Morgunblaðið - 24.11.2020, Side 13

Morgunblaðið - 24.11.2020, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020 Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Sádi-Arabar neituðu því síðdegis í gær að tímamótaviðræður hefðu átt sér stað í fyrradag, sunnudag, milli Benjamins Netanyahu, forsætisráð- herra Ísraels, og Mohammeds bin Salmans, krónprins Sádi-Arabíu, í heimsókn bandaríska utanríkisráð- herrans Mikes Pompeos til Sádi-Ar- abíu. „Ég hef séð blaðafregnir viðvíkj- andi meintum fundi hans hátignar krónprinsins og ísraelskra embætt- ismanna í nýlegri heimsókn Pom- peos,“ sagði Faisal bin Farhan utan- ríkisráðherra. „Engir fundir af því tagi voru haldnir, og þeir einu sem tóku þátt voru fulltrúar Bandaríkj- anna og Sádi-Arabíu,“ bætti hann við, en það voru fyrstu viðbrögð yf- irvald í Ryiadh við fundinum. Þetta stangast á við staðhæfingar ísraelska menntamálaráðherrans Yoav Gallant sem staðfesti í gær að hinn leynilegi fundur Netanyahu og bin Salmans hefði farið fram í Rauðahafsborginni Neom. Áður sögðu útvarpsstöð hersins og Kan- útvarpið að Netanyahu hefði flogið á laun til Neom til fundar við bin Salman og Pompeo. Er sagt að til fundarins hafi verið efnt vegna ótta í Mið-Austurlöndum við Írani. Ísraelskir fjölmiðlar sögðu að í föruneyti Netanyahu til Sádi-Arabíu hefði verið Joseph (Yossi) Cohen, leiðtogi ísraelsku leyniþjónustunnar Mossad, en hann mun hafa farið fyr- ir leynilegum diplómatískum til- raunum Ísraela til að nálgast meir arabaríkin á Persaflóasvæðinu. Hin ofuríhaldssama Sádi-Arabía, uppspretta íslams, hefur haldið mál- stað Palestínu mjög á lofti og forð- ast opinber samskipti við Ísrael. Gríðarlega tortryggni í garð Írana eiga ríkin tvö og bandamenn þeirra í Mið-Austurlöndum sameiginlega. Í skilaboðum sem ætluð voru Joe Bi- den, verðandi forseta Bandaríkj- anna, í fyrradag var sagt að ekki skyldi horfið aftur til samkomulags um kjarnorkumál við Írani frá 2015 sem Donald Trump, fráfarandi for- seti, sagði Bandaríkin frá. Hvorki forsætisráðuneytið í Ísr- ael né bandaríska sendiráðið í Jerú- salem vildu tjá sig um fréttir af Sádi-Arabíuför Netanyahu. Það gerði Yoav Gallant, menntamálráð- herra Ísraels, aftur á móti. Sagði hann fundinn „ótrúlegt afreksverk“, en Gallant situr í innra öryggisráðu- neyti Nethanyahu. Hvorki hann né aðrir ísraelskir leiðtogar munu áður hafa farið í erindum stjórnvalda til Sádi-Arabíu. Ísraelski varnarmála- ráðherrann Benny Gantz kunni ekki að meta bersögli Gallants og for- dæmdi „óábyrgan leka um flugferð- ina leynilegu til Sádi-Arabíu“. Sádi-arabíski utanríkisráðherr- ann, Faisal bin Farhan Al Saud, vís- aði fréttum af fundinum á bug. „Ég hitti Pompeo á flugvellinum og sam- an fórum við til fundar. Að honum loknum ók ég honum aftur til flug- vallarins. Þeir einu sem viðstaddir voru fundinn og dvölina alla voru Sádar og Bandaríkjamenn,“ sagði Al Saud. Netanyahu neitaði að tjá sig um hina leynilegu flugferð á fundi með flokksmönnum í Likúd-bandalaginu í gær, en þá höfðu Sádar vísað fregnum af fundinum á bug. „Er þér alvara? Vinir, um dagana hef ég aldrei tjáð mig