Morgunblaðið - 24.11.2020, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 24.11.2020, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020 Málverk Keilir er konungur fjallanna á Reykjanesskaganum og gnæfir tignarlega yfir þegar horft er til suðurs frá höfuðborgarsvæðinu. Hér dansar svo sólin í gegnum skýjabakkana. Árni Sæberg Covid-19-veiran heldur áfram að breið- ast út á heimsvísu og þegar þetta er skrifað 17. nóvember teljast yf- ir 55 milljónir hafa tekið veikina og tala látinna vera yfir 1,3 milljónir. Veiran er víða í háum hæðum og útbreiðsla hennar fer vaxandi m.a. í Bandaríkjunum og á Indlandi, sem leggja hvað mest til í tölu lát- inna. Nokkur Evr- ópulönd skera sig úr með hlutfallslega lága útbreiðslu veirunnar. Tölur hér í svigum tákna 14 daga nýgengi á 100 þúsund íbúa og eru lægst í þeim hópi Finnland (55) og Ísland (77) og nokkur fleiri hafa sloppið tiltölulega vel eins og Írland (114), Noregur (156), Eistland (212) og Lettland (228). Danmörk stendur lakar á þess- um skala (260) en þó betur en Þýska- land (308) þar sem áhyggjur manna hafa farið ört vaxandi upp á síðkastið. Í flestum öðrum löndum Mið- og Suð- ur-Evrópu eru tölurnar langtum hærri með Austurríki (1.056) og Tékkland (1.076) í einna lakastri stöðu um þessar mundir. (Heimild: Euro- pean Centre for Disease Prevention and Control). Svíar setja í bakkgírinn Mikla athygli vakti þegar Stefan Löfven for- sætisráðherra Svía til- kynnti sl. mánudag um stefnubreytingu af hálfu stjórnar sinnar í smit- vörnum. Fram að þessu hafði Svíþjóð skorið sig úr öðrum Norðurlöndum með litlum opinberum hömlum á almenning. Vísuðu margir andstæð- ingar harðra fyrirmæla til varnar veirusmiti til fordæmis Svía. En nú var smitstuðullinn þar kominn yfir 500 á hvert 100 þúsund og skýrir það stefnubreytinguna. Sænsk stjórnvöld óttast að heilbrigðiskerfið sé að nálgast þol- mörkin eins og víðar í álfunni. Í nýju reglunum sem gilda eiga í Svíþjóð fram að jólum felst m.a. að takmarka ber fjölda á samkomum og opinberum viðburðum við átta manns, þar á með- al á útifundum, í kirkjum, á tónleikum og í leikhúsum. Grunnhugsunin er að fólk aðhafist ekkert annað en það allra nauðsynlegasta. Hins vegar er eftir sem áður gengið skemur en víða annars staðar um takmarkanir gagn- vart veitingahúsum, næturstöðum og íþróttaæfingum, m.a. þar eð laga- heimildir skorti til að herða tökin í þessum efnum. Austurríki herðir tökin en Þjóðverjar hika Vart getur nokkur láð Kurz Aust- urríkiskanslara að grípa nú til enn róttækari ráðstafana gegn útbreiðslu veirunnar en áður voru í gildi. Segja má að lokað hafi verið á allt það sem stjórnvöld geta komið höndum yfir til að koma í veg fyrir hrun heilbrigðis- þjónustu landsins. Ekki reynist nú unnt að rekja 77% allra nýsmita, um 4.000 Covid-sjúklingar lágu inni á sjúkrahúsum og hátt í 600 á gjör- gæslu. „Eindregin tilmæli mín fyrir næstu vikur“ sagði Kurz „eru að þið hittið engan! Sérhver félagstengsl eru einum um of. Því ákveðnar sem við fylgjum þeirri reglu, þeim mun betri árangurs er að vænta.“ (Der Spiegel, 14. nóv. sl.). Samkvæmt þessum fyr- irmælum eiga menn að halda sig heima nótt sem nýtan dag nema brýna nauðsyn beri til, svo sem til að sækja vinnu eða kaupa nauðsynjar. Einnig grunnskólar og flestir leik- skólar eru lokaðir nema fyrir fjar- kennslu. Framlengingu á þessum stífu reglum þarf þó að bera undir að- alnefnd austurríska þingsins. – Þjóð- verjar ræða um þessar mundir einnig hertar reglur, en nokkuð deildar meiningar eru milli fylkja landsins þar sem smit og ýmsar aðstæður eru ólíkar, og þess utan er öfgaflokkurinn AfD andvígur öllum takmörkunum. Eyríkin ná að verjast betur Það kemur ekki á óvart að mörg eyríki hafa