Morgunblaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020 PON er umboðsaðili PON Pétur O. Nikulásson ehf. Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður Sími 580 0110 | pon.is Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna! GÆÐI OG ÞJÓNUSTA Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, felldi í gærmorg- un og sótti jólatré sem prýða mun Thorsplanið í Hafnarfirði yf- ir jólahátíðina. Hefð hefur verið fyrir því að jólatréð á Thorsplani komi frá Cuxhaven, vinabæ Hafnarfjarðar í Þýskalandi, en í ár kemur tréð beint frá Skóg- rækt Hafnarfjarðar. Jólatrénu hefur nú þegar verið komið fyrir á Thorsplani. „Vinir Hafnarfjarðar í Cuxha- ven hafa verið svo framtakssamir að gróðursetja tré í Skógrækt Hafnarfjarðar í svokölluðum Cuxhaven-lundi í heimsóknum sínum til Íslands allt frá árinu 1998 en formlegu vinabæja- sambandi milli bæjanna tveggja var komið á fyrir rúmum þrjátíu árum,“ segir í tilkynningu frá bæjarfélaginu. Ljósin á trénu verða tendruð á föstudag af Rósu bæjarstjóra, Dietrich Becker, sendiherra Þýskalands á Íslandi, og Gísla Valdimarssyni, formanni vinabæj- arfélagsins Hafnarfjörður- Cuxhaven, að viðstöddum nokkr- um leikskólabörnum. Fram kemur í tilkynningu bæj- arins að uppsetning jólaþorpsins sé hafin og verði það opið frá kl. 13-18 alla laugardaga og sunnu- daga á aðventunni. Ekki langt að sækja jólatréð í ár Ljósmynd/Aðsend Vel búin Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri sagaði niður jólatréð.  Hefð fyrir að tré komi frá Cuxhaven Hugsanlegt er að nafn flugfélagsins Air Iceland Connect verði lagt niður innan tíðar. Þetta er meðal atriða sem nú eru í skoðun hjá Icelandair, sem tók starfsemina yfir fyrr á þessu ári. Nafnið Icelandair kæmi þá í staðinn. „Við erum að samþætta þá starf- semi sem hefur verið rekin undir merkjum Air Iceland Connect inn í rekstur Icelandair Group. Þetta eru flugrekstur, starfsmannamál, sölu- og markaðsstarf, vörumerki og fleira. Þessi vinna er í fullum gangi og er yfirgripsmikil,“ segir Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Ice- landair, í samtali við Morgunblaðið. Flugfélag Íslands var starfrækt í áratugi en nafninu breytt í Air Ice- land Connect 2017. sbs@mbl.is Breytt nafn hugsanlegt  Icelandair í staðinn Morgunblaðið/Árni Sæberg Flug Nafnið Air Iceland Connect kann að verða lagt niður fljótlega. Alls hafa 35 tilkynningar borist Náttúruhamfaratryggingu Íslands vegna jarðskjálftans sem varð vest- ur af Krýsuvík 20. október af stærð- inni 5,6. Þar af eru 30 tilkynningar vegna tjóns á húseignum og fimm á innbúi og lausafé. Þetta segir Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands, spurð út í stöðu mála rúmum mánuði eftir skjálftann. Niðurstaða er kom- in í mati á 20 húseignatjónum og hafa þrjú þeirra leitt til bóta. „Í stórum hluta þeirra mála sem matsmenn hafa verið að skoða þá telja þeir að tjónið sé annaðhvort undir eigin áhættu eða að ekki sé hægt að rekja skemmdirnar til jarð- skjálftans,“ segir Hulda Ragnheið- ur. Þess vegna komi ekki til bóta en 400 þúsund króna eigin áhætta er á húseignatjónum. „Það má segja að þessi jarðskjálfti hafi leitt í ljós að þrátt fyrir að hann hafi fundist á stóru svæði er sáralítið um skemmd- ir. Þetta sýnir að íslenskar húsbygg- ingar standast auðveldlega skjálfta af þessari stærð.