Morgunblaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.11.2020, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Gunnhildur Arna Gunnars-dóttir setur um margt nýviðmið í ævisagnaskrifumí bókinni Berskjaldaður, sem er saga Einars Þórs Jónssonar. Stíllinn er knappur en efnisríkur, hver setning meitluð og kaflarnir jafnan stuttir, sem gerir bókina þægilega yfir- lestrar. Andstæður mætast, lífsbar- áttan er hörð, móðurmissirinn sár og hugmyndir ungs manns um lífið og tilveruna eru einatt aðrar en gilda sem við- mið í litlu sjávarþorpi vestur á fjörð- um. Sonurinn er að mati föðurins „fullkomlega á skjön við samfélagið sem hefur alið hann“, eins og segir í bókinni. „Tvítugur, týndur og þráir að losna frá Bolungarvík.“ Einar Þór fer og flytur á aðrar slóðir úti í heimi. Kemur svo til baka í heimsókn og finnur þá blendin við- brögð samfélagsins í Víkinni, þegar upplýst er um samkynhneigð hans. Togstreitan verður einnig milli Ein- ars og föður hans, enda þótt margir standi með sínum manni í gegnum þykkt og þunnt. Svo tekur við baráttan við HIV; veiruna sem skók heimsbyggðina fyrir 30-35 árum. Sársauki, ótti, ör- vænting. Veiran varð alnæmi og banamein margra. Lyfin koma loks- ins eða þegar hillir undir heimferð í hnattreisu Einars og Stigs Arnes Vadentofts, eiginmanns hans. Dauð- vona menn hafa þá eytt öllu spari- fénu í því skyni að búa til góðar minningar á fyrirsjáanlegum loka- kafla lífsins, sem reynist svo aðeins verða millispil. Lyfin lengja lífið. Eftirminnilegt fólk sem setur svip sinn á samfélagið og berst fyrir breytingum. „Við förum fram á skilning í samfélaginu,“ segir á bls. 211. Frásögn af fallegu sambandi Einars við dóttur sína – og lífs- reynslu hennar – hreyfir við lesend- um og þegar segir frá bróðurnum Ásgeiri, sem féll fyrir eigin hendi. Límið í lífinu og sögunni allri er svo hjónaband þeirra Einars og Stigs. Ástin er ósvikin út í gegn, eins og segir frá í góðri bók sem snertir les- endur og hefur boðskap. Morgunblaðið/Golli Höfundurinn Rýnir hrósar bók Gunnhildar Örnu Gunnarsdóttur um lífshlaup Einars Þórs Jónssonar. Ævisaga Berskjaldaður bbbbm Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur. Bjartur gefur út. 381 bls.innb. SIGURÐUR BOGI SÆVARSSON BÆKUR Ástin er ósvikin Áður óbirt skrif J.R.R. Tolkien um Miðgarð verða gefin út hjá Harper- Collins-útgáfunni í júní á næsta ári. Þar er meðal annars fjallað um ódauðleika og endurholdgun álfa, landafræði konungsríkisins Gon- dor, skepnurnar sem byggja Núme- nor og hugleiðingar um hvort álfar, hobbitar eða jafnvel konur í hópi dverga geti safnað skeggi. Þetta kemur fram í frétt á vef breska dagblaðsins The Guardian. HarperCollins-útgáfan hefur síð- asta áratuginn gefur út nokkrar áð- ur óbirtar bækur Tolkien, sem lést 1973. Að sögn Chris Smith, fulltrúa útgáfustjóra hjá HarperCollins, kom fyrsta Miðgarðs-saga Tolkien út 1937, en hann skrifaði um heiminn þar til ári áður en hann lést. Að mati Smith veitir nýja útgáfan les- endum eintaka sýn inn í skáld- sagnarheim Tol- kien. Ritstjóri út- gáfunnar er Carl F Hostetter, sem er mikill Tolkien- fræðingur og vann náið með Chri- stopher Tolkien, yngsta syni skáldsins, sem hélt utan um útgáfu verka föður síns þar til hann lést 95 ára að aldri í janúar. Áður óbirt skrif Tolkien um Miðgarð væntanleg J.R.R. Tolkien Sigrún Eldjárn fékk Íslensku bók- menntaverðlaunin fyrir bókina Silfurlykilinn, sem kom út fyrir tveimur áruum. Bókin segir frá Sumarliða og Sóldísi, sem búa með foreldrum sínum í gömlum stætó í heimi þar sem sú tækni sem við þekkjum í dag er gagnslaus eftir óskilgreint allsherjarhrun. Ári síðar kom framhaldið Koparlykillinn og fyrir stuttu Gullfossinn. Bækurnar um Sóldísi og Sumar- liða eru býsna ævintýrakenndar, en samt ekki – Sigrún er í raun að lýsa heimi sem gæti orðið til ef við gáum ekki að okkur. Hún tekur undir það að það sé ákveðinn viðvörunartónn í bókunum en segist þó alls ekki vera með neinar prédikanir eða dóms- dagsspár. „Mig langaði að prófa að gera sögu þar sem símarnir og tölv- urnar eru ekki að þvælast alltaf fyrir okkur og þá var annaðhvort að fara langt aftur í tímann nú eða þá inn í framtíðina og ég valdi það.