Morgunblaðið - 10.11.2020, Page 20

Morgunblaðið - 10.11.2020, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 2020 ✝ Bjarni Pét-ursson fæddist á Grund í Skorra- dal 30. apríl 1936. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Ísa- fold 29. október 2020. Foreldrar Bjarna voru hjónin Pétur Bjarnason, bóndi og hrepp- stjóri í Skorradal, f. 8.12. 1903, d. 10.12. 1944, og Guðrún Davíðsdóttir bóndi, f. 6.10. 1914, d. 18.10. 1995. Börn Péturs og Guðrúnar eru Guð- rún, f. 1937, Davíð, f. 1939, og Jón, f. 1942. Guðrún átti síðar Áslaugu, f. 1953, með Þorgeiri Þorsteinssyni, f. 26.8. 1902, d. 1999. Eiginkona Bjarna var Magn- ea Kolbrún Sigurðardóttir, Maddí, fjármálastjóri, f. 8.4. 1939, d. 22.7. 2020. Þau giftust 9.11. 1961. Foreldrar Maddíar voru Sigurður Einarsson, f. 29.2. 1908, d. 27.2. 1988, og Guð- rún Gísladóttir, f. 2.5. 1911, d. 30.1. 1994. Börn Bjarna og Maddíar eru: 1) Guðrún, f. 5.12. 1963, gift Melchior Wolfgang Lippisch, f. 16.2. 1950. Barn Guðrúnar og Melchiors er Lea Véný Felice, f. Menntaskólanum á Laug- arvatni. Hann fór til Reykjavík- ur 1955 og stundaði fyrst leigu- bílaakstur hjá Steindóri og stuttu síðar á eigin bíl þar til hann réðst til Iðnaðardeildar Sambandsins sem sölumaður 1957. Bjarni fór til Samvinnu- trygginga 1959 og gegndi þar ýmsum ábyrgðarstörfum áður en hann var ráðinn fulltrúi framkvæmdastjóra Endur- tryggingarfélags Sam- vinnutrygginga 1975 og síðar sem aðstoðarframkvæmdastjóri félagsins. Frá 1. maí 1985 til starfsloka 2006 var Bjarni deild- arstjóri endurtryggingadeildar Sjóvár. Hann var félagi Frímúrara- reglunnar á Íslandi um 57 ára skeið þar sem hann sinnti ýms- um ábyrgðarstörfum samfellt í marga áratugi. Hann var sæmd- ur heiðursmerki Gimli 1979, 50 ára heiðursmerki reglunnar 2001 og heiðursmerki hennar árið 2008. Bjarni spilaði mikið á orgel og harmonikku og hafði unun af lestri, ferðalögum og samverustundum með fjöl- skyldu og vinum. Kistulagning og bálför Bjarna fer fram frá Kapellunni í Fossvogskirkju í dag, 10. nóv- ember 2020, klukkan 11.30. Minningarathöfn og útför Bjarna verður haldin síðar, þeg- ar aðstæður í þjóðfélaginu leyfa það aftur. 18.8. 1992. 2) Pétur, f. 20.12. 1967, kvæntur Brynju Ástráðsdóttur, f. 7.1. 1970. Börn þeirra eru a) Bjarni Þór, f. 20.5. 1991, í sambúð með Bryn- dísi Jónsdóttur, f. 25.10. 1989, og langömmubarn Bjarna er Kolbrún Edda, f. 17.4. 2020, b) Andrea Sif, f. 17.8. 1996, og c) Baldur Ingi, f. 21.3. 2004. 3) Sig- urður, f. 1.12. 1970, kvæntur Dröfn Guðmundsdóttur, f. 20.2. 1973. Börn þeirra eru a) Júlía Kolbrún, f. 7.2. 1999, og b) Jas- mín Eva, f. 27.6. 2005. Heimili Bjarna og Maddíar var lengst af í Holtsbúð í Garða- bæ en þau fluttust 2017 á Sautjándajúnítorg í Garðabæ og 2019 á hjúkrunarheimilið Ísa- fold, einnig í Garðabæ. Bjarni ólst upp á Grund í Skorradal (Borgarfirði). Faðir Bjarna varð bráðkvaddur er hann var einungis átta ára gam- all. Eftir það tók hann að sér að vera elsti karlmaðurinn á heim- ilinu og var alla tíð nátengdur móður sinni og systkinum. Bjarni stundaði nám í Reyk- holtsskóla í Borgarfirði og Það bættist við stjarna á himninum rétt eftir klukkan fimm að morgni 29. október er elsku besti pabbi minn lagði af stað í ferðalagið langa til að hitta mömmu. Aðdragandinn var stuttur en hann var orðinn þreyttur á að vera innilokaður og fá engar heimsóknir í nokkr- ar vikur. Hann saknaði mömmu mikið og er