“ Þrír fengið bætur vegna skjálftans  35 tilkynningar Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Viðskipti með notaða bíla hafa verið lífleg á árinu, þvert á það sem fólk í greininni taldi verða vegna áhrifa kórónuveirunnar. Samkvæmt tölum Samgöngustofu eru eigendaskipti á ökutækjum í ár orðin 107.185, borið saman við 97.970 á sama tíma í fyrra. Aukningin er 8,6% en þá ber að hafa í huga að oft eru tvær til þrjár skrán- ingar á bak við ein eigendaskipti, svo sem í uppítökuviðskiptum þegar fjármögnunarfyrirtæki er skráður eigandi bíls í skamman tíma. Sé litið á einstaka tegundir þá eru skráð skipti eigenda á Ford Focus 1.027, 1.529 á Kia Sportage, Honda CRV hefur skipt 1.581 sinni um eig- endur og Toyota RAV4 í 3.352 skipti, Volkswagen Golf 2.920 sinnum og Toyota Yaris 3.919 sinnum. Söluaukningin er 34% Meginlínuna í viðskiptum að und- anförnu segir Sigurður Ragnar Guð- laugsson, sölustjóri notaðra bíla hjá Toyota í Garðabæ, þá að flestir leiti að bílum árgerð 2016 og þaðan af ný- legri. „Fólk vill nýjustu árgerðirnar og hækkar sig í verði, því reglur banka um lán til slíkra viðskipta eru rúmar. Bílar sem eru eldri en fimm ára eða svo seljast hægar. Markað- urinn er líflegur og lagerinn hjá okk- ur er ekki jafn stór nú og stundum áður,“ segir Sigurður. Í október síðastliðnum var sala notaðra bíla hjá Toyota 10% meiri en í sama mánuði í fyrra. Salan fyrstu 10 mánuðina í ár er 34% meiri en í fyrra. „Þegar kórónuveiran skall á snemma árs taldi ég að markaðurinn yrði dauður í ár, en annað kom á daginn,“ segir Sigurður Ragnar. „Ís- lendingar ferðuðust innanlands og fóru í maí að huga að bílaviðskiptum. Sú velta hélst allt sumarið. Þegar komið hafa vond- ar fréttir af veir- unni hafa við- skipti stundum dottið niður í vikutíma eða svo, en farið svo aftur í gang. Við kvört- um því alls ekki yfir stöðu mála.“ Tekið undan koddanum Rögnvaldur Jóhannesson hjá Bílasölu Selfoss selur notaða bíla og er með umboð nýrra bíla fyrir Heklu og Öskju. „Í vor þegar tók fyrir ut- anlandsferðir notuðu margir sparifé ætlað í ferðalög undan koddanum til að kaupa nýjan bíl. Í því efni var ríkjandi hjá fólki að kaupa raf- magns- eða hybrid-bíla; um helming- ur nýrra bíla sem seldir eru í dag í dag er knúinn öðru en jarðefnaelds- neyti,“ segir Rögnvaldur. „Í viðskiptum með nýja bíla eru eldri ökutæki gjarnan tekin upp í og eru gjarnan keypt af ungu fólki sem hefur ekki endilega mikið á milli handa,“ segir Rögnvaldur sem telur framangreint með öðru ráða því að jafnvægi og hringrás í bílaviðskipt- um á árinu hafi haldist. „Bílaleigurn- ar hafa haldið að sér höndum við endurnýjun. Stundum hafa komið þau ár að þær demba þúsundum eins og hálfs til tveggja ára gamalla bíla í endursölu, en bíða með allt slíkt núna. Fyrir vikið er framboð not- aðra bíla hóflegt og jafnvægi á markaði.“ Vaxalækkanir haft mikil áhrif Björn Hansson hjá Bílasölu Reykjavíkur segir viðskiptin í ár standa nánast á pari við fyrra ár. Veirufréttir hafi stundum valdið hökti á markaði, sem gangi þó jafnan fljótt til baka. Í sumar hafi salan ver- ið mjög góð. „Vaxtalækkanir hafa mikil áhrif. Stundum hefur fólk endurfjármagn- að íbúðalán og jafnhliða losað um peninga sem fara í bílakaup. Vextir af bílalánum í dag eru 5,5% og hafa sjaldan verið jafn lágir. Slíkt hvetur fólk til viðskipta og þegar upp verð- ur staðið er 2020 gott ár í bílavið- skiptum,“ segir Björn. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bílar Jeppafloti fyrir utan Toyota í Garðabæ í gær. Sala á notuðum bílum eru lífleg um þessar mundir, þó að búist hafi verið við öðru þegar veiran skall á. Kaupa nýlega og dýra bíla  Líflegur markaður með notaða bíla  Setja sparifé í bíla í stað utanlandsferða  Lán og lágir vextir  3.900 skráningar á Yaris  Jafnvægi er á markaðinum Sigurður Ragnar Guðlaugsson Rögnvaldur Jóhannesson Björn Hansson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.