Morgunblaðið - 11.11.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 2020
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Túnikur • Bolir • Blússur
Peysur • Klútar • Silkislæður
Snyrtivörumerkin okkar eru:
M a d e i n I c e l a n d
HAUSTVÖRUR
Glæsilegar
komnar
Póstsendum
Það fer blaðamönnum einkar illaað breytast á örskotsstund í
hjörð. En það er jafnan stutt í það.
Þó eru enn hressi-legar undan-
tekningar. Páll Vil-
hjálmsson skrifar:
Biden forsetaefnitilkynnti á kjör-
dag að öll atkvæði
skyldi telja. Fimm
dögum síðar taldi
Biden óþarfi að telja
atkvæðin, hann væri
sigurvegari samkvæmt fjölmiðlum.
Líkt og bylting er valdarán lög-mætt þá og því aðeins að það
heppnist.
Meginforsenda er að sitjandivaldhafi gefist upp, flýi eða
drepist. En Trump gafst ekki upp,
flúði ekki og er enn með jarðvist.
Þeir sem hafa hagsmuni af því að
forsetinn haldi völdum vakna til lífs-
ins.
Á þriðjudegi eftir valdaránshelg-ina er komin óvissa í stað sigur-
vissu í herbúðum Bidens og fjöl-
miðla. Það veit ekki á gott að
sitjandi forseti nái vopnum sínum.
Næstu sólarhringar skera úr umhvort valdaránið renni út í
sandinn. Varaáætlun Bidens og
demókrata er að fá völdin með lög-
mætum hætti 20. janúar 2021 þegar
öll atkvæði eru talin og vafamál út-
kljáð fyrir dómstólum.
Í því ferli verður misheppnaðavaldaránið eins og myllusteinn
um háls Bidens. Öldungurinn þarf á
öllum sínum lyfjum að halda til að
bugast ekki.“
Eiga Moggi og FB
að úrskurða úrslit
STAKSTEINAR
Páll Vilhjálmsson
Joe Biden
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Skarphéðinn Berg Steinarsson
ferðamálastjóri telur fulla ástæðu
til varfærinnar bjartsýni vegna
frétta af því að bóluefni gegn kór-
ónuveirunni kunni að vera innan
seilingar, en lyfjarisinn Pfizer
greindi frá því á mánudag að til-
raunir með bóluefni gæfu góða
raun.
„Ég hef alltaf verið bjartsýnn á
að ferðaþjónustan geti tekið hratt
við sér þegar hættan líður hjá,“
segir Skarphéðinn í samtali við
Morgunblaðið. „Mér hefur sýnst
að það sé mikill ferðavilji hjá fólki,
þannig að þegar það sér að veiran
er hætt að hrella menn og það er
óhætt að ferðast á ný, þá mun fólk
leggjast í ferða-
lög aftur og vera
fljótt að taka við
sér. Það bendir
allt til þess.“
Hann telur
jafnvel ástæðu
til bjartsýni á
það. „Við höfum
verið með minni
árstíðasveiflur
en gengur og
gerist, svo það er viðbúið að um
leið og ástandið lagast förum við
að fá ferðamenn. Við eigum að
geta verið í fyrra fallinu í því,“
segir Skarphéðinn. Eftir sem áður
muni mest velta á næsta sumri.
Ástandið hafi verið mjög erfitt í
ferðaþjónustu hér sem annars
staðar, en hún sé samt sem áður
vel undir það búin að taka við
ferðamönnum.
„Ef þetta fer af stað í vor og við
fáum þokkalegt sumar á þetta allt
að vera í lagi, en ef sumarið
bregst erum við komin í verri
mál.“
Von um bóluefni vekur bjartsýni
Telur að ferðamenn muni skila sér
hratt Allt velti á góðu sumri 2021
Skarphéðinn Berg
Steinarsson
Magnús Hallgrímsson
verkfræðingur lést á
Landakoti 8. nóvember
sl., 88 ára að aldri.
Magnús fæddist á
Akureyri 6. nóvember
1932, sonur hjónanna
Hallgríms Einarssonar
ljósmyndara og Lauf-
eyjar Jónsdóttur hús-
freyju. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MA 1952,
fyrrihlutaprófi í verk-
fræði frá HÍ og meist-
araprófi í byggingar-
verkfræði við Poly-
teknisk Læreanstalt
DTK 1963.
Magnús stundaði margvísleg
verkfræðistörf hér á landi sem er-
lendis sem mörg tengdust virkj-
unum og raflínum þeim tengdum.
Hann stofnaði Verkfræðistofuna
Hönnun, ásamt fleirum, 1963 og
starfrækti hana til 2000.
Stóran hluta starfsævinnar var
hann við ýmis hjálparstörf erlendis,
starfrækti flóttamannabúðir og
skipulagði neyðarhjálp á vegum
Rauða krossins í Indónesíu, Eþíópíu,
Erítreu, Jórdaníu, Írak og Aser-
baídsjan. Einnig starfaði hann við
friðargæslu og uppbyggingu innviða
á vegum Sþ og NATO, bæði í Líb-
anon og í ríkjum gömlu Júgóslavíu.
Þá stýrði hann fjármögnun, skipu-
lagningu og uppbyggingu raforku í
Kosovo, 1999-2003.
Milli þessara verkefna
sá hann m.a. um fram-
kvæmd Kristnihátíð-
arinnar á Þingvöllum
fyrir forsætisráðu-
neytið árið 2000.
Magnús var braut-
ryðjandi í vetrar-
skíðaferðum um há-
lendi Íslands og félagi í
ÍSALP, Íslenska alpa-
klúbbnum. Hann var
ævilangt skáti, einn af
stofnendum Flug-
björgunarsveitarinnar
á Akureyri 1951 og sat
í stjórn Flugbjörgunarsveitarinnar í
Reykjavík. Hann sat um tíma í
stjórn Landverndar og Vatnajökuls-
þjóðgarðs, og var varaformaður
Jöklarannsóknarfélagsins um langt
árabil. Hann kenndi björgunar-
sveitum snjóflóðabjörgun og björg-
unartækni í frístundum um áratuga
skeið. Magnús fékk margvíslegar
viðurkenningar fyrir störf sín og var
m.a. sæmdur gullmerki Bandalags
íslenskra skáta, heiðursmerki Verk-
fræðingafélagsins, gullmerki Flug-
björgunarsveitarinnar, jöklastjörnu
Jöklarannsóknarfélagsins og ridd-
arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
2003.
Eiginkona Magnúsar var Hlíf
Ólafsdóttir lífeindafræðingur. Synir
þeirra eru Hörður og Hallgrímur.
Andlát
Magnús Hallgrímsson