Morgunblaðið - 10.11.2020, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 10.11.2020, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 2020 Frumvarpsdrög um auðlindaákvæði í stjórnarskrá voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 2019. Í ákvæðinu felast tvö meginatriði, sbr. grein sem birtist þann 2. nóv- ember sl. Annars vegar að náttúruauðlindir og landsréttindi sem ekki eru háð einkaeignar- rétti verði engum feng- in til eignar eða varanlegra afnota. Hins vegar að lög skuli kveða á um gjaldtöku fyrir heimildir til nýtingar auðlinda ríkisins í ábataskyni. Það er vandasamt að afmarka hvað telst auðlind. Það birtist t.d. í þessari í umfjöllun frumvarpdraganna: Löggjöf um nýtingu sólar- og vind- orku þarf á hverjum tíma að taka mið af eignarrétti fasteignareiganda, um- hverfissjónarmiðum, orkustefnu o.fl. Á meðan um ótakmarkaða auðlind er að ræða sem kallar ekki á stýringu aðgangs er vandséð að ákvæði um þjóðareign á náttúruauðlindum hafi bein áhrif. Mörk auðlinda og hluta náttúrunn- ar sem eru grundvöllur auðlinda eru ekki skýr. Einnig þarf að gæta að mörkum auðlinda sem háðar eru einkaeignarrétti gagn- vart öðrum auðlindum sem fullveldisréttur rík- isins nær til. Auðlinda- ákvæðið virðist byggjast á þeirri hugmynd að af- dráttarlaus skil séu þar á. Svo er ekki heldur er inntak eignarréttar háð breytingum. Í dómi Hæstaréttar í máli nr. 645/2006 var fjallað um hugtakið auð- lind. Málið varðaði það hvort jarðefni sem kæmi innan úr jarðgöngum væri auðlind sem greiða skyldi landeiganda fyrir. Ljóst þótti að verðgildi efnisins eftir nám væri einungis lítið brot af kostn- aði við að vinna það. Verðgildi efnis í jörðu var því ekkert og það taldist ekki auðlind í skilningi laga. Málið sýnir að tæknileg atriði, vinnslu- kostnaður og verð á afurð, afmarkar umfang auðlindar sem háð er einka- eignarrétti. Þá getur ný tækni eða ný eftir- spurn eftir afurðum beinlínis skapað nýjar auðlindir. Nefna má nýtingu vindorku eða bindingu kolefnis. Slík starfsemi hefst á landi háð einkaeign- arrétti en er í ákveðnu löggjafartóm- arúmi í upphafi. Auðlindin verður til vegna nýrra leiða að nýta almanna- gæði í skjóli einkaeignarréttar. Breytileiki eignarréttar kemur einnig fram með löggjöf sem leggur almennar takmarkanir á eignarrétt- indi, meðal annars á nýtingu auð- linda. Slík löggjöf hefur á síðustu ára- tugum þynnt út eignarrétt landeigenda og gerir ákveðin lands- réttindi óvirk eða háð aukinni hlut- deild hins opinbera við ákvarðana- töku. Auðlindaákvæðið má skilja á þann hátt að auðlindir sem ekki eru háðar einkaeignarrétti við samþykkt þess verði þjóðareign. Ákvæðið frysti inn- tak núverandi eignarréttar yfir auð- lindum sem ekki getur gengið til baka vegna nýja stjórnarskrárákvæðisins. Í öllu falli er ljóst að auðlindaákvæðið verður notað sem rök til að draga úr vernd eignarréttar þegar kemur að nýrri lagasetningu um auðlindir. Síðara efnisatriði ákvæðisins er krafa um skilyrðislausa gjaldtöku ef auðlindir eru nýttar í ábataskyni. Þjóðhagslega virðist æskilegra að þjóðareignir séu nýttar í atvinnu- starfsemi frekar en að umbuna nýt- ingu án verðmætasköpunar. Krafan um skilyrðislausa gjaldtöku felur í raun í sér breytingu á grundvall- arhlutverki ríkisins um að löggjöf stýri nýtingu almannagæða og al- mannarétti í þágu heildarhagsmuna. Slíkt hagsmunamat fer fram án þess að litið sé á atvinnustarfsemi og aðra nýtingu sem andstæða eða eðlisólíka hagsmuni. Siglingar, umferðarréttur um land, veiðar í sjó, skotveiðar í þjóðlendum