Morgunblaðið - 24.11.2020, Síða 10

Morgunblaðið - 24.11.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Það átti ekki af ársgömlum frönsk- um hettusöngvara að ganga er hann flæktist til Íslands síðasta sumar. Fyrst flaug hann á rúðu og rotaðist á Smyrlabjörgum í maímánuði og kom svo í net Fuglaathugunar- stöðvar Suðausturlands í Einars- lundi tveimur mánuðum síðar. Hvað svo varð um söngvarann er ekki vit- að, en endurheimt á grænfinku sýnir að sumir fuglar sem hrekjast til Ís- lands eiga afturkvæmt. Þannig kom grænfinka sem merkt var á Höfn í Hornafirði í desember 2018 í net merkingamanna á Suðureyjum, skammt frá Stornoway í Skotlandi, í maí í fyrra. Þetta er meðal þess sem lesa má úr skýrslu um fuglamerkingar 2019, en árið var 99. ár fuglamerkinga á Íslandi. 53 merkingamenn skiluðu skýrslum um merkingu á alls 15.775 fuglum af 82 tegundum. Afkasta- mestur við merkingar var Sverrir Thorstensen með 4.575 fugla merkta. Mest var merkt af auðnu- tittlingum, 3.531 fugl, og flestar end- urheimtur voru á þeirri tegund. Guðmundur A. Guðmundsson dýravistfræðingur er formaður fuglamerkingaráðs, en auk hans kemur Svenja Auhage, umhverfis- og vistfræðingur, að daglegri um- sýslu með verkefninu. Merki grafið í jörð í Marokkó Lengsta skráða ferð í endur- heimtum ársins 2019 var endur- fundur sílamáfs í Casablanca í Mar- okkó. Hann var merktur sem ófleyg- ur ungi á Garðaholti 2012 og var 3.529 kílómetra frá merkingastað þegar hann fannst. Ekki er langt síðan langt ferðalag óðinshana til vetrarstöðva var kortlagt með að- stoð dægurrita. Niðurstöður rann- sókna sýndu að óðinshanar frá Vest- ur-Evrópu, þar á meðal fjórir frá Íslandi, flugu þvert yfir Atlantshaf og Mið-Ameríku, um 10 þúsund kíló- metra leið, til hafsvæða austanverðs Kyrrahafs við strendur Perú. Í fyrra fannst á Tangier í Mar- okkó merki af heiðagæs, sem merkt var sem ófleygur ungi í Þjórsár- verum árið 1953, um 3.315 kíló- metra frá fundarstað. Merkið var grafið í jörð og fannst með hjálp málmleitartækis, en líklegt er að gæsin sem bar merkið hafi drepist haustið 1953. Tangier er langt utan hefðbundinna slóða íslenskra heiða- gæsa sem einkum hafa vetursetu í Bretlandi. Svo virðist sem talsvert af heiða- gæsum sem merktar voru af bresk- um leiðangri, sem Sir Peter Scott leiddi í Þjórsárver 1953, hafi lent í hrakningum á leið sinni til vetrar- stöðva. Þetta haust bárust tilkynn- ingar um endurheimtur merkja heiðagæsa m.a. frá Lanzarote í Kanarí í september, Terceira í Azoreyjum í október og frá Astori- as á Spáni í desember, að því er fram kemur í merkingaskýrslunni. Nokkur íslensk aldursmet voru skráð í fyrra. Það á við um skrofu sem merkt var sem fullorðin með hreiður í Ystakletti í Vestmanna- eyjum sumarið 1991 og hefur þá lík- lega verið að minnsta kosti sex ára. Hún fannst á svipuðum slóðum sumarið 2018 og enn var sami fugl endurheimtur á nýliðnu sumri og var skrofan þá orðin a.m.k. 35 ára. Skrofa er mikill flug- og sundfugl og kemur eingöngu í land til að verpa. Ekki er hægt að fullyrða að skrofan hafi árlega verpt í sömu holuna í þrjá áratugi, en líklega hef- ur hún alltaf orpið á litlum bletti í Ystakletti. Hér á landi verpir skrofa eingöngu í Vestmannaeyjum. Illa haldin margæs fannst á Ír- landi 15 ára og fjögurra mánaða. Sendlingur endurveiddist 13 árum og einum degi frá merkingu. Lang- vía endurheimtist að minnsta kosti 33 ára og stuttnefja a.m.k. 25 ára. Hrossagaukur var endurveiddur í Flatey á Breiðafirði a.m.k. 12 ára. Hrakningar söngvara og öldruð skrofa Næturgali (Luscinia megarhynchos) og tígultáti (Pheucticus ludovicianus) komu í net í Sólbrekkuskógi við Seltjörn á Reykjanesi Víxlnefur (Loxia leucoptera) sem kom í net Fuglaathug- unarstöðvar Suðausturlands í Einarslundi við Höfn í Hornafi rði Nýmerkingar 2019 VÍXLNEFUR NÆTURGALI TÍGULTÁTI 15.775 fuglar af 82 tegundum voru merktir árið 2019 hér á landi Árið 2019 var mest merkt af auðnutittlingum, 3.531 fugl, en næstmest