Morgunblaðið - 24.11.2020, Page 2

Morgunblaðið - 24.11.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Fyrirtæki stíla inn á það að dreifa álaginu í ljósi ástandsins í samfélag- inu og þess óhagræðis sem því fylgir,“ segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka versl- unar og þjónustu. Sjá mátti af auglýsingum í Morg- unblaðinu í gær og í auglýsingum á netmiðlum að verslunardagurinn svartur föstudagur, sem er næsta föstudag, er farinn að breiða úr sér og margar verslanir bjóða upp á til- boð alla vikuna. Andrés segir að mikil gerjun hafi verið í kringum al- þjóðlega viðskiptadaga hér á landi síðustu þrjú til fjögur árin. Margir nýttu sér dag einhleypra nýlega og fram undan er svartur föstudagur og rafrænn mánudagur í kjölfarið. Nú þegar samkomutakmarkanir af völdum kórónuveirunnar torveldi verslun leggi kaupmenn enn meiri áherslu á viðskipti í gegnum netið. Mikilvægt sé að dreifa jólaversl- uninni yfir lengri tíma nú en áður. „Það er alveg klárt að fyrirtæki, bæði stór og smá, eru að gíra sig upp í að nýta þessa viku vel. Það verða gífurleg viðskipti næstu vik- una og þau verða í auknum mæli á netinu. Eins og staðan er nú verður að gera ráð fyrir að fjöldatakmark- anir verði áfram í gildi fram í næstu viku. Það er auðvitað afar bagalegt fyrir verslunina. Við og fleiri bíðum þess að slakað verði á takmörk- unum.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Annir Raðir myndast við verslanir enda mega aðeins tíu fara inn í einu. Sífellt fleiri nýta sér því netverslanir. „Gífurleg“ sala næstu vikuna  Svartur föstudagur breiðir úr sér og verslanir verða með tilboð alla vikuna Páll Pétursson á Höllu- stöðum, bóndi, fyrrver- andi alþingismaður og ráðherra, lést á Land- spítalanum í gær, 23. nóvember, 83 ára að aldri. Páll var fæddur á Höllustöðum í Blöndu- dal 17. mars 1937, son- ur hjónanna Péturs Péturssonar (1905- 1977) og Huldu Páls- dóttur (1908-1995) og var elstur fjögurra systkina. Páll lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum á Akur- eyri árið 1957 og hóf búskap það sama ár á Höllustöðum. Hann hóf snemma afskipti af félagsmálum, einkum á vettvangi Framsóknar- flokksins. Var árið 1974 kjörinn á Alþingi og átti þar sæti til árs- ins 2003. Var formaður þingflokks Fram- sóknar í fjórtán ár, var tvívegis forseti Norðurlandaráðs og formaður Vestnorræna þingmannaráðsins um tveggja ára skeið. Þá sat hann í flugráði og stjórn Landsvirkjunar og var formaður lyfja- greiðslunefndar um nokkurt skeið. Vorið 1995 var Páll skipaður félagsmálaráðherra. Því embætti gegndi hann til 2003. Páll gegndi ýmsum trúnaðar- störfum fyrir sveit sína, vann að hagsmunum hestamanna, var for- maður Karlakórs Bólstaðarhlíðar- hrepps og formaður undirbúnings- nefndar um stofnun Textílseturs Íslands á Blönduósi. Alla tíð sýslaði hann við búskap á Höllustöðum ásamt fjölskyldu sinni. Fyrri eiginkona Páls var Helga Ólafsdóttir (1937-1988). Börn þeirra eru Kristín bóndi, Ólafur Pétur, pró- fessor við HÍ, og Páll Gunnar, for- stjóri Samkeppniseftirlitsins. Eftirlifandi eiginkona Páls er Sig- rún Magnúsdóttir (f. 1944), fv. borg- arfulltrúi og umhverfisráðherra. Dætur hennar og stjúpdætur Páls eru Sólveig Klara Káradóttir geð- hjúkrunarfræðingur og Ragnhildur Þóra Káradóttir, prófessor við Há- skóla Íslands og Háskólann í Cam- bridge. Páll lætur eftir sig á þriðja tug barnabarna, stjúpbarnabarna og barnabarnabarna. Andlát Páll Pétursson, fyrrverandi ráðherra Andrés Magnússon andres@mbl.is Samtök iðnaðarins deila hart á samn- ing Reykjavíkurborgar og Ríkisút- varpsins (Rúv.) um samstarfsverk- efnið UngRÚV, þar sem stjórnvald styrki opinbert fyrirtæki, sem þegar njóti hárra greiðslna af almannafé. Þá hafa spurningar vaknað um form- ið, þar sem borgin greiði Rúv. með styrkjum í stað þess að greiða fyrir skv. þjónustusamningi, sundurliðuð- um eftir því hvort um samkeppnis- rekstur er að ræða eða ekki. „Umrædd styrkjaúthlutun Reykjavíkurborgar til Ríkisútvarps- ins upp á rúmar 14 m.kr. er óskiljan- leg og vekur óneitanlega furðu,“ seg- ir Björg Ásta Þórðardóttir, yfirlögfræðingur Samtaka iðnaðar- ins. „Bæði sökum þess að stjórnvald er hér að styrkja opinbert hlutafélag sem fær um 4 milljarða árlega í nef- skatt og það er gert án þess að sam- keppnisaðilum Rúv. sé gefinn kostur á að sækja um sambærilegan styrk.