Morgunblaðið - 11.12.2020, Síða 11

Morgunblaðið - 11.12.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020 Akureyrarbær kynnti í gær tillögur að breytingum á miðbæjarskipulagi. Svæðið sem breytingarnar ná til af- markast við Glerárgötu, Hofsbót og Skipagötu, en þar eru nú fyrir bíla- stæði að stærstum hluta. Helstu leiðarljós núverandi skipu- lags eru sögð óbreytt. Markmiðið er að nýta betur opið landrými á milli Skipagötu og Glerárgötu með nýjum húsaröðum, stækka þannig miðbæ- inn og bæta tengingu við höfnina og menningarhúsið Hof með rúmgóðum austur-vestur-gönguásum, segir í til- kynningu frá bænum. Hefja uppbyggingu sem fyrst Tillögurnar byggjast á niðurstöð- um þverpólitísks stýrihóps með fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn. Stefnt er að því að hefja uppbygg- ingu sem allra fyrst, en skipulagsráð samþykkti í fyrra að gera breytingar á deiliskipulaginu sem tók gildi 2014. Samkvæmt þeim breytingartillög- um sem nú liggja fyrir verður Gler- árgata áfram 2+2 vegur í núverandi legu, en gert er ráð fyrir þrengingu á einum stað með gönguþverun. Þar sem ekki er gert ráð fyrir færslu Glerárgötu minnka lóðir og bygging- arreitir við Skipagötu og Hofsbót. Lagt er til að hluti Skipagötu verði einstefna til suðurs og að sama gildi um Hofsbót frá Skipagötu að Strandgötu. Þá er gert ráð fyrir nýj- um og afmörkuðum hjólastíg eftir Skipagötu sem og reiðhjólastæðum og -skýlum fyrir almenning í mið- bænum, auk þess sem kvöð er sett um reiðhjólageymslur í öllum nýjum byggingum innan svæðisins. Lifandi starfsemi á jarðhæð Loks er gerð krafa um að á jarð- hæð nýrra bygginga sem snúa að Skipagötu, Hofsbót og austur-vest- ur-gönguásum verði lifandi starf- semi, svo sem verslanir, veitinga- staðir, þjónusta og menningar- starfsemi sem stuðli að fjölbreyttu miðbæjarlífi. Hilda Jana Gísladóttir, formaður stýrihópsins, vonast til að vinnan verði til þess að uppbygging í mið- bænum geti hafist sem fyrst. Það sé löngu tímabært. „Hlutverk stýrihópsins var að leita leiða til þess að gera breytingar á gildandi deiliskipulagi þannig að meirihluti bæjarstjórnar gæti sam- þykkt að vinna samkvæmt því. Það er sannarlega fagnaðarefni að það hafi tekist og að grunnhugmynda- fræði skipulagsins byggi enn á vinnu sem kaupmenn í bænum hófu undir merkjum „Akureyri í öndvegi“ og vinningstillögu úr hugmyndasam- keppni sem haldin var árið 2005,“ segir Hilda Jana í tilkynningunni. Tillögurnar voru kynntar á streymisfundi á facebooksíðu Akur- eyrarbæjar í gær. Upptaka er að- gengileg á vef bæjarins, auk nánari upplýsinga um miðbæjarskipulagið. Tillögurnar voru hannaðar af Koll- gátu arkitektúr, Landslagi og Eflu. Teikningar/Akureyrarbær Akureyri Svona gæti svæðið litið út á milli Glerárgötu og Skipagötu, nái tillögur að miðbæjarskipulagi í gegn. S tra n d g a ta S trandgata K a u p va n g ss tr æ ti Glerárgata Glerárgata Skipagata Hofsbót Hof Tillögur að breyttum miðbæ Akureyrar  Byggingar á bílastæðunum milli Glerárgötu og Skipagötu Miðbær Horft eftir Glerárgötu til norðurs og upp Kaupvangsstrætið. Á þessum reit núna eru bílastæði. Undir byggingunum verða bílakjallarar. Héraðsdómur Suðurlands hefur gert karlmanni að greiða rúmlega 15 milljónir í bætur til hjóna sem keyptu af honum fasteign í Blá- skógabyggð árið 2017. Er ástæðan sú að mikil mygla fannst í húsnæðinu þegar fólkið ætlaði að fara í endur- bætur, en í dóminum kemur fram að seljandanum hafi átt að vera ljóst að óeðlilega mikill raki væri í hluta hússins. Hafi hann þannig ekki getað verið grandalaus um þá galla sem fyrir- fundust, en ekkert var getið um þá í söluyfiriti eða við sölu húsnæðisins. Segir í dóminum að þar sem seljand- inn hafi ekki getað talist grandalaus um gallana hafi honum borið að láta stefnendur vita um tilvist þeirra, eða að minnsta kosti að ástæða væri til að skoða mögulegan raka í gólfi. Í söluyfirliti eignarinnar var ekki get- ið um að neitt væri að henni. Með söluyfirlitinu fylgdi einnig yfirlýsing seljanda um ástand fast- eignarinnar og kom þar heldur ekk- ert fram um galla, heldur þvert á móti var þar tekið fram að ekki væri vitað um neinn sveppagróður, myglu, raka eða annað sem betur mætti fara. Þá er tekið fram að dren hafi verið endurnýjað árið 2013. Kaupendurnir sögðu að við skoðun hefðu þeir verið upplýstir um smá- vægilegan leka frá eldhúsvaski, en gert hefði verið við hann. Greiðir 15 milljónir í bætur vegna myglu  Óeðlilega mikill raki í hluta hússins Hér koma við sögu þekktir Íslendingar, alþjóðlegir leiðtogar, frumbyggjar og baráttufólk um víða veröld. SKEMMTISÖGUR SEM KOMA Á ÓVART Ólafur Ragnar Grímsson rifjar upp atburði og persónur í stíl smásögunnar og beitir bæði skarpskyggni og kímni við frásögnina. LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið 10–19 alla daga til jóla | www.forlagid.is HEIMAVÍK EHF til sölu Vegna aldurs eigenda er Heimavík ehf til sölu. Mikil tækifæri Yfir 40 ára viðskiptasamband við Taiwan og Kína Viðskiptasamband við Danmörku Möguleiki á að bæta við vörutegundum Erum sterk í dag í silunga- og laxanetum, auk grásleppuneta o.fl. Hentar mjög vel sem viðbót við annan rekstur Eigendur eru tilbúnir að aðstoða nýja eigendur Lagerstaða mjög góð fyrir næsta ár Upplýsingar veitir: Árni Björn Birgisson, endurskoðandi, s. 848 3040. Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur saman, sýnir stuðning og samhug eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur JÓLASÖFNUN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.