Morgunblaðið - 10.11.2020, Page 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 2020
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
UMFERÐAREYJAR
Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki
Henta vel til að stýra umferð,
þrengja götur og aðskilja akbrautir
Til eru margar tegundir af skiltum,
skiltabogum og tengistykkjum sem
passa á umferðareyjarnar.
10. nóvember 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 137.75
Sterlingspund 180.75
Kanadadalur 105.33
Dönsk króna 21.949
Norsk króna 14.968
Sænsk króna 15.898
Svissn. franki 153.08
Japanskt jen 1.3332
SDR 196.07
Evra 163.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 197.1272
Hrávöruverð
Gull 1947.95 ($/únsa)
Ál 1891.5 ($/tonn) LME
Hráolía 40.63 ($/fatið) Brent
viðráðanlegt. Um leið myndi tekjustreymið
ekki raskast hjá sveitarfélögum. Auðvelt er að
útfæra þessa leið og ég tel að það sé vilji hjá
ríkinu til að þetta geti orðið lausn. Lánasjóður
sveitarfélaga er nógu öflugur en mögulega
þyrfti að koma til ríkisábyrgð til sjóðsins til að
liðka fyrir þessari útfærslu. Þetta er allt fram-
kvæmanlegt innan núverandi kerfis og kallar
ekki á mjög róttækar breytingar,“ segir Krist-
ófer.
Nái til allt að tíu ára
Lagt er til að sveitarfélögin fái heimild til að
veita atvinnurekendum heimild til að fresta
greiðslu fasteignagjalda sem stofnað er til á
árunum 2020-2022 til allt að tíu ára.
Með þessari útfærslu yrði gengið lengra í að
fresta greiðslum en löggjafinn samþykkti sl.
vor (lög 25/2020) með breytingu á ýmsum lög-
um til að mæta efnahagslegum áhrifum farald-
ursins. Samkvæmt 14. grein laganna var gjald-
endum fasteignaskatta, sem glíma við
tímabundið tekjufall, heimilt að óska eftir
frestun á allt að þremur greiðslum fasteigna-
skatts sem eru á gjalddaga 1. apríl 2020 til og
með 1. desember 2020. Að mati FHG og SAF
ber löggjöfin með sér að löggjafinn hafi talið að
vandinn yrði tímabundinn.
Frestað til lengri tíma
Önnur frestunarleiðin sem samtökin leggja
til er sögð lík leiðinni sem samþykkt var sl. vor.
Með henni yrði heimilt að fresta fasteigna-
skatti árin 2020-2022 til lengri tíma. Til dæmis
þannig að hann myndi leggjast á fasteigna-
gjöld árin 2023-2028.
„Þá myndi koma inn lagaheimild sem myndi
mæla fyrir um að þrátt fyrir ákvæði 7. gr. lag-
anna þá fylgir fasteignaskatti vegna áranna
2020-2022 lögveð í fasteign þeirri sem hann er
lagður á og skal hann fylgja lögveði í fimm ár.
Sú lagaheimild sækir sér fyrirmynd í lögum 6/
2009 en þá var lengt í lögveðum í fasteign í
fjögur ár í stað tveggja fyrir árin 2008 til
2010,“ segir í bréfi samtakanna til sveitarfélag-
anna.
Tekjufall næstu sjö mánuði
Spurður um horfur fram að næsta sumri
segir Kristófer ekki hægt að reikna með því að
þessir mánuðir verði tekjuberandi. Staðan sé
almennt þung hjá mörgum hótelum.
„Hver og einn er að semja við sinn banka og
horfa á til hvaða aðgerða ríkisstjórnin hyggst
grípa til. Nú er þingið búið að afgreiða sk.
tekjufallsstyrki og ríkisstjórnin hefur kynnt
hugmyndir um viðspyrnustyrki. Við höfum
reifað þann möguleika að hlutabótaleiðin verði
framlengd til næsta sumars. Menn eru að átta
sig á því að faraldurinn er miklu þyngri og
langvinnari en reiknað var með. Ég held að
menn verði að vera þakklátir ef þeir fá eitthvað
út úr næsta sumri. Ég veit ekki um neinn sem
gerir ráð fyrir að það verði komin alvöruhreyf-
ing fyrr en næsta sumar,“ segir Kristófer.
Kristófer á og stýrir Miðbæjarhótelum
(CenterHotels).
Hann segir 20-30% starfsmanna fyrirtækis-
ins á hlutabótum. Án þessara bóta væri hlutfall
starfandi mun lægra.
Mikil óvissa í spánum
Ólafur Torfason, stjórnarformaður Íslands-
hótela, kveðst ekki reikna með mörgum ferða-
mönnum fyrr en 2022. Samkvæmt einni spánni
komi 1-1,5 milljónir erlendra ferðamanna á
næsta ári en slíkar spár séu í raun út í bláinn.
„Við viljum hafa vaðið fyrir neðan okkur og
frekar hafa þetta dekkra en ljósara,“ segir
Ólafur.
Hann segir hótelin hafa óskað eftir því að
hlutabótaleiðin verði framlengd fyrir starfs-
fólk hótela. Rætt hafi verið um að æskilegt
væri að bæturnar væru 80% af launum.
