Morgunblaðið - 24.11.2020, Page 17
MINNINGAR 17Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020
Það eru rúm
45 ár frá fyrsta
K-degi sem
haldinn er að
jafnaði á
þriggja ára
fresti og 2019 í
15. skipti. Með
sölu K-lykils,
„Lykils að lífi“,
hefur alltaf
verið styrkt
geðverndarmál undir kjör-
orðinu „gleymum ekki geð-
sjúkum“. Vinna okkar Kiw-
anismanna er öll í
sjálfboðavinnu þannig að
söfnunarfé skili sér sem
best til styrktarverkefna.
Verndari söfnunarinnar
hefur að jafnaði verið forseti
Íslands, sem við metum
mikils og þökkum fyrir.
Einnig þökkum við Kiw-
anisfélagar þjóðinni fyrir
frábærar móttökur.
Kiwanishreyfingin hefur
kostað og gefið út Lífsvísi í
samstarfi við Landlækn-
isembættið til þess að
sporna gegn sjálfsvígum og
sér forvarnarfulltrúi Land-
læknis um dreifingu á Lífs-
vísinum.
Hér fylgir samantekt yfir
styrktar-
verkefni sl. 45
ár og upp-
reiknað má
áætla að það
hafi safnast yf-
ir 300 milljónir
til geðvernd-
armála auk
þess og ekki
síst að opna
umræðu um
viðkvæman
málaflokk.
1974/77 Hús-
næði Bergiðjunnar byggt
fyrir söfnunarfé.
1980/83 Byggt áfanga-
heimili við Álfaland í sam-
vinnu við Geðverndarfélag
Íslands.
1986 Uppbygging ung-
lingageðdeildar við Dal-
braut.
1989 Keypt húsnæði fyrir
sambýli geðsjúkra í Reykja-
vík og áfangaheimili á Akra-
nesi.
1992 Kostuð veruleg
stækkun við Bergiðjuna.
1995 Íbúð keypt fyrir að-
standendur barna og ung-
linga sem voru í meðferð á
Dalbraut. Einnig fengu
Bjarg á Akureyri og Sogn í
Ölfusi hluta af söfnunarfénu.
1998 Söfnunarfé var varið
til endurbóta á húsi Geð-
hjálpar við Túngötu.
2001 Klúbburinn Geysir,
samtök um gagnkvæman
stuðning geðsjúkra, fékk fé
til húsnæðiskaupa, Hringsjá
starfsþjálfun fatlaðra fékk fé
til tækjakaupa og Áfanga-
heimilið Álfabyggð 4 á
Akureyri fékk fé til end-
urbóta á áfangaheimili geð-
fatlaðra.
2004 Geðhjálp og BUGL
fengu afrakstur söfnunar-
innar.
2007 Geðhjálp, BUGL og
Forma fengu afrakstur söfn-
unarinnar.
2011 BUGL fékk 8,5 millj-
ónir, Miðstöð foreldra og
barna 8,5 milljónir og Laut-
in á Akureyri 5,5 milljónir.
2016 BUGL og Pieta
fengu styrk að upphæð 9,5
milljónir hvor.
2019 BUGL og Pieta
fengu styrk að upphæð 10
milljónir hvor.
Kiwanis og
geðverndarmál í 45 ár
Eftir Gylfa
Ingvarsson » Verndari söfn-
unarinnar hef-
ur að jafnaði verið
forseti Íslands
Gylfi Ingvarsson
Höfundur er formaður
K-dagsnefndar Kiwanis.
gylfiing@kiwanis.is
Það skýtur skökku við að
háttvirtur iðnaðarráðherra
komi með þennan boðskap
að afnema lögverndun iðn-
greina og það á tímum þeg-
ar yfirstjórn menntamála og
verkmennta leggur áherslu
á að efla verknám í landinu.
Lögverndun faggreina er til
að tryggja gæði og öryggi í
verklegum þáttum. Á
kannski að afnema lög-
verndun lögfræðinga og
lækna? Er nóg að hafa farið
á skyndihjálparnámskeið
eða lesið umferðarlögin?
Nei, nú stöldrum við við og
förum okkur afar hægt, því
30 milljarðar eru sýnd veiði
en ekki gefin! Þá hefur ekki
verið reiknað inn í tap, tjón
og jafnvel eitthvað verra
sem afleiðing af einhverju
fúski!
