Morgunblaðið - 10.11.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.11.2020, Blaðsíða 14
SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Lagt er til í frumvarps-drögum fjármála- og efna-hagsráðuneytisins að ein-staklingum verði heimilt að draga einstaka fjárframlög til lög- aðila sem starfa til almannaheilla frá skattskyldum tekjum. Að hámarki 350 þúsund kr. á hverju ári og að lág- marki má framlagið eða gjöfin þó ekki vera lægri en tíu þúsund kr. Í frumvarpsdrögunum, sem hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda, eru settar fram tillögur um að lög- festir verði ýmiss konar skattalegir hvatar fyrir þá lögaðila sem starfa til almannaheilla og falla undir svo- nefndan þriðja geira. Jafnframt verði auknir hvatar lögfestir fyrir gefendur slíkra framlaga, gjafa eða styrkja. Nokkuð rúm skilgreining er á því hvaða starfsemi til almannaheilla geta fallið hér undir, s.s. mannúðar- og líknarfélög, íþróttafélög, æsku- lýðs- og menningarmálastarfsemi, björgunarsveitir, vísindastarfsemi og trú- og lífsskoðunarfélög. Fyrirtækjum og öðrum lög- aðilum og einstaklingum sem stunda atvinnurekstur hefur verið heimilt að draga framlög og gjafir til kirkju- félaga, líknarstarfsemi, menningar- mála, stjórnmálaflokka og vísinda- legra rannsóknarstarfa frá tekjum, þó aldrei meira en 0,75% af tekjum af atvinnurekstrinum. Lagt er til að þessi frádráttarheimild verði hækkuð í 1,5%. Meðal annarra breytinga sem eiga að örva skattalega hvata eru til- lögur um að lögaðilar sem starfa til almannaheilla verði undanþegnir tekjuskatti af tilgreindum fjármagns- tekjum og undanþegnir staðgreiðslu skatts á tilgreindar fjármagnstekjur. Ennfremur verði lögum um erfða- fjárskatt breytt og kveðið á um að ekki skuli greiða erfðafjárskatt af gjöfum og framlögum til aðila sem starfa til almannaheilla. Frumvarpsdrögin byggjast að miklu leyti á tillögum starfshóps um skattalegt umhverfi þriðja geirans, sem kynntar voru 3. febrúar sl. Ljóst er að skattalegir hvatar geta haft veruleg áhrif á framlög til þessarar starfsemi. Þegar hlutfallið sem lögaðilar mega draga frá tekjum vegna gjafa var hækkað í 0,75% í jan- úar 2016 vegna tekna á árinu 2015, hækkuðu framlögin í kjölfarið. Yfirlit frá Skattinum sem fylgir frumvarps- drögunum sýnir að gjafir og framlög hækkuðu þá milli ára um tæpan millj- arð og fóru í rúma 3,7 milljarða á árinu 2015. Skatttekjur gætu minnkað um tvo milljarða á ári Breytingar eru ennfremur lagð- ar til á skilgreiningu hugtaksins al- mannaheill í drögunum og fram kem- ur í umfjöllun um framlög fyrirtækja að lögð er til sú breyting að frádrátt- arheimildin taki ekki til stjórnmála- flokka eins og nú er samkvæmt gild- andi lögum. Fastlega má búast við að ein- staklingar muni notfæra sér þessa skattalegu hvata til frádráttar verði heimildin lögfest, sem hafi umtals- verð áhrif á tekjur félaga sem vinna að almannaheill af gjöfum og styrkj- um. Hjá Landsbjörg komu t.d. 44% allra móttekinna styrkja og framlaga á árinu 2018 frá einstaklingum. Fjármálaráðuneytið metur það svo að tekjutap ríkssjóðs af heimild einstaklinga til að draga framlögin frá skattskyldum tekjum gæti orðið 500 milljónir á ári og ef heimild lög- aðila til frádráttar verður hækkuð geti