Morgunblaðið - 10.11.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.11.2020, Blaðsíða 26
FRAKKLAND Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Framherjinnn Berglind Björg Þor- valdsdóttir er byrjuð að minna á sig í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu með Le Havre en hún gekk til liðs við félagið frá Breiðabliki í byrjun september. Berglind, sem er 28 ára gömul, skrifaði undir tveggja ára samning við franska félagið en hún hefur skorað þrjú mörk í fyrstu sex leikj- um tímabilsins til þessa. Þrátt fyrir góða spilamennsku Berglindar hefur Le Havre, sem er nýliði í efstu deild Frakklands, ekki gengið sem skyldi og er í tólfta og neðsta sæti deildarinnar með fjögur stig, þremur stigum frá öruggu sæti, eftir fyrstu sjö umferðirnar. „Ég vissi að ég væri að fara í mjög sterka deild og fótboltinn hérna hef- ur svo sannarlega staðið undir vænt- ingum,“ sagði Berglind í samtali við Morgunblaðið. „Allir leikir hérna eru gríðarlega erfiðir og maður vissi það svo sem. Ég er mjög sátt í Frakklandi en ætlu mestu vonbrigðin hérna séu ekki þau að við skulum ekki vera með fleiri en fjögur stig eftir sjö leiki.“ Frábær reynsla Stærstan hluta ferilsins hefur Berglind Björg leikið með Breiða- bliki þar sem krafan er að vinna alla þá bikara sem í boði eru. „Ég get alveg viðurkennt að það hefur aðeins tekið á að vera í liði sem er að berjast svona neðarlega í töflunni. Þetta er nýtt fyrir mér og nokkuð sem maður hefur ekki vanist á sínum ferli en á sama tíma frábær reynsla líka. Þetta hefur verið ákveðið bras en á samt sem áður finnst manni við vera búnar að vera óheppnar líka og hlutirnir hafa ekki alveg fallið með okkur. Við höfum verið að fá á okkur mjög ódýr mörk, undir lok leikja, sem er óþolandi og það er eflaust hægt að skrifa eitthvað af þessu á reynsuleysi. Við höfum líka verið óheppnar með meiðsli og fjarveru leikmanna vegna kórónuveirunnar. Við fengum frábæran leikmann í Linu Boussaha frá PSG fyrir tímabilið sem dæmi en hún meiddist í fyrsta leik sem segir kannski ýmislegt um hvernig þetta er búið að vera. Þegar ég horfi til baka eru alla- vega tveir til þrír leikir sem við hefðum bara átt að klára og vinna. Það eru hins vegar lykilmenn að snúa til baka eftir meiðsli á næstu dögum og ég hef fulla trú á því að hlutirnir fari að detta með okkur í næstu leikjum.“ Íslenski varnarmaðurinn Anna Björk Kristjánsdóttir gekk til liðs við Le Havre 18. september en hún kom til félagsins frá Selfossi. Liðstyrkur frá Selfossi „Fyrirliðinn okkar, sem er mið- vörður, sleit krossband rétt fyrir mót og félagið fór því að leita að varnarmönnum til þess að fylla skarð hennar. Sú leit gekk ekkert sérstaklega vel og forráðmenn fé- lagsins komu því að máli við mig og spurðu hvort ég vissi um góðan mið- vörð sem væri á lausu. Mér datt Anna Björk strax í hug enda þekkjumst við mjög vel eftir tíma okkar saman með landsliðinu og PSV í Hollandi. Ég setti mig í samband við Önnu sem var samn- ingsbundin Selfossi en eftir að ég bar þessa hugmynd undir hana í fyrstu gerðust hlutirnir ansi hratt. Hún var sjálf mjög spennt fyrir því að koma út og reyna fyrir sér í Frakklandi og það var frábært að fá hana hingað út. Þetta er frábær deild, gæðin eru mikil í öllum leikj- um, og það er ógeðslega gaman að spila hérna. Okkur hefur báðum gengið vel og fyrir mig sem framherja er alltaf gaman að skora mörk. Það dregur hins vegar mikið úr gleðinni að við séum ekki að vinna leiki og tilfinn- ingin eftir fyrstu leiki tímabilsins er því oft á tíðum frekar skrítin.“ Erfitt fótboltaár Berglind varð Íslandsmeistari með Breiðabliki á dögunum eftir að ákveðið var að hætta keppni á Ís- landsmótinu en hún skoraði tólf mörk í níu deildarleikjum fyrir Blika áður en hún hélt út til Frakklands. „Þetta var mjög skrítið allt saman fyrst þegar ég fékk fréttirnir af því að við værum orðnar meistarar. Ég var nýkomin á hótel í Guingamp í Frakklandi þar sem við vorum að fara að spila deildarleik gegn Gu- ingamp á útivelli. Allt í einu byrjar hamingjuósk- unum að rigna inn í símanum hjá mér og ég fatta ekkert hvað er í gangi. Ég kíki svo á netið og var þá allt í einu orðin Íslandsmeistari, sem var sérstakt. Þetta er búið að vera erfitt fótboltaár og að ná þessu, þótt það hafi verið nokkrir leikir eftir, var frábært. Við vorum búnar að spila tvíveg- is við Val og vinna báða leikina. Ég held þess vegna að það sé alveg sanngjarnt að tala um að við höfum unnið deildina þótt það hefði vissu- lega verið sanngjarnast að klára mótið en það var ekki í boði. Við héldum svo góðan fjarfund, leikmenn, þjálfarar og stjórn, á samfélagsmiðlinum zoom þar sem bikarnum var fagnað og sumarið rifjað upp. Ég var lúmskt fegin að þessu var bara fagnað á zoom því það hefði verið talsvert erfiðara fyrir mig persónulega að vera föst í Frakklandi, vitandi af öllum stelp- unum að fagna með bikarinn í Smáranum. Vonandi getum við fagnað þess- um Íslandsmeistaratitli vel og inni- lega í desember, öll saman, ef að- stæður leyfa,“ bætti framherjinn við í samtali við Morgunblaðið. Óvænt Íslandsmeistari á hóteli í Frakklandi Ljósmynd/Le Havre Mark Berglind Björg Þorvaldsdóttir skorar og kemur Le Havre yfir gegn Paris í Bondoufle í lok september.  