Morgunblaðið - 24.11.2020, Qupperneq 1
GUÐRÚN BRÁ 27
Þ R I Ð J U D A G U R 2 4. N Ó V E M B E R 2 0 2 0
Stofnað 1913 277. tölublað 108. árgangur
HELDUR GÓÐ-
UM HÚMOR
OG LÉTTLEIKA
NÝ STARFSEMI
LÍFGI UPP Á
LAUGAVEGINN
NÁÐI SÍNUM
BESTA ÁRANGRI
Í SÁDI-ARABÍU
VERKFÆRALEIGA 11ÆVINTÝRI SIGRÚNAR 28
Mánuður er nú til jóla og komandi sunnudagur verður sá fyrsti
í aðventu. Jólaskreytingar af ýmsu tagi hafa verið settar upp
víða, þar með talið í Reykjavíkurborg þar sem jólaköttinn á
Lækjartogi má nú heimsækja eins og undanfarin ár. Þessi börn
voru þar að leik og virtu fyrir sér ljósum prýtt óargadýrið þeg-
ar ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið hjá í gær.
Lýsir upp myrkrið þegar mánuður er til jóla
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Að brottfall úr
skólunum hafi
ekki aukist á tím-
um kórónuveir-
unnar segir eitt
og sér takmark-
aða sögu, segir
Júlíus Viggó
Ólafsson, for-
maður Sambands
íslenskra fram-
haldsskólanema.
Fulltrúar sambandsins hafa undan-
farið fundað reglulega með stjórn-
endum skóla og menntamálaráð-
herra um sín hagsmunamál, svo
sem prófin framundan.
„Framboð atvinnu um þessar
mundir er takmarkað, framhalds-
skólanemar hafa því að fáu að
hverfa og halda því áfram í skól-
anum. Í stóra samhenginu er verð-
ugt að hafa í huga þau langtíma-
áhrif sem ringulreið í skólastarfi
getur haft til dæmis á landsfram-
leiðslu og hagvöxt. Menntun þjóð-
arinnar er afgerandi áhrifaþáttur í
því sambandi,“ segir Júlíus sem tel-
ur þurfa inngjöf í skólamálum þeg-
ar veiran er afstaðin. »11
Þörf á inngjöf í
skólamálum eftir
veirutímann
Júlíus Viggó
Ólafsson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sérfræðingar telja hækkandi hrávöru-
verð benda til aukinnar bjartsýni eftir
að greint var frá árangri við þróun
þriggja bóluefna gegn kórónuveirunni.
Vegna þessa árangurs kunni
kórónuveirukreppan að hafa náð há-
marki en hún er ein dýpsta efnahags-
kreppa síðustu hundrað ára.
Meðal annars hefur álverð hækkað
um tugi prósenta eftir að það náði lág-
marki í kjölfar þess að veiran lamaði
hagkerfi Vesturlanda síðastliðið vor.
Lengra komin í endurreisninni
Brynjólfur Stefánsson sérfræðingur
hjá Íslandssjóðum segir það eiga þátt í
aukinni eftirspurn að Kína og mörg
önnur Asíuríki séu lengra komin í end-
urreisninni en Evrópa og Bandaríkin.
Spurður hvaða áhrif hækkandi ál-
verð hafi á íslenskan áliðnað bendir
Brynjólfur á að framleiðslan hafi verið
stóraukin í Kína síðustu ár og framboð
á áli aukist mikið sem geri aðstæður á
álmarkaði krefjandi. Hins vegar séu
hækkanir síðustu daga án efa góðar
fréttir fyrir framleiðendur, þar með
talið íslenska.
Mun hækka óverulega
Brynjólfur gerir ráð fyrir að olíu-
verð muni hækka eftir því sem hag-
kerfin taka við sér en þó óverulega.
Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræð-
ingur Íslandsbanka, segir sterkt sam-
hengi milli þróunar olíuverðs síðustu
vikur og tíðinda af þróun bóluefna.
Fréttir af bóluefnum Pfizer [9. nóv.] og
Moderna [16. nóv.] hafi aukið bjartsýni
um að faraldurinn verði senn að baki.
Sama megi segja um fréttir gærdags-
ins af árangri AstraZeneca við þróun
bóluefnis.
Yngvi Harðarson hagfræðingur er
sama sinnis um áhrif bóluefnanna.
Vísbending um að
botninum sé náð
Þróun bóluefna gegn veirunni þrýstir upp hrávöruverði
Heimsmarkaðsverð
á áli 2.1.-20.11.2020
2.100
1.940
1.780
1.620
1.460
1.300
2. janúar 20. nóvember 2020
Heimild:
Refinitiv/Analytica
1.993
1.462
1.804,5
LME álverð $/t
MÁlverðið á hraðri uppleið »12
Merkingar fugla og endurheimt
merkjanna gefa margvíslegar upplýs-
ingar um ferðir fugla, aldur og fleira. Í
skýrslu um fuglamerkingar og ald-
ursmet er 35 ára skrofa talin meðal
íbúa í Ystakletti, en skrofa kemur ein-
göngu í land til að verpa. Ekki er hægt
að fullyrða að skrofan hafi verpt í sömu
holuna í þrjá áratugi, en líklega hefur
hún alltaf orpið á litlum bletti í Ysta-
kletti.
Lengsta skráða ferð í endur-
heimtum 2019 var endurfundur síla-
máfs í Marokkó. Þá var hann 3.529 km
frá merkingarstað hér á landi. »10
Ljósmynd/Yann Kolbeinsson
Skrofa Lítið fyrir breytingar.
Á bletti í
Ystakletti
í um 30 ár