið fastur í vindbremsu … Við reglubundið eftirlit hefur Vinnu- eftirlitið brýnt fyrir eigendum og umráðamönnum krana að þeir fari eftir leiðbeiningum framleiðanda við frágang á krönum í lok hvers vinnu- dags og sérstaklega þegar spáð er hvassviðri. Á námskeiðum Vinnu- eftirlitsins um byggingarkrana eru sérstaklega tekin fyrir þau atriði sem talin eru hafa valdið slysum ásamt þeim atriðum sem eftirlits- menn verða varir við í eftirliti að sé ítrekað ábótavant heilt yfir markað- inn. Þar á meðal hefur verið farið sérstaklega yfir þær öryggiskröfur sem gerðar eru til krana að því er varðar notkun vindbremsu.“ Meirihlutinn rúmlega 10 ára „Almennt er ástand byggingar- krana á markaði talið nokkuð gott og er það reynsla Vinnueftirlitsins að eigendur sinni viðhaldi þeirra. Það er á ábyrgð eigenda krana og ann- arra vinnuvéla og -tækja að gæta að öryggi þeirra og á það ekki hvað síst við þegar þau eldast. Samkvæmt skrám Vinnueftirlitsins er rúmlega helmingur krana hér á landi eldri en 2009-árgerð en fyrir liggur að nokk- ur endurnýjun hefur orðið á krönum á markaði síðan 2017. Tæplega 30% krana á skrá hjá Vinnueftirlitinu eru árgerð 2017 og yngri. Í ljósi þeirra tilvika sem hafa komið upp þar sem kranar hafa fallið hefur Vinnueftir- litið ákveðið að taka málið upp í ný- skipuðu vinnuverndarráði í mann- virkjagerð þar sem sitja fulltrúar aðila vinnumarkaðarins í mann- virkjagerð ásamt fulltrúum Vinnu- eftirlitsins. Markmið vinnuverndar- ráðsins er að koma með tillögur að heildrænni áætlun um leiðir til að bæta vinnuverndarstarf í starfs- greininni. Að því er varðar öryggi krana verður skoðað hvort ástæða sé til að taka upp sérstakar skoðanir þegar kranar verða 10 ára og eldri eða hvort grípa eigi til annarra að- gerða að því er þá varðar.“ 54% krana árgerð 2009 og eldri – Hvernig hefur meðalaldur krana þróast síðustu ár? „Samkvæmt upplýsingum úr skrá Vinnueftirlitsins eru tæplega 54% krana árgerð 2009 og eldri og 46% eru yngri. Þess ber að geta að tæp- lega 30% krana eru árgerð 2017 og yngri.“ – Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins var reglugerð um ástand byggingarkrana í smíðum. Ef svo er, hvenær er hennar að vænta? „Það hefur verið í skoðun hvort taka eigi upp sérstakar skoðanir þegar kranar eru 10 ára og eldri og mun sú vinna halda áfram í vinnu- verndarráði í mannvirkjagerð.“ Kranaskoðun í endurskoðun Morgunblaðið/SES Mosagata Kraninn féll á þak hússins og yfir bílastæði á fjærhliðinni.  Til skoðunar að auka eftirlitið Alls bárust 30.094 gildar undir- skriftir í undirskriftasöfnun á síð- unni 39.is sem lauk á sunnudags- kvöld. Fólk skrifaði nöfn sín til að hvetja til aðgerða til að setja geð- heilsu í forgang. Grímur Atlason, framkvæmda- stjóri Geðhjálpar, segir að undir- skriftalistinn verði afhentur stjórnvöldum síð- ar í vikunni. „Það er gríðar- lega góður árang- ur þegar 12% þjóðarinnar, eldri en 18 ára, skrifa undir áskorunina,“ sagði Grímur. „Við leggjum til níu aðgerðir og höfum birt þær á síðunni 39.is.“ Talan 39 er fjöldi þeirra sem tóku líf sitt hér á landi í fyrra. Grím- ur segir að því miður sé útlit fyrir að fjöldinn verði talsvert mikið meiri á þesu ári. „Lögreglan setti fram tölur fyrir lok ágúst og þá var fjöldi sjálfsvíga orðinn 30 en hafði verið 18 á sama tíma í fyrra. Það var greint frá þessu á fundi hjá landlækni en þess ber að geta að þetta eru ekki staðfestar töl- ur úr dánarmeinaskrá. Þetta kemur heim og saman við það sem við höf- um heyrt,“ sagði Grímur. „Erfiðleik- arnir vegna faraldursins hafa áhrif á geðheilsu fólks. Við eigum að hætta að fela fjölda sjálfsvíga heldur horf- ast í augu við töluna og ræða vernd- andi þætti geðheilsu.