um slíka atburði og hef engin áform um að byrja á því núna,“ svaraði hann. Sömuleiðis vörðust talsmenn Pompeos allra fregna af leynifundinum við Rauða- haf. Eftir því sem styttist í valdaskeiði Trumps hefur Pompeo freistað þess að fá Sádi-Araba til að fylgja for- dæmi Sameinuðu arabísku fursta- dæmanna, Barein og Súdan og kom- ast nær því að taka upp stjórnmála- samband við Ísrael. Sendu Ísraelar fulltrúa sína til Súdan í gær í þess- um umleitunum, að sögn ísraelskra fjölmiðla. Hvorki fulltrúar Ísraels né Súdan vildu tjá sig um málið. Er þetta fyrsti samningahópurinn sem heldur til Súdan frá því skýrt var frá stjórnmálasambandi ríkjanna í nýliðnum október. Orðrómur hafði verið á kreiki um að sendinefnd væri á förum til Khartoum. Út- varpsstöð hersins sagði í gær að nefndin væri þangað komin, en ekki fylgdi fregnum hvaða ráðamenn tækju þátt í ferðinni. Ísraelar og bandamanna þeirra við Persaflóa kunna að deila áhyggj- um af hugsanlegri uppstokkun Joes Bidens á stefnu Bandaríkjanna í málefnum Mið-Austurlanda eftir að hann tekur við völdum 20. janúar næstkomandi. Biden hefur sagst ætla að taka aftur upp aðild að kjarnorkuvopnasamkomulaginu en þó því aðeins að Íranir heiti því áður að virða stíft öll ákvæði þess og eiga samstarf um að herða á ákvæðum þess. Frá í ágúst hafa stjórnvöld í Riyadh heimilað ísraelskum flugvél- um yfirflug í lofthelgi í Sádi-Arabíu til tiltölulega nýrra áfangastaða á Persaflóasvæðinu og Asíu. Talið er að það að gera samskiptin við krón- prins Sádi-Arabíu ögn opinberari en áður geti styrkt Netanyahu heima fyrir og eflt ímynd hans sem stjórn- málaskörungs. Spurður sl. laugardag hvort Riyadh hefði breytt um stefnu varð- andi Ísrael svaraði sádi-arabíski ut- anríkisráðherrann að konungdæmið „hefði lengi“ verið hlynnt því að eðlilegt samband kæmist þar á, þó með því skilyrði að Ísraelar og Pal- estínumenn næðu „fullu og varan- legu samkomulagi um frið“ sín í milli. Herská samtök Palestíumanna hafa fordæmt mýkri afstöðu Sáda í garð óvinar þeirra, Ísraels. Samtökin Ji- had Palestínu sögðu mjúku línuna vera „svik við Jerúsalem og hinar blessuðu borgir Mekka og Medína“. AFP Tveir Þeir funduðu á laun í Rauða- hafsborginni Neom, Benjamin Net- anyahu, forsætisráðherra Ísraels (t.v.), og Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu. Leyniflug til Sádi-Arabíu  Netanyahu neitar að tjá sig um leynilegu flugferðina til Sádi-Arabíu  Gæti gagnast honum að gera samskiptin við krónprins Sádi-Arabíu ögn opinberari AFP Fundur Mike Pompeo utanríkisráðherra Bandaríkjanna (t.v.) og Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels vörðust allra fregna af leynifundinum. Í samanburði við fólk sem neytir kjöts er veganfólki, sem borðar minna af kalsíum og próteinum, 43% hættara við beinbrotum hvar sem er í líkamanum. Veganætum er sömuleið- is hættara við staðbundnu beinbroti í mjöðmum, fótleggjum og hrygg, sam- kvæmt rannsókn sem birt er í tíma- ritinu BioMed Central. Neytendum fiskjar og grænmetis sem létu kjöt eiga sig var hættara við mjaðmarbroti í samanburði við neyt- endur kjöts. Hættan á beinbrotum lækkaði