Morgunblaðið - 24.11.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020
Sem kunnugt er fann Al Gore uppinternetið. Á því leikur enginn
vafi, hann sagði það sjálfur og ætti
að vita það manna best. Flokks-
bróðir hans Joe Biden frelsaði Man-
dela úr prísundinni. Um það vitnaði
Biden sjálfur svo að
á því leikur enginn
vafi.
Dagur B. Egg-ertsson var í
viðtali við Michael
Bloomberg, fyrrver-
andi borgarstjóra
New York og flokks-
bróður og fyrrver-
andi keppinaut fyrr-
nefnds Bidens.
Bloomberg sagði í
viðtalinu að bak-
grunnur Dags í
læknisfræði hefði
hjálpað í baráttunni við kórónuveir-
una í Reykjavík og að borgin hefði
snemma orðið fyrirmynd fyrir mikl-
ar sýnatökur og smitrakningar.
Dagur ræddi svo um hinn miklaárangur sem náðst hefði og
dró ekki úr hlut sínum eða benti á
þátt annarra. Þeir Íslendingar sem
horfa á viðtalið og vita hvernig í
pottinn er búið hljóta að velta fyrir
sér hvernig á því stendur að Bloom-
berg telur að Dagur hafi stýrt hér
sóttvarnaaðgerðum og unnið þrek-
virki í sýnatökum og smitrakn-
ingum.
Hafi Dagur sjálfur ekki sagtBloomberg frá þessu meinta
afreki sínu, hver gerði það þá?
Og ef það var einhver annar semveitti Bloomberg þessar röngu
upplýsingar, hvers vegna leiðrétti
Dagur þá ekki misskilninginn og
benti á þá sem stýrt hafa aðgerðum?
Bloomberg hefði jafnvel getað áttsamtal við þá.
Dagur B.
Eggertsson
Stolnar fjaðrir
STAKSTEINAR
Michael
Bloomberg
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík hefur hafnað ósk
um að fá að opna og reka veitingastað, vínbar eða
hvort tveggja í húsinu á lóð nr. 7 við Laugaveg
með afgreiðslutíma til kl. 03:00. Ástæðan er sú að
um svæðið gilda svokallaðir starfsemikvótar og
veitingastarfsemi rúmast ekki innan þeirra.
Það var Basalt ehf. sem sendi þessa fyrirspurn
inn og var hún tekin til meðferðar hjá umhverfis-
og skipulagssviði. Fram kemur í umsögn skipu-
lagsfulltrúans að í gildi sé deiliskipulag frá 2006
fyrir reit sem afmarkast af Laugavegi, Banka-
stræti, Ingólfsstræti, Hverfisgötu og Smiðjustíg.
Laugavegur 7 tilheyrir Aðalverslunarsvæði 7
skv. aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 en um
það svæði gilda ákveðnir starfsemikvótar. „Er í
aðalskipulaginu tilgreint að hlutfall smávöruversl-
unar á þessu svæði skuli ekki vera lægra en 70%.
Hlutfall smávöruverslunar á svæðinu er ekki
nema um 64% og því myndi breyting á þessu til-
tekna rými úr verslunarhúsnæði yfir í rými með
veitingaþjónustu lækka það hlutfall enn frekar.
Því er ekki hægt að heimila þá breytingu sem ósk-
að er eftir í fyrirspurninni.“ sisi@mbl.is
Fá ekki að opna bar á Laugavegi
Starfsemikvótar
á svæðinu útiloka það
Morgunblaðið/sisi
Laugavegur 7 Þarna verður ekki heimilt að selja
mat og vín. Starfsemikvótar heimila það ekki.
Halldór Grönvold, að-
stoðarframkvæmda-
stjóri ASÍ, lést á Land-
spítalanum þann 18.
nóvember sl. eftir stutt
veikindi, 66 ára að
aldri.
Halldór fæddist í
Reykjavík 8. mars
1954 og ólst þar upp.
Foreldar hans voru
Kveldúlfur Grönvold, f.
1901, d. 1962, og Em-
ilía Oddbjörg Grön-
vold, f. 1912, d. 1996.
Halldór helgaði
verkalýðshreyfingunni
starfsævi sína eftir að hann lauk
námi í vinnumarkaðsfræðum við
University of Warwick á Englandi.
Fyrst starfaði hann hjá Iðju, félagi
verksmiðjufólks í Reykjavík, en frá
árinu 1993 á skrifstofu Alþýðu-
sambandsins. Þangað var hann ráð-
inn sem skrifstofustjóri en frá árinu
2001 var Halldór aðstoðarfram-
kvæmdastjóri ASÍ auk þess að leiða
deild félags- og vinnumarkaðsmála
hjá sambandinu.
Halldór vann alla tíð ötullega að
réttindum launafólks. Hann sat í
stjórn Vinnumálastofnunar frá 1996
og beitti sér mjög í fræðslumálum
innan verkalýðshreyfingarinnar og
þá einkum starfsmenntamálum.
Hann tók þátt í samningum á Evr-
ópuvísu um fjölskyldu-
vænni vinnustaði og
breytingu á vinnu-
tímatilskipuninni
ásamt fæðingar- og
foreldraorlofi. Hann
barðist fyrir breyt-
ingum á fæðingar-
orlofslöggjöfinni sem
náðust árið 2000, þar á
meðal rétti feðra til
töku fæðingarorlofs. Á
síðustu árum hefur
Halldór sérstaklega
beitt sér fyrir aðgerð-
um til að uppræta
brotastarfsemi á
vinnumarkaði.
„Það má fullyrða að fáir hafi haft
eins mikil áhrif á mótun íslenska
vinnumarkaðsmódelsins og Halldór
Grönvold. Hann var einlægur
verkalýðssinni og jafnaðarmaður,
traustur og góður félagi með yfir-
burðaþekkingu á vinnumarkaðs-
málum. Óhætt er að segja að stórt
skarð sé höggvið í raðir starfs-
manna ASÍ, bæði sem hreyfingar
og vinnustaðar, við fráfall Hall-
dórs,“ segir í tilkynningu frá ASÍ.
Eftirlifandi eiginkona Halldórs
Grönvold er Greta Baldursdóttir,
fyrrverandi hæstaréttardómari.
Þau eignuðust tvö börn, Evu og
Arnar, og eru barnabörn þeirra nú
þrjú.
Andlát
Halldór Grönvold