ég viss um að hún sagði honum bara að koma til sín. Pabbi fékk að fara í svefni án þess að vera kvalinn, bara eins og hann hefði viljað. Kvöldið áð- ur sögðum við „góða nótt og Guð blessi þig“ hvort við annað, en í þetta skiptið sagði hann ekki eins og á hverju kvöldi er ég sagði við hann „svo heyrumst við bara aftur annað kvöld pabbi minn“ … „já elskan mín alveg eins og á hverju kvöldi“ … við vissum að hverju stefndi. Ég sakna hans og mömmu endalaust en þau fóru bæði með þriggja mánaða millibili. Þau áttu 59 ára brúðkaupsafmæli í gær, hinn 9. nóvember, og voru búin að vera saman í vel yfir 60 ár. Ég trúi því að þau hafi bara verið búin að ákveða að halda upp á þetta saman. Þú varst tryggur förunautur í lífi mínu og þó að ég væri er- lendis síðustu 37 árin þá leið varla sá dagur að við hringdum ekki hvort í annað og þakka ég innilega fyrir það. Þú passaðir alltaf upp á litlu stelpuna þína og litlu stelpuna hennar. Þú sleppt- ir mér ekki til útlanda 19 ára gamalli bara sí svona. Það fóru mörg kvöld og helgar í fortölur veturinn þar á undan, en er þú loksins skildir að mér yrði ekki haggað snerist þú um 180 gráð- ur og hjálpaðir mér í alla staði sem og að finna húsnæði með vinum þínum í München. Það var óneitanlega gott að koma inn í góða íbúð eftir langt ferðalag til ókunnugs staðar og langt frá sínu fólki. Þú krafðist þess einn- ig að ég fengi mér síma sem var ekki á planinu hjá mér, enda við- bótarkostnaður fyrir budduna. En þér varð ekki haggað og sá ég aldrei eftir því, þó að hvert símtal endaði á „og svo kemurðu beint heim þegar þú ert búin að læra“! Ég lofaði því, en við vor- um síðar ekki alveg sammála um það loforð því ég gat setið á því að ég er að læra eitthvað nýtt á hverjum degi lífsins, en þú meintir víst alltaf bara skólalær- dóm, þó að það hafi aldrei verið sagt. Ég sveik sem sagt ekki lof- orðið eins og þú vissir en það mátti alltaf halda í vonina og enduðu oft símtölin á „ætlarðu ekki bara að fara að koma heim elskan mín“, nú síðast bara fyrir nokkrum dögum! Maður er smá dofinn í þetta skiptið að horfa á eftir báðum foreldrum sínum á þremur mán- uðum og sérstaklega á þessum erfiðu tímum þegar maður fær varla að koma saman með sínum nánustu og syrgja þau. Það er mikilvægt að eiga góða að á svona tímum. Við Lea, dóttir mín, lifum á yndislegum minn- ingum. Við áttum svo góða stund með pabba og afa þrjú saman í sumar, er við sátum og rifjuðum upp gamlar minningar og dutt- um í hláturskast yfir þeim á meðan við gæddum okkur á ís- lenskum pylsum saman. Hvíldu í friði elsku pabbi minn, ég elska ykkur mömmu endalaust og við sjáumst aftur. Þangað til bið ég góðan Guð að vera með ykkur og okkur. Þín Guðrún. Vinur minn og kær frændi er allur. Við sáumst síðast við útför Magneu eiginkonu hans þann 30. júlí 2020. Við lát Maddýjar var sem slökkt væri á lífslönguninni og fátt til að fjörga tilveruna. Þau hjón bjuggu síðustu miss- erin á dvalarheimilinu Ísafold í Garðabæ þar sem vel fór um þau en skorður settar við heimsókn- um vegna heimsfársins. Þau bjuggu á eigin heimili fram und- ir það síðasta og þangað var ætíð ljúft að koma. Kynni okkar Grundarsystkina, Bjarna, Guð- rúnar, Davíðs og Jóns, hafa stað- ið allt frá bernsku og síðar Ás- laugar frá unglingsárum. Það var sumarið 1944 sem ég kom fyrst að Grund, þá sex ára. Við brottför var tekin mynd af þeim glæsilegu hjónum Pétri Bjarna- syni og konu