Iðnskólinn í Reykjavík
var stofnaður fyrir 116 árum
og grunnurinn að stofnun
hans kom frá Iðnaðar-
mannafélaginu í Reykjavík,
sem er þriðja
elsta starfandi
félag á Íslandi.
Tilgangurinn var
að tryggja góða
menntun og fag-
legt handbragð.
Smám saman
fjölgaði fag-
greinum í skól-
anum og í dag er
hann rekinn und-
ir nafninu
Tækniskólinn –
skóli atvinnulífs-
ins. Fjöldi ann-
arra skóla hefur verk-
menntun í boði en
mismargar iðngreinar.
Á undanförnum misserum
hefur mönnum orðið ljóst
hve góð verkmenntun er
mikilvæg; hvað ungur nem-
ur gamall tem-
ur. Má í því
sambandi geta
þess að iðn-
nemar hafa
tekið þátt í
ýmsum keppn-
um erlendis og
náð þar frá-
bærum ár-
angri, meðal
annars gull-
verðlaunum
eða verið í
efstu sætum,
að ótöldum matreiðslumönn-
um í landsliðinu, barþjónum
í heimsmeistarakeppnum og
handverksmönnum í Evr-
ópukeppnum.
Það er því alveg ljóst
hvert á að stefna og það er
ekki að láta utanaðkomandi
öfl stjórna okkar fag-
mennsku. Eflum íslenskan
iðnað!
Nú er stóra spurningin: Hverjir
eiga að stjórna landinu; OECD
eða Alþingi Íslendinga?
Eftir Jón
Svavarsson
» Iðnskólinn í
Reykjavík var
stofnaður fyrir 116
árum og Iðnaðar-
mannafélagið í
Reykjavík, stofnað
1867, lagði grunn-
inn að stofnun hans!
Jón Svavarsson
Ljósmynd/(C) MOTIV, Jón Svavarsson
Nemi í rafvirkjun í Íslandsmeistarakeppni nema.
Höfundur er rafeindavirkja-
meistari og ljósmyndari.
motiv@simnet.is
✝ Anna Lóa Mar-inósdóttir
fæddist 24. nóv-
ember 1945 á
Bergþórugötu 59 í
Reykjavík. Hún
lést á heimili sínu
Holtsbúð 22 í
Garðabæ 13. nóv-
ember 2020, um-
vafin fjölskyldu
sinni.
Foreldrar henn-
ar hétu Marinó Guðjónsson, tré-
smiður, f. 18. september 1903,
d. 6. júlí 1979, og Guðrún Helga
Theodórsdóttir, húsmóðir, f. 9.
maí 1907, d. 14. desember 1991.
Anna Lóa er næstyngst fimm
systkina sem eru Theodór Mar-
inósson, f. 7. ágúst 1932, d. 3.
október 2012, Kristrún
Marinósdóttir, f. 20. júlí 1935,
Ásta María Marinósdóttir, f. 1.
júlí 1939, og Gunnbjörn Mar-
inósson, f. 20. janúar 1954.
Anna Lóa giftist þann 1.
febrúar 1964 eftirlifandi eig-
inmanni sínum, Pálma Sigurðs-
syni, f. 30. nóvember 1942. For-
eldrar hans voru Sigurður
Hannesson, sjómaður og vöru-
bílstjóri, f. 21. maí 1913 í Kefla-
vík, d. 22. mars 1984, og Anna
Dagmar Lovísa Eyjólfsdóttir,
húsmóðir, f. 12. júlí 1907, d. 7.
janúar 1977.
Börn þeirra eru Marinó
Pálmason, f. 4. september 1963.
Eiginkona hans er Guðbjörg
Erna Erlingsdóttir, f. 14. nóv-
ember 1964. Börn þeirra eru:
Marinó Marinósson, f. 11. mars
1991, unnusta Anna Sigríður
Guðjónsdóttir, f. 26. september
1996, og barn þeirra ófæddur
f. 6. júní 2006, og Önnu Rakel
Gunnarsdóttur, f. 17. janúar
2011.
Anna Lóa gekk í Austur-
bæjarskóla og lauk þaðan gagn-
fræðaprófi. Hún kynnist síðan
eiginmanni sínum, Pálma Sig-
urðssyni, en fljótlega eftir að
þau giftu sig, þann 1. febrúar
1964, fluttu þau með nýfæddan
son að Sigurhæðum við Elliða-
árdal þar sem þau stofnuðu sitt
fyrsta heimili. Síðar bjuggu þau
í Barmahlíð 41 og síðar á Berg-
þórugötu 59 þar til þau byggðu
sér hús árið 1976 í Holtsbúð 22
í Garðabæ þar sem þau hafa
haldið heimili síðan.