skatttekjurnar lækkað um 800 milljónir á ári. Heildaráhrif allra þeirra ívilnana sem lagðar eru til gætu lækkað skatttekjur ríkisins um tvo milljarða á ári. Geti dregið gjafir til almannaheilla frá skatti Gjafir og framlög tekjuárin 2013-2018 Gjafir og framlög atvinnurekstraraðila til almannaheilla, m.kr. Gjafir og framlög atvinnurekstraraðila til stjórnmálaflokka, m.kr. 150 120 90 60 30 0 4.000 3.000 2.000 1.000 0 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Heimild: Skatturinn 2.571 2.760 3.706 3.380 3.732 3.716 140 60 81 67 60 74 14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Um liðna helgivar lands-fundur Sam- fylkingarinnar hald- inn – rafrænt að sjálfsögðu – en með honum er öðrum þræði ætlað að slá tóninn í aðdraganda Alþingis- kosninga á næsta ári. Það olli því nokkrum vonbrigðum hversu daufleg stefnumótun landsfund- arins var, sem kann að vera ein ástæða þess hve litla almenna eftirtekt hann vakti. Þar var sam- þykkt stjórnmálaályktun, ekki ýkja löng eða flókin, þar sem megináherslurnar voru á efna- hagsviðnám vegna afleiðinga kór- ónuveirunnar, en jafnframt var þar stuttlega minnst á loftslags- málin og stjórnarskrármál. Greining landsfundarins á að- steðjandi vanda í efnahags- og at- vinnulífi þjóðarinnar er ágæt, en sker sig ekki heldur úr því, sem aðrir hafa haft um hann að segja. Lausnirnar koma þó jafnvel enn minna á óvart, sem í stuttu máli eiga að felast í stórkostlega aukn- um umsvifum og afskiptum hins opinbera í atvinnulífi. Það sér hver maður í hendi sér, að slík lausn er ekki sjálfbær, stjórnvöld tefla nú þegar á tæpasta vað í þeim efnum og fráleitt að auka enn frekar á umsvif hins opin- bera, einmitt á þann hátt sem erf- iðast myndi reynast að vinda ofan af þegar við vinnum bug á far- sóttinni. Hitt var þó e.t.v. merkilegra, þótt ekki hafi það hlotið athygli heldur, að í ályktuninni er tekið undir kröfu undirskriftasöfnunar um að stjórnarskrártillögur Stjórnlagaráðs verði lögfestar strax. Heiða Björg Hilmisdóttir varaformaður Samfylkingarinnar hnykkti á þessu með þeim rökum helstum, að í tillögunum væri kveðið á um meira sjálfstæði sveitarfélaga. Það er sjálfsagt að benda vara- formanninum og borgarfulltrúan- um á það, að í núgildandi stjórn- arskrá er skýrt kveðið á um að „sveitarfélög [skuli] sjálf ráða málefnum sínum eftir því sem lög ákveða“. Það er því greið leið til þess að auka sjálfstæði sveitar- félaga eða eftir atvikum minnka það með einfaldri lagasetningu. Hitt er beinlínis hlægilegt, að sjá borgarfulltrúa meirihlutans í Reykjavík kalla eftir meira sjálf- stæði sveitarfélagsins í sama mund og borgarstjóri Samfylk- ingarinnar knýr dyra hjá fjárlaganefnd með betlistaf sín- um eftir að hafa gersamlega misst af langvinnasta og mesta góðæri Íslandssögunnar. Þrátt fyrir að stefnumótun landsfundarins hafi ekki hlotið mikla athygli, þá fór meira fyrir kosningum í helstu embætti flokksins, en þar var forystan endurkjörin þótt hún hafi ekki beinlínis verið leiðandi afl í stjórnarandstöðu eða stjórn- málum almennt. Logi Einarsson formaður var sjálfkjörinn á ný, en Heiða Björg hélt varaformanns- stólnum, sem Helga Vala Helga- dóttir alþingismaður bauð sig fram á móti henni í. Það var þó athygl- isvert í aðdraganda