hans Guðrúnu Dav- íðsdóttur og börnum þar sem þau stóðu keik og glöð við heim- reiðina, sól skein í heiði, hárið blakti í sumarblænum og lífið var gott. Fáum mánuðum seinna stóð Guðrún ein uppi ekkja með barnahópinn og allt gjörbreytt, erfið ár fram undan, maka- og föðurmissir sár. Bjarni var elst- ur systkinanna, þá átta ára og tók eðlilega forystu. Það setti mark sitt á hann ævilangt. Eng- um hefi ég kynnst er sýndi slíkt utanumhald um fjölskyldu sína og vini; hann þurfti ætíð að vita að allt væri lagi hjá öllu sínu fólki. Foreldrum mínum sýndi hann einstaka umhyggju, tryggð og hjálpsemi og þess naut ég einnig alla tíð. Ég naut þeirrar gæfu að fá að dveljast ógleym- anleg sumur í sveit á Grund og tryggðaböndin voru hnýtt, síðast á unglingsárum og þá var yngsta systirin komin til sögunnar, dóttir bústjóra Guðrúnar, öð- lingsmannsins Þorgeirs Þor- steinssonar. Bjarni var sérlega glæsilegur ungur maður, hár og spengilegur og ljós yfirlitum og hefur mörg meyja eflaust litið hann hýru auga. Ungur kvæntist hann ástinni sinni, henni Maddý, og þau áttu farsæla samfylgd. Bjarni var hressilegur í fram- göngu og hvarvetna metinn að verðleikum. Það var sérstök reisn yfir Bjarna allt til hins síð- asta og sjá má sem ættarfylgju. Ung byggðu þau hjón sér hús í Garðabæ þar sem fjölskyldan bjó í áratugi. Mörg var ferðin í heimahagana og þar lögð hönd á plóg þegar þurfa þótti. Þau byggðu sér glæsilegan bústað á vatnsbakkanum þar ásamt systkinunum, Guðrúnu og Jóni; þangað var gaman að koma. Grundarræturnar eru sterkar þar sem margir ættliðir í föð- urlegg hafa setið og Davíð tók við óðalinu af Guðrúnu móður þeirra og hefur rekið búið af rausnarskap alla tíð, á seinni ár- um ásamt Pétri syni sínum. Þau Bjarni og Maddý höfðu gaman af að ferðast, fóru oft til Frakk- lands þar sem Guðrún dóttir þeirra býr og lögðust einnig í löng ferðalög, oft með Bænda- ferðum, og voru systkini Bjarna með í för. Þá var skemmtilegt og fróðlegt að heyra af ævintýra- ferðum þeirra heimkomnum, svo sem um Íslendingaslóðir í Kan- ada, siglingu á Volgu og þrammi á Kínamúrnum. Með söknuði kveðjum við Hjalti kæran og traustan vin, margra ljúfra stunda er að minnast og skammt varð milli þeirra hjóna. Við send- um hlýjar kveðjur til barna þeirra, Guðrúnar, Péturs og Sig- urðar, ásamt afkomendum og Grundarfjölskyldunni allri. Bjarna verður sárt saknað. Edda Óskarsdóttir. Það var snemma árs 1985 sem samstarf okkar Bjarna hófst og stóð það í 19 ár án þess að skugga bæri á. Ég hafði árið áð- ur tekið við sem forstjóri Sjóvá- tryggingafélagsins, seinna Sjóvá-Almennar. Mitt fyrra starf fólst í því að sjá um end- urtryggingavernd félagsins og þegar þarna var komið vantaði félagið mann með þekkingu á því sviði til að taka við þeim verk- efnum. Mér var bent á að Bjarni Pét- ursson hefði mikla reynslu í þessum efnum eftir að hafa starfað hjá Endurtrygginga- félagi Samvinnutrygginga um árabil við góðan orðstír, en það félag hafði farið í þrot skömmu áður. Ég fékk Bjarna á minn fund og til þess að gera langa sögu stutta þá var hann ráðinn á staðnum og hófst þar með langt og farsælt samstarf. Bjarni var mjög sterkur kar- akter og gegnheill. Hann var duglegur og fastur fyrir og mað- ur sem talaði enga tæpitungu. Ég fann það strax á ferðalög- um okkar erlendis er við vorum að hitta viðsemjendur félagsins að Bjarni naut virðingar þeirra sem honum kynntust. Hann kom