Berglind Björg Þorvaldsdóttir hefur farið vel af stað með félagsliði sínu Le Havre  Njarðvíkingurinn Elvar Már Frið- riksson heldur áfram að gera það gott í litháíska körfuknattleiknum en hann var í gær valinn í lið umferðarinnar í efstu deild þar í landi í annað skipti á tímabilinu. Elvar skoraði 21 stig á tæp- lega 36 mínútum en gaf þar að auki tólf stoðsendingar og fimm fráköst í 93:88-sigri Siauliai á Neptunas.  Þýski miðjumaðurinn Hanna Kallmaier hefur framlengt samning sinn við ÍBV um eitt ár. Kallmaier er 26 ára og kom til ÍBV fyrir síðasta tímabil. Hún lék sextán leiki í Pepsi Max- deildinni á síðustu leiktíð og var valin besti leikmaður liðsins af félaginu eftir tímabilið.  Spænski kylfingurinn Sergio García verður ekki með á Masters-mótinu í golfi þar sem hann hefur verið greind- ur með kórónuveiruna. Verður mótið fyrsta risamótið sem Garcia missir af síðan árið 1999 eða í 21 ár. García fann fyrir slappleika eftir að hann missti af niðurskurðinum á Houston Open á PGA-mótaröðinni. Hann fór í próf í kjöl- farið og greindist með veiruna.  Óvíst er hvort Noregur getur haldið EM kvenna í handbolta en strangar reglur um sóttkví í Noregi gera Norð- mönnum afar erfitt fyrir í mótahaldi. Norska ríkisútvarpið, NRK, greindi frá því í gær að leggja þyrfti fram nýjar sóttvarnareglur fyrir EM til að hægt yrði að halda riðla í Þrándheimi eins og til stóð. Reglurnar í Noregi eru harðar og greinist einn leikmaður með veiruna þarf að senda tvö heil lið heim, sam- kvæmt núgildandi reglum. Verði ekki hægt að fá undanþágu frá þeim reglum þarf að öllum líkindum að finna nýjan mótstað í staðinn fyrir Þrándheim en mótið fer einnig fram í Herning í Dan- mörku.  Eiður Smári Guðjohnsen mun að öllum líkindum hætta þjálfun U21 árs landsliðs karla í fótbolta en hann skrif- aði fyrir helgi undir tveggja ára samn- ing við FH og verður hann aðalþjálfari liðsins. „Eðlilegast er að ég muni ekki halda áfram með U21 landsliðið. Hugs- anlega kemur upp önnur staða ef við förum á stórmót og það er hlé á deild- inni hér, þá mætti endurskoða það, en þetta er nokk- uð sem við eigum eftir að ræða og fara yf- ir,“ sagði Eiður við Vísi. Eitt ogannað 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 2020 Fjórir möguleikar eru í stöðunni hvað viðkemur leik Englands og Ís- lands í Þjóðadeild UEFA. Leikurinn á að fara fram samkvæmt áætlum á Wembley-vellinum fræga í London en vegna ferðabanns frá Danmörku til Englands kemur það væntanlega ekki til greina, en Ísland leikur við Danmörku í Kaupmannahöfn þrem- ur dögum fyrr. Sky greindi frá því í gær að enska liðið gæti þurft að gefa leikinn, tak- ist ekki að finna lausn, og yrði ís- lenska liðinu þá væntanlega dæmd- ur 3:0-sigur. Það verður hins vegar að teljast ólíkleg niðurstaða. Sömu- leiðis er ólíklegt að ensk stjórnvöld veiti íslenska liðinu undanþágu til að ferðast frá Danmörku til Eng- lands. Þá er í stöðunni að færa leikinn. BBC greindi frá því að Albanía hefði boðið völl til afnota og enska knatt- spyrnusambandið væri að skoða þann möguleika. Þá kemur einnig til greina að spila leikinn í Grikk- landi, en niðurstaða er væntanleg á næstu dögum. johanningi@mbl.is Fjórir möguleikar í stöðunni hjá Íslandi og Englandi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Landsleikur Ísland og England eiga að mætast á miðvikudag eftir viku. Katar Deildabikarinn, B-riðill: Al-Arabi – Al-Kharitiyath ..................... 2:1  Aron Einar Gunnarsson lék ekki með Al- Arabi þar sem hann er staddur í verkefni með íslenska karlalandsliðinu. Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið.  Al-Gharafa 13 stig, Al-Arabi 11, Al-Ra- yyan 7, Al-Kharitiyath 6, Umm-Salal 5, Al- Ahli Doha 1. KNATTSPYRNA Pólland Kielce – Tarnów .................................. 37:26  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði eitt mark fyrir Kielce, Haukur Þrastarson er meiddur. HANDBOLTI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.