Anna Lóa starfaði sem
aðstoðarkona tannlæknis hjá
Gunnari Skaftasyni á árunum
1960-1962. Í framhaldi eign-
aðist hún sitt fyrsta barn árið
1963 var því heimavinnandi
húsmóðir allt til ársins 1984 en
þá tók hún til starfa á leikskól-
anum Bæjarbóli í Garðabæ og
vann þar til 1993. Hún starfaði
á leikskólanum Hæðarbóli frá
árinu 1993-2004.
Anna Lóa og Pálmi lögðu
drög að fyrirtækinu Dráttar-
bílum árið 1970 en það er starf-
rækt enn þann dag í dag.
Anna Lóa var lengst af í kór,
Opus 12 og Kvennakór Hafn-
arfjarðar. . Árið 1999 gekk hún
í Oddfellowstúku nr. 1 Berg-
þóru. Hún gegndi ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir Oddfellow
sem var henni mjög mikilvægt.
Árið 2016 var hún kölluð í Búð-
arstúku nr. 1 Þórhildi.
Útför Önnu Lóu fer fram frá
Vídalínskirkju í dag, 24. nóv-
ember 2020, klukkan 13, að við-
stöddum nánustu ættingjum og
vinum. Útförinni verður
streymt á slóðinni: https://
youtu.be/cYsNrg2T55o/.
Einnig má finna virkan hlekk
á streymið á: https://www.mbl.is/
andlat/.
Marinósson mun
væntanlega fæðast
6. desember. Hin-
rik Hrafn Mar-
inósson, f. 11. mars
1994, unnusta hans
er Elsa Hrund
Bjartmarz, f. 29.
júní 1993.
Steinar Pálma-
son, f. 27. janúar
1965, unnusta hans
er Sigríður Birg-
isdóttir, f. 23. janúar 1964.
Steinar var giftur Jóhönnu Þor-
bergsdóttir til ársins 2003.
Börn þeirra eru: Sandra Rós
Steinarsdóttir, f. 29. september
1988, unnusti hennar er Einar
Gunnarsson, f. 11. október
1980. Sonur Söndru er Frosti
Thor, f. 22. október 2013, dóttir
Einars heitir Carmen Lea Ein-
arsdóttir, f. 24. september 2006.
Ester Ósk Steinarsdóttir, f. 30.
september 1990. Unnusti henn-
ar er Zlatko Krickic, f. 29. jan-
úar 1992, sonur þeirra heitir
Leon Máni, f. 7. febrúar 2020.
Anna Lóa Steinarsdóttir, f. 9.
ágúst 1999, og Þorbergur Þór
Steinarsson, f. 7. júlí 2000.
Sigurður Pálmason, f. 28.
janúar 1970, eiginkona hans er
Valdís Harrysdóttir, f. 11. maí
1968. Synir þeirra eru Pálmi
Fannar Sigurðsson, f. 13. mars
1996, unnusta hans er Þóra
Kristín Jónsdóttir, f. 30. mars
1997. Dagur Logi Sigurðsson, f.
10. apríl 2004, og Sigurður
Máni Sigurðsson, f. 8. sept-
ember 2011.
Lovísa Anna Pálmadóttir, f.
21. nóvember 1980. Hún á börn-
in Brynjar Helga Gunnarsson,
Elsku Lóa mín.
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni
láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
(Ómar Ragnarsson/
Gísli á Uppsölum)
Þinn
Pálmi.
Elsku mamma mín er fallin
frá eftir erfið veikindi. Hún er
fallin frá mér og okkur öllum
sem töldum okkur eiga hana. Ég
er svo heppinn að vera frum-
burður hennar og fékk þess
vegna að þekkja hana í 57 ár og
fyrir þann tíma ætla ég að vera
þakklátur. En auðvitað er ég
líka sár því hún var búin að gefa
mér svo mikla ást og hlýju að
mér fannst ég hafa átt eftir að
gefa henni svo mikið til baka.
Ég var búinn að hlakka svo til
að geta tekið þátt í að veita
henni allt sem hugsast gat og ég
veit að þar vorum við öll klár
vegna þess að hún átti það svo
mikið skilið. En veikindi gera
ekki alltaf boð á undan sér,
þannig er bara lífið og við fáum
því ekki breytt. Ég ætla samt að
vera glaður því ég veit að það er
besta leiðin til að halda minn-
ingu hennar mömmu minnar á
lofti.
