Morgunblaðið - 11.11.2020, Page 32

Morgunblaðið - 11.11.2020, Page 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. NÓVEMBER 2020 NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Við komum víða við í ár, heimsækjum fjölda fólks og verðummeð fullt af spennandi efni fyrir alla aldurshópa. Kemur út 26. 11. 2020 Morgunblaðsins Jólablað Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Tónlist Franz Schuberts (1797-1828) hefur fylgt Eddu Erlendsdóttur pí- anóleikara síðan hún var barn. Eitt fyrsta klassíska verkið sem hún heyrði var af vínilplötu með for- leiknum Rosamundu og hún segir að enn í dag hljómi hver nóta verksins kunnuglega. Píanókennarar hennar, Hermína S. Kristjánsson og Árni Kristjánsson, sem bæði höfðu lært píanóleik í Berlín, áttu síðan mikinn þátt í því að Edda kynntist píanó- verkum Schuberts strax í æsku. Edda hefur haldið sambandinu við verk tónskálds- ins og á dög- unum gaf hún út geisladisk þar sem hún leikur þrjár sónötur sem Schubert samdi árið 1817, þegar hann var tvítugur. Í skrifum sem fylgja diskinum segist Edda hafa haldið áfram að kanna dulmagnað tónmál Schuberts og að þær þrjár sónötur sem hún leiki í upptökunum séu henni sér- staklega hjartfólgnar. Oft er talað um árið 1817 sem tímamótaár í lífi Schuberts því þrátt fyrir ungan aldur var hann þá orðinn fullþroska listamaður. Með aðstoð vinar fékk hann leyfi frá starfi sem barnaskólakennari og gat helgað sig tónsmíðum. Þetta ár samdi hann fyrst hvert sönglagið af öðru en síð- an tóku við nokkrir mánuðir þar sem hann samdi eingöngu píanóverk. Að sögn Eddu samdi hann þá meðal annars rondó, fantasíu, tvö scherzo, þrettán tilbrigði, átta écossaises og síðast en ekki síst sex sónötur. Þrjár af þeim eru á diskinum. Stutt í 40 ára tónleikaafmæli Diskurinn með sónötum Schu- berts er sá áttundi sem Edda sendir frá sér. Nú styttist í að fjörutíu ár verði liðin frá fyrstu einleiks- tónleikum hennar, sem voru á Kjar- valsstöðum 3. janúar 1981, og þar voru verk eftir hann áberandi. „Ég byrjaði ung að spila verk eftir Schubert í námi hér heima en þau voru hins vegar ekki áberandi þegar ég hélt til framhaldsnáms í Frakk- landi. Engu að síður hélt ég áfram að leika tónlist Schuberts þar svo það hlýtur að hafa verið eitthvað við tónlistina sem talaði sterkt til mín þá, rétt eins og nú,“ segir Edda. „Þegar ég fór að undirbúa debút- tónleikana mína á Kjarvalsstöðum var Schubert fyrstur á blað. Á þeim tónleikum tengdi ég verk tónskálda fyrri Vínarskólans við þann seinni, með verkum eftir bæði Schubert og Schönberg. Ég setti saman mjög langt prógramm og skil enn í dag ekki hvað ég var að hugsa,“ segir hún og hlær. „Ég var bara svo óreynd að ég valdi það sem mig langaði að spila. Ég var til að mynda með þrjú Klavierstücke og eina af sónötum Schuberts. Síðan hefur hann fylgt mér – þótt ég hafi vita- skuld líka leikið ótalmargt annað.“ Hljóðritað á heimilinu Fyrstu plötur og diskar Eddu voru gefin út af öðrum en um langt skeið hefur hún nú kosið að gera það sjálf, til að eiga allan rétt á upptök- unum og geta séð til þess að þær séu aðgengilegar. Þessi nýi diskur var hljóðritaður í París, þar sem Edda hefur áratugum saman átt sér annað heimili ásamt eiginmanninum, band- oneonleikaranum og tónskáldinu Olivier Manoury. Og diskurinn var hljóðritaður á heimili þeirra þar úti. „Fyrir mér er það að gera geisla- diska yfirleitt langt ferli og afar gef- andi,“ segir Edda. „Það er mikill skóli að undirbúa verk fyrir upptöku og mikilvægt að gefa sér góðan tíma til að kafa ofan í þau. Ég er síðan eins og sjálfstæður trillukarl og gef diskana út sjálf. Enginn skipar mér fyrir verkum og þegar verkin eru tilbúin og fullæfð þá tökum við upp. Verkin eru þá orðin hluti af mér, túlkunin hefur fengið að gerjast og þroskast.“ Var það meðvituð ákvörðun Eddu að velja saman sónötur sem Schu- bert samdi á sama árinu? „Nei, það kom bara í ljós eftir á. Ég ákvað í byrjun að leika ekki þær síðustu sónötur hans sem oftast hafa verið fluttar og hljóðritaðar. Það vildi bara svo til að þetta ár,1817, samdi Schubert stóran hluta sinna píanóverka. Þar á meðal sex sónöt- ur! Ég var svolítið hikandi í byrjun varðandi hverjar ég ætti að velja en svo komu þessar þrjár til mín. Þær eru furðuólíkar, sem er merkilegt, sinn blærinn á hverri. Samt samdi Schubert sónöturnar með bara nokkurra vikna millibili. Á þessu ári samdi hann gríðarlega mikið af pí- anótónlist; tónlistin flæddi bara frá honum, eins og af himnum ofan. Það er yfirnáttúrulegt hvað hann náði að semja mikið á sinni stuttu ævi. Þeir Mozart voru svipaðir hvað það varð- ar og kannski hafa báðir fundið fyrir því að þeir ættu ekki eftir að lifa lengi.