og nýting niturs úr and- rúmslofti eru dæmi um auðlindanýt- ingu. Sá sem veiðir til eigin neyslu og hinn sem selur aflann sækjast eftir sama ábata, rétt eins ferðamaður á eigin vegum eða í skipulagðri ferð. Aðstæður og þörf til að takmarka al- mannarétt og stýra nýtingu geta verið mjög mismunandi. Þörf á stýr- ingu breytir ekki eðli nýtingar og er óháð því hvort hún er í ábataskyni. Forsendur til gjaldtöku þurfa ekki að haldast í hendur við þörf á stýr- ingu auðlindanýtingar. Dæmin sýna einmitt að takmörkun auðlindanýt- ingar er þörf þegar skerða þarf nýt- ingaheimildir og menn standa frammi fyrir vanda. Gjaldtaka á þeim tímapunkti er þungbær. Illframkvæmanlegt er að afmarka hvenær krafan um skilyrðislausa gjaldtöku á við. Sá vandi birtist m.a. í umfjöllun frumvarpsins um skilgrein- ingu auðlindahugtaksins og óljós tengsl við það hvenær löggjafinn grípur til stýringar. Einnig kemur hann fram í umfjöllun um stöðu al- mannaréttar gagnvart auðlindanýt- ingu, t.d. vegna ferðaþjónustu. Þá verður alltaf verulegt álitamál hve- nær starfsemi telst í ábataskyni. Það virðist óumflýjanlegt að krafan um skilyrðislausa gjaldtöku verði ómark- viss. Hún breytir einnig rótgrónu hlutverki ríkisins að stýra almanna- rétti og aðgangi að almannagæðum á grunni heildarhagsmuna. Fjalla þarf frekar um þýðingu auð- lindaákvæðis gagnvart eignarrétt- arákvæði stjórnarskrár við undirbún- ing málsins. Eyða þarf vafa um hvort ákvæðið stjórnarskrárbindi sósíalísk markmið um að ný verðmæti falli sjálfkrafa til ríkisins. Ákvæðið ætti heima í kafla stjórnarskrár um lög- gjafarvaldið við hlið 40. gr. um ráð- stöfun fasteigna ríkisins og gæti orðast á þessa leið: Náttúruauðlindir og landsréttindi sem ekki eru háð einkaeignarrétti verða engum fengin til eignar eða varanlegra afnota. Auðlindaákvæðið – Breytileiki eignarréttar og hlutverk ríkis vegna almannagæða Eftir Jón Jónsson Jón Jónsson »Krafan um skilyrð- islausa gjaldtöku fel- ur í sér breytingu á grundvallarhlutverki ríkisins að stýra nýtingu almannagæða í þágu heildarhagsmuna. Höfundur er lögmaður. Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur Atvinnuleysi er böl og það er skelfilegt til þess að hugsa hve mikill fjöldi fólks er atvinnu- laus nú um stundir og verst er ástandið í mín- um heimabæ, Reykja- nesbæ, rétt eins og áður þegar krísur ganga yfir. Talandi um atvinnu- leysi og það sem slíku böli fylgir þá mun lausn stjórnvalda aldrei verða sú að velta kreppunni alfarið yfir á almenning, sú aðferðafræði er liðin tíð og það er deginum ljósara að fjölskyldurnar, heimilin, ellilífeyrisþegar og öryrkjar munu aldrei samþykkja slíkt án þess að til verulegrar mótspyrnu komi, ofangreindir hópar fólks eru vel minnugir á það eitt. Það eru kosning- ar til Alþingis á komandi ári og öll tromp eru á höndum ofangreindra hópa; tími réttlætis og jafnaðar er genginn í garð og það ætti öllum kjörnum fulltrúum og þeim sem kalla eftir nýju umboði þjóðarinn- ar að vera orðið ljóst. Minnkandi ráðstöf- unartekjur ásamt óhóf- legu atvinnuleysi minnka getu fólks til framkvæmda og draga þannig úr skatttekjum og möguleikum á sókn. Einmitt þess vegna eiga stjórnvöld að tryggja störfin í stað þess að ganga harðar fram en raunveruleg þörf er í upp- sögnum, slíkar aðgerðir leiða bara til þess að svartsýni eykst, sem svo aftur hefur neikvæð áhrif á allt atvinnulíf og almenning í landinu, sem upplifir bara þunglyndi og eymd í kjölfarið. Enn þann dag í dag lifir fjöldi barna við sára fátækt hér á landi, enn höfum við