“ Grímur segir að hætt sé við að margir 16-19 ára nemendur flosni upp úr námi vegna faraldursins. Brottfallið sé mjög dýrt samfélaginu og slæmt fyrir þau sem hætta námi. Unga fólkið fái hvergi vinnu, enda mikið atvinnuleysi, og það komist lít- ið áfram vegna skorts á menntun. Þetta ástand geti m.a. hækkað ör- orkutölur framtíðarinnar og það sé samfélaginu miklu dýrara heldur en að taka strax á vandanum. Grímur segir að augu fólks séu að opnast fyrir mikilvægi góðrar geðheilsu. „Það að huga að geðheilsunni er ekki síður mikilvægt en að stunda heilbrigða lifnaðarhætti almennt. Geðheilsan er svo dýrmæt og það skiptir svo miklu að rækta hana. Kórónuveirufaraldurinn hefur gert það að verkum að fólk áttar sig á þessu,“ sagði Grímur. Hann sagði að líkamsrækt væri að vissu leyti líka geðrækt því líkamleg heilsa og atriði eins og að fá nægan svefn, nærast vel, fara almennt vel með sig og að vera í samskiptum við annað fólk og að láta sér annt um það hefði beinlín- is áhrif á geðheilsuna. Hann sagði mikilvægt að hvetja fólk til tengsla- myndunar við aðra frá unga aldri og að kenna öllum að hlúa að geðheils- unni og að gæta að henni alla ævi. gudni@mbl.is Teikn eru um að sjálfs- vígum sé að fjölga  Rúmlega 30 þúsund skrifuðu undir áskorun á 39.is Morgunblaðið/Hallur Már 39.is Taldar eru upp níu aðgerðir til að setja geðheilsu í forgang. Undir- skriftasöfnun lauk í fyrravöld og verður listinn afhentur stjórnvöldum. „Þörfin fyrir starfsemi okkar eykst stöðugt,“ segir Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Píetasamtak- anna, sem sinna fræðslu- og forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfskaða. Í október sl. leituðu alls 174 til samtakanna eftir aðstoð í alls 416 viðtölum og símtöl til samtakanna voru 418. Í þessum sama mánuði í fyrra voru viðtölin 186 við 97 manns. „Auðvitað er nærtækt að segja að Covid-19 valdi þessum aukna þunga og vissulega líður mörgum illa á und- arlegum tímum. Hitt má líka hafa í huga að þjónusta sú sem hér er í boði verður æ fleirum þekkt og fólk virð- ist almennt tilbúnara til að leita sér aðstoðar.“ Hjá Píetasamtökunum starfa í dag sálfræðingar, félagsráðgjafar og iðjuþjálfi og læknir, allt fagfólk sem hefur menntun og reynslu í því að aðstoða fólk sem glímir við andlegar áskoranir. „Nálg- unin er fagleg og um leið margt öðruvísi en hjá öðrum stofnunum sem eru á sömu slóðum og við. Í fyrra komu til okkar og leituðu aðstoðar 316 manns og það sem af er ári hafa hingað komið 644,“ tiltekur Kristín. Hún segist fagna mikilli umræðu um andlega heilsu þjóð- arinnar og forvarnir gegn sjálfsvígum, sem auki skiln- ing á máli sem margir styðji við. Æ fleiri leita til Píetasamtakanna Morgunblaðið/Golli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst fjölda innbrota í Sunnusmára í Kópavogi í síðasta mánuði. Um var að ræða innbrot í bæði geymslur og hjólageymslur og stálu þjófarnir öllu steini létt- ara, m.a. reiðhjólum, matvælum og húsmunum af ýmsu tagi. „Í fyrstu var á litlu að byggja við rannsókn málsins, en með þrautseigju og útsjónarsemi tókst lögreglu að komast á slóð hinna óprúttnu aðila, sem reyndust vera tveir karlar á fertugsaldri, en þeir hafa báðir játað sök. Fram- kvæmdar voru húsleitir í þágu rannsóknarinnar og lagt hald á mikið af þýfi. Undanfarið hefur verið unnið að því að koma hlut- unum aftur í réttar hendur, en eitthvað af þýfinu hafði þegar verið selt á sölusíðum á netinu,“ segir í dagbók lögreglunnar. Hvetur lögreglan fólk til að sýna árvekni þegar keyptir eru hlutir á sölusíðum á netinu, t.d. að seljandi sýni kvittun fyrir vör- unni. Upplýsa fjölda inn- brota í Kópavogi Kristín Ólafsdóttir Grímur Atlason Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.