“ Leikur á afmæli Schuberts Veirufaraldurinn hefur haft gríðarmikil áhrif á starf tónlistar- fólks úti um heimsbyggðina. Edda segist nú hafa verið hér á landi síðan í mars og hefur ekki verið hér svo lengi samfellt síðan hún hélt til náms í Frakklandi. Áður en allt lokaðist í mars náði hún að taka þátt í flutn- ingi á verki eftir Olivier á Ísafirði en tónleikum með verkinu sem áttu að vera á Akureyri, í Skálholti og í Hörpu var frestað þar til næsta vor. Einnig var tónleikum sem hún átti að taka þátt í á Listahátíð frestað og eiga að vera í apríl. Edda er ánægð með að hafa náð að koma fram á tón- leikum Kammermúsíkklúbbsins seint í september ásamt hópi góðra tónlistarkvenna áður en samkomu- bann skall aftur á. „Þetta hefur verið mjög erfitt fyrir tónlistarfólk víða,“ segir hún. En hún hefur líka verið að kenna hér við Listaháskólann. „Eftir að ég fór á eftirlaun sem kennari í Frakklandi fyrir fjórum árum bauðst mér staða sem gesta- kennari hér og hef ég síðan mikið farið á milli. Ég er svo heppin að samkennari minn, Peter Maté, er sá besti sem hægt er að hugsa sér. Það hefur verið gaman og gefandi að halda áfram að kenna áhugasömum nemendum hér. Og sem betur fer höfum við getað kennt í haust, með grímu, en það var langt hlé í vor.“ Edda stefnir á útgáfutónleika og verða þeir í röðinni Sígildum sunnu- dögum í Norðurljósum í Hörpu 31. janúar næstkomandi. Og um leið heldur hún upp á fjögurra áratuga tónleikaafmælið. „Mig langaði að hafa tónleikana í janúar og tengja við debúttónleikana – og svo kom í ljós að dagurinn sem ég hafði valið er fæðingardagur Schuberts! Það fannst mér skemmtileg tilviljun.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Píanóleikarinn „Það er mikill skóli að undirbúa verk fyrir upptöku og mikilvægt að gefa sér góðan tíma til að kafa ofan í þau,“ segir Edda Erlendsdóttir um nýja diskinn. Hún hyggst halda útgáfutónleika í Hörpu í janúar. „Langt ferli og afar gefandi“  Á nýjum geisladiski leikur Edda Erlendsdóttir píanóleikari þrjár sónötur sem Franz Schubert samdi árið 1817  „Ég er eins og sjálfstæður trillukarl og gef diskana út sjálf,“ segir hún Dymbrá kemur fram í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands í dag kl. 12.15. Í ljósi yfirstandandi samkomutakmarkana verður tón- leikunum streymt á vefnum https://livestream.com/hi/dymbra þar sem einnig má horfa á upptök- una síðar. Dymbrá, sem vakti verðskuldaða athygli á Músíktilraunum 2018, skipa þær Nína Solveig Andersen á fiðlu, Eir Ólafsdóttir á selló og Eyrún Úa Þorbjörnsdóttir á flautu. „Meðlimir eru nú, tveimur árum síðar, ekki nema átján ára en hafa þegar gefið út burðuga plötu sem inniheldur dökkleita og draum- kennda kammertónlist. Falleg, þjóðlagabundin ára leikur um hana og lög eru brotin upp óhikað með rafstemmum og öðru slíku skrauti, tilraunamennska í hávegum höfð á sama tíma og byggingu og meló- díum er haldið. Stemningin er hreint út sagt ævintýraleg á köfl- um,“ segir í tilkynningu. Dymbrá leikur á Háskólatónleikum í dag Tilraunamennska Ungsveitin Dymbrá. Nýjasta skáld- saga Sigríðar Hagalín Björns- dóttur, Eldarnir. Ástin og aðrar hamfarir, verður í brennidepli í Menningu á mið- vikudögum í dag. Í streymi sem hefst kl. 12.15 og nálgast má á facebooksíðu Menningarhúsanna í Kópavogi mun Sigríður Hagalín lesa úr skáldsögu sinni og m.a. ræða við Maríönnu Clöru Lúthersdóttur bók- menntafræðing um sköpunarferlið. Í skáldsögunni skekja jarð- skjálftar Reykjanesskaga og eldfjöll vakna til lífsins eftir 800 ára hlé. Í forgrunni er eldfjallafræðingurinn Anna Arnardóttir, forstöðumaður Jarðvísindastofnunar, sem þarf að takast á við stærsta verkefni ferils- ins við stjórn almannavarna. Eld- arnir eru þriðja skáldsaga Sigríðar Hagalín, sem áður hefur vakið verð- skuldaða athygli fyrir Hið heilaga orð og Eyland, sem þýdd hefur verið m.a. á frönsku, þýsku og pólsku. Sigríður Hagalín ræðir um nýjustu bók sína Sigríður Hagalín Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.