einstaklinga sem þurfa að lifa undir fátæktarmörkum, hræðsla, ör- vænting, grátur og gnístran tanna er allsráðandi. Þetta er einmitt sú staða sem ofangreindir hópar fólks upplifa í landi allsnægta, Íslandi, þar sem allir eiga að geta haft það skítsæmilegt. Þessu ætlum við að breyta og það mun gerast með samtakamætti þjóð- arinnar því uppgjör er í vændum á nýju ári. Ég hef oft spurt mig þeirrar stóru spurningar um hvað pólitíkin snúist í dag og alltaf komist að sömu niður- stöðu: Stefna stjórnvalda hér á landi er að koma skuldum auðvaldsins (hrunsins) yfir á almenning, rétt eins og gerðist eftir hrun fjármálakerfis- ins. Ég sé fyrir mér að eina leiðin, þ.e.a.s. ef fólk ætlar sér ekki hrein- lega að upplifa gjaldþrot o.fl. slíku tengt, sé að stjórnvöld, bankar og líf- Afskriftir skulda skulu ná yfir okkur öll en ekki bara fáa útvalda Eftir Sigurjón Hafsteinsson » Staðan er því áfram- haldandi óviss og verður meira krefjandi með hverjum deginum sem líður en vonlaus er hún ekki. Sigurjón Hafsteinsson Höfundur er íbúi í Reykjanesbæ. molikarlinn@simnet.is eyrissjóðir afskrifi skuldir í stað þess að bæta á þær. Ég sé fyrir mér af- skriftir um 40% skulda yfir alla lín- una, það er það eina sem gæti hugs- anlega komið okkur út úr þeirri kreppu sem blasir við okkur næstu árin. Ágæta þjóð, þau eru ekki ný af nál- inni slík gylliboð, þessu var lofað eftir bankahrunið þegar öll sund lokuðust og eina í stöðunni var Guð blessi Ís- land! Hver man ekki eftir skjaldborg- inni frægu fyrir heimilin og fjölskyld- urnar og hverjir fengu. Vandamálið er að peningar eru ekki bara ávísun á verðmæti, þeir eru frekar spurning um völd sem vissir aðilar, ættir o.fl., eru ekki tilbúnir að gefa þjóðinni eftir. Raunin er bara önnur í dag: Við al- menningur, þjóðin, getum og ætlum að breyta því viðhorfi á komandi kosningaári því öllum landsmönnum er það orðið kunnugt að allt eru þetta mannanna verk og þau verk virka á báða vegu. Tökum höndum saman á nýju ári 2021, gerum kröfuna skýra: Launa- fólk, fjölskyldur og heimili, ellilífeyr- isþegar og öryrkjar ætla sér ekki að taka skellinn enn eina ferðina vegna þeirra aðstæðna sem nú blasa við með því að taka á sig stighækkandi afborg- anir lána, sem endar bara á einn veg; með gjaldþrotum heimila og fjöl- skyldna þessa lands. Sú tíð er liðin. Staðan er því áframhaldandi óvissa sem verður meira krefjandi með hverjum deginum sem líður en von- laus er hún ekki, það er alveg kristal- tært í mínum huga. Þessi krísa mun reyna á okkur öll en hve lengi hún mun standa er ómögulegt að segja til um. Verum þess vel minnug: Okkur mun takast að sigrast á þessu ástandi og hjólin munu snúast aftur til betri vegar hjá okkur öllum en það gerist ekki ef við tökum ekki öll þátt í um- ræðunni og gerum stjórnvöldum og þeim sem kalla eftir nýju umboði þjóðarinnar á Alþingi 2021 ljóst að okkur er fúlasta alvara með hlutina og við erum eitt teymi almannavarna. Við ætlum að standa vörð fyrir fram- tíðarbúsetu hér á landi, það á jafnt við um fyrirtæki, einstaklinga, heimili og fjölskyldur. Við erum öll í sama liðinu og afskriftirnar skulu ná yfir okkur öll en ekki bara fáa útvalda, rétt eins og raunin hefur verið hjá stjórnvöld- um þessa lands gegnum tíðina. Tökum höndum saman, förum var- lega, sprittum, þvoum hendur og not- um grímur, en númer eitt: Umvefjum hvert annað kærleika, trú og festu fyrir átökin fram undan í að gera Ís- land betra en það er fyrir alla, óháð stöðu og efnahag viðkomandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.