Morgunblaðið - 10.11.2020, Page 29

Morgunblaðið - 10.11.2020, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. NÓVEMBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Hrekkjavökuvika í Sambíóunum Sjáðu nokkrar að frægustu Hrollvekjum allra tíma Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Þótt sýningarsalir séu víðast hvar lokaðir þessa dagana þá eru nokkrar sýningar opnar, að viðhöfðum tilskildum sóttvarnareglum. Ein þeirra er hin athyglisverða sýning Helga Más Kristinssonar í Listamönnum galleríi á Skúla- götu 32. Og heitið er við hæfi á þessum tímum: „Afsakið óþægindin“. Verk Helga Más hafa sést víða á undan- förnum árum, bæði abstrakt málverk hans og skúlptúrar sem einkennast af leikgleði og vís- unum í íþróttir og leiki. Þá hefur hann komið að hönnun sviðsmynda og sett upp sýningar með verkum annarra listamanna. Á þessari sýningu eru abstakt málverk áberandi, verk með sterkum litum og línum sem dansa yfir hornrétt og hárnákvæm geómetrísk form. En þar er líka röð abstrakt verka á pappír, sem eru síður úr teiknimyndasögum, og tveir skúlptúrar. Þegar Helgi Már hittir blaðamann í sýningarsalnum og er spurður hvort verkin endurspegli tímann í veirufaraldrinum segir hann málverkin ekki vera nein Covid-verk. En skúlptúrinn sem heiti sýningarinnar er sótt í tengist þó ástandinu. – Þessi málverk eru í framhaldi af verk- unum sem þú hefur verið að gera en þó eru talsverðar breytingar, hvað varðar liti og form. „Ég held það sé bara rökrétt þróun. Það er eins konar hægeldun að vera málari,“ segir Helgi. „Í verkunum hér færist ég yfir í úr- vinnslu á vissu litajafnvægi. Áður var áherslan meira á það hvernig formin togast á.“ Spenna og togstreita – Allra síðustu ár hefurðu samt ekki sýnt málverk heldur hefur unnið út frá dansi, til að mynda, og hefur komið að sviðsmyndagerð. Hentar þér vel að fara á milli ólíkra verkefna? „Mér finnst þetta allt hjálpa hvert öðru – og mér að staðna ekki. Mér finnst gott að fá að spreyta mig í leikhúsinu, þar sem eru allt aðrir skalar, allt önnur fúnksjón. Í leikhúsinu hef ég mest unnið kringum dans og mér finnst það tengjast málverkunum hér, það má líta á dans línunnar sem það sama og hreyfingar dansarans, bara í öðru formi. Í mínum verkum er frekar hreyfing en tón- listin sem oft má sjá í verkum abstraktmálara. Samt er þetta algjörlega ósjálfráð teikning í grunninn,“ segir Helgi og fylgir með fingr- inum einni dansandi línunni á yfirborði mál- verks á sýningunni. „Grunnurinn að þessum málverkum eru dúllur, litlar skissur sem ég vinn áfram.“ – Skúlptúrinn litli sem er titilverk sýning- arinnar, „Afsakið óþægindin“, kallast á við málverkin, í lit og bókstaflega formrænni spennu. „Já. Ég hef lengi duflað við ready-made skúlptúra eins og þennan samhliða málverk- inu. Og hef til dæmis unnið með fyrirbæri úr íþróttum. Ég æfði einu sinni tennis og hér er tennisbolti kominn í þvingu; í því samspili má sjá ástand sem er vissulega líka í málverk- unum. Það er þessi spenna og togstreita – hér er tennisbolti í þvingu sem hvílir laus á einum nagla, en í fullkomnu jafnvægi. Slík spenna birtist líka í málverkunum, spenna milli flata, forgrunns og bakgrunns …“ – Svo eru sömu litir í skúlptúr og málverki. „Já, þeir eru gegnumgangandi hér á þessari sýningu, og hafa verið í verkum mínum áður. Einn kunningi minn sem kom hér inn að skoða kallaði bæði málverkin og skúlptúr „tilfinn- ingahleðslur“ og það á ágætlega við verkin hér og nú í þessu furðulega Covid-ástandi.