af skógarþröstum 2.574 fuglar 756.456 fuglar hafa verið merktir á Íslandi síðan 1921 Óðinshanar merktir með dægurritum voru endurheimtir sumrin 2015 og 2018 eftir vetrar- dvöl við strendur Perú Sendlingur sem var merktur sem ófl eygur ungi á Hraun- hafnartanga á Sléttu 18. júní 2006, endurveiddist þar 13 árum og einum degi síðar Margæs, sem var merkt ársgömul við Hausastaði á Álftanesi 20. maí 2004, fannst illa haldin í Seabanks, Dundalk Bay á Ír- landi 13. október 2019 og drapst. Hún var 15 ára og 4 mánaða Langvía sem var merkt í Látrabjargi sem fullvaxin í varpi 3. júní 1987, var endur- veidd 11.706 dögum síðar á hreiðri á sama stað þann 21. júní 2019, þá a.m.k. 33 ára Stuttnefja sem var merkt sem fullvaxinn fugl í varpi 31. maí 1996 í Ritugjá í Látrabjargi, endurheimtist 25. júní 2018 á hreiðri sínu í Látrabjargi, þá a.m.k. 25 ára gömul Hrossagaukur sem var mektur um ársgamall í Flatey á Breiðafi rði 9. júní 2008, var endurveiddur á sama stað 19. júlí 2019 þá orðinn a.m.k. 12 ára gamallHeimild: Náttúrufræðistofnun Perú Casablanca Tangier Á Tangier í Marokkó fannst með hjálp málmleitartækis grafi ð í jörð merki af heiðagæs sem var merkt árið 1953 sem ófl eygur ungi í Þjórsárverum, 3.315 km frá fundarstað. Þetta er langt utan hefðbundinna slóða íslenskra heiðagæsa sem einkum hafa vetursetu á Bretlandseyjum Tíundi æðarfuglinn merktur á Svalbarða endurheimtist á árinu. Íslenskir æðarfuglar eru að mestu staðfuglar, en hingað koma æðarfuglar frá Svalbarða og Austur-Grænlandi til vetursetu en ein endurheimta er til af æðarfugli merktum í Kanada Lengsta skráða ferð í endurheimt- um ársins 2019 var endurfundur sílamáfs í Casablanca, Marokkó sem merktur hafði verið sem ófl eygur ungi á Garðaholti 2012. Hann var 3.529 km frá merkingarstað Fuglamerkingar og endurheimtur 2019  Skýrsla um fuglamerkingar 2019  Sílamáfur frá Garðaholti til Marokkó  Gamlir sjófuglar Dr. Erlendur Haralds- son, prófessor em- eritus, lést á Hrafnistu við Sléttuveg að kvöldi 22. nóvember, 89 ára. Erlendur fæddist 3. nóvember 1931 á Völl- um á Seltjarnarnesi. Foreldrar hans voru þau Anna Elimundar- dóttir húsmóðir og Haraldur Erlendsson verkamaður. Að loknu stúdents- prófi frá MR árið 1954 stundaði Erlendur nám í sálfræði við háskóla í Freiburg og München í Þýskalandi 1964-1969. Hann lauk dr. phil.-gráðu frá Háskólanum í Freiburg árið 1972. Erlendur starfaði sem rann- sóknarmaður í Bandaríkjunum og stundaði sérfræðinám í klínískri sál- fræði við Virgínuháskóla 1970-71. Erlendur var blaðamaður á Al- þýðublaðinu 1960-1962 og starfaði sem sálfræðingur við American So- ciety for Psychical Research í New York 1972-1974. Hann varð lektor við Háskóla Íslands 1974, dósent 1978 og prófessor 1974. Erlendur var talsmaður uppreisnarmanna Kúrda í Írak árin 1964-1969 meðan hann dvaldi í Þýskalandi og var varaforseti International Society Kurdistan 1965-1970. Erlendur var mikill frumkvöðull á sviði dulsálfræði og rann- sakaði mikið það sem kallað er dulræn fyrir- bæri. Hann var mjög afkastamikill höfundur greina í dagblöðum og tímaritum, auk fræði- greina og bóka. Rita- skrá hans frá árunum 1960-2018 telur um 360 titla greina og bóka. Bækur Erlendar voru þýddar á 14 tungumál og hefur mjög mikið verið vitnað í fræði- greinar hans og bækur. Á meðal íslenskra bóka hans eru Með uppreisnarmönnum í Kúrdistan (1964), Þessa heims og annars (1978), Sýnir á dánarbeði (1979), Látnir í heimi lifenda (2005) og Indr- iði Indriðason, merkasti íslenski miðillinn (2019). Endurminningar Erlendar, Á vit hins ókunna, sem hann skrifaði ásamt Hafliða Helga- syni, komu út árið 2012. Eftirlifandi sambýliskona Erlend- ar er Björg Jakobsdóttir, Mið- Austurlandafræðingur. Hann eign- aðist tvö börn, Harald geðlækni, sem búsettur er ásamt fjölskyldu sinni á Íslandi, og Önnu Elísabetu verkfræðing, sem býr ásamt fjöl- skyldu sinni í Þýskalandi. Andlát Erlendur Haraldsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.