Morgunblaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 11.12.2020, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2020 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fossar í Rjúkanda, Hvalá og Eyvindar- fjarðará í Árneshreppi á Ströndum eru meðal fossa og fossasvæða sem lagt er til að verði friðuð og bætt inn á framkvæmda- áætlun náttúruminjaskrár. Þetta kemur fram í samantekt Náttúfræðistofnunar, en stofnuninni ber lögum samkvæmt að velja svæði á áætlunina til verndar náttúrufyrir- bærum ýmiss konar. Fram kemur í samantekt um viðbótar- tillögur fyrir fossa að fjölmargir fossar séu á náttúruminjaskrá og nokkrir hafi þegar verið friðlýstir. Við val á fossum var stuðst við fjölrit Náttúruverndarráðs, Fossar á Íslandi, þar sem tekin eru saman drög að fossaskrá og fossarnir flokkaðir í þrjá flokka eftir verndargildi. Yfirvofandi ógn Alls eru 22 fossar í efsta flokki í skránni og ættu skilyrðislaust að njóta verndar samkvæmt skilgreiningu og 30 í öðrum flokki, en þá væri æskilegt að friða, segir í samantektinni. Nú eru 15 af 22 fossum í efsta flokki friðaðir. Einn af þeim sem ekki njóta sérstakrar verndar er innan fyrir- hugaðs hálendisþjóðgarðs, en það er foss innst í Stakkholtsgjá á Goðalandi. Lagt er til að fossar á þeim svæðum sem eftir standa verði friðaðir en það eru Tröllafoss, Glymur, Hengifoss og Litlanes- foss, Kvernufoss, Seljalandsfoss og Gljúfrabúi. Lagt er til að sjö fossar á fjór- um svæðum úr öðrum flokki verði friðaðir en það eru Kolufossar, fossar í Vatnsdalsá, Stuðlafoss á Jökuldal, Aldeyjarfoss, Ing- vararfoss og Hrafnabjargafoss í Skjálf- andafljóti og Skeifárfoss á Tjörnesi. Þá er lagt til að fossar á tveimur svæðum sem ekki eru í fyrrnefndri fossaskrá verði friðaðir, en það eru fossar í Rjúkanda, Hvalá og Eyvindarfjarðará og Fossabrekk- ur í Rangárbotnum. Fram kemur í skýrsl- unni að við val á fossum sem ekki eru í efsta flokki var m.a. horft til landfræðilegrar dreifingar og yfirvofandi ógnar. Gljúfur og gil innan marka Við afmörkun svæða umhverfis fossa var miðað við 200 metra jaðarsvæði, ýmist út frá miðlínu ánna eða frá bökkum þeirra þar sem árnar eru vatnsmiklar og breiðar. Leitast var við að gljúfur og gilbarmar sem mynda umgjörð og landslagsheild fossanna væru innan skilgreindra marka og að aðrir fossar í grennd við aðalfossinn féllu innan friðlýsingarmarka, enda væru þeir hluti af landslagsheildinni. Á Náttúrufræðistofnun Íslands er unnið að skráningu jarðminja, þar á meðal fossa. Í framhaldi af tillögum sem nú hafa verið lagðar fram og þegar skráning fossa verður komin vel á veg, verður hægt að fara í kerf- isbundið mat á verndargildi og verndar- stöðu einstakra fossa, segir í samantekt- inni. Með slíku mati verður hægt að leggja fram ítarlegri tillögur um vernd fossa með hliðsjón af lögum um náttúruvernd þar sem skoðuð verði jarðfræði fossa, landmótun, dreifing þeirra um landið, ógnir, mikilfeng- leiki, sérstaða og almenn fegurðarsjón- armið. Í skýrslunni er rakið að Náttúrufræði- stofnun hafi í apríl 2018 lagt fram tillögur að 112 svæðum sem valin voru til verndar vistgerðum, fuglum og jarðminjum. Í júlí 2018 óskaði umhverfis- og auðlinda- ráðuneytið eftir því að stofnunin skoðaði hvort rétt væri að bæta við nokkrum til- lögum á B-hluta náttúruminjaskrár og þá sérstaklega verndarsvæðum fyrir fossa og hella, selalátur, víðerni og heitar og kaldar lindir. Aðgengilegt í kortasjá Tillögur fyrir þessi náttúrufyrirbæri voru lagðar fram til ráðuneytisins í maí 2019. Þær voru rýndar í ráðuneytinu og bornar saman við upprunalegu tillögurnar með tilliti til forsendna og verklags við skil- greiningu viðmiða, forgangsröðunar og vals á svæðum og einnig framsetningar og innihalds umfjöllunar. Niðurstaða ráðu- neytisins í janúar í ár var að tólf tillögur um verndarsvæði fossa yrðu unnar áfram fyrir framkvæmdaáætlun. Óskað var eftir því að stofnunin ynni staðreyndasíður fyrir ný svæði þar sem fram kæmi lýsing á svæðum, þeim náttúru- verðmætum sem í þeim felast, aðsteðjandi ógnum og hugsanlegum aðgerðum til verndar þar sem það ætti við. Jafnframt yrði gerð tillaga að landfræðilegri afmörk- un nýrra svæða sem yrði aðgengileg í kortasjá stofnunarinnar og eru nýju til- lögusvæðin nú aðgengileg í kortasjá nátt- úruminjaskrár (natturuminjaskra.ni.is). Staðreyndasíður greina frá hverju svæði fyrir sig, forsendum fyrir vali, aðsteðjandi ógnum og mögulegum aðgerðum til vernd- ar. Tillögur NÍ fara væntanlega til með- ferðar í umhverfisráðuneyti og Umhverf- isstofnun. Morgunblaðið/RAX Ljósmynd/Sunna Björk Ragnarsdóttir/Náttúrufræðistofnun Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fossar á tólf svæðum fái aukna vernd  Tillaga um nokkra fossa í Árneshreppi  Glymur, Kvernufoss, Gljúfrabúi og Kolufossar á listanum Morgunblaðið/RAX Drynjandi Einn margra fossa í Hvalá í Árneshreppi. Aldeyjarfoss Skeifárfoss á Tjörnesi Hengifoss

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.