“ Annan skúlptúr sem er á sýningunni nefnir Helgi „Feðgar á ferð“. Þar standa tvennir íþróttaskór á spegli, aðrir fyrir fullorðinn mann í stærð 47 og hinir fyrir barn, helmingi minni í stærð 23 og hálft. Helgi segir þetta vera mynd af sér og syni sínum sem nú sé kominn yfir tvítugt. „Þetta er viss nostalgía,“ segir hann og bætir við að slíkt hafi áður sést í skúlptúrum hans, til að mynda þeim sem hann hafi gert úr BMX-reiðhjólum og vísi til bernskunnar. Eftirsóknarverð endastök – En talandi um endurlit til bernsku- og unglingsára, þá hefurðu líka unnið raðir ab- strakt málverka á síður úr teikninmynda- sögubókum. Ein slík myndaröð er hér á sýn- ingunni. „Ég hef notað í þetta síður úr bókum sem ég las á sínum tíma, eins og Tinnabókunum. Ég safna slíkum bókum og geri úr þeim verk. Það byrjaði fyrir um sex árum þegar mikil umræða var um það hvort ætti að fara að ritskoða Tinna í Kongó. Ég greip það á lofti og fór að gera eins konar ósjálfráð málverk, þar sem ég skapa jafnvægi með litnum í abstrakt verkum. Erlendis hef ég leitað uppi gamlar teikni- myndasögur á mörkuðum, til dæmis í Berlín, bækur sem bókasöfn hafa afskrifað, en papp- írinn í þessum eldri bókum hefur efniskennd sem heillar mig. Mér finnst þetta líka vera ákveðið framhaldslíf fyrir bókina.“ – Hvaða saga er undir þessum sex abstrakt málverkum hér á veggnum? „Þetta er saga um Gorm [eftir Franquin]. Ég hef gert tvær seríur upp úr teiknimynda- sögum um Gorm og þar heillar mig tölusetn- ingin á blaðsíðunum, miðjusettar tölur með hring utan um. Aðdáendur sagnanna um Gorm þekkja tölusetninguna þótt ég hafi málað yfir myndrammana.“ – Í verkunum þínum er alltaf markviss úr- vinnsla úr hugmyndum og ekki allt sem sýnist, hvort sem það er dans línunnar um strigann eða litalögin í römmum teiknimyndasagnanna. „Ég er mjög hrifinn af slíkri lagskiptingu, spennu og togstreitu. Ég hef til dæmis unnið með það í skúlptúrunum sem ég læt svífa og þessi togstreita er líka í málverkunum en birt- ist þar í leit að kyrrð. Sem er nokkuð sem ég er líka að fást við í sjálfum mér og það mynd- gerist með þessum hætti. Ég á oft í miklu stríði við strigann en allt í einu gengur verkið upp og það færist yfir það kyrrð. Maður kemst á eftirsóknarverða enda- stöð og það er góð tilfinning,“ segir Helgi Már. „Á oft í miklu stríði við strigann“  „Afsakið óþægindin“ er heiti sýningar Helga Más Kristinssonar í Listamönnum galleríi  Sýnir abstrakt málverk, sum á teiknimyndasögur, og skúlptúra  „Eins konar hægeldun að vera málari“ Morgunblaðið/Einar Falur Listamaðurinn Helgi Már segir að það megi líta á dans línunnar í málverkunum á sýningunni eins og hreyfingar dansara á sviði en hann hefur áður unnið verk út frá dansi og sviðsmyndir. Í þvingu Skúlptúrinn sem sýningin í Lista- mönnum heitir eftir, Afsakið óþægindin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.