strax að kjarna máls án mála- lenginga og yfirleitt gengu samningaviðræður fljótt og vel fyrir sig með sanngjarnri nið- urstöðu fyrir báða aðila. Það var líka í þessum ferðum að ég upplifði hve sterkt sam- band Bjarni hafði við alla sína fjölskyldu. Hann virtist hringja daglega í þau öll. Hann var sannkallað höfuð fjölskyldunnar. Bjarni var átta ára gamall og elstur fjögurra systkina er faðir þeirra lést. Móðir hans, Guðrún Davíðsdóttir ættuð frá Arn- bjargarlæk, var mikill kvenskör- ungur og náði hún að halda heimilinu á Grund í Skorradal saman þrátt fyrir erfiða tíma og koma börnum sínum til manns. Þessi kraftur náði einnig til Bjarna. Maddý, eiginkonu sína til 59 ára, missti Bjarni fyrir þremur mánuðum og var hennar sárt saknað. Síðustu mánuðir voru Bjarna því mjög erfiðir og þá ekki síst einangrunin sem ástandið í samfélaginu krafðist vegna sóttarinnar er núna herj- ar á þjóðina. Við Birna vottum fjölskyldu Bjarna Péturssonar einlæga samúð okkar og biðjum góðan Guð að blessa minningu hans. Einar Sveinsson. Bjarni Pétursson Ástkær eiginkona mín, mamma, amma og langamma, RAGNHILDUR ANDRÉSDÓTTIR, Ystu-Görðum, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sunnudaginn 8. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Ölver Benjamínsson Óskar Ölversson Þórunn S. Þorsteinsdóttir Benjamín Ölversson Andrés Ölversson Þóra Sif Kópsdóttir Björk Ben Ölversdóttir Björgvin Ölversson Margrét Kolbeinsdóttir ömmu- og langömmubörn Faðir okkar, tengdafaðir og afi, MAGNÚS HALLGRÍMSSON verkfræðingur, lést sunnudaginn 8. nóvember á Landakoti. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hörður Magnússon Linda Börk Þórðardóttir Hallgrímur Magnússon Elín Sigurðardóttir Óskar Magnús Harðarson Ásta Hlíf Harðardóttir Snædís Hallgrímsdóttir Magnús Snær Hallgrímsson Halldís Ylfa Hallgrímsdóttir Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, dóttir og systir, INGIBJÖRG BJÖRGVINSDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Akurhvarfi 7, varð bráðkvödd á heimili sínu miðvikudaginn 4. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Brynjar Stefánsson Tinna Jóhönnudóttir Baldur Freyr Stefánsson Sóldís Dröfn Kristinsdóttir Darri Jökull, Ársól, Sesar Jan, Emiliana Ósk, Elías Orri, Fanney Rán og Sonja Sól Ólína Þorleifsdóttir Hansína Ásta, Þorleifur, Jón Björgvin, Eyþór og Elín Ebba Björgvinsbörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVERRIR I. AXELSSON vélfræðingur, Hæðargarði 29, Reykjavík, lést á Landakoti sunnudaginn 8. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Kristín Sverrisdóttir Ragnheiður Sverrisdóttir Hjalti Hugason Þorsteinn Sverrisson Magnea Einarsdóttir Ólafur Sverrisson Ellen Símonardóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN INGÓLFSDÓTTIR, Skarðshlíð 14, Akureyri, sem lést 3. nóvember, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 13. nóvember klukkan 13.30. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir útförina. Streymt verður frá útförinni á facebookslóðinni jarðarfarir í Akureyrarkirkju, beinar útsendingar. Sérstakar þakkir til starfsfólks Skógarhlíðar fyrir gott atlæti síðustu árin. Ingi Hólmar Jóhannesson María Ingadóttir Daníel Guðjónsson Laufey Ingadóttir Kristján V. Kristjánsson Bryndís Sæunn Ingadóttir Ingibjörg Ingadóttir Bergþór Aðalsteinsson Agnes Ingadóttir Þór Sigurðsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.