náð að verjast veirusmiti betur en ríki inni á meginlöndum. Nýja-Sjáland vakti þegar í fyrstu bylgju faraldursins athygli fyrir lágar smittölur, fór hæst í 17 smit á 100 þús. íbúa í byrjun mars sl., enda stjórnvöld með markvissa stefnu um varnir á landamærum. Nú er stuðull Nýsjá- lendinga aðeins eitt smit. Ísland hefur líka birst jákvætt í þessu ljósi, síðast með 77 smit, tala sem síðan hefur væntanlega farið lækkandi. Kýpur hefur líka tekist að halda lágum smit- stuðli lengst af, nú þó með stuðulinn 288. – Japan er eyríki af stærri kvarða, en hefur þó einnig lengst af legið lágt í smiti, nú með stuðulinn 13, enda haldið uppi vissum vörnum á landamærum. Það kemur því mörg- um á óvart að pólitísk forysta þar skuli fyrir skemmstu hafa látið undan þrýstingi Alþjóðaólympíunefndar- innar um að stefna á sumarleika í Tókíó í júlí 2021. Nýtur sú hugmynd takmarkaðs fylgis meðal almennings þar í landi, og má líka telja ósennilegt að aðstæður opni á slíkan atburð á næsta sumri. Það á raunar við um fleiri alþjóðleg íþróttamót, sem reynt er að halda til streitu. Teflum ekki á tvær hættur Jólafastan er nú skammt undan og jólin eru þegar til umræðu með skír- skotun til hefðbundinnar jólahátíðar, kaupsýslu og fjölskyldusamkvæma. Í þessu efni er allur varinn góður og ástæða til að hafa í huga smitberann og varnir gegn honum hérlendis sem annars staðar. Hvernig væri að njóta skammdegis og sólhvarfa með hóg- værari hætti en tíðkast hefur, hver í sínum ranni, með góða bók og miðla við höndina til að tengjast vinum og ættingjum? Við höfum vanist því upp á síðkastið að kveðja látna úr fjar- lægð og sama getur átt við um trúar- iðkanir og rækt við skyldmenni. Aðal- atriðið er að byrja nýtt ár í sem bestri stöðu til að ná viðspyrnu á nýju ári. Bóluefni af mismunandi gerðum eru í burðarliðnum og við væntum þess að þau sanni sig þegar kemur fram á ár- ið og sem flestir geti og vilji nýta sér þau. Allt tekur það ferli tíma og óvar- legt að ætla að þessari prófraun ljúki fyrr en kemur fram á árið 2022. Það á við um atvinnulíf eins og ferðaiðnað svo og dægrastyttingu. Festina lente – flýtum okkur hægt – er gamalt heilræði sem á vel við í þeirri vandrötuðu framtíð sem bíður okkar. Eftir Hjörleif Guttormsson » Ferlið fram undan tekur sinn tíma og óvarlegt að ætla að þessari próf- raun ljúki fyrr en kemur fram á árið 2022. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Hleypum ekki veirunni lausri áður en varnir eru örugglega til staðar Það er ekki gott að vera framhalds- skólanemi í dag. Fæstir þeirra hafa fengið að mæta í skólann sinn síðan í mars ef undan er skilið stutt innlit í september. Þess í stað hafa þeir þúsundum saman set- ið fyrir framan tölvurnar sínar í fjar- námi. Sumir minna gömlu skólafélaga hefðu mögulega tekið svona ástandi fagnandi, en líklega bara tímabundið. Núverandi ástand er orðið langdregið og framhaldsskólanemar eru orðnir svekktir, þreyttir og leiðir. Eðlilega. Menntaskólaárin eru ein- hver bestu ár ævinnar. Í mennta- skólanum eignast maður vini fyrir lífstíð. Félagslífið er hvergi skemmti- legra og þar mótast fólk til framtíðar. Ég hefði ekki viljað eyða mínum menntaskólaárum á Zoom eða Teams eins og krakkar í dag þurfa að gera. Enda vilja þau nú allt gera til að kom- ast í skólann aftur. Slæmar afleiðingar Mér finnst eins og lengst af hafi unga fólkið gleymst í umræðunni. Framhaldsskólanemar eru gleymda kynslóðin í faraldrinum. Þar til alveg nýverið talaði enginn máli þeirra. Ég er hræddur um að ef núverandi ástand dregst frekar á langinn sé hætt við að afleiðingarnar verði slæmar. Þótt nemendur í listgreinum og verk- námi séu, ásamt hluta bekkjakerf- isskólanna, í tak- mörkuðu staðnámi, þá eru