Morgunblaðið - 24.11.2020, Side 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. NÓVEMBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
71%
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
HÖRKUSPENNANDI MYND
BYGGÐI Á SANNRI SÖGU.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Rithöfundurinn Jan Morris er lát-
in, 94 ára að aldri. Hún var þekkt
fyrir vinsæl sagnfræðirit, sem
þóttu við alþýðuskap, og vandaðar
og persónulegar ferðabækur en
hún var meðal allra virtustu ferða-
sagnahöfunda síðustu áratuga.
Jan Morris fæddist í Wales og
bjó þar alla sína tíð. Fyrstu bæk-
urnar skrifaði hún undir skírnar-
nafni sínu, James, og var þá faðir
fimm barna, en árið 1972 gekkst
hún undir kynleiðréttingarferli og
breytti nafninu í Jan. Sem James
Morris var hún eini blaðamað-
urinn í fyrsta leiðangrinum sem
náði á topp Everest-fjalls árið
1953, þegar Edmund Hillary og
Tenzing Norgay komust á tindinn.
Við skrásetningu sína á leiðangr-
inum fór Morris tvo þriðju hluta
leiðarinnar með þeim. Og fræg
frétt hennar um að fyrstu menn-
irnir hafi náð tindi Everest birtist
á forsíðu The Times 2. júní þar ár,
sama dag og Elísabet II var
krýnd drottning Breta.
Morris er annars einkum
minnst fyrir þriggja binda verk,
Pax Britannica, sem kom út á ár-
unum 1968-72 og fjallar um
breska heimsveldið, og fyrir bæk-
ur sem hún skrifaði um ýmsar
merkisborgir og þykja fjalla um
sögu þeirra og gildi á lifandi og
áhugaverðan hátt. Hún skrifaði til
að mynda bækur um Oxford, Fen-
eyjar, Trieste, New York og Hong
Kong.
Dáð Jan Morris var meðal fremstu
ferðasagnahöfunda síðustu áratuga.
Ferðasagna-
höfundurinn
Jan Morris látin
Bandarísku dægurtónlistar-
verðlaunin The American Music
Awards voru afhent í Los Angeles á
sunnudagskvöldið og hrepptu
margar skærustu dægurstjörnur
samtímans þar verðlaun. Þrátt fyr-
ir að aðstandendur hátíðarinnar
gættu að sóttvörnum og fjarlægð
milli gesta og tónlistarfólks var
engu að síður nokkur fjöldi fólks í
salnum og margar stjarnanna sem
tilnefndar voru komu fram á svið-
inu. Aðrir listamenn birtust á skjá,
og á sjónvarpsskjám þeirra sem
fylgdust með að heiman, í senum
sem voru kvikmyndaðar fyrirfram.
Helstu verðlaunin, listamaður
ársins, féllu Taylor Swift í skaut.
Hún var einnig valin eftirlætis
kvenkyns listamaðurinn og átti
myndband ársins. Swift hefur þar
með hlotið fleiri AMA-verðlaun en
nokkur annar tónlistarmaður, 32
alls.
Doja Cat var valinn besti „nýi“
tónlistarmaðurinn, samstarf ársins
áttu Dan + Shay með Justin Bieber,
„10.000 Hours“. Bieber var einnig
valinn besti karlkyns listamaðurinn
og Dan + Shay besti kántrídúett-
inn. Besta poppsveitin var valin
BST og Juice WRLD og Nicki Minaj
bestu rappararnir.
Popp Dua Lipa flutti „Don’t Start Now“, sem var valið besta popplagið. Á borði Jennifer Lopez og hinn kólumbíski Maluma fluttu saman lag.
AFP
Bestur Justin Bieber tróð upp með hópi lipurra dansara. Hann var valinn besti karlkyns tónlistarmaðurinn.
Tilnefnd Megan Thee Stallion var tilnefnd
til þrennra verðlauna – en hlaut engin.
Systkinin Hin vinsæla unga söngkona Billie Eilish kom fram ásamt
bróður sínum, lagahöfundinum Finneas. Hún hlaut ekki verðlaun.
Swift
hlaut flest
verðlaun