landsfundarins raf- ræna, að frambjóð- endur í varafor- mannsembætti lögðu þar mikla áherslu á að flagga stuðningsmönnum sínum, m.a. fólki eins og Andra Snæ Magna- syni rithöfundi, Illuga Jökulssyni blaðamanni, Óttari Proppé, fv. ráðherra Bjartrar framtíðar, og Sóleyju Tómasdóttur, fv. borg- arfulltrúa vinstrigrænna, sem ekki er víst að allir hafi áttað sig á að væru flokksbroddar í Samfylk- ingunni. Hitt var þó ekki minna athyglisvert hve fáir kjörnir trúnaðarmenn flokksins gáfu sig upp í þessari styrkleikamælingu. Ekki einn einasti þingmaður flokksins og ekki borgarstjóri heldur. Aðeins tveir borgar- fulltrúar (annar þeirra bróðir fallkandídatsins) og stöku sveit- arstjórnarfulltrúi úti á landi. Eru þessir samstarfsmenn frambjóð- endanna á þingi og í borgarstjórn þó þeir, sem best þekkja til starfa þeirra, visku og kapps, lagni og leiðtogahæfileika. Og höfðu ekk- ert að segja. Það hlýtur að vera skrýtið fyr- ir almenna flokksmenn, að ekki sé minnst á almenna kjósendur, að horfa upp á gervalla flokksfor- ystu Samfylkingarinnar öldungis afstöðu- og áhugalausa um hver gegni næstmikilvægasta embætti flokksins. Hugsanlega hafa samfylkingarmenn verið með hugann við aðrar kosningar. Það var a.m.k. hjákátlegt að fylgjast með samfylkingarfólki tvist og bast fagna kosningasigri Joes Bidens í nánast trúarlegri hrifn- ingu, ekki þá síst orðum hans um að sameina bandarísku þjóðina, græða sárin og vinna með öllum að þjóðarhag. Hér skal ekki lítið gert úr þeirri hugsjón forsetaefn- isins, enda mikilvægt verkefni. Það skaut samt sem áður skökku við, að á sama tíma og Joe Biden var lofsunginn fyrir sáttfýsi sína og samstarfsvilja af helstu for- ystumönnum og málpípum Sam- fylkingarinnar voru þessi sama Samfylking og Logi Einarsson, formaður hennar, beinlínis að boða sundrungu og skautun í ís- lenskum stjórnmálum með því að útiloka samstarf við flokka, sem a.m.k. 35% þjóðarinnar styðja. Það kann að vísu að henta þjóð- inni vel og vera til sáttargjörðar fallið, að Samfylkingin útiloki sig þannig frá velflestu ríkis- stjórnarsamstarfi. En er það samt uppbyggilegt í frjálslyndu lýðræðisþjóðfélagi, að þar séu það ætlaðir jafnaðarmenn (í bland við trúsystkinin í Pírata- flokknum) sem mest ala á skaut- uninni, leggja alla áherslu á að einfalda og niðursjóða stjórn- málin í umgjörðina „við og þau“? Hverjir eru þá popúlistarnir? Hverjir ala þá á öfgunum? Hverj- ir hafna málamiðlun samstarfs- stjórnmála fjölflokkakerfisins? Útiloka samtalið, já, sjálf sam- ræðustjórnmálin?! Þá er lítið eft- ir af erindi jafnaðarmanna. Samfylkingin styður samstarf í Banda- ríkjunum en hafnar því hér á landi} Samræðustjórnmálin G eðhjálp stendur nú fyrir áskorun til stjórnvalda og samfélagsins alls um að setja geðheilsu í for- gang. Félagið stendur fyrir und- irskriftasöfnun í samstarfi við Píeta-samtökin og hefur opnað vefsíðuna www.39.is. Framtak Geðhjálpar er bæði mik- ilvægt og þakkarvert. Ég er sammála því að setja eigi geðheilsu í forgang. Ég hef lagt sérstaka áherslu á að sýna þennan vilja í verki í embætti heilbrigð- isráðherra og á mínum tíma hefur geðheil- brigðisþjónusta verið bætt, til að mynda með auknu fjármagni til málaflokksins og áherslu á aukna fjölbreytni í meðferðarúrræðum. Með