að hluta þegar líkamsmassa- stuðullinn, kalsíum- og prótein- innihald voru tekin með í reikninginn. Dr. Tammy Tong, næringar- faraldsfræðingur við Nuffield- heilsufarsdeild Oxford-háskóla, og aðalhöfundur tímaritsgreinarinnar, segir þetta vera í fyrsta sinn sem yf- irgripsmikil rannsókn er gerð á bein- broti í fólki eftir matarvenjum. „Við fundum út að veganfólki er hættara en öðrum við brotum hvar sem er, eða sem nemur 20 fleiri tilvikum á hvert þúsund manna á tíu ára tímabili en fólki sem borðaði kjöt. Mestur var munurinn í mjaðmarbrotum en þar var hættan 2,3 sinnum meiri hjá veg- anfólki en kjötætum, sem jafngildir 15 tilfellum í 1.000 manna hópi á 10 árum. Hópur rannsakenda við ensku há- skólana í Oxford og Bristol greindu gögn frá tæplega 55.000 manns í svo- nefndri EPIC-Oxford-rannsókn á ár- unum 1993 til 2001. Af 54.898 þátt- takendum neyttu 29.380 kjöts, 8.037 fiskjar en ekki kjöts, 15.499 voru grænmetisætur og 1.982 vegan þegar viðkomandi komu til liðs við rann- sóknina. Matarvenjur þeirra voru metnar í upphafi og svo aftur árið 2010. Fólkinu var fylgt óslitið eftir í 18 ár að jafnaði, fram til ársins 2016, vegna hugsanlegra beinbrota. Alls námu þau 3.941 eða 566 handleggs- brot, 889 úlnliðsbrot, 945 mjaðm- arbrot, 366 fótbrot, 520 ökklabrot og 467 önnur á stöðum svo sem í við- beini, rifjum og hryggjarliðum. Til viðbótar meiri hættu á mjaðmar- brotum hjá veganfólki, grænmetis- og fiskætum heldur en hjá kjötneyt- endum var hættan á fótbrotum einn- ig mikil hjá veganfólki. Veganfólki hætt- ara við beinbroti AFP Vegan Matreitt á nýlegri vegan- hátíð í Taílandi. Heimilt verður að opna á ný líkams- ræktarstöðvar og verslanir með annað en brýnar nauðsynjar um allt England frá og með 2. desember, að sögn Boris Johnsons forsætis- ráðherra. Hann skýrði frá þessu í þinginu í gær. Þar sagði hann að horfið yrði aftur til þriggja fasa svæðisbund- inna ráðstafana og þær jafnvel hertar. Johnson sagðist „afar leiður“ yfir því „harðrétti“ sem ráðstafanirnar væru fyrir fyrirtæki. „Í fyrsta sinn frá því veiran kom til skjalanna grillir í leið út úr faraldrinum,“ sagði hann úr sjálfseinangrun sinni. „Við erum ekki komin alveg þang- að enn,“ sagði Johnson og bætti við að ekki mætti sólunda harðsóttum ávinningi. agas@mbl.is BRETLAND AFP Leiðtogi Johnson ávarpaði yfir vefinn. Bönnum aflétt 2. desember Einn helsti bandamaður Donalds Trumps hefur lagt að honum að hætta tilraunum til að fá kosninga- sigri Joe Biden umsnúið fyrir dóm- stólum. Fyrrverandi ríkisstjóri í New Jersey, Chris Christie, sagði að lög- fræðingasveit Trumps væri „þjóð- arvandræðagripur“. Trump hefur neitað að viðurkenna úrslit kosn- inganna 3. nóvember og lýst hald- litlum ásökunum um víðtækt kosn- ingasvindl. Margir repúblikanar hafa stutt forsetann í málaferlunum en vax- andi hópur hefur sagt sig frá því. Christie sagði lögfræðinga Trumps oft tala utandyra um svik og pretti. Þegar inn væri komið bólaði hins vegar ekki á sókn eða rökstuðningi fyrir svindli. agas@mbl.is BANDARÍKIN Leggur að Trump að játa ósigur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.