langflestir þeirra heima. Ef þetta breytist ekki kann brottfall að aukast, sem eitt og sér hefur veru- lega neikvæð þjóðhagsleg áhrif í för með sér. Brottfallið leiðir til þess að ungt fólk, sem annars ætti framtíðina fyrir sér, finnur hæfileikum sínum, þekkingu og áhugamálum ekki far- veg og er auk þess hættara við að leiðast út á rangar brautir. Áframhaldandi ástand getur líka leitt til þess að svo mikil röskun verði á námsframvindu þeirra sem nú eru í framhaldsskóla að það leiði til þess að skólastarf verður komið í óefni þegar næstu árgangar mæta til leiks. Á þetta að vera svona? Ekki get ég ímyndað mér að neinn sé ánægður með núverandi ástand. En ég er heldur ekki viss um að framhaldsskólanemar átti sig sjálfir á því hversu kirfilega réttindi þeirra eru tryggð í lögum um framhaldsskóla nr. 92/ 2008. Þannig segir t.d. í 33. gr. laganna: „Framhaldsskóli er vinnustaður nemenda. All- ir nemendur í framhalds- skóla eiga rétt á kennslu við sitt hæfi í hvetjandi námsumhverfi í viðeigandi húsnæði sem tekur mið af þörfum þeirra og al- mennri vellíðan.“ Það segir sig sjálft að þó svo að það geti verið þægilegt að liggja uppi í rúmi heima og dorma yfir bókfærslu- fyrirlestri þá telst slíkt náms- umhverfi ekki hvetjandi í fram- angreindum skilningi. Og ákvæðið gerir beinlínis ráð fyrir að kennsla fari fram í viðeigandi húsnæði. Í öllu falli er ljóst að þær aðstæður sem framhaldsskólanemum hefur verið boðið upp á síðan í mars eru í and- stöðu við lögbundin réttindi þeirra. Í sömu lagagrein segir einnig: „Nemendur eiga rétt á því að koma á framfæri sjónarmiðum sínum varðandi námsumhverfi, náms- tilhögun, fyrirkomulag skólastarfs og aðrar ákvarðanir sem snerta þá.“ Það væri fróðlegt að vita hvort þetta unga fólk hafi verið spurt álits áður en ákvörðun var tekin um að námi þeirra yrði hagað með þeim hætti sem nú er, eins og yfirmönnum skólamála er skylt að gera, jafnvel þótt aðstæður séu flóknar og erfiðar. Þarf þetta að vera svona? Það er ég ekki viss um. Ég get ekki betur séð en að það ætti að vera vel gerlegt að leyfa unga fólkinu að fara í skólann sinn, a.m.k. að einhverju marki. Nýverið bárust mér upplýsingar um að Háskólinn í Reykjavík hefði endurskipulagt allt kennslufyrir- komulag fyrir sína nemendur í far- aldrinum. Það fyrirkomulag hefur tryggt að nemendur í flestum deild- um skólans hafa lengst af getað sótt u.þ.b. helming þeirra kennslustunda sem þeir annars hefðu setið ef að- stæður væru með eðlilegum hætti. Þetta er athyglisvert því allar sömu sóttvarnareglur hafa verið í gildi í Háskólanum í Reykjavík og í framhaldsskólum landsins á meðan faraldurinn hefur geisað, hvort sem þær snúa að fjöldatakmörkunum í einstökum rýmum, tveggja metra fjarlægð, grímuskyldu eða öðru. Þannig að sóttvarnareglurnar virðast ekki standa því í vegi að krakkarnir geti farið í framhaldsskólann sinn. Samt hafa þeir staðið svo gott sem tómir. Þá vaknar þessi spurning: Fyrst Háskólinn í Reykjavík hefur getað tekið á móti sínum nemendum og kennt þeim sínar lexíur í staðnámi, a.m.k. að einhverju marki, allan þennan tíma, hvers vegna hafa fram- haldsskólarnir ekki gert það líka? Skulda skólastjórnendur og yf- irmenn skólamála í landinu fram- haldsskólanemum ekki svar við þeirri spurningu? Hverju sem um er að kenna er kominn tími til að á þessu verði nú breyting. Og sú breyting þarf að eiga sér stað án tafar. Eftir Sigurð Kára Kristjánsson »Ég get ekki betur séð en að það ætti að vera vel gerlegt að leyfa unga fólkinu að fara í framhaldsskólann sinn í miklu meira mæli en nú er. Sigurður Kári Kristjánsson Höfundur er hæstaréttarlögmaður og fv. framhaldsskólanemi. Gleymda kynslóðin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.