Þessi kona var alltaf svo
glæsileg og hrókur alls fagnað-
ar. En hún var líka nagli því lífið
er ekki alltaf dans á rósum og
hún kenndi mér að takast á við
áföll í lífinu en það er eitthvað
sem við öll lendum í og þetta er
áfall. Maður er aldrei tilbúinn að
missa ástvin og þá skiptir ekki
máli hvort það er einhver að-
dragandi. Við mamma áttum
eftir að gera svo mikið, þess
vegna er ég sár og þess vegna
eruð þið líka sár því þið vilduð
hitta hana svo miklu oftar. En
þetta eru skrítnir tímar og
margir að missa svo mikið. Ég
var bara svo heppinn að geta
haldið í hönd hennar þegar kall-
ið kom og fyrir það er ég þakk-
látur. Þetta er nefnilega það fal-
lega við að elska, maður verður
bara meira sár þegar maður
missir. Elsku mamma mín,
minningu þinni verður haldið
hátt á lofti svo mikið er víst.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta,
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Takk fyrir allt sem þú gerðir
fyrir okkur.
Þinn sonur,
Marinó.
Elsku hjartans mamma mín,
það er svo sárt að þú skulir vera
farin frá okkur. Það var svo
margt sem við áttum eftir að
gera saman og ég var sannfærð-
ur um að þú yrðir manna elst
með allri þinni gleði, kærleika
og ást sem þú umvafðir okkur
ætíð. Það eru engin orð sem fá
því lýst hversu mikill söknuður-
inn er að geta ekki dottið í faðm
þinn, knúsað þig og fundið fyrir
þessari ómældu ást sem þú
gafst frá þér því þú komst
manni alltaf til að hlæja og til að
líta á björtu hliðarnar á öllu.
Þú passaðir upp á alla, hafðir
áhyggjur af öllum og ekki hvað
síst þegar ég kom til þín hvort
sem það var rétt til að kíkja í há-
deginu eða á öðrum tímum.
„Siggi minn, ertu búinn að
borða eitthvað?“
Þú varst einstök mamma sem
margir öfunduðu mig af að eiga
og þú átt stað í hjörtum svo
margra sem kynntust þér á lífs-
leiðinni hvort sem var í leik eða
starfi sem segir svo margt um
hversu yndisleg þú varst, það
vildu allir eiga þig.
Það var alveg sama hvað þú
tókst þér fyrir hendur, þú gerðir
allt svo vel, þú varst svo þol-
inmóð, jákvæð og svo góð við
alla og sérstaklega við litlu ein-
staklingana okkar sem komu í
heimsókn til þín og afa og vildu
helst hvergi annars staðar vera
því þar var alltaf eitthvað að
gerast.
Ég átti mér þá ósk heitasta að
þú myndir ná þér af þessum erf-
iðu veikindum sem þú barðist
svo hetjulega við í tæp þrjú ár
svo við gætum fagnað í nýja
húsinu okkar sem þú fylgdist
svo vel með og hvattir okkur í
því verkefni þrátt fyrir langan
tíma, en eins og þú sagðir svo
réttilega, þá er betra að vanda
til verks en að flýta sér en ég
veit að þú verður alltaf hjá okk-
ur og munt áfram fylgjast með
þegar við flytjum og ég vona að
þú spjallir við álfana fyrir mig
sem við ræddum um nýlega.
Allar þær minningar sem við
eigum um þig eru okkur svo
dýrmætar að ljós þitt í þeim
mun áfram lýsa upp lífið okkar
alla daga, alltaf, þar til við hitt-
umst á ný.
Hvíldu í friði, elsku mamma
mín, og takk fyrir allt sem þú
hefur gefið okkur.
Þinn sonur,
Sigurður Pálmason.
Mamma mín, elsku fallega,
góðhjartaða og dásamlega
mamma mín. Ég á svo erfitt með
þetta, ég skil ekki. Ég er búin að
kvíða þessum skrifum í marga
daga, vissi ekki alveg hvernig ég
ætti að koma þessu frá mér –
það er bara svo margt sem mig
langar að segja þér og mér
finnst svo ósanngjarnt að við
séum á þessum stað, við öll.
Þetta er eitt af þessum atvikum
í lífinu sem fá mann til þess að
velta svo mörgu fyrir sér, en
Anna Lóa
Marinósdóttir
SJÁ SÍÐU 18