“ – Í bókunum fléttar þú saman raunveruleika og ævintýri á skemmtilegan hátt. Það er kúnst að skrifa fyrir börn. „Já, það er auðvitað heilmikil kúnst að skrifa fyrir börn. Þau eru kröfuhörð og lesa ekki bók ef hún er leiðinleg. En ég hef alltaf tekið þann pólinn í hæðina að vera ekkert mjög mikið að pæla í því fyrir hvern ég er að skrifa. Ég bara legg af stað og reyni að búa til spennandi og skemmtileg ævintýri. Sennilega er ég aðallega að skrifa fyrir sjálfa mig og mitt innra barn.“ Húmor og léttleiki – Bækurnar eru allar ævintýra- legar á sinn hátt en í Gullfossinum bætir enn í ævintýrið án þess ég vilji segja of mikið. „Í þriðju bókinni safnast saman ýmsir þræðir og allar helstu persón- ur fyrri bókanna gegna þar sínu hlutverki. Þar fyrir utan bætast nýj- ar við sem tengjast hinum fyrri í gegnum tíma og rúm. Allar bæk- urnar þrjár mynda eina samhang- andi heild og ég get því ekki notað frasann um „sjálfstætt framhald“, það þarf eiginlega að lesa þær allar í réttri röð. En fyrri bækurnar eru til í búðunum svo enginn þarf að ör- vænta! Mér er mikið í mun að halda góðum húmor og léttleika þótt kannski sé verið að fjalla um hættur og vonda kalla.“ – Þú nefnir það að þú hafir viljað skrifa bók þar sem símar og tölvur séu ekki að þvælast fyrir. Mér fannst einmitt forvitnilegt hvernig það birtist í bókunum að öll okkar þekking, sem okkur finnst náttúr- lega yfirburðaþekking, sé fallvaltari en okkur grunar. Já, og svo er alltaf gaman að bókum sem hylla bækur. „Það er ágætt að minna krakka og reyndar fullorðna líka á að þessi yfirburðatækni er kannski ekki eilíf. Hvað vitum við um það? Við höfum auðvitað núna síðustu mánuði verið að upplifa ástand sem hefur sett strik í nánast allt daglegt líf og hver veit hvað gerist næst. Að þessu sögðu þá vil ég alls ekki hræða les- endur mína of mikið eða valda nein- um áhyggjum. Sagan endar líka á því að gefa okkur von um að bjartir tímar blasi við. Við verðum sko aldrei á flæðiskeri stödd á meðan við eigum fullt af bókum.“ – Ójá, bækur gera allt betra. Og á þeim nótum, ertu með á hreinu hvað bækurnar verða margar? „Það verða ekki fleiri bækur í þessari seríu. Það kemur alltaf að því að maður skilar fólkinu af sér og snýr sér að einhverju öðru, nýjum persónum, ferskum furðuheimi, öðruvísi stemningu. Það er einmitt það sem er svo skemmtilegt og það ætti auðvitað enginn að vera að skrifa barnabækur sem ekki þykir það skemmtilegt.“ arnim@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sögulok Gullfossinn er síðasta bókin í þríleik Sigrúnar Eldjárn um börnin Sóldísi og Sumarliða. Heilmikil kúnst að skrifa fyrir börn  Sigrún Eldjárn segist skrifa fyrir sjálfa sig og sitt innra barn Ráðherrar fornminja, ferðamála og menningar í Egyptalandi buðu fjölda gesta í kynningu við rústa- borgina Saqqara í eyðimörkinni rétt utan við Kaíró, við þrepapíramídann fræga. Ekki er nema mánuður síðan fornleifafræðingar sem kanna minj- ar þar undir sandinum fundu 53 kist- ur með múmíum í og vakti það mikla athygli. En nú bætti sami hópur um betur og kynnt var að hann hefði fundið yfir eitt hundrað innsiglaðar og fagurlega skreyttar kistur, sem grafarræningjar hefðu aldrei fundið, og voru því múmíur í öllum og fjöldi fagurra og merkra gripa. „Forn- leifafundur ársins 2020“ sögðu ráð- herrar og fræðimenn einum rómi. Kisturnar fundust í þrennum grafgöngum á 12 metra dýpi og munu múmíurnar vera af hátt- settum embættismönnum frá því fyrir um 2.100 til 2.500 árum. Yfir 100 múmíur fundust AFP Merkisfundur Við fjölmenna kynningu á fornleifafundinum var ein kistan opnuð og röntgenmynd tekin fyrir gesti af múmíunni sem var í henni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.