Bæjarins besta


Bæjarins besta - 13.02.1991, Side 12

Bæjarins besta - 13.02.1991, Side 12
12 BÆJARINSBESIA Ísafjörður: Oddur sigraði á fyrsta skvass mótinu FYRSTA skvassmótið sem haldið hefur verið á Vestfjörðum fór fram í Stúd- íó Dan fyrir stuttu. Mikil þátttaka var í mótinu og keppni mikil og spennandi. Sigurvegari í þessu fyrsta skvassmóti varð Oddur Jóns- son frá ísafirði. í öðru sæti varð Einar Halldórsson og þriðji Egill Sigmundsson. I framhaldi af keppninni og þeim mikla áhuga sem orð- inn er á þessari íþrótt hefur Stúdíó Dan ákveðið að hafa skvasssalinn opinn á sunnu- dögum frá kl. 10-13 og verð- ur þá keppt í skvassi fyrir lít- ið gjald. Dómari í mótinu var Jökull Jörgensen sem mun vera einn að betri skvassleikurum landsins. Daginn fyrir mótið fór fram í Stúdíó Dan kennsla í skvassi sem Jökull sá um og var námskeiðið fullsetið. HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á ÍSAFIRÐI Krabbameinsleit Krabbameinsleit verður framvegis á Heilsugæslustöðinni á ísafirði annan hvern mánudag kl. 15-16 frá og með 18. febrúar. Tímapantanir í síma 4500. / Isafjarðarkaupstaður Forstöðumaður gæsluvallar Starf forstöðumanns gæsluvallar við Túngötu er laust til umsóknar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. mars nk. Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður, Helena í s. 3986 kl. 13-16 virka daga og í síma 4164 heima. Eyrarskjól Frá 1. mars er 100% starf laust á yngri dagheimilisdeild. Frá 1. apríl er 50% starf laust á yngri dagheimilisdeild. Einnig er 100 % starf laust á eldri dagheimilisdeild frá sama tíma. Æskilegt er að umsækjendur séu eigi yngri en 25 ára, þó ekki skilyrði. Upplýsingar gef- ur forstöðumaður í síma 3685. * ' /' Áætlað er að halda fleiri námskeið á næstunni og verða þau auglýst sfðar. -s. ísafjörður: Elding með Veröld Bílasalan eld- ING Skeiði 7, ísafirði hefur tekið við söluumboði fyrir Ferðamiðstöðina Ver- öld. Hjá Eldingu liggja frammi sölubæklingar og allar upplýsingar um þær ferðir sem í boði eru. í fréttatilkynningu frá Ferðamiðstöðinni Veröld segir m.a. að vegna mjög hagstæðra samninga geti fyrirtækið boðið farþegum sínum upp á frábæra þjón- ustu á lagmarksverði. Fyr- irtækið býður m.a. upp á sólarlandaferðir, viðskipta- ferðir, ferðir á vörusýning- ar, skíðaferðir, sumarhús á suður írlandi, sumarhús í Þýskalandi, Austurríki og Sviss auk ýmissa sérferða. Ísafjörður: Ljótt er það... s ASÍÐASTLIÐNU sumri gekk bæjarsjóður ísafjarðar fyrir átaki til fegrunar á kaup- staðnum. Meðal þess sem var gert og er bæjarfélaginu til sóma, var að tyrfa ýmis opin svæði og laga til. Tók bærinn nokkrum stakkaskiptum að þessu verki loknu þótt ýmsu sé enn ólokið. Meðal þeirra svæða sem tyrfð voru var opið svæði niður við Sundstræti, til hliðar við fisk- vinnslufyrirtækið ísver. Pað svæði hafði verið heldur óhrjálegt á að líta undanfarin ár en varö hið fallegasta að verki loknu. Nú er svo komið að svæðið lítur jafnvel enn verr út og er þar um að kenna starfsmönnum bæjarins. Þeir hafa nánast eyðilagt þessi svæði með því að aka stórvirkum vinnuvélum yfir viðkvæman grasblett, til þess eins að geta ekið snjó, sem lítið hefur verið af í vetur, í sjóinn. Hægt hefði verið að aka snjónum aðeins neðar í sjóinn en ekki að skemma. Já, Ijótt er það...

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.