ráðningu sálfræðinga í heilsugæslunni og með því að setja á laggirnar geðheilsuteymi í öllum heilbrigðisumdæmum stórbætum við geðheilbrigð- isþjónustu óháð búsetu. Þarna er um að ræða stórátak. Áskorun Geðhjálpar inniheldur níu aðgerðir sem fé- lagið leggur áherslu á að komist til framkvæmda. Að- gerðirnar varða t.d. eflingu heilsugæslunnar, aukinn stuðning og fræðslu fyrir foreldra, að geðrækt verði hluti af aðalnámskrá grunnskóla og samráðsvettvang um geð- heilbrigðismál. Aðgerðirnar sem Geðhjálp nefnir eru í góðum takti við stefnu mína í málaflokknum. Í ráðherratíð minni hefur markvisst verið unnið að eflingu heilsugæslunnar sem fyrsta viðkomustaðar í heilbrigðiskerfinu með fjölgun sálfræðinga og stofnun geðheilsuteyma um allt land. Sál- fræðingar í heilsugæslu um land allt eru nú tvöfalt fleiri en á árinu 2017 og í fjáraukalögum á þessu ári og því næsta hefur verið samþykkt 540 m.kr. tímabundin viðbótarfjárveiting vegna Co- vid-19 til eflingar geðheilbrigðisþjónustu. Sérstakt geðheilsuteymi hefur verið stofn- að með það að markmiði að efla og styrkja geðheilsu foreldra og stuðla að öruggri tengslamyndun barna og unnið er að innleið- ingu geðræktar og forvarnastarfs í leik-, grunn- og framhaldsskólum. Heilbrigðisráðu- neytið hefur fundað reglulega með samráðs- vettvangi geðúrræða á höfuðborgarsvæðingu og sem sérstakt viðbragð við Covid-19 hefur verið sett á fót tímabundið geðráð sem byggir á grundvelli samráðsfunda ráðuneytisins og samráðsvettvangsins. Árum saman hefur verið bent á mikilvægi þess að tryggja geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum. Í lok síðasta árs settum við á laggirnar geðheilsuteymi sem er sérstaklega sniðið að þörfum þess hóps. Það var löngu tímabær ákvörðun sem hefur þegar sannað gildi sitt. Einnig má nefna að í ár ákvað ég að veita Píeta- samtökunum sex milljónir króna til að efla forvarnastarf samtakanna og að tryggja 12 milljóna króna fjármagn fyrir stöðu verkefnastjóra sjálfsvígsforvarna hjá emb- ætti landlæknis út næsta ár. Ég fagna átaki Geðhjálpar og tek undir mikilvægi þess að við höldum áfram að styrkja geðheilbrigðisþjón- ustuna hérlendis. Ég mun halda því áfram. Pistill Aukum geðheilbrigði Höfundur er heilbrigðisráðherra. Svandís Svavarsdóttir STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Í frumvarpsdrögunum um að settir verði skattalegir hvatar vegna framlaga til þeirra sem starfa til almannaheilla er að finna tæmandi lista yfir þá starf- semi sem getur fallið hér undir. Þar er meðal annars um að ræða sjúkra-, umönnunar- og meðferð- arstofnanir, sambýli fyrir fatlaða, björgunarsveitir, háskólasjóði og öldrunarstofnanir. Undir æsku- lýðsstarfsemi fellur einnig ýmis starfsemi og er m.a. tekið fram að geti átt við félög og samtök sem sinna æskulýðsmálum á frjálsum áhugamannagrundvelli og unnt verði líka að nýta skatta- hvata varðandi framlög til menn- ingarmálastarfsemi og er þá til- tekin íþróttastarfsemi, bygging skólahúsa „o.fl. sem til menning- armála heyrir“, eins og segir í skýringum. Öll sú starfsemi sem hvatarnir snúa að þarf að vera skráð á opinni almannaheilla- félagaskrá Skattsins. Á opinni skrá Skattsins STARFA AÐ ALMANNAHEILL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.