Leggja til skuldabréfaleið
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Við Hlemm CenterHótel Miðgarður er með 170 herbergi. Það var opnað í tveimur áföngum.
Hótelkeðjurnar leggja til að fasteignagjöldum verði frestað með útgáfu skuldabréfa til margra ára
Gera ekki ráð fyrir umtalsverðum tekjum næstu sjö mánuði Óskað eftir hlutabótum í lengri tíma
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fulltrúar stærstu hótelkeðja landsins leggja
til að sveitarfélögunum verði heimilað að fresta
fasteignagjöldum fyrirtækjanna. Þá ýmist með
útgáfu skuldabréfa eða með því að frestaðar
skattgreiðslur bætist við fasteignagjöldin yfir
nokkurra ára tímabil.
Kristófer Oliversson, formaður Fyrirtækja í
hótel- og gistiþjónustu (FHG), segir FHG og
Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hafa kynnt
þessar leiðir í bréfi til
sveitarfélaganna.
„Við fengum SAF til liðs
við okkur að skrifa bréf til
sveitarfélaganna. Fyrsta
krafa okkar var að óska eft-
ir því að fasteignagjöldin
verði felld niður á tímum
veirunnar. Til vara lögðum
við fram þá tillögu, af því að
við vitum að sveitarfélögin
hafa ekki mikið aflögu, að
fasteignagjöldunum verði
dreift með löngu skuldabréfi,“ segir Kristófer
en hann starfaði eitt sinn sem sérfræðingur í
fjármálum sveitarfélaga.
Lánað með veði í fasteign
Hugmyndin sé að Lánasjóður sveitarfélaga
láni sveitarfélögunum fjárhæð sem samsvarar
ógreiddum fasteignagjöldum. Skuldabréf yrði
svo gefið út á hvert fyrirtæki í gistiþjónustu
með lögveði í þeirri fasteign sem fasteigna-
skatturinn fylgir. Sú leið kalli á lengingu í lög-
veði fasteignaskatta með hliðstæðri lagasetn-
ingu og gripið var til eftir efnahagshrunið. Þá
hafi með lögum 6/2009 verið lengt í lögveðum í
fasteign í fjögur ár í stað tveggja ára fyrir árin
2008-2010.
„Kjörin á skuldabréfunum yrðu að vera
mjög hagstæð og spegla vexti Lánasjóðs sveit-
arfélaga. Þannig yrðu vextirnir í flestum til-
vikum vel innan við 1%. Ef sú vaxtaprósenta
gengi áfram til okkar félagsmanna yrði þetta
Kristófer
Oliversson
STUTT
● Þrír núverandi
hluthafar í Skelj-
ungi, sem fara
samanlagt með ríf-
lega 36% hlut í
félaginu, hafa
komið á fót sam-
starfi sín í milli og
hefur með því
skapast skylda á
þeim til að gera
öðrum hluthöfum
yfirtökutilboð. Hyggjast hluthafarnir í
því skyni leggja eign sín í Skeljungi inn
í nýstofnað félag sem nefnist Strengur.
Félögin eru 365 sem er í eigu Ingi-
bjargar Pálmadóttur. Stjórnarformaður
Skeljungs er Jón Ásgeir Jóhannesson,
eiginmaður hennar. Þá félagið RES 9
sem er í eigu Sigurðar Bollasonar og
Nönnu Bjarkar Ásgrímsdóttur og fé-
lagsins No. 9 Investments Limited.
Þriðja félagið er RPF sem er í eigu Þór-
arins A. Sævarssonar, stjórnarmanns í
Skeljungi, og Gunnars Sverris Harð-
arsonar. Samkvæmt yfirlýsingu um
samstarf ofangreindra aðila hyggst
Strengur gera hluthöfum tilboð um
kaup á hlutum þeirra á genginu 8,315
kr. á hlut sem var 6,6% yfir lokagengi
viðskipta í liðinni viku. Bréf Skeljungs
hækkuðu um 6,8% í viðskiptum gær-
dagsins og standa nú í 8,33 krónum á
hlut. Er markaðsvirði félagsins 16,5
milljarðar króna og verði af yfirtökunni
mun það fela í sér kaup á bréfum fyrir
allt að u.þ.b. 10 milljarða króna.
Strengur vill eignast
Skeljung að fullu
Ingibjörg
Pálmadóttir
● Hlutabréf flestra félaga hækkuðu
mikið í Kauphöll Íslands í gær í kjölfar
jákvæðra tíðinda af þróun bóluefnis
sem Pfizer hyggst beita gegn kórónu-
veirunni. Var þróunin á sömu lund í
flestum kauphöllum austanhafs og
vestan.
Mest hækkuðu bréf Icelandair Group
eða um 22,2% í tæplega 260 milljóna
viðskiptum. Þá hækkuðu bréf Eikar
fasteignafélags um 9,6% í 231 milljónar
viðskiptum. Mest voru viðskipti með
bréf Festar sem hækkuðu um 2,8% í
612 milljóna viðskiptum.
Hin mikla sigling á flestum félögum
olli því að úrvalsvísiatalan hækkaði
um 4,3% og stendur í 2.351 stigi.
Bjart yfir hlutabréfum
vegna frétta af bóluefni