Morgunblaðið - 10.11.2020, Page 28
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tölvuleikurinn Assassin’s Creed:
Valhalla kemur út í dag og fer
leikarinn Guðmundur Ingi Þor-
valdsson með eitt af aðal-
hlutverkum hans, hlutverk vík-
ingsins Sigurd Styrbjornson.
Leikurinn er sá tólfti í Assassin’s
Creed-syrpunni og fylgir eftir leik
sem kom út fyrir tveimur árum,
Assassin’s Creed: Odyssey. Í nýja
leiknum segir af
innrás víkinga í
Bretland árið
873 og sá sem
spilar leikinn
stýrir Eivor, vík-
ingaforingja
nokkrum sem
einnig getur ver-
ið kona, að sögn
Guðmundar, en
Sigurd er bróðir
Eivarar. Leikur-
inn er bannaður leikmönnum und-
ir 18 ára aldri og verður hægt að
spila hann í PC-tölvum, PlaySta-
tion 4 og 5, Xbox One, Xbox Ser-
ies X og S og Stadia.
Gríðarleg vinna býr að baki
leiknum sem Ubisoft, eitt helsta
tölvuleikjafyrirtæki heims, fram-
leiðir og komu 15 smærri fyrir-
tæki að framleiðslunni. Af frétta-
flutningi að dæma undanfarna
mánuði er leikurinn að öllum lík-
indum sá dýrasti í framleiðslu hjá
Ubisoft til þessa og þó svo hann
komi út í dag hafa þegar birst um-
sagnir um hann og á vefnum
Metacritic, þar sem tekin er sam-
an gagnrýni ólíkra miðla, er hann
með meðaleinkunnina 81 af 100
mögulegum. Það hlýtur að teljast
harla gott.
Taldi sig vera í prufu fyrir
lélega víkingamynd
„Þetta er stærsta hlutverkið
fyrir utan þá persónu sem þú spil-
ar,“ segir Guðmundur um víking-
inn Sigurd. Hann segir umboðs-
mann sinn í London hafa landað
honum í prufu fyrir hlutverkið.
„Þetta var allt svo mikið
leyndarmál, við skildum ekkert
þessa prufu. Þetta leit út fyrir að
vera léleg kanadísk víkingamynd
með teiknuðum atriðum og gekk
undir dulnefni, þetta hét eitthvað
allt annað af því þetta er svo rosa-
lega mikið leyndarmál,“ segir Guð-
mundur. „Ég fór bara í þessa
prufu, heyrði svo ekkert meira af
þessu og mér var eiginlega alveg
sama af því ég hélt þetta væri
eitthvað glatað. Svo segir umboðs-
maðurinn að menn séu spenntir
fyrir því að fá mig í verkefnið og
þá fór ég til London og hitti alla
þessa gaura sem hafa verið að
leikstýra þessu og Darby McDe-
vitt sem býr til þessa leiki í raun-
inni, á þessar sögur allar og er al-
veg ótrúlega klár því þetta er eins
og að semja tuttugu bíómyndir í
einu. Hann skrifar þetta allt sam-
an og á þetta allt, meira og minna,
allt frá því fyrsti leikurinn kom út
sem var um krossferðirnar,“ segir
Guðmundur.
Hann fór í aðra prufu í London
og í kjölfarið var hann beðinn um
að leika á móti Dananum Magnus
Bruun sem leikur karlkyns útgáfu
Eivarar en kvenkyns útgáfuna
leikur danska leikkonan Cecilie
Stenspil. Guðmundur segir þá
Bruun strax hafa smollið saman.
„Við vissum strax að við myndum
fá þetta,“ segir Guðmundur um
samleik þeirra Bruun.
– Þetta hlýtur að vera allt öðru-
vísi en að leika í bíómynd eða á
leiksviði. Geturðu sagt mér hvað
þú þurftir að gera?
„Þetta er í raun svolítið eins og
að leika á sviði. Þú ferð í þröngan,
svartan búning með skærlitum lín-
um og svo eru eins og pínulitlir
tennisboltar um allan búninginn
sem um 160 myndavélar í stúd-
íóinu nema, taka upp hreyfing-
arnar frá þessum ljósnæmu punkt-
um. Síðan fær maður hjálm með
fjórum myndavélum,“ útskýrir
Guðmundur en þessi tækni er köll-
uð „motion capture“ á ensku.