“ Hún bætir við að framleiðsla á efni fyrir ungt fólk hafi nú þegar verið styrkt úr almannasjóðum skv. þjón- ustusamningi ríkisins frá 2016. Í liðinni viku samþykkti borgarráð drög að samstarfs- og styrktarsamn- ingi skóla- og frístundasviðs (SFS) við Ríkisútvarpið um UngRÚV, sem er þjónusta við ungt fólk, þvert á miðla Rúv., og er markmið samnings- ins að gefa unglingum í 8., 9. og 10. bekk tækifæri til að sækja sér fræðslu og starfsreynslu við fjölmiðl- un og dagskrárgerð. Í verkefnislýsingunni er samstarf- ið tíundað í nokkrum smáatriðum um skyldur Ríkisútvarpsins og hvaða fjármuni borgin muni reiða af hendi á móti. Tilgreint er að „greiðslur sam- kvæmt samningi þessum til RÚV eru krónur 14.169.000,- sem skiptist nið- ur á þrjú ár“ og sérstaklega tekið fram að ekki sé um virðisauka- skattsskylda starfsemi að ræða. Í framhaldi af því er greinargerð um hvernig samningurinn samræmist regluverki á Íslandi og í Evrópu, en jafnframt að „kaupin“ séu ekki út- boðsskyld, skv. reglum um slík „inn- kaup“. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri sagði við Morgunblaðið að formið hefði eflaust getað verið með öðrum hætti, en að sér sýndist á gögnum frá borginni að öllum spurningum varð- andi útboð hefði verið skýrt svarað í undirbúningi samningsins. Í fljótu bragði verður ekki séð að þar á hefði verið neinn munur annar en sá, að á styrki leggst ekki virðis- aukaskattur, enda eiga þeir ekki að vera endurgjald, en það ætti hins vegar við um þjónustuviðskipti. Lögfræðingar sem Morgunblaðið bar málið undir sögðu að einstakir þættir verkefnisins kynnu að vera undanþegnir virðisaukaskatti, en hins vegar væri það mikið álitamál varðandi leigu á tækjum og aðstöðu, svo dæmi væru tekin. Af samningn- um og þeirri þjónustu sem Rúv. skuldbindur sig til að veita beri styrkurinn skýrt yfirbragð endur- gjalds. Jafnframt var bent á að upp- lýsa þyrfti hvar frumkvæðið lægi, hvort Rúv. hefði óskað eftir styrk frá borginni, en ella samræmdist styrk- urinn ekki reglum borgarinnar. Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs, kvaðst ekki vita hvort Ríkisútvarpið hefði sótt um styrk til borgarinnar. Hann sagði að þetta væri framlenging á eldra verk- efni sem Rúv. ætti mikinn heiður af og því hefði þótt eðlilegt að leita til þess áfram. Hitt væru alveg réttmæt sjónarmið, en staðan væri þó sú, að Rúv. eitt hefði bolmagn í verkefnið, hvað sem síðar yrði. Ekki er deilt um ágæti UngRÚV. Fulltrúar minnihlutans í borgarráði lýstu stuðningi við það, en bókuðu að Rúv. bæri nú þegar skylda til þess að auka framleiðslu á íslensku efni fyrir börn samkvæmt þjónustusamningi við menningarmálaráðuneytið. Jafn- framt að þrátt fyrir að ekki væri út- boðsskylda að lögum og reglum, þá hefði verið rétt að fara í útboð eða gera verðfyrirspurn hjá öðrum fram- leiðslufyrirtækjum og sjónvarps- stöðvum. Deilt á styrk borgarinnar til Rúv.  Samtök iðnaðarins gagnrýna drög að styrktarsamningi Reykjavíkurborgar við Ríkisútvarpið  Greitt fyrir þjónustu með styrkjum  Efast um að sú leið standist reglur eða lög um virðisaukaskatt Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Ráðhús Borgin vill greiða Ríkisútvarpinu fyrir veitta þjónustu með styrk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.