Guðmundur segir það sem á eft-
ir kom ekki svo ólíkt því að vinna
á leiksviði þegar byrjað sé að æfa
leiksýningar. „Þetta er eins og
risastór leikfimisalur og þar er bú-
in til leikmynd úr dýnum, kössum
og alls konar dóti svo þú stígir
ekki í gegnum tré eða gangir ofan
í tjörn. Þessir hlutir eru merktir
inn í rýmið.“
Gamaldags Shakespeare
Guðmundur segir að þar sem
þetta sé tölvuleikur vilji leikstjór-
arnir fá „stóran leik“, svolítið eins
og í gamaldags Shakespeare-upp-
færslu. „Þú þarft að gefa í, tala
hátt og vera með skýrar hreyfing-
ar og ég keypti mér bara Playstat-
ion 4 með syni mínum og fór að
spila Assasin’s Creed: Black Flag
til að skilja hvað ég væri að gera.
Það varð augljóst þegar ég fór að
spila þetta, þá sá ég hvernig leik-
stíl þurfti til,“ útskýrir hann.
Tökurnar fóru fram í Montréal í
Kanada og segir Guðmundur að
áhugavert hafi verið fyrir hann að
kynnast hinum ógnarstóra heimi
tölvuleikjabransans. „Montréal er
ein af höfuborgum tölvuleikjaiðn-
aðarins í heiminum og þar er fullt
af leikurum í fullri vinnu við að
leika og vera áhættuleikarar í
tölvuleikjum. Það er bara sér-
stakt fag þannig að mjög oft lék-
um við fram að bardaga og þá
komu áhættuleikarar inn og
skiptu við okkur og kláruðu dæm-
ið. Það var bara ótrúlegt að sjá,
þeir eru svo góðir í þessu að mað-
ur á ekki breik,“ segir Guð-
mundur og hlær að minningunni.
Sturluð eftirvænting
Mikil eftirvænting virðist vera
fyrir leiknum og bendir
Guðmundur á að horft hafi verið
á fyrstu stikluna fyrir leikinn um
hundrað milljón sinnum á You-
Tube. Tölvuleikjaunnendur bíða
líka margir hverjir eftir nýju
Playstation-tölvunni og segir
Guðmundur að leikurinn verði
meðal þeirra fyrstu sem hægt
verði að spila í henni. „Það er
rosaleg eftirvænting eftir þessum
leik, hún er alveg sturluð,“ segir
hann.
Guðmundur er spurður að því
hversu umfangsmikil framleiðsla
leiksins hafi verið, hvort hann viti
til dæmis hversu mikill fram-
leiðslukostnaðurinn hafi verið og
segist hann ekki vera með slíkar
tölur á hreinu. „Ég veit ekki ná-
kvæmlega hvað þetta kostar en
þeir sögðu okkur að sex til átta
þúsund manns væru búin að vera
að vinna í þessu,“ segir Guð-
mundur. „Þetta er alveg sturlað,“
segir hann um umfangið og nefnir
sem dæmi að rússneskt fyrirtæki,
tengt Ubisoft, sérhæfi sig í því að
búa til dýr í leiki fyrirtækisins.
„Sumir eru að gera refi, sumir
eru að búa til húsdýr, það eru alls
konar teymi af forriturum,“ nefn-
ir Guðmundur.
Óljóst framhald
Guðmundur er spurður að því
hvort hann eigi von á að vera
boðin fleiri hlutverk í tölvu-
leikjum og segir hann erfitt um
slíkt að spá. Hann og umboðs-
maðurinn hans hafi í raun ekki
hugmynd um hvert framhaldið
verði. „En þetta var stórkostlega
skemmtilegt ferðalag,“ segir hann
um þessa reynslu sína en hann
var við tökur í Kanada eina viku í
mánuði um sjö mánaða skeið,
fram að farsótt. Hvað sem verður
geta Íslendingar nú kynnst Sig-
urd Styrbjornsyni, farið í víking
með honum og bróður hans, gyrt
sig í brók, bitið í skjaldarrendur
og höggvið menn í herðar niður.
„Stórkostlega skemmtilegt ferðalag“
Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikur eina af aðalpersónum tölvuleiksins Assassin’s Creed: Valhalla
sem er ein umfangsmesta framleiðsla tölvuleikjaframleiðandans Ubisoft til þessa
Tilkomumikið Hönnuðir og teiknarar tölvuleikja á borð við Asassin’s Creed: Valhalla þurfa að kunna vel til verka og teikna og hanna alls konar persónur,
dýr, hluti og bakgrunna og þá meðal annars landslag. Hér má sjá stillu úr kynningarmyndbandi fyrir leikinn sem finna má á YouTube og víðar.
Víkingur Svona lítur persóna
Guðmundar, Sigurd, út í leiknum.
Í vígamóð Svona lítur hylki leiksins
út fyrir Playstation 4.
Guðmundur Ingi
Þorvaldsson
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 2020